Morgunblaðið - 21.10.1992, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1992
Sauðfjárslátrun að ljúka
Um eitt þúsund
dilkum umfram
loforð slátrað
Meðalvigtin tæpu kílói minni en vanalega
Alls var gert ráð fyrir að slátra
36.100 fjár í haust, en Óli Valdi-
marsson sláturhússtjóri sagði að
slátrað hefði verið um eitt þúsund
fleiki dilkum en loforðin híjóðuðu
upp á eða rúmlega 37 þúsund fjár.
Það kæmi til af niðurskurði í sauð-
fjárrækt í héraðinu.
Meðalvigt dilka er 14,7 kíló,
sem er um 800 grömmum minna
en verið hefur síðustu þrjú árin,
en á þeim tíma hefur meðalvigtin
verið í kringum 15,5 kíló.
„Slátursala fór hægt af stað,
fólk var lengi að taka við sér, en
þegar salan fór í gang var hún
góð. Mér sýnist slátursala vera
svipuð nú og verið hefur á undan-
fömum árum,“ sagði Óli. Fyrir
þremur árum voru seld um 30
þúsund slátur sem er metsala, en
síðan hafa að jafnaði verið seld
um 28 þúsund slátur og bjóst Óli
við að svo yrði einnig nú, en ekki
væri búið að taka endanlegar tölur
saman.
í haust var lagað 'slátur boðið
til sölu og sagði Óli að sú sala
hefði gengið betur en reiknað var
með. Einkum væri það fullorðið
fólk sem nýtti sér slíka þjónustu
og eins yngra fólk sem ekki væri
vant að taka slátur.
„Þetta hefur gengið ágætlega,
sumt hefur selst upp hjá okkur,
eins og hjörtu og þindar, en þær
hefur skort í öllum sláturhúsum.
Það virðist því afar vinsælt um
þessar mundir að búa til kæfu,“
sagði Óli.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Blómaskáli byggður
Steinþór Sigurðsson, eigandi Blómahússins, er að reisa eitt þúsund fermetra blómaskála við Hafnarstræti,
á flötinni fyrir neðan Samkomuhúsið á Akureyri og er nú unnið af kappi við að koma húsinu upp. Áætlað er
að opna blómaskálann í febrúar á næsta ári. Sören,Andersen frá Danmörku vinnur að því að setja skálann
upp ásamt fleirum, en þetta er þriðji blómaskálinn af þessari gerð sem hann setur upp. Á myndinni eru
þeir Steinþór og Sören Andersen.
Tökum vel á móti öllum sem huga að
möguleikum á atvinnuuppbyggingu
Sauðfjárslátrun lýkur hjá Sláturhúsi Kaupfélags Eyfirðinga á
Akureyri í dag, miðvikudag, en I þessari sláturtíð er búið að
slátra rúmlega 37 þúsund fjár, sem er um eitt þúsund fleira en
sláturfjárloforð hljóðuðu upp á. Meðalvigt dilka er um 800
grömmum minni en á síðustu árum.
Konan sem lést
KONAN sem lést eftir bflslys á
Ólafsfjarðarvegi í síðustu viku hét
Jolanta Holeska til heimilis á
Sunnubraut 13 á Dalvík.
„Við tökum vel á móti öllum
þeim sem eru að velta fyrir sér
möguleikum á uppbyggingu at-
vinnulífs," sagði Halldór Jónsson
bæjarstjóri. Hann sagði að undir-
búningur heimsóknarinnar hefði
miðað að því að safna saman
ýmsum upplýsingum um Eyja-
íjarðarsvæðið sem dreift yrði til
fulltrúanna, en þar væri m.a. um
að ræða upplýsingar um hvaða
þjónusta væri í boði á svæðinu.
Safnað hefði verið saman efni
þar sem fram kæmu landfræðileg-
ar og tæknilegar upplýsingar um
svæðið, um mannafla og aðstæð-
ur, skólamál, menningarmál og
íþróttir. „Á þessu 20 þúsund
manna svæði sem Eyjafjörður er
er mikil þjónusta í boði og í raun
mun meiri en menn eiga að venj-
ast á ekki stærra svæði. Við mun-
um fara yfir þessa hluti og vænt-
anlega ræða málin vítt og breitt,“
sagði Halldór.
„Það er of snemmt að segja til
um hvað út úr þessu kemur, þetta
er almennur kynningarfundur og
við munum kynna þeim hvað við
höfum upp á að bjóða og síðan
viljum við auðvitað heyra hvað
þeir hafa í huga. Þess er ekki að
vænta að fyrsti fundur leiði til
niðurstöðu, en þetta vekur athygli
á svæðinu og menn sjá þá hvaða
möguleikar eru hér til staðar. Við
höfum lagt mikla vinnu í að útbúa
gögn um svæðið, en þau munu
einnig nýtast okkur til annara
hluta,“ sagði Halldór.
Fulltrúar Kaisers eru væntan-
legir til Akureyrar um kl. 14 í
dag, farið verður með þá í skoðun-
arferð um Akureyri, síðan verður
ÞORSTEINN Gylfason, prófess-
or í heimspeki við Háskóla ís-
lands, flytur opinberan fyrir-
lestur við Háskólann á Akur-
eyri, annaðkvöld, fimmtudags-
kvöldið 22. október, kl. 20.15 og
ber hann yfirskriftina „Er hægt
að segja eitthvað nýtt?“.
Þorsteinn hélt röð heimspekifyr-
irlestra við Háskólann á Akuryeri
á síðasta skólaári. Voru þeir vel
sóttir og vöktu mikla athygli.
Stendur til að gefa þessa lestra út
ekið að Dysnesi í Arnameshreppi
og þá út á Árskógsströnd, en kl.
17 hefst fundur heimamanna og
fulltrúa Kaisers á Hótel KEA.
í sérstakri bók á árinu. Að þessu
sinni mun Þorsteinn ræða um efni
sem hann hefur velt fyrir sér um
margra ára skeið; ráðgátu um mál
og hugsun.
Þorsteinn nam fræði sín m.a. í
Harvard, Oxford og Berlín og er
löngu landsþekktur fyrir skrif sín,
erindi og kennslu. Fyrirlestur hans
verður fluttur í húsi háskólans við
Þingvallastræti og er öllum opin á
meðan húsrúm leyfir.
(Fréttatilkynning)
- segir Halldór Jónsson bæjarstjóri
FULLTRÚAR bandaríska álfyrirtækisins Kaisers koma til Akur-
eyrar eftir hádegi í dag, miðvikudag. Þeir munu eiga fund með
heimamönnum síðdegis og einnig verður ekið að Dysnesi í Arnar-
neshreppi og að Arskógsströnd, en það eru þeir staðir sem
helst þykja koma til greina fyrir hugsanlegt álver í Eyjafirði.
Háskólinn á Akureyri
Þorsteinn Gylfason
flytur fyrirlestur
Haldið upp á afmæli
Ytri-Tjörnum.
Ungmennasamband Eyjafjarðar og Búnaðarsamband Eyja-
fjarðar héldu sameiginlega upp á stórafmæli sl. laugardag,
en 70 ár eru nú liðin síðan UMSE var stofnað og 60 ár síðan
BES hóf starfsemi.
Hátíðahöldin hófust kl. 14 í
íþróttahúsinu á Hrafnagili með
leik Lúðrasveitar Tónlistarskóla
Eyjafjarðar. Hjörleifur Hjartar-
son og séra Jón Helgi Þórarins-
son sungu og skemmtu yngstu
kynslóðinni. Þá kom fram þjóð-
dansaflokkur frá Dalvík og sýndi
nokkra gamla dansa. Hlé var
síðan gert á samkomunni, en hún
hófst aftur með kaffisamsæti í
félagsheimilinu Freyvangi. Ágrip
af sögu sambandanna voru flutt
og ýmis skemmtiatriði fylgdu
með. Formaður UMSE er Þuríð-
ur Ámadóttir og Pétur Ó. Helga-
son er formaður búnaðarsam-
bandsins.
- Benjamín
----»■ ♦ ♦
Námskeið
haldið fyrir ís-
hokkídómara
Íshokkínefnd og íþróttasam-
band íslands halda námskeið
fyrir íshokkídómara í Reykjavík
dagana 30. október til 1. nóvem-
ber næstkomandi.
Kennari verður Nico Toemen.
Bókleg kennsla verður á Holliday
Inn og hefst kl. 9.00 föstudaginn
30. október. Skráning á námskeið-
ið fer fram hjá Eggert Steinsen,
Furugrund 44 í Kópavogi, og Guð-
mundi Péturssyni, Stórholti 4 á
Akureyri.