Morgunblaðið - 08.12.1992, Qupperneq 33
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992
T
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Sviss er eitt,
Island annað
Cl amningurinn um Evrópska
efnahagssvæðið var felldur
pegar hann var borinn upp til at-
kvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu í
Sviss um helgina. Talið er að í engri
þjóðaratkvæðagreiðslu í landinu á
þessari öld hafí hinar stríðandi fylk-
ingar tekist jafn hart á og nú og
var kosningaþátttaka óvenjulega
mikil, eða rúm 79%.
Niðurstaðan varð sú að alls
greiddu 50,3% Svisslendinga at-
kvæði á móti samningnum en 49,7%
með. Þá var hann felldur í 16 kant-
ónum af 23. Samningurinn náði ein-
ungis fram að ganga í frönsku kant-
ónunum sex og þýsku kantónunni
Basel.
Það kom í sjálfu sér ekki á óvart
að samningnum var hafnað af Sviss-
lendingum. í Sviss er rík hefð fyrir
því að standa utan við alþjóðlegt
samstarf og hafa Svisslendingar til
að mynda kosið að standa utan
Sameinuðu þjóðanna. Skoðana-
kannanir höfðu líka undanfarið bent
til þess að EES myndi ekki verða
samþykkt í meirihluta kantónanna,
líkt og stjórnskipan Sviss áskilur.
Við því var aftur á móti ekki búist
að meirihluti íbúa greiddi atkvæði
gegn samningnum, eins og raunin
varð.
Þegar áhrif niðurstöðunnar eru
metin verða menn fyrst að gera sér
grein fyrir því hvers vegna samning-
urinn var felldur. Málflutningur
svissneskra EES-andstæðinga ein-
kenndist mjög af hinni gamalgrónu
svissnesku tortryggni í garð alþjóð-
legra tengsla. Þá var alið á ótta við
innflutt vinnuafl, en atvinnuleysi í
Sviss er nú 3,9%. Loks var það ein
meginröksemdin að Evrópustefna
stjómarinnar, sem einnig hafði sótt
um aðild að EB, ógnaði sérstöðu
og hefðbundnu hlutleysi Sviss. Þess-
ar röksemdir fengu góðan hljóm-
grunn í hinum þýskumælandi kant-
ónum landsins, sem ávallt hafa ver-
ið mjög einangrunarsinnaðar og
íhaldssamar, en um 72% Svisslend-
inga eru þýskumælandi.
Sú ákvörðun Svisslendinga að
standa utan við Evrópska efnahags-
svæðið, sem verður stærsta mark-
aðssvæði í heimi, hefur engin úr-
slitaáhrif á myndun þess. Aformin
um sameiginlegan markað EB og
EFTA standa áfram óhögguð þó að
það kunni að frestast um nokkra
mánuði að EES verði til. í samn-
ingnum er gert ráð fyrir þeim mögu-
leika að hann verði ekki staðfestur
í öllum þeim ríkjum sem hann undir-
rituðu, og ber þá að boða til ráð-
stefnu stjórnarerindreka um fram-
haldið. Líklegasta niðurstaðan er
að samningnum verði brejrtt þannig
að hann eigi við einu ríki færra og
að EFTA-ríkin taki á sig einhvern
hluta þess kostnaðar, t.d. við stofn-
anir EES, sem Svisslendingum bar
að greiða.
Höfnunin hefur því fyrst og
fremst áhrif fyrir Svisslendinga
sjálfa og svissnesk fyrirtæki, en
mörg þeirra hafa lýst því yfír að
þau verði að draga úr fjárfestingum
í Sviss verði landið ekki aðili að
EES. Það eina sem svissneskir EES-
andstæðingar lögðu til að kæmi í
stað EES var að teknar yrðu upp
tvíhliða samningaviðræður við EB.
Slíkum hugmyndum hefur nú þegar
verið hafnað af bandalaginu með
þeim rökum að þjóð sem hefur kos-
ið einangrun geti ekki búist við að
fá það í tvíhliða samningum sem
hún hefur þegar hafnað í fjölþjóða-
samningi. Þá sagði Frans Andries-
sen, sem fer með utanríkismál í
framkvæmdastjóm EB, þegar í síð-
ustu viku að Svisslendingar ættu
ekki að búast við því, ef þeir vildu
aðild að EES eftir nokkur ár, að
þeir myndu þá sjálfkrafa fá aftur
þau sérskilyrði sem þeir sömdu um
í EES-viðræðunum.
Úrslitin í Sviss breyta engu um
afgreiðslu málsins á Islandi. Brýnt
er að Alþingi staðfesti samninginn
nú í desember, en ísland og Liecht-
enstein em einu EFTA-ríkin sem
ekki hafa enn afgreitt EES-samn-
inginn. í kjölfar úrslilanna í Sviss
er nauðsynlegt að afstaða íslend-
inga liggi ljós fyrir og að málið
hafi verið afgreitt hér þegar fulltrú-
ar EFTA-ríkjanna og EB-ríkjanna
setjast á rökstóla í samræmi við
ákvæði samningsins. Úrslitin í Sviss
eru enginn rökstuðningur fyrir því
að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram
hér. Svisslendingar búa við allt aðra
hefð en við í þeim efnum. Hér hefur
ekki verið efnt til þjóðaratkvæða-
greiðslu um þá veigamiklu alþjóða-
samninga sem við höfum gert frá
lýðveldisstofnun og ekki frekar
ástæða til að efna til slíkrar at-
kvæðagreiðslu um EES-samning-
inn, sem er fyrst og síðast víðtækur
viðskiptasamningur, en ekki aðild-
arsamningur að EB.
Morgunblaðið hefur margsinnis
lýst þeirri skoðun sinni að þátttaka
okkar í EES sé lokaáfangi á þess-
ari leið. Davíð Oddsson forsætisráð-
herra hefur tekið í sama streng.
Hér er ekki verið að tala um aðild
að Evrópubandalaginu. Því fer víðs
fjarri. Ef um það væri að ræða
væri þjóðaratkvæðagreiðsla i alla
staði eðlileg enda væri þá um að
tefla gmndvallarbreytingu á stjóm-
arháttum okkar. Svo er ekki með
samningnum um þátttöku okkar í
EES.
Það hefur engin áhrif á gildi
samningsins fyrir íslendinga að
honum hefur verið hafnað í þjóðar-
atkvæðagreiðslu í Sviss. Með EES-
samningnum höfum við fengið far-
sæla' Iausn á framtíðartengslum
okkar við EB, stærsta viðskiptaaðila
íslendinga, sem tryggir tollfijálsan
aðgang útflutningsafurða okkar á
Evrópumarkaði. Um þetta snýst
málið en ekki hvernig formsatriði
vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar í
Sviss verða leyst.
Þeir sem mæla gegn samningnum
hafa enga aðra kosti kynnt en tví-
hliða viðræður við EB um hags-
munamál okkar. Viðbrögð EB við
atkvæðagreiðslunni í Sviss sýna
hins vegar greinilega að það er kost-
ur sem ekki stendur til boða. Við
erum lítil þjóð sem eigum allt okkar
undir utanríkisviðskiptum. Við höf-
um ekki efni á þeirri einangrun sem
höfnun á EES hefði í för með sér,
svo mikilvægur sem markaðurinn er.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992
EES-samningur felldur í þjóðaratkvædagreiðslu í Sviss
Ekkert er að vanbúnaði að
samþykkja EES-samninga
- segir utanríkisráðherra
JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að niðurstaða þjóðar-
atkvæðagreiðslu Svisslendinga í fyrradag, þar sem þeir höfnuðu EES-
samningnum, sé fyrst og fremst svissneskt vandamál, sem þeir verði sjálf-
ir að leysa. „Þeir eru ekki búnir að sjá fyrir endann á þeim vanda sem
þessi niðurstaða færir þeim. Fréttaskeyti herma að nokkur fjölþjóðleg
fyrirtæki sem hafa aðalbækistövar í Sviss, hafi þegar lýst því yfir að
þau séu farin úr þessu landi. Þau hafi þar ekki framtíðarstarfsvettvang,
ef þau hafi ekki hindrunarlausan aðgang að innri markaði evrópska efna-
hagssvæðisins,“ sagði Jón Baldvin í samtali við Morgunblaðið í gær.
Ráðstefna stjórnarerindreka
kölluð saman
Utanríkisráðherra var spurður um
hver áhrif þessarar niðurstöðu yrðu á
afgreiðslu málsins hér á íslandi:
„Þetta hefur eitt út af fyrir sig engin
áhrif á afstöðu íslensku ríkisstjómar-
innar eða stjómarflokkanna til máls-
ins. Meginatriðið ej þetta: Það var ráð
fyrir því gert í samningnum sjálfum,
að svo kynm að fara að eitthvert land
felldi aðild. I 129. grein samningsins
er flallað um þetta og þar er gert ráð
fyrir tveimur tilvikum. Annars vegar,
að staðfestingu seinki svo mjög í ein-
hveiju landi, að gildistakan geti ekki
átt sér stað um áramót 1992-1993.
Þá er kveðið á um hvemig skuli haga
framhaldinu og síðustu forvöð gefín
um mitt ár 1993. Þetta á,ekki við um
Sviss, heldur hitt tilvikið, þegar eitt-
hvert land beinlínis fellir staðfestingu
samningsins. Ákvæði samþykktarinn-
ar sem túlka 129. grein samningsins
eru mjög skýr: „Ef einhver samnings-
aðilanna fullgildir ekki samninginn
skulu hinir samningsaðilamir boða til
ráðstefnu stjómarerindreka til að
meta áhrif fráviks frá fullgildingu
samningsins og skoða möguleika á
að samþykkt verði bókun um breyt-
ingar, sem verði með fyrirvara um
nauðsynlega meðferð innanlands. Slík
ráðstefna skal haldin jafnskjótt og
Ijóst er að einhver samningsaðili mun
ekki fullgilda samninginn, eða í síð-
asta lagi, ef dagsetning gildistöku
samningsins er ekki virt.“
Jón Baldvin sagði að um það hefði
verið deilt hvort þörf væri á túlkun á
því hvað fælist í „hinir samningsaðil-
arnir“. Spurt væri hvort það væm
þeir sem þegar hefðu fullgilt samning-
inn, eins og Noregur, Svíþjóð, Finn-
land og Austurríki, eða hvort þar
væm einnig meðtaldir samningsaðilar
sem a.m.k. hefðu ekki hafnað^ samn-
ingnum, eins og ætti við um ísland.
„Þetta er túlkunaratriði sem lýtur
að því hveijir eiga erindi á slíka ríkjar-
áðstefnu. Vafalaust eiga þeir erindi
sem staðfest hafa aðild sína að samn-
ingnum, en aðrir sem ekki hafa gert
það, eiga það þá undir góðvild hinna
samningsaðilanna hvort þeir em boðn-
ir á þá ráðstefnu. Ég hef því sagt að
til þess að taka af öll tvímæli um
umboð íslensku ríkisstjórnarinnar, til
þátttöku í framhaldi málsins, þá þarf
Alþingi að hafa veitt ríkisstjórninni
þá heimild, en það er það sem felst í
samþykkt fmmvarpsins," sagði Jón
Baldvin.
Ekkert að vanbúnaði að
samþykkja frumvarpið
Utanríkisráðherra sagði menn hafa
haft uppi stórar fullyrðingar í þá vem
að fmmvarpið sem nú liggur fyrir
Alþingi væri úrelt, eftir að Svisslend-
ingar hafa fellt samninginn. „Stað-
reyndir málsins em þessar: Með því
að samþykkja þessar fímm fmmvarps-
greinar staðfestingarfmmvarpsins, þá
er það bara fyrsta greinin um heimild
til þess að fullgilda samningana fyrir
íslands hönd, sem fær þegar í stað
lagagildi. Hún mun ekkert breytast
síðar meir, en samkvæmt fimmtu
grein, þá öðlast önnur ákvæði laganna
ekki lagagildi, fyrr en að fullgildingar-
skjöl hafa verið afhent af allra hálfu.
Það er þess vegna rangt, að fmm-
varpstextann þurfí að endurskoða síð-
ar; það er rangt að hann sé úreltur.
Hið rétta er, að okkur er ekkert að
vanbúnaði, við að samþykkja fmm-
varpið eins og það nú liggur fyrir,
rétt eins og þjóðþingin annars staðar
á Norðurlöndum hafa þegar gert,“
sagði utanríkisráðherra.
Jón Baldvin sagði að með því að
samþykkja fmmvarpið, færi ekkert á
milli mála að íslensk stjómvöld væm
með fullt umboð til þátttöku í ríkjaráð-,
stefnunni í framhaldinu, til þess að
semja þar um þær lágmarkstæknilegu
breytingar sem gera yrði á textum,
sem aftur yrði svo lagt fyrir Alþingi,
væntanlega í formi viðauka eða bók-
unar.
Kanna þarf þróunarsjóðinn
sérstaklega
Utanríkisráðherra sagði að þær
breytingar sem semja þyrfti um væm
þær að eftirlitsstofnun ÉFTA og dóm-
stóll EFTA yrðu skilgreind upp á nýtt,
þannig að ekki yrði lengur um stofn-
anir EFTA að ræða, heldur stofnanir
viðkomandi ríkja. „Auk þess þyrfti að
kanna þróunarsjóðinn sérstaklega.
Það er ekkert sjálfgefíð að EFTA-rík-
in fari að borga aðgöngumiða fyrir
Sviss, sem hefur hafnað aðgöngu og
það er ekkert sjálfgefíð að EB muni
setja þá kröfu fram. Raunar hefur
Andriessen þegar sagt að hann geri
ráð fyrir því að sjóðsupphæðin verði
lækkuð sem svarar því sem ráðgert
var sem framlag Sviss.
Frumvarpið sem fyrir liggur er því
í fullu gildi. Eitt er að Alþingi sam-
þykki fmmvarpið og veiti ríkisstjóm-
inni heimild til fullgildingar og hitt
er annað, hvenær sú fullgilding fer
fram. Hún fer ekki fram fyrr en ríkja-
ráðstefnan hefur verið haldin og sam-
komulag er um lágmarksbreytingar.
Þetta á bæði við um EES-samninginn
sjálfán og tvíhliða sjávarútvegssamn-
ingana. Þeir verða ekki fullgiltir fyrr
en EES er orðið að vemleika," sagði
Jón Baldvin.
Utanríkisráðherra var spurður
hvenær hann teldi að til ofangreindrar
ríkjaráðstefnu yrði boðað: „Það liggur
fyrir, að þetta er sami skilningur og
lýst hefur verið yfír af hálfu hinna
ÉFTA-ríkjanna, þ.e.a.s. Noregs, Finn-
lands, Svíþjóðar og Austurríkis. Það
er engin ástæða til þess að efast um
pólitískan vilja þessara aðila, til að
lúka verkinu. Af hálfu framkvæmda-
stjómar Evrópubandalagsins, þ.e.a.s.
Andriessens, hefur það enn verið
áréttað. Það hefur enginn svar við því
á reiðum höndum enn, hversu löng
töfín verður, en ég heyri frá Bjöm
Tore Godal, formanni ráðherraráðs
EFTA, sem hefur haft samráð við
framkvæmdastjóm EB, að ekki er
talið unnt að koma ráðstefnunni á,
fyrr en í fyrsta lagi í lok janúarmánað-
ar.“
Jón Baldvin sagði að aðeins ein leið
væri fær til að taka af tvímæli um
að ríkisstjórn íslands hefði umboð til
þessarar framhaldsþátttöku og lúka
málinu, en það væri að Alþingi sam-
þykkti það fmmvarp sem fyrir lægi.
Þinghald milli hátíða ef þurfa
þykir
Utanríkisráðherra var spurður
hvort ríkisstjórnin héldi enn fast við
áform sín um að ljúka afgreiðslu
málsins fyrir jól: „Á sínum tíma gerð-
um við heiðursmannasamkomulag við
stjórnarandstöðuna um þingmeðferð
EES-málsins - það kvað á um það að
meðferð þess skyldi lokið fyrir lok
nóvembermánaðar, við það samkomu-
lag hefur ekki verið staðið. Síðan var
gert samkomulag um að fresta ann-
arri umræðu um málið fram til 12.-15.
desember. Beiðni um það kom frá
þingflokki Framsóknarflokksins, í ljósi
þess að formaður Framsóknarflokks-
ins væri staddur við jarðarför á Sri
Lanka og varaformaðurinn væri er-
lendis líka einhveija daga um miðjan
desember. Stjórnarflokkamir tóku
þessu kurteislega og féllust á að
seinka málinu, en auðvitað í trausti
þess að samkomulag var gert um að
ljúka annarri umræðu. Henni átti að
ljúka að kvöldi 15. desember með út-
varpsumræðu og atkvæðagreiðslu.
Það var ekki samkomulag um fleira,
en þó var um það rætt að þriðja um-
ræða hæfíst 16. desember.
Það eru engin málefnaleg rök fyrir
því að falla frá þessu samkomulagi,
vegna þess að það er ekkert sem hef-
ur gerst við það að Svisslendingar
hafa fellt samninginn, sem veldur því
að Alþingi geti látið málið liggja. Þvert
á móti er það svo, að við þurfum að
eyða efasemdum um að ísland sé ekki
nýtt Sviss.
Ég get ekkert fullyrt um það hvað
tekst og hvað tekst ekki í þessari
stofnun. Það má alveg eins spyija um
önnur stórmál, frá fjárlagafrumvarpi
til efnahagsaðgerða. Tekst að ljúka
þeim? Það vill svo til, að óbilgjöm
stjómarandstaða, sem vill fyrst og
fremst skáka í skjóli þingskapaleysis
hér, getur auðvitað talað íjandann
ráðalausan, um allt og ekkert daginn
út og daginn inn, í því skyni að tefja
mál. Það er ekkert nýtt - það hefur
verið daglegt brauð í þessari sam-
kundu. Það hefur komið fyrir í tví-
gang á undanförnum ámm, að halda
hefur þurft fram þingi milli hátíða,
eða strax eftir áramót. Ef ekki er
unnt að lúka málum, sem þjóðamauð-
syn ber til fyrir jól, þá er enginn ann-
ar kostur, en halda bara þingstörfum
áfram, milli hátíða, eða strax eftir
árarnót," sagði Jón Baldvin Hannib-
alsson utanríkisráðherra.
Biörn Bjamason formaður utanríkismálanefndar
Sem mest samstaða
náist um málsmeðferð
„VIÐ okkur blasir að tryggja okkar hagsmuni í þeim viðræðum sem nú
eru að hefjast á milli EFTA-ríkjanna og EB um framvindu mála á grund-
velli samningsins. Ég tel að það hafi verið mjög mikilvægt sem fram
hefur komið að utanríkisráðherra hefur umboð til að ganga til þessara
viðræðna,“ segir Björn Bjarnason, formaður utanríkismálanefndar.
„A Alþingi þurfum við að huga að
framvindunni varðandi EES-samning-
inn og taka afstöðu með hliðsjón af
því sem gerst hefur. Það er brýnt að
reyna að ná sem víðtækastri samstöðu
um málsmeðferð en því má ekki
gleyma að stjórnarandstaðan hefur
að nokkrum hluta skipað sér í and-
stöðu við aðild okkar og það er ljóst
að þessir andstæðingar munu beita
öllum ráðum nú eins og áður til að
tefja fyrir eða spilla því að við getum
lokið afgreiðslu málsins," segir Bjöm.
„Úrslitin í Sviss breyta engu um
nauðsyn þess fyrir okkur íslendinga
að gerast aðilar að EES. Við höfum
ekki framselt neitt vald til Svisslend-
inga í því efni. Andstaða Svisslendinga
við aðild að Sameinuðu þjóðunum
hefur til dæmis ekki haft nein áhrif
á þátttöku okkar í þeim alþjóðasam-
tökum. Við tökum afstöðu til EES-
aðildar á okkar forsendum og sam-
kvæmt okkar stjórnskipan.“
Aðspurður hvort hann væri sam-
mála því að brýnt sé fyrir íslendinga
að ljúka afgreiðslu samningsins sem
fyrst sagði Bjöm að það væri mikil-
vægt að þeir sem tækju þátt í fram-
haldsviðræðum EFTA-ríkjanna og EB
efuðust ekki um að það væri fullur
vilji til þess á Alþingi að staðfesta
EÉS-samninginn. Nú liggi fyrir meiri-
hlutaálit frá utanríkismálanefnd og
að öraggur meirihluti sé fyrir samn-
ingnum á þingi. „Ef þarf að árétta
það með einhveijum hætti, til að taka
af skarið í þeim viðræðum sem nú
standa fyrir dyram, á ekki að stefna
málinu í neina tvísýnu með því að
gera það ekki,“ svaraði hann.
Taismenn stjórnarandstöðunnar segja EES-málið gjörbreytt
Astæðulaust að eyða tíma í
þinglega meðferð málsins
- segir Páll Pétursson
TALSMENN stjórnarandstöðuflokkanna segja að staðan varðandi samn-
inginn um Evrópska efnahagssvæðið sé gjörbreytt eftir að Svisslending-
ar felldu samninginn. Ekki sé hægt að afgreiða staðfestingarfrumvarpið
eða fylgifrumvörp þess vegna þess að þar sé gert ráð fyrir því að EFTA
sé aðili að málinu sem ljóst sé nú að ekki verði vegna niðurstöðu Sviss-
lendinga. Segir stjórnarandstaðan að málið sé nú komið í biðstöðu á
Alþingi og formaður þingflokks Framsóknarflokksins segir raunar að
ástæðulaust sé að eyða tíma þingsins í þetta mál og það geti snúið sér
að öðrum verkefnum.
„Þessi atkvæðagreiðsla í Sviss gjör-
breytir auðvitað stöðu málsins," sagði
Páll Pétursson formaður þingflokks
Framsóknarflokksins þegar álits hans
var leitað á stöðu málsins. „Ég skal
ekkert segja um framhald málsins en
í öllu falli sýnist mér að það sé ástæðu-
laust að eyða tíma í þinglega meðferð
málsins hér að svo komu máli. Við
föram auðvitað ekki að lögtaka samn-
ing sem fyrirfram er útséð með að
verði ekki að veruleika. Þingið getur
þess vegna snúið sér að öðram verk-
efnum,“ sagði Páll.
Páll kvaðst ekkert vilja fyllyrða um
það að Evrópska efnahagssvæðið
væri úr sögunni, sagðist reikna með
að áhugamenn um málið reyni að
beija saman einhveija niðurstöðu. „En
niðurstaðan liggur ekki fyrir og mun
ekki liggja fyrir á næstu dögum,“
sagði Páll.
Samningurinn ekki lengur í
samræmi við raunveruleikann
Kristín Einarsdóttir þingkona Sam-
taka um kvennalista sagði nú ljóst
að EES-samningurinn tæki ekki gildi
1. janúar eins og ríkisstjórnin hefði
stefnt að og að EFTA væri ekki leng-
ur aðili að honum. „Samningurinn er
því ekki lengur í samræmi við raun-
veraleikann og Alþingi stendur
frammi fyrir því að vera að fjaila um
frumvarp sem er ekki í samræmi við
raunverulega stöðu mála. Ég held að
það sé einboðið að ekki er hægt að
samþykkja frumvarpið eins og það
liggur fyrir, sagði Kristín.
„Mér finnst eðlilegast að utanríkis-
málanefnd taki samninginn aftur til
umfjöllunar, fylgist með gangi mála
og taki þátt í þessum viðræðum áfram,
ef það er vilji meirihlutans. Ég þarf
varla að taka það fram að ég vildi
gjaman hætta þessu. í því efni tek
ég undir með meirihluta svissnesku
þjóðarinnar og að ég held einnig meiri-
hluta íslensku þjóðarinnar," sagði
Kristín.
Hún vakti athygli á því að sam-
kvæmt 129. grein EES-samningsins
væri ekki hundrað í hættunni fyrir
þá sem endilega vildu koma þessum
samningi í gegn þó framvarpið hlyti
ekki afgreiðslu fyrir jól. Þar væri tal-
að um að lokafrestur til staðfestingar
samningsins væri til 30. júní 1993.
Eftir þann dag ættu samningsaðilar
að boða til ráðstefnu stjórnarerindreka
til að meta stöðu mála. Sagði hún að
í skýringum við greinina kæmi ekki
fram að ríki yrðu útilokuð og það
væri fráleit túlkun hjá utanríkisráð-
herra að halda því fram að Islending-
ar yrðu útilokaðir frá þessari ráð-
stefnu þó þeir staðfestu samninginn
ekki nú þegar.
Taka verður allt málið
upp að nýju
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður
Alþýðubandalagsins,- sagði að niður-
staðan í Sviss fæli í sér grundvallar-
breytingu á öllu EES-kerfínu, bæði
samningnum sjálfum og fylgisamn-
ingnum um EFTA-dómstólinn og Eft-
irlitsstofnun EFTA sem gerðu ráð
fyrir því að EFTA væri önnur megin-
stoðin í EES-kerfinu ásamt Evrópu-
bandalaginu. „Ákvörðunin í Sviss ger-
ir það að verkum að EFTA er ekki
lengur aðili að EES. Það er misskiln-
ingur að hægt sé að strika EFTA út
úr samningnum. Hins vegar stendur
eftir spurningin um það hvort fimm
ríki sem líka era saman í EFTA ætla
að verða aðilar að Evrópska efnahags-
svæðinu þó EFTA verði það ekki,“
sagði Ólafur Ragnar.
Hann sagði að ekki væri hægt að
samþykkja staðfestingarframvarpið í
núverandi gerð og yrði að taka allt
málið upp að nýju. Énginn gæti sagt
til um hvað það tæki langan tíma.
Ólafur Ragnar sagði að það hefði
komið rækilega fram í Alþingi í gær
að það væri rangt sem utanríkisráð-
herra hefði haldið fram að staðfesting-
arframvarp EES-samningsins yrði að
hljóta afgreiðslu í Alþingi fyrir jól svo
að ísland fengi aðgang að umfjöllun-
arráðstefnunni sem boðað verður til í
kjölfar þess að Svisslendingar felldu
samninginn.
„Mér finnst niðurstaðan í Sviss sýna
hvað það er mikilvægt að þjóðir fái
að segja álit sitt á veigamiklum samn-
ingum af þessu tagi. Hér hefur það
verið krafa þriggja stjómmálaflokka,
yfir 70% þjóðarinnar samkvæmt skoð-
anakönnunum, almannasamtaka með
yfir 100 þúsund félagsmenn og 35
þúsund íslendinga með undirskriftum
að hér fari fram þjóðaratkvæða-
greiðsla um EES-samninginn. Ég skil
ekki þá menn sem ætla að halda áfram
að standa gegn þessari kröfu,“ sagði
Ólafur Ragnar.
Hann sagði að málið færi nú í bið-
stöðu. „Ég held að það sé skynsam-
legt að menn taki þessu rólega næstu
daga, málið verði rætt milli flokkanna
og síðan gefí utanríkisráðherra
skýrslu um það hvað fram kemur hjá
utanríkisráðherrum EFTA-ríkjanna á
fímmtudag og föstudag,“ sagði Ólafur
Ragnar Grímsson.
AF INNLENDUM
VETTVANGI
ÓLAFUR Þ. STEPHENSEN
Þingflokkur Framsóknarmanna tvískiptur í afstöðu til EES
Afstaða til samkeppn-
islaga skýrir línumar
ENN frekari staðfesting fékkst á klofningnum í Framsóknar-
flokknum um samninginn um Evrópskt efnahagssvæði á fimmtu-
daginn í síðustu viku, er greidd voru atkvæði á Alþingi eftir
2. umræðu um frumvarp til samkeppnislaga. Við atkvæða-
greiðslu um 11. kafla frumvarpsins, sem kveður á um hlutverk
EFTA-dómstólsins og eftirlitsstofnunar EFTA varðandi fram-
kvæmd samkeppnislaga, sátu sjö þingmenn Framsóknarflokksins
hjá. Aðrir þingmenn flokksins, sem viðstaddir voru, greiddu
atkvæði gegn þessum ákvæðum. Um EFTA-dómstólinn og eftir-
litsstofnunina hefur staðið mestur styr í deilunum um það hvort
EES-samningurinn standist stjórnarskrá eða ekki, en Framsókn-
armennimir sjö em ekki tilbúnir að kveða upp úr um að hlut-
verk þessara stofnana bijóti í bága við íslenzku stjórnarskrána.
Atkvæðagreiðslan gefur því nokkra vísbendingu um það hvera-
ig línur liggja í þingflokki Framsóknarmanna varðandi EES.
Stefnumótun Framsóknar-
manna hvað Evrópska efna-
hagssvæðið varðar hefur verið
óskýr frá upphafi og flokkurinn
slegið úr og í varðandi stuðning
við EES. Flokkurinn leiddi ríkis-
stjóm, sem hóf samningaviðræð-
umar um EES, en hefur alltaf
gert veigamikla fyrirvara við
markmið samninganna. Á mið-
stjómarfundi Framsóknarmanna
síðastliðið vor var mörkuð sú
stefna að setja fimm skilyrði fyrir
stuðningi við samninginn. Þau eru
að samningurinn standist ákvæði
stjómarskrár, að „girðingar" verði
settar í lög, t.d. til að tryggja ís-
lenzkt eignarhald á jarðeignum,
að tvíhliða samningur við EB um
veiðiheimildir sé^ viðunandi, að
tryggt verði að Islendingar megi
leggja jöfnungargjöld á innfluttar
landbúnaðarafurðir og að tryggt
sé að hægt verði að breyta ÉES-
samningnum í tvíhliða samning
íslands og EB, gangi hin EFTA-
ríkin í Evrópubandalagið. Þessi
afstaða, að styðja samninginn með
skilyrðum, markaðist einkum af
því að með honum mætti „bægja
frá þessum furðulegu hugmyndum
um að ísland sæki um aðild að
EB,“ eins og Steingrímur Her-
mannsson orðaði það á þessum
tíma.
Ágreiningur á flokksþingi
Djúpstæður ágreiningur var um
EES-málin á flokksþingi Fram-
sóknarflokksins, sem haldið var
fyrir rúmri viku og virtust flokks-
menn ekki sammála um það hvort
skilyrðunum fímm hefði verið full-
nægt eða ekki. Mesta athygli vakti
mismunandi afstaða helztu for-
ingja flokksins, Steingríms Her-
mannssonar og Halldórs Ásgríms-
sonar varaformanns. Steingrímur
sagði EES-samninginn bijóta í
bága við stjórnarskrána og að því
væri ekki hægt að samþykkja
hann. Halldór taldi hins vegar fjöl-
mörg tækifæri felast í samningn-
um og að hann væri eina leiðin
til að fá bættan markaðsaðgang í
Evrópu fyrir útflutningsafurðir
íslendinga. Drög Steingríms Her-
mannssonar að stjórnmálaályktun,
þar sem EES-samningnum var
hafnað á þeim forsendum að hann
bryti í bága við stjórnarskrá, voru
ekki samþykkt. Niðurstaða flokks-
þingsins var fremur loðið orðalag
í stjórnmálaályktun, þar sem segir
að allan vafa um stjórnarskrárgildi
samningsins beri að túlka stjórnar-
skránni í hag.
Niðurstöðu ekki að vænta í
þingflokknum
Flokksþing Framsóknarflokks-
ins tók því ekki efnislega afstöðu
til EES, en vísaði ágreiningnum
opinberlega að hann ætli ekki að
leggjast gegn EES-samningnum
er hann kemur til lokaafgreiðslu
á þingi. Aðrir úr þessum hópi vildu
ekki gefa upp i samtölum við
blaðamann hver endanleg afstaða
þeirra yrði, og vildu ekki endilega
tengja atkvæðagreiðsluna um
samkeppnislögin beint við EES. Á
þeim er þó mjög greinilega að
heyra að þeir eru jákvæðari en
aðrir þingmenn flokksins, þar á
meðal flokksformaðurinn, í garð
Evrópska efnahagssvæðisins.
Einn þingmaður sagði að stór hluti
þingflokksins vildi ekki taka jafn-
djúpt í árinni varðandi vafa um
stjórnarskrárhæfí EES-samnings-
ins og þeir þingmenn, sem vilja
hafna samningnum. Sumir þing-
mennirnir leggja einnig áherzlu á
að EES-samningurinn hafí marga
Halldór og Steingrímur
Klofningur Framsóknarflokksins um afstöðuna til EES hefur komið
skýrt fram í mismunandi málflutningi tveggja helztu foringja flokksins.
til þingflokksins. Af samtölum við
þingmenn og aðra þá, sem til
þekkja í Framsóknarflokknum,
má ráða að hann verði heldur ekki
leystur þar. Atkvæðagreiðslan um
samkeppnislögin þykir staðfesta
það, sem rætt heftir verið manna
á milli um nokkum tíma, að meiri-
hluti þingflokksins, sjö þingmenn,
sé tiltölulega jákvæður í garð
EES-samningsins og treysti sér
ekki til að leggjast gegn honum,
en hinir sex muni sennilega greiða
atkvæði gegn samningnum.
Þeir þingmenn Framsóknar-
flokksins, sem sátu hjá við af-
greiðslu 11. kafla samkeppni-
slagafrumvarpsins voru Halldór
Ásgrímsson og Jón Kristjánsson
af Austurlandi, Guðmundur
Bjarnason, Valgerður Sverrisdótt-
ir og Jóhannes Geir Sigurgeirsson
af Norðurlandi eystra, Ingibjörg
Pálmadóttir af Vesturlandi og
Finnur Ingólfsson úr Reykjavík.
Þeir, sem greiddu atkvæði á móti
voru Páll Pétursson, Ólafur Þ.
Þórðarson, Stefán Guðmundsson
og Guðni Ágústsson. Steingrímur
Hermannsson og Jón Helgason
voru fjarverandi.
Halldór Ásgrímsson er sá eini
úr hópi sjömenninganna, sem hef-
ur viljað kveða upp úr með það
kosti og að erfítt sé að hafna hon-
um, þótt vafí þyki leika á einhveij-
um atriðum í tengslum við stjórn-
arskrána.
Opið í báða enda
Samþykkt flokksþingsins þykir
gefa þeim, sem vilja, svigrúm til
að sitja hjá við afgreiðslu samn-
ingsins. Ekki getur talizt líklegt
að þingflokkurinn allur sitji hjá,
til þess hafa til dæmis þmgmenn-
irnir Páll Pétursson og Ólafur Þ.
Þórðarson gefið of eindregnar yfir-
lýsingar um andstöðu við EES.
Líklegt er hins vegar að sjömenn-
ingarnir, sem áður eru nefndir,
leggist ekki gegn samningnum
vegna kosta hans fyrir íslenzkt
atvinnulif, en vilji heldur ekki taka
á sig pólitíska ábyrgð á málinu
og sitji því hjá. Viðmælendur
Morgunblaðsins telja líklegast að
svo fari að engin efnisleg afstaða
verði tekin til EES af hálfu Fram-
sóknarflokksins, heldur verði þing-
mönnum gefnar fijálsar hendur
um hjásetu eða andstöðu. Allt
stefnir því í að niðurstaða Fram-
sóknarflokksins í þessu mikilvæga
hagsmunamáli íslendinga verði sú
sama og Kvennalistans; menn
verði sammála um að vera ósam-
mála.