Morgunblaðið - 21.10.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1992
13
Nafnlausi leikhópurinn
NAFNLAUSI leikhópurinn var
stofnaður formleg-a 20. septem-
ber síðastliðinn í Fannborg 1,
Kópavogi.
í tilefni af 20 ára afmæli Félags-
málastofnunar í Kópavogi fór fé-
lagsmálaráð Kópavogs þess á leit
við bæjarráð Kópavogs að lögð
yrði fram ákveðin Qárupphæð til
stofnunar leikhóps fyrir eldri borg-
ara Kópavogs. Upphæðin átti að
vera einskonar félagsleg gjöf til
bæjarbúa vegna afmælisins.
Bæjarráð samþykkti síðan á
fundi sínum 26. mars 1992 að veita
fé til þessa verkefnis og styðja við
leikhópinn í framtíðinni í samræmi
við ákvæði leiklistarlaga. Ásdísi
Skúladóttur, leikstjóra, var falið að
vinna að stofnun slíks leikhóps með
áhugamannahópi sem þegar var
fyrir hendi.
Kynningarfundur var haldinn 9.
apríl síðastliðinn í Fannborg 1.
Undirbúningsnefnd var kjörin, sem
einnig átti að setja upp leikdag-
skrá. í nefndinni voru: Anna
Tryggvadóttir, Hans Clausen, Ind-
riði Guðjónsson, Rannveig Löve og
Sigríður Steindórsdóttir.
♦ ♦ ♦
Tólfta júní síðastliðinn frum-
sýndi Nafnlausi leikhópurinn í Fé-
iagsheimili Kópavogs leikritið
Spegilinn, leikgerð úr^ samnefndri
smásögu eftir Fríðu Á. Sigurðar-
dóttur. Ásdís Skúladóttir var leik-
stjóri og höfundur leikgerðar, en
Hlín Gunnarsdóttir ráðgefandi við
leikmynd og búninga. Leikendur
voru Valdimar Lárusson og Sigurð-
ur Grétar Guðmundsson. Þetta var
í fyrsta skipti sem leikverk eftir
Fríðu Á. Sigurðardóttur er sett á
svið.
Kór Nafnlausa leikhópsins söng
kvæði sem Böðvar Guðlaugsson
samdi í tilefni þessa atburðar. Ás-
laug Jóhannsdóttir las kvæði.
Ragna Gunnarsdóttir flutti frum-
samdar gamanvísur. Kynnir á
frumsýningunni var Rannveig
Löve. Einnig kom fram „Krumpu-
galiakóngur Kópavogs“ með sitt
fólk úr gönguklúbbnum Hana-nú í
Kópavogi. Vonir standa til að unnt
verði að færa þetta verkefni aftur
upp í haust.
Á stofnfundinum var Sigurður
Grétar Guðmundsson fundarstjóri
og Anna Tryggvadóttir fundarrit-
ari. Formaður var kosinn Valdimar
Lárusson. Með honum í aðalstjóm
voru kjömar Rannveig Löve og
Sólrún Yngvadóttir, Guðrún Þór
varaformaður og Indriði Guðjóns-
son og Sigríður Steindórsdóttir
varamenn.
(Fréttatilkynning)
Hér afhendir Ásdis Skúladóttir Valdimar Lárussyni öll gögn Nafn-
lausa leikhópsins fyrir hönd undirbúningsnefndar.
Tónlistarfélag
Borgarfjarðar
Söngdag-
ar og tón-
leikar í
Borgarfirði
Hvannatúni, Andakíl.
í UPPHAFI27. starfsárs TónUst-
arfélags Borgarfjarðar býður
félagið öllum Borgfirðingum,
yngri sem eldri, til söngdaga að
Kleppjárnsreykjum helgina 23.
til 25. október.
Þar munu þau Jón Stefánsson
organisti og stjómandi við Lang-
holtskirkju og Margrét Bóasdóttir
sópransöngkona og stjórnandi
Kvennakórsins Lissýar með aðstoð
Theodóru Þorsteinsdóttur skóla-
stjóra leiðbeina öllum, sem hafa
gaman af að syngja eða viija reyna
að byija að syngja í kór án nokk-
urra skuldbindinga. Jón og Margrét
hafa góða reynslu af námskeiðum
sem þessum og nota gjaman efni
úr „fjárlögunum“, lögum úr gömlu
þjóðlegu vísnasafni.
Kostnaður vegna leiðbeinenda
greiðir Tónlistarfélagið. Þetta
fyrsta verkefni vetrarins er m.a.
tilkomið vegna styrks úr Menning-
arsjóði Sparisjóðs Mýrasýslu að
upphæð ein milljón kr., sem það
hlaut fyrir einu ári. Stjóm félagsins
hefur ákveðið að veija hluta styrks-
ins til eflingar og stuðnings því
mikla sönglífí, sem nú dafnar í
Borgarfirði. Á dagskrá söngdag-
anna eru söngæfmgar, raddþjálfun,
kennsla, kvöldvaka, heimsókn í
Reykholt og í lokin söngskemmtun
í Logalandi sunnudaginn 25. októ-
ber kl. 15, sem er öllum opin.
Annað verkefni fylgir í kjölfarið
þegar Jónas Ingimundarson píanó-
leikari heimsækir nemendur grunn-
skólanna og heldur tvenna kvöld-
tónleika dagana 27. og 28. októ-
ber. Jónas kýs sjálfur að kalla þá
góðvinafundi, þar sem tónlistin er
aðalatriðið og flytjandinn leiðir
gesti sína til hlustunar og skilnings
á henni.
Þann 10. nóvember mun Mar-
grét Bóasdóttir og klarinettutríó
halda skemmtun í Logalandi. í
stjóm Tónlistarfélagsins eru Jónína
Eiríksdóttir, Kleppjárnsreykjum,
Margrét Guðjónsdóttir, Hvassafelli,
og Rebekka Þiðriksdóttir, Borgar-
nesi.
- D.J.
F I
Göngudagurinn
Reuh avih
í tilefni af gönguátaki Landssamtakanna ÍÞRÓTTIR
FYRIR ALLA sem hefst formlega á morgun, fimmtudaginn
22. október, stendur Reykjavíkurborg fyrir göngu þann dag.
Gangan hefst viö Ráöhús Reykjavíkur kl. 12.15.
Borgarstjórinn í Reykjavík Markús Örn Antonsson mun leiöa
gönguna sem lýkur aftur á sama staö um 30 mínútum seinna.
Viö viljum hvetja starfsmenn stofnana og fyrirtækja í
miðborginni til að taka þátt í göngunni og minnast þess aö
GANGA ER GÓÐ ÍÞRÓTT.
Hristum af okkur slenið og göngum til betri heilsu.
IÞRITTIR FVRIR RLLR