Morgunblaðið - 21.10.1992, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1992
43
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMÓTIÐ - ÚRVALSDEILD
TENNIS / DAVIS CUP
Bandaríkin mæta Ástralíu
Dregið var í fyrstu umferð Davis-bikarsins í tennis í gær. Núver-
andi keppni lýkur reyndar ekki fyrr en í desember þegar Banda-
ríkin mæta Sviss í úrslitum.
Bandaríkjamenn mæta Ástralíu, sem hefur sigrað 26 sinnum í
mótinu en Bandaríkjamenn 29 sinnum. Þjóðveijar leika gegn Rússum
á útivelli. Svíar mæta Kúbu og Frakkar fara til Austurríkis.
Fyrsti sigur Snæfells
- sigraði Grindavíkeftirframlengdan leik
skrifar frá
Grindavík
GRÍÐARLEG stemmning var f
íþróttahúsinu í Grindavík er
Snæfellingar sóttu UMFG
heim í gærkvöldi í úrvalsdeild-
inni i körfuknattleik. Leikur lið-
anna var mjög spennandi allt
fram í framlengingu, þá hafði
Snæfell betur - var sterkari á
endasprettinum og vann verð-
skuldað, 121:110. Þetta var
fyrsti sigur Snæfells í vetur.
Leikurinn var hraður allt frá
byrjun og svæðisvöm Snæfells
gerði það að verkum að heima-
menn reyndu mikið af langskotum.
Þegar þau geiguðu
Frímann brunuðu Snæfellin-
Ólafsson ar í hraðaupphlaup
og skomðu mörg
stig þannig. Munur-
inn var þó aldrei mikill á liðunum
og jafnt var í hálfleik,*49:49.
Leikmenn Snæfells áttu mjög
góðan kafla í upphafi seinni hálf-
leiks og hittu vel. Bárður Eyþórs-
son var hreint óstöðvandi auk þess
sem hann hélt spilinu vel gang-
andi. Grindvíkingar gáfust ekki
upp og þegar 5 mín. vom til leiks-
loka var munurinn 11 stig, 87:98.
Þeir Guðmundur Bragason og
Sveinbjöm Sigurðsson minnkuðu
muninn niður í eitt stig, 98:99.
Bárður gerði fjögur stig úr víta-
skotum á siðustu mínútunni en
Guðmundur minnkaði muninn í 3
stig og þegar 8 sek. vom eftir af
venjulegum leiktíma jafnaði Dan
Krebs með þriggja stiga körfu og ,,
því þurfti framlengingu til að knýja
fram úrslit. Og eins og áður segir
vom gestimir sterkari í henni og
unnu verðskuldað.
Sveinbjöm Sigurðsson átti vafa-
laust sinn besta leik með Grinda-
vík í vetur, hélt Tim Harvey vel
niðri í vöminni og skoraði grimmt.
Guðmundur Bragson stóð fyrir
sínu og Dan Krebs átti góða kafla.
í liði gestanna var Bárður í sér-
flokki. Einnig áttu þeir ívar Ás-
grímsson, Rúnar Guðjónsson og
Kristinn Einarsson góðan leik.
Harvey skoraði ekki mikið en var
sterkur í vöm, tók 18 vamarfrá-
köst.
Barátta á Sau&árkróki
Tndastólsmerin vom sterkari á
lokasprettinum þegar þeir
lögðu Breiðablik að velli, 93:86.
Leikurinn var mikill
bráttuleikur og
spennandi. Þegar
aðeins ein mín. var
til leiksloka var
Tindastólsmenn yfir, 87:86, en þá
vom dæmdar tvær ásetningsvillur
á Blikana og skomðu heimamenn
út öllum vítaskotum sínum, skor-
uðu síðan körfu - og gerðu út um
leikinn.
Blikamir byijuðu leikinn vel og '
eftir aðeins fjórar mín. varð Páll
Kolbeinsson hjá UMFT að fara af
velli meiddur. Þrátt fyrir þetta áfall
náðu heimamenn að jafna metin
um miðjan fyrri hálfleik og mund-
aði þar mestu um stórleik Vals
Ingimundar, sem fór á kostum.
Blikamir vom yfir, 45:50, í leik-
hléi, en í seinni hálfleik var leikur-
inn jafn, en mest náðu Blikar þó
sjö stiga forustu. Tindastólsmenn
með Val sem aðalmann náðu að
vinna upp forskotið og tryggja sér
sigur undir lokin.
Valur lék mjög vel og var besti
maður vallarins. Hann skoraði 46
stig og þá var Chris Moore vel.
Egill Viðarsson og Lloyd Sergent
vom bestu menn UBK. Pétur Guð-
mundsson, sem var í góðri gæslu,
lék vel fyrir Blikana í fyrri hálf-
leik, en í seinni hálfleik var hann
orðinn þreyttur.
Bjöm
Bjömsson
skrífar
Magnús
Katrín
Lovísa
Guðmundur
Fjórir í framboði
nús Oddsson, formaður
þróttabandalags Akra-
ness, staðfesti það í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi hann
væri ákveðinn í að gefa kost á sér
til framboðs í embætti varaforseta
ÍSÍ á ársþingi sambandsins um
næstu helgi. Það verða því fjórir
frambjóðendur sem bítast um þetta
embætti á þinginu, hinir em Katr-
ín Gunnarsdóttir, Lovísa Einars-
dóttir og Guðmundur Kr. Jónsson.
Það stefnir í spennandi kosningu
á ársþinginu, sem haldið verður í
Ráðhúsinu í Reykjavík um næstu
helgi, því sjaldgæft er að svo marg-
ir gefi kost á sér í sama embætti
innan stjómar ÍSÍ. Enginn hefur
gengt embætti varaforseta ÍSÍ síð-
an Ellert B. Schram tók við emb-
ætti forseta ÍSÍ af Sveini Bjöms-
syni sem lést fyrir rúmlega ári síð-
an. Gert er ráð fyrir að Ellert gefi
kost á sér áfram í embætti forseta
ÍSÍ.
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
UMFG-Snæfell 110:121
íþróttahúsið Grindavík, fslandsmótið í
körfuknattleik - úrvalsdeild karla, þriðju-
daginn 20. október 1992.
Gangur leiksins: 2:0, 2:6, 12:12, 19:24,
27:24, 30:38, 42:44, 49:49, 56:61, 60:69,
69:79, 78:88, 87:98, 96:98, 103:103,
103:110, 110:110, 110:121.
Stig UMFG: Dan Krebs 33, Sveinbjöm
Sigurðsson 25, Guðmundur Bragason 24,
Pálmar Sigurðsson 12, Marel Guðlaugsson
10, Bergur Hinriksson 6.
Stig Snæfells: Bárður Eyþórsson 43, ívar
Ásgrímsson 23, Rúnar Guðjónsson 23,
Kristinn Einarsson 19, Tim Harvey 7,
Hreinn Þorkelsson 4, Sæþór Þorbergsson 2.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Leifur
Garðarsson. Dæmdu erfíðan leik mjög vel.
Áhorfendur: Um 250.
UMFT-UBK 93:86
íþróttarhúsið á Sauðárkróki, Úrvalsdeildin
í körfuknattleik, þriðjud. 20. október 1992.
Gangur leiksins: 2:9, 16:10, 21:22, 27:28,
33:42, 39:47, 45:50. 53:54, 61:62, 68:68,
69:76, 78:78, 83:82, 87:86, 93:86.
Stig UMFT: Valur Ingimundarson 46,
Chris Moore 19, Haraldur Leifsson 6, Páll
Kolbeinsson 5, Björgvin Reynisson, Ingvar
Ormarsson 5, Karl Jónsson 4, Ingi Þ. Rún-
arsson 2, Pétur V. Sigurðsson 1.
Stíg UBK: Egill Viðarsson 21, Lloyd Serg-
ent 21, Hjörtur Amarson 15, Pétur Guð-
mundsson 14, Bjöm Sigtryggsson 12, Eirík-
ur Guðmundsson 3.
Áhorfendur: 650.
Dómarar: Helgi Bragason og Leifur Garð-
arson. Helgi var ágætur, en Leifur mistæk-
ur.
1. deild karla:
ÍA-ÍR.....................96:82
Handknattleikur
Ármann - Valur 22:20
Laugardalshöll, íslandsmótið - 1. deild
kvenna, mánudaginn 19. október 1992.
Mörk Armanns: Vesna Tomsje 9, Margrét
Hafsteinsdóttir 4, Ásta Stefánsdóttir 3,
Svanhildur Þengilsdóttir 2, Auður 2, Marfa
Ingimundardóttir 1 og Ellen 1.
Mörk Vals: Hanna Katrín Friðriksen 6,
Irina Storobegatyrh 5, Gerður Jóhansdóttir
3, Guðrún Kristjánsdóttir 2, Kristfn Am-
þórsdóttir 2, Eyvor Jóhannesdóttir 1 og
Sigurbjörg Kristjánsdóttir 1.
Knattspyrna
UEFA-keppnin:
Kaiserslautem, Þýskalandi:
Kaiserslautern - NotL For..........8:1
Wolfgang Funkel (6. - vítasp.), Marcus
Marin (55.), Mareel Witeczek (57.) - David
Hirst (5.). 20.802.
MHirst var rekinn af leikvelli fyrir brot
tveimur mín. fyrir leikshlé, þannig að leik-
menn Sheff. Wed. léku aðeins tfu í seinni
hálfleik.
Dortmund, Þýskalandi:
Dortmund - Celtíc..................1K)
Stephane Chapuisat (71.). 35.000.
UDortmund sótti nær stanslaust allan leik-
inn, en leikmenn liðsins nýttu ekki nema
eitt tækifæri.
Aþena, Gríkklandi:
Panathinaikos - Juventus...........0:1
David Platt (68.). 75.000.
Golf
keppnis-
greiní
Aflanta?
jr
Olympíunefnd Atlanta í Banda-
ríkjunum ætlar að fara fram
á það við alþjóða ólympíunefndina
að keppt verði í golfi á leikunum í
Atlanta 1996. Þeir vilja að golfið
verði fullgild keppnisgrein og ef af
verður munu kylfíngarnir leika á
hinum fræga Augusta velli.
Keppt yrði bæði í karla- og
kvennaflokki og líklegt er talið að
keppendur yrðu frá 20 þjóðum.
Ekki hefur verið keppt í golfi á
Ólympiuleikum síðan árið 1904
þegar leikarnir fóru fram í St. Lou-
is í Bandaríkjunum.
Bárður Eyþórsson átti stórleik með liði Snæfells gegn Grindavík og gerði
43 stig.
ISHOKKI
Ágreiningur um stofn-
un íshokkísambands
ÍSHOKKÍMENN beita sér nú fyrir stofnun ishokkísambands
innan iSÍ og hafa sótt um það formlega. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðisins hofur þessi málaleitan ekki mælst vel
fyrlr innan stjórnar ÍSÍ, sem vill þess í stað stofna skautasam-
band sem hafi aliar skautagreinarnar innan sinna vébanda,
þ.e. listhlaup skautahlaup og íshokki, heldur en að þessar
greinar meðfámennan iðkendafjölda stofni þrjú sérsam-
bönd. Þetta taka íshokkímenn hins vegar ekki í mál.
Skautanefnd ÍSÍ og nú íshokkí-
nefnd ÍSÍ hefur hingað til
farið með málefni skautaíþróttar-
innar í landinu. Íshokkímenn vilja
nú að stofnað verði sérstakt ís-
hokkísamband sem hefur það á
stefnuskrá sinni að efla íþróttina.
Samkvæmt lögum ÍSI þarf með-
mæli frá minnst sex héraðssam-
bönd eða iþróttabandalögum til
aðstofna nýtt sérsambands innan
ISÍ. Þeim skilyrðum hefur nú þeg-
ar verið fullnægt og fmnst is-
hokkfmönnum það hart að ekki
skuli vera hægt að afgreiða þetta
mál.
„Við erum á því að það eigi
ekki saman flokkaíþróttir og ein-
staklingsiþróttir í sama sambandi
og þvf viljum við stofna íshokki-
samband. Ishokkí er flokkaíþrótt
en listhlaup og hraðhlaup á skaut-
um eru dæmigerðar einstaklings-
íþróttir. Þetta á alls ekki heima í
sama sérsambandi. Það væri eins
og að setja handbolta og kúluvarp
í sama sérsamband. í lögum Al-
þjóða íshokkísambandsins er
ákvæði um að það samband sem
fer með málefni íshokkí í hveiju
landi skuli eingöngu hafa með
íshokkí að gera, nema sérstakar
ástæður séu fyrir hendi, sem við
teljum ekki vera hér,“ sagði Egg-
ert Steinsen, formaður Skautafé-
lags Reykjavíkur.
Talið er að um 200 manns
stundi íshokkí hér á iandi. Á síð-
asta ári var fyrsta íslandsmótið í
fshokkí og þótti það takast vel,
en nú eru vélfryst skautasvell
bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Þijú iið tóku þátt í mótinu i fyrra,
Skautafélag Reykjavíkur, Skauta-
félag Akureyrar og Björninn úr
Reykjavík.
Sérsamböndin innan ÍSÍ eru nú
21 talsins og var Keiiusambandið
síðasta samband sem var tekið
inn, í maí á þessu ári.
OL-LEIKAR