Morgunblaðið - 21.10.1992, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1992
Gysbræður kitluðu hláturtaugar með klukkustundarlangri sýn-
ingu sem samanstóð af mörgum, stuttum og bráðfyndnum atrið-
um. Örn Árnason og Þórhallur Sigurðsson í söngatriði.
HELGARSKEMMTUN
Sögiistund
Góð
Skemmtanir
Ómar Friðriksson
rátt fyrir atvinnuþrengingar
og lífskjarakreppu bregða
hinir stóru skemmtistaðir borgar-
innar ekki út af vananum í vetur
og bjóða upp á viðamiklar kvöld-
sýningar með þríréttuðum máls-
verði, gysi og gamanatriðum
helstu grínleikara landsmanna,
söngvaspéi eða upplífgun vinsælla
poppsveita og dægurlaga frá fyrri
tíð. Skemmtikvöld þessi virðast
fyrst og fremst laða að sér hóp-
ferðir frá vinnustöðum, félaga-
samtök eða klúbba og andrúms-
loftið vill stundum verða nokkuð
sérkennileg blanda tilrauna þjón-
ustufólks til að veita persónulega
þjónustu og huggulegheit og árs-
hátíðargleðistundar með tilheyr-
andi fjöldaframleiðslu á málsverði
undir hópsöng gesta í kringum
borðhaldið.
Ætli menn sér að njóta veitinga
og sýnihgaratriða í ró og næði
mega þeir hinir sömu allt eins eiga
von á að við næsta borð sitji góð-
glaðir samkvæmisgestir sem líta
málið öðrum augum og láta sig
bragðgæði matar eða annað þess
háttar smáræði minna skipta en
hvort drykkkjarföng eru borin
stundvíslega til borðs.
Fyrir þá sem hafa áhuga og
efni á að bregða sér á sýningu
af þessu tagi er kvöldstund á
Hótel Sögu tilvalinn kostur.
Þrennt er þar með ágætum: Góður
matur, afbragðs grínatriði Gys-
bræðra og danshljómsveit sem
skipuð er afbragðs tónlistarmönn-
um úr djass og dægurlagabransa
borgarinnar.
Helgarskemmtun Hótels Sögu
í vetur er í einfaldara lagi og skipt-
ist í köldverð, klukkustundarlanga
sýningu Gysbræðra og dansleik
sem hefst í kringum miðnættið.
Húsið er opnað klukkan 19 og
kvöldverður er borinn fram
klukkustundu síðar. Þegar undir-
ritaður brá sér á á Hótel Sögu á
laugardagskvöldi fyrir skömmu
var talsverður slæðingur gesta í
mat þótt húsið væri tæpast þétt-
skipað þetta kvöld.
Lítil bið var á að matur væri
fram borin og gátu gestir valið
um rétti á matseðli. í forrétt stóð
valið á milli humars og lárperu
með sóllauksvinaigrette eða laxa-
súpu með ijómatoppi sem ég kaus
mér og gef bestu meðmæli. I aðal-
rétt var boðið upp á lambahryggs-
vöðva sem framreiddur var með
nýjum garðávöxtum, portvíns- og
rifsbeijasósum eða grillsteiktar
nautahryggsneiðar með ijómapip-
arsósu. Nautasneiðin var áf besta
gæðaflokki og afar ljúffeng. í eft-
irrétt stóð valið á milli þess að fá
epli í Grand mariner með kanilís
og gamaldags ostaböku með
ferskum jarðarbeijum. Allt bragð-
aðist þetta vel og var smekklega
framreitt án minnstu tafa.
Miðaverð á málsverð, sýningu
og dansleik að henni lokinn kostar
4.800 krónur fyrir manninn. Tæp-
lega er hægt að reikna með að
heildarkostnaður hjóna af slíku
kvöldi verði undir 15 þúsund krón-
um ef borðvín og aðrir drykkir eru
teknir með í reikninginn en al-
gengt verð borðvína er frá 2.500-
3.500 krónur.
Gysbræður sem skemmta gest-
um Hótels Sögu í. vetur eru þeir
Þórhallur Sigurðsson, Sigurður
Siguijónsson og Öm Árnason.
Birtust þeir ekki á sviðinu fyrr en
klukkan var farin að nálgast ellefu
en þeim fyrirgafst jafnskjótt biðin
og þeir hófu sýninguna sem sam-
anstóð af mörgum og stuttum en
hnitmiðuðum og bráðfyndnum at-
riðum. Hvergi að finna dauðan
punkt í klukkustundarlöngum
grínþætti Gysbræðra og kunnu
viðstaddir greinilega vel að meta
framlagið. Komu margir góðkunn-
ingjar við sögu Gysbræðra í bland
við áður ókunnar en síður en svo
ófyndnari persónur. Nægir þar að
nefna þá Ragnar Reykás, Kristján
- heiti ég - Ólafsson og Saxa lækni.
Hljómsveit Björvins Halldórs-
sonar hóf leik um miðnættið og
laut auðheyrilega stjórnanda sín-
um í lagavali í einu og öllu. Rokks-
mellir sjötta áratugarins, dægur-
ballöður úr nótnabókum Tom Jo-
nes og Engilberts Humperdinks
og inn á milli rammíslenskir
sveitaballaslagarar. Auðvitað
fremur metnaðarlítil dansmúsík
og lítt við hæfi snjallra hljóðfæra-
leikara á borð við Þóri Baldursson,
Þórð Árnason, Einar Scheving,
Kristin Svavarsson og Harald Þor-
steinsson en reynslan hefur kennt
Bjögga að það er nákvæmlega
svona músík sem fellur að smekk
gesta á svona kvöldi og dansgólfið
iðaði fram eftir nóttu.
Sigurður
Sigurjóns-
son, einn
Gysbræðra,
í hlutverki
saxófón-
leikara.
AUÐÆVI
Leggur í bankann
rátt fyrir ungan aldur er leikar-
inn Macaulay Culkin dijúgur
við að safna í sparibaukinn. Meðal
mynda sem hann hefur leikið í má
nefna Home Alone, My Girl og
Only the Lonely. í næsta mánuði
verður frumsýnd myndin Home Al-
one 2 og er hennar beðið með mik-
illi eftirvæntingu. Fyrir leikinn í
þeirri mynd fær Culkin greiddar litl-
ar 5 milljónir dala, eða um 275
milljónir króna. Verður fúlgan lögð
inn á sparireikning drengsins og
bætist við álitlegar fjárhæðir sem
fyrir eru.
Macaulay Culkin er nemandi í
7. bekk einkaskóla á Manhattan í
New York, hann fær tæplega 300
krónur í vasapeninga á viku og
þykir gaman að leika keiluspil. For-
eldrar hans heita Pat og Kit Culkin
og á Maeaulay fímm systkini, þeirra
á meðal Kieran sem er með honum
á meðfylgjandi mynd. Líf Macaula-
ys er ekki gjörsneytt lystisemdum,
í herberginu hans er stór sjónvarps-
og hljómtækjasamstæða og tæp-
lega tveggja metra langur bíll, hvort
tveggja gjafír frá Michael Jackson.
Heimilislíf Culkin-fjölskyldunnar
hefur oft orðið fyrir þungri ásókn
fjölmiðla. Til að vemda einkalífíð'
hafa þau aftur og aftur orðið að
breyta um símanúmer. Svo rammt
kvað að númerabreytingum um
tíma að Macaulay varð einu sinni
Leikarinn Macaulay Culkin er
orðinn vellauðugur aðeins 12 ára
gamall. Hann á fimm systkini og
sést hér með bróður sínum Kier-
an, sem er til hægri á myndinni.
að hringja í vin sinn og biðja hann
að fletta upp símanúmerinu, því
hann var búinn að gleyma númerinu
heima hjá sjálfum sér!
TVÆR FRUMSÝNINGAR
Á LITLA SVIÐINU
Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson
Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir
Lýsing: Ögmundur Jóhannesson
Tónlist: Egill Ólafsson
Þýðing á Platanov: Árni Bergmann
Leikgerð af Platanov: Pétur Einarsson
Þýðing á Vanja frænda: Ingibjörg Haraldsdóttir
Leikarar:
Ari Matthíasson, Egill Ólafsson,
Erla Ruth Harðardóttir, Guðmundur Ólafsson,
Guðrún S. Gísladóttir, Helga Braga Jónsdóttir,
Pétur Einarsson, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Theodór Júlíusson, Þröstur Leó Gunnarsson.
Platanov; Frumsýning lau. 24. okt. kl. 17.00. Uppselt
Vanja frændi: Frumsýning lau. 24. okt. kl. 20.30. Uppselt
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
BORGARLEIKHÚSIÐ SÍMI 680680