Morgunblaðið - 08.12.1992, Side 14
hk-----
seei HaaMaaag .8 ííuoAauiaiíM aiaAJaráoaoM
-MORGUNBLAÐIÐ ÞRfÐJlJDAGUR 8. DESEMBER 1992
FA5T6IGNASALA
VITASTIG 13
2ja herb.
4ra herb. og stærri
3ja herb.
Einbýli — raðhús
Garðaflöt. Glæsil. einbhús á tveimur hæðum 208 fm með 50 fm tvöf.
bílsk. Fallegur garður. Eign í sérflokki. Eignin getur verið laus fljótl.
Sörlaskjól. Tíl sölu elnbhús á tvelmur hæðum 153 fm. Mögul. á íb. í
kjallara. Húsið er mikiö endurn. Einnig mögul. að húsiö sé 2ja ib. hús. Bílsk*
róttur. Góð lán áhv.
FÉLAG llFASTEIGNASALA
Gunnar Gunnarsson,
lögg. fasteignasali, hs. 77410.
Hlíðarhialli. 3ja herb. fal-
leg íb. é 3. haoft. Fallegar innr.
Suðursv. Fallegt útsýni. Góft lán
áhv. Gftð sameign.
Meistaravellir. 3ja herb.
góð íb. á 1. hæft 77 fm. Fallegar
innr. Suðursv. Góft sameign.
Breiðvangur. 3ja harb.
góft ib. á 1. hæð 115 fm auk 25
fm bílsk. Góft lán éhv. Verð 8,5 m.
Lyngmóar — Gb. 3ja-4ra
herb. falleg íb. ca 92 fm auk bílsk.
Góð lán áhv. Ákv. sala. Laus.
Víð Sundin. 3ja herb. falleg
íb. 84 fm á 2. hæft í lyftubl. Suft-
ursv. Parket. Nýf. gler. Laus.
Seilugrandi. 3ja herb. ib.
87 fm auk bilskýlis. Stórar svalir.
Góft lán áhv.
Amahl og næturgestirnir
Jólatón-
leikar
Jólatónleikar Kammersveitar
Reykjavíkur voru haldnir í Ás-
kirkju sl. sunnudag. Á efnisskránní
voru verk eftir Fasch, Wassenaer,
Albinoni, Vivaldi og Corelli. Ein-
leikarar voru Eiríkur Örn Pálsson
á trompett, Hóimfríður Þórodds-
dóttir á óbó, Bijánn Ingason á
fagott og Rut Ingólfsdóttir, sem
einnig var konsertmeistari.
Tónleikarnir hófust á Konsert
fyrir trompett, eftir Johann Fried-
rich Fasch (1688—1758) og var
leikur Eiríks Arnar Pálssonar mjög
góður. Strengjakonsert nr. V, í
B-dúr var næstur á efnisskránni
en þar undir tveimur höfundanöfn-
um, nefnilega U.W. Graf van
Wassenaer, óskrásettan í bókum
og snillinginn Pergolesi, sem fram
að þessu hefur verið talinn höfund-
ur verksins. Verk þetta er fallegt
og var ágætlega flutt en fyrri hluta
tónleikanna lauk með óbókonsert
eftir Aibinoni. Hólmfríður lék verk-
Kammersveit Reykjavíkur á æfingu.
ið mjög vel, sérstaklega lokaþátt-
inn.
Eftir Vivaldi voru flutt tvö verk,
fyrst fiðlukonsert í g-moll, þann
fyrsta úr op. 12 og var leikur kon-
sertmeistarans, Rutar Ingólfsdótt-
ur, sérlega góður. Seinna verkið
eftir Vivaldi var fagottkonsert.
Einleikarinn, Brjánn Ingason, lék
konsertinn ágætlega. Lokaverk
tónleikanna var Jólakonsertinn eft-
ir Corelli og var þessi fallega og
góða tónsmíð í heild vel leikin, þó
stundum brigði fyrir smá óná-
kvæmni í tónstöðu, einkum í
„tutti“-köflunum en einleikskvart-
ettinn skipuðu Rut, Unnur María
og Inga Rós, Ingólfsdætur og
Marteinn H. Friðriksson á orgel.
Strengjasveitin var góð og flutn-
ingurinn í heild vel útfærður. Það
sem gaf þessum konsert sérlega
failegan svip, var frammistaða ein-
leikaranna ungu, sem allir léku af
öryggi og fagmennsku, er segir
meira en orð, um framgang tónlist-
ar hér á landi og þann stóra hóp
af ungu og vel menntuðu tónlistar-
fólki, sem við eigum nú á að skipa.
Um hvað snúast jólin?
Leiklist________________
Súsanna Svavarsdóttir
Björt og jólasveinafjölskyldan
Leikhús í tösku
Höfundur og leiksljóri: Þórdís
Arnljótsdóttir
Ég hef alltaf verið þeirrar skoð-
unar að allt okkar Grýlu-Leppalúða-
lopajólasveinastand með þulum sín-
um og stórhríðarboðskap sé ömur-
legt. Ekki leist mér því á blikuna
þegar ég komst að því að búið
væri að sjóða allan ósómann saman
í heila leiksýningu; alla skelfínguna
um Grýlu sem á sér lítinn bát, sýð-
ur krakka og étur þá og jólasveina
sem læðast inn í híbýli manna að
næturþeli, stela mat, skella hurðum
eða þá að þeir gægjast á gluggana.
Og allt vegna þess að bömin em
ekki þæg. Hver svo sem ákveður
hvað þægur er. Þetta hefur setið í
mér frá því ég var krakki - og aldr-
ei nógu þæg.
En með kökk í hálsi, hélt ég á
sýningu hjá þessu litla leikhúsi, þar
sem höfundurinn og leikstjórinn
leikur líka öll hlutverkin; Björtu
litlu, gömlu konuna sem hún hittir,
Grýlu og alla jólasveinana. Sýningin
er byggð á gömlum þulum og kvæð-
um um Grýlu og ísiensku jólasvein-
ana. Sagan utan um þurlurnar og
kvæðin, er á þá leið að Björt litla
er ein heima. Foreldrar hennar eru
að vinna - alltaf að vinna - og Björt
er komin á þá skoðun að þeim þyki
ekkert vænt um hana, fyrst þau eru
alltaf að vinna. Hún ákveður að
strjúka, klæðir sig í úlpu, húfu, tref-
il og kuldaskó og yfírgefur heimili
sitt. Hún býr nálægt miðbænum og
fljótlega er hún komin inn í miðja
jólaösina. Hún fer inn í bókabúð
þar sem jólasveinn er að selja bæk-
ur. Það fínnst Björtu litlu henisa,
því hún er þeirrar skoðunar að jóla-
sveinar eigi að gefa gjafir, ekki
standa í sölumennsku. En jóla-
sveinninn hlær að athugasemdum
hennar.
Sneypt hleypur Björt út úr búð-
inni og beint í fangið á gamalli
konu, sem skiptir sér af henni; skil-
ur ekki hvað lítil stúlka er að gera
ein niðri í bæ. Björt segir henni að
mömmu og pabba þýki ekkert vænt
um sig og því sé hún farin að heim-
an. Gamla konan býður henni heim
í heitt kakó og þegar þangað kem-
ur, segir hún Björtu sögur af Grýlu
og jólasveinunum og leggur áherslu
á að allt sé í plati; þetta séu bara
sögur, gamla Grýla sé löngu dauð.
í lokin fylgir hún litlu stúlkunni
heim. Mamma og pabbi verða alls-
hugar fegin, því auðvitað þykir
þeim undur vænt um litlu stúlkuna
sína. Og gamla konan sem býr ein,
verður fjölskylduvinur sem eyðir
með þeim jólunum.
Sýning Þórdísar er ákaflega vel
samsett og lifandi. Þulumar og
kvæðin hélt ég að væru of þung
fyrir þann aldurshóp sem hún leikur
fyrir, forskólahörn, en leikræn túlk-
un hennar gerir þær skiljanlegar
og hvert atriði er nógu stutt til að
halda athygii bamanna. Og auðvit-
að er sagan full af boðskap. Mömm-
ur og pabbar í dag þurfa að vinna
mikið án þess að það sé spurning
um gerviþarfír eða lífsgæði. Enda
var það svo að jafnvel minnstu böm-
in á sýningunni sem ég sá, skildu
þann flöt á sýningunni mjög vel.
Og hvað eru jólasveinar? Era þeir
nokkuð annað en markaðssetning-
arþáttur? Em bækur orðnar svo
gildislausar að það þarf leikara í
jólasveinsbúningi til að koma þeim
á framfæri? Um hvað em jólin far-
in að snúast? Er ekki eitthvað brog-
að við það að foreldrar þurfí að
skilja böm sín ein eftir til að vinna
fyrir hátíðinn? Undirstrikar hátíðin
ekki einsemd mannsins og kvöl,
hvort sem er við upphaf eða endi
æviskeiðsins?
Eins og öll ævintýri, endar sýning
Þórdísar vel. Annað væri aldrei
hægt að bjóða börnunum. Litlu
skinnin eiga eftir að komast að því
nógu snemma að einsemd, kvöl,
ástleysi, flótti og kuldi em alls stað-
ar nema í ævintýrunum. Þórdís nær
góðu sambandi við bömin og heldur
uppi hæfilegri spennu. Persónur
hennar spjalla við krakkana og þau
syngja jólalögin með henni. Þetta
er einfalt leikhús og skemmtilegt,
án þess að slakað sé á kröfunum
og ég fæ ekki betur séð en að allir
aldurshópar geti fengið sitt út úr
henni.
Eyjabakki. 3ja herb. falleg
íb. á 1. hæö 60 fm. Góð lán áhv.
Falleg sameign. V. 6,0 m.
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Óperan Amahl og næturgest-
imir eftir Menotti var uppfærð
af Óperusmiðjunni sl. laugardag
í Langholtskirkju. Stjórnandi var
Magnús Blöndal Jóhannsson en
hann hefur stjórnað öllum fyrri
uppfærslum verksins. Leikstjóri
var Hávar Siguijónsson. Aðalhlut-
verkið Amahl er sungið af Hirti
Þorbjörnssyni og Jóhanni Ara
Lárussyni til skiptis en á fmmsýn-
ingunni mun Hjörtur hafa sungið.
Móður Amahls söng Jóhanna G.
Linnet en konungana sungu Guð-
laugur Viktorsson (Kaspar),
Ragnar Davíðsson (Melkíor), og
Stefán Amgrímsson (Baltasar).
Þræll var leikinn af Sigurði Sæv-
arssyni og dansarar vora Hany
Hadaya og Anthony Wood. Kór
og hljómsveit óperasmiðjunnar
lögðu sitt fram við uppfærslu
verksins.
Óperan var ágætlega sungin
en bæði leikurinn og aðstaðan við
flutning verksins unnu gegn því.
Nútímalegur fatnaður fjarlægði
umgerð verksins frá upprunalegri
gerð þess. Þar er t.d. gert ráð
fyrir því að hækjur fatlaða
drengsins séu illa tilgerðir lurkar,
útbúnir af honum sjálfum, og fyr-
ir það, að hann á ekkert annað,
verður gjöf hans himinhrópandi
stór.
Staðsetning hljómsveitarinnar
vann og nokkuð gegn söngnum,
er sérstaklega kom niður á veikum
söng drengsins. Þrátt fyrir þessi
ytri atriði, var tónræn uppfærsla
verksins í heild góð, gædd þokka,
Jóhanna G. Linnet og Hjörtur Þorbjörnsson í hlutverkum sínum.
og söngurinn og leikur hljómsveit-
arinnar oft mjög góður. Ber sér-
staklega að nefna Hjört Þor-
björnsson í hlutverki drengsins,
Jóhönnu G. Linnet, er var góð í
hlutverki móðurinnar, þó meira
hefði mátt gera úr örvæntingu
hennar, er fær hana til að stela
djásnum vitringanna. Vitringamir
(Guðlaugur, Ragnar og Stefán)
voru ágætlega sungnir og sömu-
leiðis söng kórinn vel, þó sviðs-
skipan hans væri á köflum tæt-
ingsleg, einkum í samskiptum sín-
um við vitringana.
Tónlist Menottis er ljúf og helst
til fábreytileg og því er mikilvægt
að sviðsmyndin sé sannfærandi
og styðji þar við, sem tónlistina
vantar að geta staðið ein, því hún
er fyrst og fremst samin utan um
leikræna framvindu sögunnar en
ekki sem tónlistamúmer.
Dalhús. Rafthús á tveimur
hæflum 162 fm auk 34 fm bílsk.
Húsið selst tllb. u. trév. að innan
og fullb. aft utan. Verð 10,8 millj.
Norðurbrún. Parhús á
tveimur hæftum 200 fm m. 50
bílskúr. Mögul. á séríb. á jaröh.
Fallegt útsýni. Vönduft eign.
Langhottsvegur. Fallegt
raðh. á þromur hæöum, ca 235
fm m. innb. bflsk. Fallegur garft-
ur. Mikift endurn.
Fornaströnd. Fallegt
einbhús á einni hæð ca 155 fm
auk 15 fm garöstofu. Tvöf. bílsk.
ca 55 fm. Fallegar innr. Stór sól-
verönd meft heitum potti.
Breíövangur. 4ra-5herb.
ib. á 1. hæð 144 fm auk 25 fm
bílsk. Góð lán áhv. Makaskiptl
mögul. á minni eígn.
Boðagrandi. 4ra herb. fal-
leg fb. 92 fm auk bilskýlis. Lyfta.
Húsvörftur. Gervihnattasjónvarp.
Fráb. útsýni. Gufubað í sameign.
Gott lán áhv.
Víðimelur. 4ra herb. efri
aérfi. í tvibýli auk herb. í kj. Góð
lán áhv.
Laugavegur. 4ra-5 herb.
falleg íb. 132 fm með stórum
suðursvölum eftir endilöngu.
Nýl. gler. Fallegt útsýni.
Næfurás. Glæsil. 2ja herb.
rúmg. íb. á 1. hæð 78 fm. Góðar
svalir. Falleg sameign. Laus.
Verö 6,5 millj.
Lækjarhjalli. 2je herb. fb.
73 fm í nýbyggíngu á jarðhæð.
Selst tllb. u. tróv. og máln. Áhv.
4 millj. húsbréfalán.
Flyðrugrandi. Falleg
2ja-3ja herb. íb. á jarðhæð 65
fm. Sérgarður.Laus fljótlega.
Vesturgata. 2ja herb. fat-
leg risib. ca 65 fm. Stórer svalir.
Fatlegt útsýni. (b. er nýuppgerft.
Verft 5,9 mtllj.
Austurberg. 3je herb. fat-
leg ib. 78 fm auk bilsk. Suftursv.
Góft lán áhv. Verð 7,4-7,5 millj.
Eskihlíð. Glæsil. íb. á 3. hæð
98 fm auk herb. í risi með snyrt-
ingu. Nýl. innr. Nýtt gler og
gluggar.