Morgunblaðið - 21.10.1992, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1992
31
Magnús Þórðarson
framkvæmdasijóri
Nú eru rétt þrjátíu ár frá því við
Magnús Þórðarson kynntumst fy'rst
að ráði, en það var í októberbyijun
árið 1962, sem samstarf okkar á
ritstjóm Morgunblaðsins hófst. Við
urðum herbergisfélagar og í því
nábýli tókst með okkur vinátta.
Vinnutími á fámennri ritstjórn, eins
og þá var, var bæði langur og
strangur og kröfumar, sem gerðar
vom til ungra blaðamanna, vom
aðrar og meiri en nú um stundir.
Magnús var prýddur flestum
kostum góðs blaðamanns, en um-
fram allt var það víðfeðm þekking
hans á mönnum og málefnum, sem
af bar. Áhugi hans og þekking á
sögu lands og þjóðar, ekki sízt
Reykjavíkur, var óvenjuleg, að ekki
sé talað um alþjóðamál og stjórn-
mál. Hvergi var komið að tómum
kofunum hjá honum og hann hélt
fjölmenntun sinni áfram alla tíð.
Enda leituðum við félagarnir iðu-
Kom huggari, mig hugga þú,
kom hönd og bind um sárin,
kom dögg og svala sálu nú,
kom sól og þerra tárin,
kom hjartans heilsulind,
kom heilög fyrirmynd,
kom ljós og lýstu mér,
kom líf, er ævin þver,
kom eilífð, bak við árin.
(Sacer - Sb. 1886. V. Briem.)
Einar Þór Bernhardsson.
Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína,
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið.
Sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(Tómas Guðmundsson)
Það er sárt þegar ungur maður
í blóma lífsins kveður þetta tilveru-
stig. Bernhard Kristmn Pétursson
var sonur hjónanna Ástu Kristins-
dóttur og Péturs Wiencke, sem lést
1991. Kynni okkar af Bemhard
hófust þegar hann kom til starfa
hjá okkur fyrir rúmum þremur
árum, fengum við þá góðan og
tryggan starfsmann sem ávallt
gekk til þeirra verka sem hann var
umbeðinn.
En mánudaginn 12. október sl.
líður okkur sem hann þekktu seint
úr minni. En sá dagur byrjaði hjá
okkar starfsmönnum eins og flestir
aðrir dagar, menn mættu að morgni
og gengu til verka sinna, en degin-
um lauk á annan hátt en ætlað
var. Þegar flestir höfðu lokið sínu
dagsverki varð það slys að Bem-
hard féll af vinnupalli og lést nær
samstundis.
Við kveðjum góðan dreng og
vottum móður hans, systmm og
ungum syni okkar dýpstu samúð.
Megi Guð gefa ykkur styrk á
þessari erfiðu stundu.
Gylfi og Gunnar.
í dag verður borinn til hinstu
hvílu Bernhard Kristinn Pétursson
eða Benni eins og hann var ávallt
kallaður.
Það er sárt til þess að hugsa að
ungur maður, aðeins 26 ára gam-
all, sé kallaður svo skyndilega burt.
En einhvers staðar er skrifað „þeir
deyja ungir sem guðirnir elska“.
Benni lætur eftir sig ungan son,
Einar Þór, 4 ára gamalan, sem á
erfitt að skilja af hveiju guð þurfti
endilega að fá pabba hans til sín.
Munum við hjálpa Einari litla að
geyma góða minningu um pabba
sinn í hjarta sínu, allir sem til
þekktu sáu hvað kært var með þeim
lega til hans, þegar sannreyna
þurfti upplýsingar eða svör skorti.
Allt til hins síðasta hringdi ég frem-
ur til Magnúsar, ef því var við kom-
ið, heldur en að fletta upp í alfræði-
bók.
Öll mótumst við af þeirri stund
sögunnar, sem við lifum, og því
umhverfi, sem við búum við. Æsku-
og ungdómsár Magnúsar einkennd-
ust af framrás nazismans og komm-
únismans og miklum þjóðfélagsleg-
um átökum. Frelsi og menning vest-
rænna ríkja var í veði og aðförina,
sem gerð var að öryggi Islands og
sjálfstæði, varð að stöðva. Út í þá
baráttu kastaði Magnús sér og
helgaði lífsstarf sitt. Að honum var
sótt af heift, þegar hann gerðist
fulltrúi Atlantshafsbandalagsins á
íslandi og framkvæmdastjóri Varð-
bergs og Samtaka um vestræna
samvinnu. Mér er til efs, að margir
hefðu sýnt þrek og staðfestu Magn-
feðgum. Viljum við með þessum
fátæklegu orðum kveðja Benna og
þakka honum árin sem við áttum
með honum.
Við syrgjum látinn vin sem var
alltof stutt hjá okkur og biðjum guð
að hjálpa Ástu, systrunum og fjöl-
skyldum á þessari sorgarstund.
Linda Björk og fjölskylda.
Oss héðan klukkur kalla
svo kallar Guð oss alla
til sín úr heimi hér.
Þá söfnuð hans vér sjáum
og saman vera fáum
í húsi því sem eilíft er.
(.Briem.)
Mér flugu í hug þessar línur nú
er við kveðjum Bernhard Kristin
Pétursson Wiencke aðeins 26 ára.
Svo margs er að minnast og þakka,
alla hans tryggð gegnum árin, við
eigum erfitt með að sætta okkur
við það sem skeði. Benni var kær
öllum þeim er þekktu hann traustur
vinur sem nú á stóran hlut í hjarta
okkar sem eftir lifum og syrgjum.
Ásta mín Guð gefi þér styrk, Sig-
rún, Systa og böm og litli frændi
Einar Þór sem missir ástkæran föð-
ur, huggum okkur við allar góðu
minningamar. Við munum geyma
þær sem gersemar.
Hvíl í friði.
Palla og Bergur.
Með fáeinum orðum viljum við
kveðja kæran frænda okkar og vin
sem lést í vinnuslysi 12. október.
Bernhard Kristinn Pétursson Wi-
encke fæddist 13. apríl 1966 og
kom í afmælisgjöf handa einu okk-
Fædd 1. júlí 1894
Dáin 17. september 1992
Mig langar til að fara fáum orð-
um um feril Sigríðar Guðmunds-
dóttur nú í seinni tíð. Ég varð ekki
þess aðnjótandi að kynnast henni
fyrr en hún var orðin fullorðin kona
og það var einmitt hún sem kom
mér til þeirrar trúar, sem ég vona
að Guð gefi að ég eigi eftir að halda
mig við sem eftir er.
Það má segja hér, að ef Aðvent-
söfnuðurinn hefði ekki notið henn-
ar, væm ekki allar þær sálir tengd-
ar honum sem nú era. Því má segja
að hún hafi verið hin trúarlega
úsar í því pólitíska gemingaveðri,
sem yfir hann gekk. Þótt um hægð-
ist við hrun kommúnismans í flest-
um löndum Austur-Evrópu gerði
Magnús sér grein fyrir því, að bar-
áttunni lýkur ekki á meðan nær
helmingur mannkyns er enn ofur-
ar systkinanna, hann var annað
barn móðursystur okkar Ástu Krist-
insdóttur og Péturs Wiencke, fyrir
var Sigrún og síðar fæddist Þórdís.
Þær og Ásta horfa nú á bak ástkær-
um bróður og syni. Það er skammt
stórra högga á milli í fjölskyldunni
hennar Ástu því 15. október í fyrra
dó Pétur, faðir Benna. Við spyijum
hvers vegna er lagt svona mikið á
Ástu frænku, einnig á Einar Þór,
fjögurra ára sonur Benna erfitt með
að skilja af hveiju Guð tók pabba
til sín. Benni var ástríkur faðir og
þeir feðgar mjög nánir. Það er gott
að eiga góðar minningar að ylja sér
við. Benni var okkur sem bróðir,
hann kom sumar eftir sumar austur
að Lyngási, þá var gaman að lifa
og mikil samheldni hjá hópnum,
margt brallað og sluppum við stór-
áfallalaust út úr því hvort heldur
sem var að þreyta sund í skurðinum
við Hverfisveginn eða skreppa niður
að Gili sem var auðvitað bannað.
Það ríkti alltaf gleði og glens í
kringum Benna og smáprakkara-
móðir safnaðarins a.m.k. í seinni
tíð. Það eru því margar sálir sem
standa í þakkarskuld við hana. Hún
tók upp mikið af ræðum, sem fólk
sem var að leita sannleikans fékk
hjá henni og naut góðs af.
Ég bið svo Guð að blessa að-
standendur. Hann veiti þeim það
eitt sem þeim er fyrir bestu á með-
an þeir gista þessa jörð. Hann gefi
þeim styrk og allt er þeir þarfnast
ríkulega. Veri þeir svo umvafnir
englum Hans er öllu ræður að ei-
lífu. Líði þeim svo vel í alla staði
ríkulega.
Steingrímur Kristjónsson.
Bemhard Kristinn
Pétursson - Minning
Sigríður Guðmunds-
dóttir - Kveðja
seldur áþjáninni. En hann lifði af-
hjúpunina.
Magnús Þórðarson var íslending-
ur og Reykvíkingur í húð og hár,
gleðimaður og fagurkeri, hafði un-
un af söfnun bóka og annarra fá-
gæta. íslenzk tunga var honum
meira virði en flest annað, enda
hafði hann á henni torgæt tök.
Fátt fór meira í taugamar á Magn-
úsi, en sú fákunnátta og illa með-
ferð tungunnar, sem tröllríður fjöl-
miðlum nútímans, ekki sízt ljós-
vakamiðlum.
Blaðamennskan átti sterk ítök í
Magnúsi allt frá því hann hóf störf
á Morgunblaðinu árið 1960 og sam-
band hans við Morgunblaðsmenn
hélzt til hinztu stundar. Mörg verk
vann hann fyrir blaðið eftir að hann
hvarf af ritstjóminni. Tengslin
styrktust þau ár, sem þáverandi
eiginkona hans, Áslaug Ragnars,
starfaði við blaðið og synimir Andr-
és og Kjartan.
Vinir og samstarfsmenn Magn-
úsar Þórðarsonar á Morgunblaðinu
þakka samfylgdina og minnast
tryggs og góðs drengs. Dýpstu sam-
úðarkveðjur eru sendar bömum
hans og ástvinum öllum.
Björn Jóhannsson.
strik, hann kunni lagið á að koma
manni í gott skap.
Eins og oft gerist þegar fólk fer
út í alvöra lífsins þá varð lengra á
milli samfunda okkar Benna en allt-
af þegar við hittumst var hann sami
góði strákurinn. Við vottum frænk-
um okkar og Einari Þór og fyöl-
skyldum þeirra samúð okkar og
biðjum Guð að styrkja þau. Við
teljum okkur ríkari að hafa þekkt
hann svo náið og þökkum það. Frið-
ur sé með honum.
Systkinin frá Lyngási 2.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
UMBOÐS- OC HEILDVERSLUN
BlLDSHÖFDA 16 SlMI:6724 44
H ótel rekstrarf ræði-
menntun í Sviss
Fyrstir til að bjóða viðurkennt svissneskt-ameriskt
prófskírteini á háskólastigi í hóteirekstrarfræðum.
Gjörið svo vel og fáið ókeypis réðgjöf/námsmat.
SÍMI 90 41 25 81 38 62.
Fax 90 41 25 81 36 50.
Skrifið SHCC Colleges Admissions Oftice
CH-1897 Le Bouveret.
prjónanámskeið í Álafossbúðinni
á laugardögum í október og nóvember
kl.f 0.00-14.00.
Boðið er upp á aðstoð við handprjón úr
fjölbreyttu, íslensku bandi frá ÍSTEX hf.
Upplýsingar og skráning í Áiafossbúðinni
í síma 13404.