Morgunblaðið - 08.12.1992, Page 23

Morgunblaðið - 08.12.1992, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8, DESEMBER 1992 er gert ráð fyrir því að sú staða geti komið upp að sveitarfélögum verði skipt í tvo flokka, þau stærri og þau minni. Þessum flokkum verði síðan færð mismunandi verk- efni og tekjur. Forsenda þess að ofangreindar hugmyndir um nýja verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga geti gengið eftir, er að jafnhliða tilflutningi verkefna fái sveitarfélögin auknar tekjur. Það verður að gerast án þess að skattar séu hækkaðir al- mennt. M.ö.o. hækka þarf tekju- stofna sveitarfélaga á kostnað tekjustofna ríkisins. Tryggja þarf sveitarfélögum fullnægjandi tekju- stofna með lögum til að sinna þess- um nýju verkefnum þannig að ríkis- valdið geti ekki sífellt krukkað í tekjustofna þeirra eins og rík til- hneiging hefur verið til. Að mínu mati skiptir miklu að þessum hugmyndum verði hrint í framkvæmd sem fyrst. Að færa þjónustu hins opinbera„ nær ein- staklingunum, þar sem þekking þeirra sem á henni þurfa að halda nýtist sem best, er hagsmunamál allra landsmanna. Höfundur er lögmaður í Reykjavík. Ný verkaskipting ríkis og sveitarfélaga Gunnar Jóhann Birgisson samstarfi sveitarfélaga ætti Reykjavíkurborg að beita sér fyrir því að þau sveitarfélög sem hefðu til þess nægan styrk og áhuga tækju við auknum verkefnum. Samkvæmt þessum niðurstöðum eftir Gunnar Jóhann Birgisson Undanfarið hefur mikið verið rætt og ritað um sameiningu sveit- arfélaga. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sendu frá sér skýrslu um málið ekki alls fyrir löngu og félagsmálaráðuneytið hef- ur sent frá sér áfangaskýrslu sveit- arfélaganefndar um aukið hlutverk sveitarfélaga. Báðar skýrslurnar byggja á því að nauðsynlegt sé að efla og sam- eina sveitarfélögin í landinu. Talið er ljóst að stærri sveitarfélög séu betur í stakk búin til þess að sinna verkefnum sínum og taka við nýjum heldur en minni sveitarfélög. Jafn- framt er talið, að með sameiningu sveitarfélaga skapist skilyrði fyrir hreinni verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Stjómunarkostnaður sveitarfélaganna lækki og hag- kvæmni aukist í fjárfestingum og rekstri. Áfangaskýrsla sveitar- félaganefndar Efling sveitarfélaga og ný verka- skipting ríkis og sveitarfélaga er stórt mál. Mál er snertir flesta. Hinn 8. janúar 1991 skipaði félags- málaráðherra nefnd til að gera sam- ræmdar tillögur um æskilegar breytingar á skiptingu landsins í sveitarfélög. Því starfi var síðan fylgt eftir með skipun nýrrar nefnd- ar í upphafi þessa árs. Tillögur þeirrar nefndar hafa nú birst í áður- nefndri áfangaskýrslu. Þar kemur fram, að meginmarkmið nefndar- innar hafi verið að leita leiða til að treysta byggð í landinu, efla stað- bundið vald og auka skilvirkni stjómsýslunnar. I áfangaskýrslunni er m.a. fjallað um breytingu á verkaskiptingu rík- is og. sveitarfélaga, útfærðar em tillögur um ný umdæmi sveitarfé- laga og settar em fram tillögur um auknar tekjur sveitarfélaga í kjölfar aukinna verkefna. Rætt er um að færa verkefni eins og rekstur gmnnskóla, framhaldskóla, heilsu- gæslustöðva, þjónustu við aldraða, þjónustu við fatlaða, til sveitarfé- laga. Lagt er til að þeim kostnaðar- auka, sem sveitarfélögin verða fyr- ir, verði mætt með hækkun á al- mennum tekjustofnum þeirra, aðal- lega með hækkun útsvars. Ný verkaskipting og einkavæðing Með því að færa verkefni frá ríki til sveitarfélaga er verið að auka valddreifingu og væntanlega að bæta þjónustu þar sem staðbundin þekking heimamanna á hveijum stað mun nýtast sem best eftir breytinguna. Af viðbrögðum talsmanna ýmissa smærri sveitarfélaga má ráða að ærið verkefni verði að sameina sveitarfélögin í landinu. Svokallað- ur „lokalismi" virðist víða ráða ferð- inni. Jafnframt virðist lítill skilning- ur vera á því að stærri sveitarfélög eru besta tryggingin fyrir „eðli- legri“ dreifíngu byggðar í landinu. I 6. gr. sveitarstjómalaga nr. 8/1986 er kveðið á um helstu verk- efni sveitarstjórna. Greinin byggir á þeirri meginreglu að sveitarfélög- in hafí með höndum verkefni sem ráðst af staðbundnum þörfum og viðhorfum, þar sem ætla má að þekking og frumkvæði heima- manna leiði til betri þjónustu en miðstýring af hálfu ríkisvaldsins. Ljóst er að þessar röksemdir eiga við um mörg verkefni sem ríkisvald- ið hefur með höndum í dag og bet- ur væri komin hjá sveitarstjórnun- um sjálfum. Tillögur samtaka sveit- arfélaga og sveitarfélaganefndar eru því þarfar og nauðsynlegar til þess að skapa meira svigrúm við uppbyggingu og rekstur ýmiss kon- „Tillögur samtaka sveitarfélaga og sveit- arfélaganefndar eru því þarfar og nauðsyn- legar til þess að skapa meira svigrúm við upp- byggingu og rekstur ýmiss konar þjónustu er hið opinbera veitir í dag.“ ar þjónustu er hið opinbera veitir í dag. Þannig má færa sterk rök fyr- ir því að þessi breyting geti leitt til aukinnar einkavæðingar. Því líklegt er að íbúar hvers sveitarfélags muni koma til með að þrýsta á að staðbundin verkefni verði falin einkaaðilum. Einkavæðing er hins vegar ákjósanleg til þess að bæta þjónustu og lækka kostnað. Borgarmálaráðstefna Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðismenn í Reykjavík hafa tekið undir þessar hugmyndir en hafa jafnframt bent á sérstöðu Reykjavíkur og stærri sveitarfé- laga. í niðurstöðum borgarmálaráð- stefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn stóð fyrir þann 14. nóvember sl. kom fram, að nauðsynlegt væri að Reykjavíkurborg beitti sér fyrir því að sem flest verkefni yrðu flutt frá ríkisvaldinu til sveitarfélaga. Jafn- framt var þar bent á, að ef einhver sveitarfélög vildu skorast undan All PU8POSF GKI IVIOLIDO MEDIAND mww ■^HNATURAL fla ENVASADO AL ALTO “CUUM PACKt ■!,WT.l6 0/.I4 KAFFI MARINO góöa kaffið í rauöu dósunum frá MEXÍKÓ Skútuvogi 10a -104 Reykjavík - Pósthólf 4340 - Sími 686700 - Telefax 680465 /

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.