Morgunblaðið - 21.10.1992, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1992
7
Forystumenn iðnaðar og ríkisstjórnin
Stuðningi lýst við
lækkun kostnaðar
Á FUNDI forystumanna íslensks iðnaðar með forsætisráðherra og iðn-
aðarráðherra í gær lýstu forystumennimir því yfir að þeir yrðu í sam-
floti með- Vinnuveitendasambandi íslands og Alþýðusambandi Islands
um leiðir til úrbóta í efnahagsmálum þjóðarinnar. Að sögn Gunnars
Svavarssonar, formanns Félags íslenskra iðnrekenda, var tilgangurinn
einnig sá að draga fram ástand og horfur í íslenskum iðnaði.
Gunnar sagði að forystumenn ís-
lensks iðnaðar styddu þær leiðir sem
ræddar væru á vettvangi VSÍ. „Við
göngum út frá því sem gefnu að
raungengið sé of hátt fyrir iðnaðinn,
en við viljum fara þá leið að lækka
kostnað og inni í því er afnám að-
stöðugjalds, tryggingagjöld og svo
framvegis. Við förum einnig fram á
lækkun raforkuverðs rétt eins og
fískvinnslan, því raforka hefur
hækkað mikið að raungildi til stærri
fyrirtækja, eða um 33% frá því í
ársbyijun 1988,“ sagði Gunnar.
Hann sagði að fulltrúar Landssam-
bands iðnaðarmanna hefðu einnig
lagt fram annað mál sem snerti opin-
ber innkaup ríkisins, sem mönnum
þætti illa sinnt af hálfu hins opin-
bera. Ekki væri staðið rétt að þeim
málum og alls ekki hvatt til þess
að íslenskar vörur væru valdar.
. Gunnar sagði að kannanir sýndu
að samdráttur í iðnaði væri um 6%
fyrstu níu mánuði ársins miðað við
sama tíma í fyrra. Þá hefði síðustu
ár verið samdráttur í útflutningi iðn-
aðarvara. 22% samdráttur varð í
útflutningi á síðasta ári í almennri
útflutningsvöru, eins og lagmeti,
ullarvöru, fískimjöli og tæknivöru til
sjávarútvegs. Mikil samdráttur hefði
fyrst og fremst orðið í útflutningi
ullar og lagmetis. Þjóðhagsstofnun
spáir 11% samdrætti í þessum út-
flutningi á þessu ári. „Þetta verður
náttúrulega til þess að afkoman
versnar í greininni,“ sagði Gunnar.
Slóvenía
Oskað aðstoðar Is-
lendinga við rekst-
ur fLóttamannabúða
STJÓRNVÖLD í Slóveníu fóru þess á leit við Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra, er hann var staddur þar í landi í opinberri
heimsókn í síðustu viku, að íslendingar veittu aðstoð við rekstur flótta-
mannabúða i landinu. Þar eru nú um 100.000 flóttamenn frá Bosníu-
Herzegóvinu. Jón Baldvin segir málið í athugun.
Jón Baldvin heimsótti flótta-
mannabúðir í heimsókn sinni til Slóv-
eníu og tók flóttamenn tali. Að þeirri
heimsókn lokinni átti hann fund um
flóttamannavandann með utanríkis-
ráðherra Slóveníu og ráðgjöfum
hans. „Þeir tjáðu mér að þeir hefðu
í sinni umsjá 100.000 manns, flótta-
menn frá Bosníu-Herzegóvínu. Þeir
vöktu athygli á því að Króatar byggju
við enn stærra vandamál, en þar er
flóttamannafjöldinn orðinn
350.000,“ sagði Jón Baldvin. „Þeir
sögðu að nokkrar Vestur-Evrópu-
þjóðir hefðu haft þann hátt á aðstoð
sinni að taka að sér rekstur flótta-
mannabúða og nefndu til sögunnar
Ítalíu, sem rekur fernar búðir, og
Danmörku og Svíþjóð, sem reka ein-
ar búðir hvor.“
Jón Baldvin sagðist telja þetta
athyglisverða tillögu og hyggst hann
láta skoða hana í samráði við íslenzk
samtök, sem reynslu hafa af flótta-
mannahjálp, til dæmis Rauða kross-
inn og Hjálparstofnun kirkjunnar.
„Slóvenar höfðu ekki tiltækar upp-
lýsingar um kostnað og einstaka
þætti þessa verkefnis, þannig að við
munum snúa okkur til Dana og Þjóð-
veija, leita eftir því hvernig þeir
hafa leyst verkið af hendi og hvaða
kostnaður er því samfara, áður en
við ákveðum hvort við förum þessa
leið. Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna hefur beint því til okkar
eins og annarra þjóða að hún kjósi
fremur að hjálpin verði af þessu tagi
en að viðkomandi lönd taki við flótta-
mönnum. Það teljur hún vera neyðar-
ráðstöfun, sem helzt eigi við um
munaðarlaus börn,“ sagði Jón Bald-
vin.
Morgunblaðið/Sverrir
Forystumenn iðnaðarins á fundi með forsætisráðherra og iðnaðarráðherra. Frá vinstri: Þórleifur Jóns-
son, framkvæmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna, Haraldur Sumarliðason, forseti Landssambands
iðnaðarmanna, Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Davíð Oddsson, forsætisráðherra, Gunn-
ar Svavarsson, formaður Félags íslenskra iðnrekenda, Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra iðnrekenda, og Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis.
PHILIPS HEFUR AUGUN OPIN FYRIR NÝJUNGUM
Ljóðasafn Vilhjálms
frá Skáholti gefið út
Heildarsafn ljóða Vilhjálms
frá Skáholti er komið út og ber
það nafnið „Rósir í mjöll". Helgi
Sæmundsson skrifar inngang
um ævi og sérstöðu skáldsins.
Eftir Vilhjálm frá Skáholti liggja
Qórar frumsamdar bækur: Nætur-
ljóð 1931, Vort daglega brauð 1935
og 1950, Sól og menn 1948 og
Blóð og vín 1957. Sýnisbók af ljóð-
um skáldsins, Jarðnesk ljóð, kom
síðan út 1959 sem Helgi Sæmunds-
son skrifaði líka formála að. Bókar-
heiti þessa ljóðasafns er tekið úr
minningaljóði Kristjáns frá Djúpa-
læk um skáldið og í inngangi seg-
ir: „Rósir í mjöll“ er táknrænt og
skáldlegt heiti og réttnefni um
kvæði Vilhjálms frá Skáholti.“
Helgi Sæmundsson sagði á
blaðamannafundi í gær, að Vil-
hjálmur frá Skáholti hefði haft sér-
stöðu bæði sem verkalýðs- og
Reykjavfkurskáld. Hann hafí verið
einskonar andlegur forystumaður
verkalýðsins og innfæddur Reyk-
víkingur, sprottið upp eins og blóm
í borginni sjálfri.
Á bókararkápu er mynd af
skáldinu með frostrósir í bak-
sviði eftir Sigfús Halldórsson
sem myndskreytir einnig bók-
ina.
Útgefandi er Hörpuútgáfan og
bókin er 208 blaðsíður. Áætlað
söluverð út úr búð er krónur 2.800.
NÝR100 RIÐA SKJÁR ÞÆGILEGRIFYRIR AUGUN
Að horfa á sjónvarp er hluti hins daglega lífs.
Vaninn lokar augum okkar fyrir göllum og
vanstillingu tækjanna. - Ef þú horfir vel á
hefðbundinn skjá, muntu sjá að myndin flöktir.
Þessvegna hefur Philips hannað nýja kynslóð
sjónvarpstækja. Philips Matchline, 100 riða,
hágæðatæki meðfullkomnu íslenskutextavarpi.
Philips myndlampi,
mattur, sem gefur
50% meiri skerpu
ogeðlilegri liti.óháð
birtuskilyrðum.
Skjástærðir;
25-28-33 tommu.
Öll Philips tæki eru
með NICAM steríó.
Texlavarp
Fullkomið íslenskt
textavarp með 20
síður í minni.
MIM
Mynd í mynd, hægt
er að hafa tvær
stöðvar á skjánum í
einu.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLtJNNI SÍMI691B 20
I
l
|
3H NN3nS!Xtí3IH