Morgunblaðið - 08.12.1992, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992
£961 HSIHMJtBHQ >1 jrJOALlUUlilM-'fTKIAJU'/iUUllOM---
NÝR FRAMHALDS-
SKÓLIEÐA HVAÐ?
eftirHjálmar
Arnason
Á síðustu misserum hefur opin-
ber umræða um framhaldsskólann
aukist nokkuð. Því miður hefur
umræða þessi að mestu takmarkast
við það hversu vondur framhalds-
skólinn er og að hann sinni ekki
hlutverki sínu. Þannig hafa heyrst
háværar raddir um að stúdentspróf-
ið sé markleysa, atvinnulífinu sé
illa sinnt, nemendur flýi unnvörpum
úr skólunum og þannig mætti
áfram telja. Stjómmálamönnum er
reyndar einkar kært að benda á
mikilvægi góðrar menntunar og
gamla klisjan um að auka beri
tengsl atvinnulífs og skóla hljómar
mjög gjaman vikumar fyrir kosn-
ingar. Skrifari hefur efasemdir um
að einhver djúp hugsun búi á ba-
kvið klisju þessa, eða hvað eiga
ménn við með því að efla skuli
tengsl atvinnulífs og skóla? Á hinn
bóginn má benda á að innan skól-
anna á sér stað þróttmikið þróunar-
starf og er miður að fjölmiðlar skuli
ekki sýna því áhuga. Skólastarf
snertir nánast öll heimili.
Á samdráttartímum í efnahags-
lífi þjóðarinnar hefur menntakerfið
orðið fyrir barðinu á hinum al-
ræmda niðurskurðarhnífi. Með flöt-
um niðurskurði eru öll ráðuneyti
ríkisins lögð að jöfnu. Þar em notuð
önnur vinnubrögð en tíðkast t.d. í
Evrópu, þar sem stjómvöld grípa
gjaman til þess að styrkja mennta-
'kerfið á þrengingartímum, m.a. til
þess að draga úr atvinnuleysi og
efla starfsmenntun. Auðvitað spar-
ast heilmikið með því að skera nið-
ur útgjöld til menntamála en sá
spamaður er hæpinn þegar til lengri
tíma er litið. Skammtímasjónarmið
em, illi heilli, allt of ráðandi við
ákvarðanatöku hjá okkur íslending-
um.
Miklar mótsagnir birtast þegar
því er annars vegar haldið á lofti
að allt of margir nemendur sæki
stúdentspróf, sbr. hinar hefðbundnu
myndir af stúdentunum með hvítu
kollana. Þá hefur sú árátta verið
ráðandi að kreijast stúdentsprófs
tii starfsmenntunar, t.d. hjúkmnar-
fræði, fóstmnám o.s.frv. Raddir úr
Háskóla íslands hafa hljómað og
sagt stúdentsmenntun fara hrak-
andi. Meira að segja hefur þeirri
hugmynd verið velt upp að Háskól-
inn hafí sérstakt inntökupróf fyrir
umsækjendur sína. Þannig skynjar
16 ára unglingur annars vegar að
stúdentspróf sé í sjálfu sér ekki
merkilegt en fínnur síðan áherslur
fjölmiðla og menntakerfísins um
mikilvægi stúdentsprófsins.
Flestir hljóta að vera á einu
máli um að hvort tveggja sé það
manníjandsamlegt og sóun verð-
mæta þegar 35-40% nemenda gef-
ast upp í framhaldsskóla. Stundum
heyrast einfaldar skýringar á brott-
hvarfí nemenda, s.s. að þeir séu
heimskir, áhugalausir eða dekraðir.
Sjaldnar er sú spurning upp borin
hvort framhaldsskólinn, sem kerfí,
þurfí að líta í eigin barm.
Skrifari hefur starfað bráðum í
tvo áratugi að kennslu- og skóla-
málum. Allan þann tíma hafa um-
ræðuefni á borð við þau er að ofan
greinir verið til umræðu. Fólk virð-
ist almennt sammála um að margt
sé að en leggur svo blessun sína
yfír ástandið með aðgerðarleysi. Þó
að ýmsar breytingar hafí orðið inn-
an framhaldsskólans þá snúast þær
fyrst og síðast um kerfisatriði en
hin stærri mál, þ.e.a.s. innihaldið,
er óbreytt. í dag sækja um 90%
árgangs framhaldsskólann og sam-
félagið hefur breyst gífurlega mikið
á 20 árum. Af þeim tveimur stað-
reyndum má nokkuð ljóst vera að
hinn staði Latínu-Gráni (eins og
framhaldsskólinn er oft kallaður)
er farinn að sparka heldur óþyrmi-
lega í íslenska unglinga.
Hverju þarf að breyta?
Sá vandi, er lýst hefur verið hér
að framan, verður vitaskuld ekki
leystur með einföldum hætti. Lygi-
lega oft hefur verið ályktað á ýms-
um málþingum og samkomum um
vanda þennan og fjölbreytilegar
lausnir hafa verið kynntar. Sé reynt
að safna ábendingum þessum sam-
an má greina eitt ákall: Skipu-
leggja þarf framhaldsskólann sem
eina heild. Stefna yfirvalda mennta-
mála er sú að framhaldsskólinn
skuli vera fyrir alla. Ekki skal út-
skýrt hvemig sú stefna hefur mót-
ast en hún liggur eigi að síður fyr-
ir. Skrifari leyfír sér að fullyrða að
menntamálaráðuneytið hefur ekki
lagað vinnu sína að hinni opinbem
stefnu. Skýrt er tekið fram að með
síðustu málsgrein er ekki veist að
þvi ágæta fólki, er starfar í mennta-
málaráðuneytinu, né heldur þeim
pólitísku stjórnarherrum er þar hafa
setið. Spjótum er beint að kerfí sem
ekki hefur tekist að virkja. Afleið-
ingin er sú að engin breyting hefur
orðið á innihaldi framhaldsskólans
þannig að Latínu-Gráni húkir þar
og botnar ekkert í því fjölbreytta
liði sem safnast á hann. Þá var nú
öldin önnur ...
Nú kann það að hljóma sem af-
skaplega erfíð glíma að skipuleggja
eins og eitt stykki framhaldsskóla-
kerfí. Sé hins vegar raunvemlegur
vilji til að taka á vandanum er
málið e.t.v. ekki svo fiókið. í raun-
inni hefur lausnin legið afskaplega
lengi fyrir en stirðleiki kerfisins
komið í veg fyrir að úr framkvæmd
yrði. Á mynd nr. 1 má sjá útlínur
framhaldsskóla fyrir alla sem hug
hafa á, byggðar á umræðum skóla-
fólks.
Myndnr. 1: Nýp (ramhaldsskóli .. Stúdentspróf
2ár
Starfsnám
BfSlL. PwHI
Framhaldsskólapróf
Starfsnám
Upphaf framhaldsskóla
Grunnskóli
Hjálmar Árnason
„Við þurfum með öðr-
um orðum að breyta
viðhorfum okkar úr
hinu íhaldssama stúd-
entsprófi og taka
ákvörðun um að koma
á framhaldsskóla fyrir
alla sem hug hafa á.
Þá gætum við hugsan-
lega talað með stolti um
tengsl skóla og atvinnu-
lífs og framhaldsskóla
fyrir alla.“
Svo sem sjá má af mynd nr. 1 eru
sett upp ákveðin skil eftir 2ja ára
nám í framhaldsskóla. Ýmis rök
styðja þessi skil:
1. Meirihluti nemenda í fram-
haldsskólum sækir í stúdentsprófið.
Sumir eiga ekkert erindi þangað
en með framhaldsskólakerfi er þeim
gefinn kostur á útgönguleið með
fullri sæmd.
2. Nemendum gefst kostur á að
endurskoða fyrri ákvörðun sína um
stúdentspróf í ljósi breyttra að-
stæðna, reynslu af framhaldsskóla-
námi og af svipuðum forsendum.
3. Nemendur, sem ekki ætla sér
íháskóla, geta lokið framhaldsskóla
fyrr en venjulega.
4. Stúdentsbrautir verða með
þessu móti ætlaðar sem undirbún-
ingur fyrir háskólanám og má gera
ákveðnar kröfur um inntöku á stúd-
entsbrautir að loknu framhalds-
skólaprófi.
Hugsunin með framhaldsskóla-
prófí er sú að nemendur geti á
fyrstu tveimur námsárunum sínum
í framhaldsskóla nokkurn veginn
ráðið sjálfir hvað þeir læra. Þeir
þurfa þó að gera sér grein fyrir því
hvaða kröfur eru gerðar á einstök-
um sérhæfðum brautum svo sem
starfsmenntabrautum og stúdents-
brautum. Þannig geta nemendur
samræmt áhugasvið, getu sína og
áhugamál. Til þess að hugmyndin
verði virk verður að koma til mjög
ítarleg og persónubundin náms-
ráðgjöf í grunnskóla, á fyrstu
tveimur árum framhaldsskólans og
ekki síst þegar nemandi hefur lokið
framhaldsskólaprófí.
Þegar nemandi hlýtur braut-
skráningu með framhaldsskólaprófi
þarf að gera þá athöfn hátíðlega
og hafa ekki síðri ljóma í kringum
hana en við brautskráningu stúd-
enta. Þá stendur nemandi enn á
tímamótum, orðinn reynslunni rík-
ari og þroskaðri en hann var við lok
grunnskóla. Dæmi má taka af
nemdanda sem kemur 16 ára gam-
all í skóla og er ákveðinn í að verða
stúdent án þess að gera sér grein
fyrir því hvers vegna. Tveimur árum
síðar lýkur nemandi þessi fram-
haldsskólaprófí og verður þá að
sækja fund námsráðgjafa áður en
hann fær að halda áfram. Nemandi
og námsráðgjafi geta þá skoðað
námsárangur nemandans og hægt
er að veita honum ráðgjöf um
áframhaldandi brautarval og mætti
þar t.d. vísa þeim nemendum hrein-
lega frá stúdentsbrautum sem ekki
eiga erindi þangað. Einnig má auka
kröfur á stúdentsbrautum sam-
kvæmt ábendingum háskólanna.
Með þessu móti losna stúdents-
brautir við þá nemendur sem ekki
eiga erindi þangað og framhalds-
skólinn lagar sig að kröfum háskól-
ans. Síðast en ekki síst þá næst
fram sparnaður af hálfu hins opin-
bera með því að gefa nemendum
kost á að ljúka námi fyrr en nú
tíðkast.
Vegna tryggðar okkar við marg-
nefndan Latínu-Grána telur skrifari
að framhaldsskólapróf þyrfti að
verða skylda fyrir alla þá nemendur
er hyggjast verða stúdentar í stað
þess að gefa nemendum sjálfdæmi
í þeim efnum.
Hinar gleymdu brautir
Á mynd nr. 1 sjást einnig aðrar
námsbrautir. Ástæður þess að
RADAl/Gl YSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Kennarar athugið
Vegna forfalla vantar kennara að Grunnskól-
anum Djúpavogi frá áramótum í hálfa stöðu
(15 stundir). Um er að ræða kennslu yngri
barna (2.- 3. bekkur).
Upplýsingar gefur Anna Bergsdóttir, skóla-
stjóri, í síma 97-88836.
Matvöruverslunin
Veljum íslenskt
Kleppsvegi 150
Vant starfsfólk óskast.
Upplýsingar á staðnum milli kl. 10 og 16
í dag.
Frá Kvennaskólanum
í Reykjavík
Vegna forfalla vantar frönskukennara í 23
tíma frá 12. janúar nk. í 5 vikur.
Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans, sími
628077.
Skólameistari.
Góð fjárfesting
500 fm skrifstofuhæð
Til sölu er skrifstofuhæð með vönduðum inn-
réttingum miðsvæðis í Reykjavík. Er eigninni
nú skipt í nokkrar einingar, sem leigðar eru
út sjálfstætt. Hefur þessari eign verið sér-
lega vel við haldið, bæði að utan og innan.
Leigutekjur á ári eru nálægt 2,6 millj. Er
þessi eign til sölu til trausts aðila og kemur
þá til greina að lána mestan hluta andvirðis
hennar. Söluverð er 21,9 millj. Þessi eign
gæti hentað vel sem arðbær fjárfesting fyrir
þann, sem vildi nýta hana að hluta og leigja
út.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 812264
milli kl. 9 og 16.
Aðalfundur Germaníu
verður haldinn fimmtudaginn 17. desember
1992 kl. 20.30 í veitingahúsinu Búmanns-
klukkunni, Amtmannsstíg 1.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
FÉLAGSLÍF
□ Sindri 599208127 - FR.
□ FJÖLNIR 59921208191 Jólaf.
Jólafundur
Húsmæðrafélags
Reykjavíkur
verður haldinn á Hótel Holiday
Inn miðvikudaginn 9. desember
kl. 20.00.
Lesin verður jólasagan - Söngur
- Tískusýning frá versluninni
Stórum stelpum - Kaffihlaðborð
- Stórglæsilegt happdrætti.
Séra Jón Dalbú Hróbjartsson
flytur jólahugvekju. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Ath. breyttan fundarstað.
□ HLÍN 5992120819 IV/V 1 Frl.
I.O.O.F. Rb. 1 = 1421288 - Jv.
□ EDDA 5992120819 III 2.
AD KFUK
Marfa Guðsmóðir
Málfríður Finnbogadóttir hefur
biblíulestur. Takið Biblíuna með.
Allar konur eru velkomnar á
fundinn!