Morgunblaðið - 21.10.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1992
17
Tímasprengja á Reykj avíkurflugvelli
eftir Svein
Aðalsteinsson
Undirritaður hrökk óneitanlega við,
þegar ofanskráð fyrirsögn blasti við
í Morgunblaðinu þriðjudaginn 13.
okt. Hafði greinarhöfundurinn, Ólína
Þorvarðardóttir, ef til vill komist að
raun um að vegna ófulinægjandi við-
halds á Reykjavíkurflugvelli mætti
líkja honum við tifandi tímasprengju?
Við lestur greinarinnar kom síðan
í ljós, að um enn eina grein fordóma
gegn og vanþekkingar á flugi var
að ræða. Óneitanlega er það mikill
ábyrgðarhlutur af kjörnum borgar-
fulltrúa Reykvíkinga að tala þannig
um Reykjavíkurflugvöll. En Ólína er
því miður ekki ein um það. Svo lengi
sem ég man eftir, hefur af ýmsum
verið agnúast út í staðsetningu
Reykjavíkurflugvallar. Lengi vel var
kvartað um hávaða, en með tilkomu
endurbættra flugvélahreyfla og
breyttra reglna um flugumferð, er
það umkvörtunarefni tæplega lengur
til staðar.
En það má telja árvissan viðburð,
þegar slys verður á eða við flugvelli
erlendis, að þá sé bent á „stórfellda
hættu“ af notkun Reykjavíkurflug-
vallar.
Vert er að minna á að með því að
beina flugi allra stórra millilandavéla
yfír til Keflavíkur á sínum tíma, var
stórlega dregið úr álagi og hávaða á
og við Reykjavíkurflugvöll. Öll samlík-
ing á slysahættu á og við Reykjavíkur-
flugvöll annars vegar og stóran milli-
landaflugvöll á borð við Schipol í Hol-
landi hins vegar, er því út í hött.
í málefnalegri umræðu um
Reykjavíkurflugvöll er nauðsjmlegt
að fólk geri sér sem best grein fyrir
kostum núverandi staðsetningar.
Höfuðkostur við staðsetningu vall-
arins er, hversu nálægt borgarmiðju
hann er, án þess að trufla á nokkurn
hátt íbúa borgarinnar. Að því er
hávaða áhrærir, eru stærstu vélarn-
ar, sem reglubundið fara um völlinn,
þ.e. Fokkervélar Flugleiða, svo lág-
værar, að þeirra verður tæpast vart.
Ekki þarf að fara mörgum orðum
um hávaða frá litlum og lágværum
einkaflugvélum og reyndar er lágflug
yfir þéttbýli ekki leyft. Flug að og
frá flugbrautum Reykjavíkurflugvall-
ar fer eftir ákveðnum, afmörkuðum
„loftbrautum", til að auka öryggi við
flugstjóm, draga úr óþarfa flugi yfír
þéttbýli, svo og sem verða má að
draga úr líkum á árekstri flugvéla í
lofti yfír þéttbýli. Einnig er öllum flug-
vélum, sem um Reykjavíkurflugvöll
fara, skylt að hafa radarsvara. Þar
með sjá flugumferðarstjórar í flugt-
uminum hæð, stefnu og hraða hverr-
ar einustu flugvélar yflr og í ná-
grenni Reykjavíkurvallar og fýlgjast
þannig með að eðlilegur aðskilnaður
sé milli flugvéla.
Ef gera á flugvélar útlægar frá
nágrenni Reykjavíkur á grundvelli
slysahættu, þar sem að ekki hefur
orðið eitt einasta banaslys á jörðu
niðri vegna flugvélahraps í rúmlega
hálfrar aldar sögu Reykjavíkurflug-
vallar, — hvað má þá segja um bíla-
umferðina í borginni, þar sem allt
of margir farast og tugir slasast al-
varlega á hveiju ári?
Sannleikurinn er sá, að ef bróta-
brot af þessu henti í tengslum við
flug árlega, væri löngu búið að banna
allt flug! Hins vegar verður að telja
fulla þörf á, og þó fýrr hefði verið,
að skoða rækilega, hvemig yflrfæra
má þá ábyrgðartilfínningu og ögun,
sem flugmönnum er innrætt og skilar
sér í svo lágri slysatíðni, sem raun
ber vitni, til þess að horfíð verði frá
þeim „tívolíakstri", sem því miður
viðgengst á íslandi, með hörmulegum
afleiðingum á degi hveijum og sem
gerir íslendinga að „akstursbjánum"
í samanburði við nálægar þjóðir jafn
austan sem vestan.
Ég tel að með kröftugu og mark-
vissu átaki mætti gjörbreyta þessu
ófremdarástandi á fáeinum mánuð-
um og leita m.a. í því sambandi í
smiðju flugþjálfunar, bæði að því er
kröfur og ögun varðar.
Ef öllu innanlandsflugi yrði beint
til Keflavíkurflugvallar, fjölgaði að
sjálfsögðu slysum á Keflavíkurveg-
inum. Hluti „kostnaðaraukans" væri
ef að líkum lætur nokkur dauðaslys
á þeirri leið á ári. Flugsamgöngur
innanlands yrðu dýrari og ferðatími
„Við lestur greinarinnar
kom síðan í ljós, að um
enn eina grein fordóma
gegn og vanþekkingar á
flugi var að ræða. Oneit-
anlega er það mikill
ábyrgðarhlutur af kjörn-
um borgarfulltrúa Reyk-
víkinga að tala þannig um
Rey kj avíkurflugvöll. “
milli staða myndi 2-3 faldast frá því
sem nú er.
Hver trúir því, eins og útlit og
horfur eru í efnahagsmálum, að ráð-
ist yrði í uppbyggingu og rekstur
sambærilegrar aðstöðu og þeirrar
sem til staðar er á Reykjavíkurflug-
velli, fyrir einkaflug?
Þegar ég tók mitt sólóflugpróf
fyrir rúmum aldarfjórðungi, fann ég
hversu mikill munur var á þeirri
ábyrgð og ögun, sem í flugnámi fólst,
samanborið t.d. við þjálfun öku-
manna bifreiða. Þegar ég hóf síðan
flugnám að nýju á sl. ári, fann ég
að kröfur um fagleg vinnubrögð í
flugi hafa enn aukist.
Ef vísa ætti nemum og öðrum
þeim, er einkaflug stunda frá Reykja-
víkurflugvelli, þar sem fullkomin
flugstjórn er, samfara góðri aðstöðu
fyrir margar einkaflugyélar, væri
verið að vinna fluginu á íslandi mik-
ið tjón, án nokkurrar viðhlítandi
ástæðu. Ég býð að lokum Ólínu að
koma með mér einhvern góðviðris-
daginn á næstunni í flug umhverfís
og yfir Reykjavík. Þar með kynnist
hún af eigin raun, hvernig staðið er
að flug- og öryggismálum á og um-
hverfls Reykjavíkurflugvöll.
Ég læknaði konu mína á undra-
skjótan hátt af að hafa ótrú á litlum
flugvélum. Ég trúi ekki öðru en eins
fari með Ólínu og hún kynnist um
leið dásemdum flugsins!
Höfundur er viðskiptafrseðingur
og cinkaflugma ður.
Sveinn Aðalsteinsson
r
r
Aukin þjonusta i Nutningum
til og fra Ameríku
/
Enn auka SAMSKIP þjónustuna við viðskiptavini
sína með reglubundnum siglingum milli íslands og
Bandaríkjanna. SAMSKIP sjá-um flutningana fyrir
þig, hvort heldur er til eða frá Bandaríkjunum eða
forflutninga frá öðrum löndum álfunnár
á traustan og hagkvseman hátt.
Aukin og betri þjónusta SAMSKIPA í flutningum til
og frá Bandaríkjunum er nýr og traustur valkostur.
Hagstætt gengi opnar þér ný tækifæri í innflutningi
frá Bandaríkjunum. Umboðsmenn SAMSKIPA þar
tryggja þér góða og lipra þjónustu. Hafðu samband
við sölumenn okkar og kynntu þér möguleikana.
tV SAMSKIP
Traustur valkostur
Holtabakka við Holtaveg • 104 Reykjavlk • Slmi (91-) 69 83 00
OOTT fölk / $Ia 6000-155