Morgunblaðið - 08.12.1992, Síða 43
_________________soer ,a jniOA(Knam»f ciiaA,iaviiroHOM
-----------------MORGUNBLACIÐ ÞRIÐ3UDAGUR 8. DESEMBBR1«
S1
43
Morgunblaðið/Kristinn
Uppboð Kauphallarmótsins var
að venju líflegt undir stjórn
Haraldar Blöndals, sem stjórnað
hefir öllum uppboðunum. Með-
fylgjandi mynd er tekin þegar
einn spilaranna, Valgarð Blön-
dal, tilkynnir boð sitt.
ugglega eins og fyrr sagði. Sævin
Bjamason og Ragnar Bjömsson
unnu síðustu lotuna eftir slakt
gengi í mótinu. Hjördís og Ás-
mundur urðu önnur og Gylfí Bald-
ursson og Haukur Ingason urðu
þriðju.
Lokastaðan í mótinu:
Hjördís Eyþórsd. - Ásmundur Pálsson 1437
GuðlaugurR.Jóhannss.-ÖmAmt)órsson 1231
SverrirArmannsson-MatthíasÞorvaldsson 993
Kristján Blöndal - Einar Svansson 949
ÞórðurBjömsson-BemódusKristinsson 750
Gunnl. Kris^ánsson - Hróðmar Sigurbjss. 615
Valur Sigurðsson - Sigurður Sverrisson 498
SímonSímonarson-JónasP.Erlingsson 384
Eigendur Sverris og Matthíasar
fengu liðlega 134 þúsund kr. í arð,
Kristjáns og Einars um 120 þús-
und, Þórðar og Bemódusar tæp
90 þúsund, Gunnlaugs og Hróðm-
ars liðlega 60 þúsund, Vals og Sig-
urðar tæp 36 þúsund og Símons
og Jónasar tæp 18 þúsund kr.
„Stóm nöfnin“ gáfu lítinn arð í
mótinu að þessu sinni, en það er
einmitt það sem gerir þetta mót
sérstakt og öðruvísi. Hins vegar
mættu aðeins 26 pör og virðist sem
spilarar séu svolítið feimnir við að
láta bjóða í sig. Það hlýtur þó að
fara af með áranum.
Keppnisstjóri og reiknimeistari
var Kristján Hauksson. Verðbréfa-
markaður íslandsbanka sá um
kauphöllina. Guðmundur Sv. Her-
mannsson, varaforseti Bridssam-
bandsins, sá um verðlaunaafhend-
ingu og Elín Bjamadóttir, fram-
kvæmdastjóri Bridssambandsins,
hélt utan um mótið af sinni al-
kunnu snilld.
Lágafellskirkja
Nýtt fjórtán radda orgel vígt
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
Þeir Björgvin, Karl og Jóhann voru langt komnir með uppsetningu
orgelsins þegar ljósmyndara bar að garði en það verður vigt á sunnu-
þegar gamla orgelið var keypt á
Nýtt fjórtán radda pípuorgel
verður vígt í Lágafellskirkju í
sérstakri hátíðarmessu á sunnu-
dag þar sem sóknarpresturinn
séra Jón Þorsteinsson mun messa
með aðstoð fyrrverandi sóknar-
prests séra Birgis Ásgeirssonar
og séra Braga Friðrikssonar
prófasts. Orgelið er smiðað af
Björgvin Tómassyni orgelsmið
en hann hóf smíðina í jánúar á
þessu ári.
Uppaflega stóð til að smíða átta
radda orgel en að sögn Björgvins
er lofthæðin óvenju mikil af kirkju
í þessari stærð og því möguleiki á
stærra orgeli. Orgelið kostar á sjö-
undu milljón en Björgvin sagði þetta
lægra verð en eðlilegt gæti talist.
Sagði hann að sambærilegt hljóð-
færi frá Danmörku eða Þýskalandi
myndi kosta ellefu til tólf milljónir.
Björgvin lærði ogelsmíði í
Þýskalandi í fjögur ár og vann þar
önnur fjögur ár við smíðar. Þetta
mun áttunda orgelið sem Björgvin
smíðar eftir heimkomuna en hann
er með verkstæði á Blikastöðum.
Björgvin er einnig lærður tónmenn-
takennari og kenndi í Mosfellsbæn-
um áður en hann fór utan til náms.
Sagði Björgvin það ótvíræðan kost
fyrir sig að hafa uppsett orgel svo
nærri sínum vinnustað upp á að
geta sýnt væntanlegum viðskipta-
vinum handverk sitt. Til þessa
hefðu öll orgelin sem hann hefur
smíðað hérlendis farið vítt um
landsbyggðina og því óhægt um vik
að nota þau til kynningar.
dag.
Auk Björgvins vinna við uppsetn-
ingu orgelsins bróðir hans Karl og
Jóhann Bjömsson framkvæmda-
stjóri Lágafellsóknar en hann er
trésmiður. Sagði Jóhann að orgel-
kaupin væra fjármögnuð af sérstök-
um orgelsjóði sem stofnaður var
sínum tíma. Stærstu framlögin
sagði Jóhann hafa komið frá Kven-
félagi Lágafellssóknar en einnig
hefðu margir velunnarar kirkjunnar
látið fé af hendi rakna.
Tvennir tónleik-
ar Mezzoforte
HLJÓMSVEIT-
IN Mezzoforte
heldur tónleika
í veitingahús-
I inu Edinborg í
Keflavík á mið-
vikudag og á
Tveimur vinum
í Reykjavík á
fimmtudag.
Hyómsveitin er
nýkomin úr
hljómleikaferð
um Noreg, þar
sem hún lék
fyrir fullu húsi
i nokkrum
borgum og bæjum á sunnanverðu
landinu.
Rúm þijú ár era liðin síðan fólki
gafst síðast kostur á að sjá Mezzo-
forte á tónleikum hér á landi, en
síðustu tónleikamir hér vora í
Tunglinu í sumarbyijun 1989. Nú
fór Tuborg, Ölgerðin hf., þess hins
vegar á leit við hljómsveitina að hún
héldi tvenna tónleika hér á landi
og verða þeir, sem fyrr segir, í
Edinborg og TVeimur vinum.
Hljómsveitin Mezzoforte hefur
verið starfrækt í 15 ár og allan tím-
ann hefur sami kjami tónlistar-
manna starfað innan hennar, þeir
Eyþór Gunnarsson, píanó- og
hljómborðsleikari, Friðrik Karlsson,
gítarleikari, Jóhann Ásmundsson,
bassaleikari og Gunnlaugur Briem,
trommu- og slagverksleikari. Þá
hafa þeir ýmist fengið til liðs við
sig saxófónleikara, auka slagverks-
leikara eða jafnvel söngvaraj þegar
því hefur verið að skipta. I þetta
sinn er það norski saxófónleikarinn
Káre Kalve, sem er í för með fjór-
menningunum, en hann hefur
lengst af starfað með norsku hljóm-
sveitinni Lava.
Mezzoforte hefur gefið út fjölda
hljómplatna um víða veröld og þessa
dagana era þeir félagar að leggja
drög að hljóðritun á nýju efni, sem
áætlað er að komi út síðla næsta
árs eða fyrrihluta árs 1994.
HVÍTUR ASKUR
Verð: 92.420 kr. stgr.
Einnig ö11 heimilistæki fáanleg
SkúöAogi 16, RefáaAk
• BLAUPUNKT
28" sjónvarp með íslensku textavarpi
og Nicam víðóm á ótrúlega lágu verði!
Gunnar Ásgeirsson hf.
Borgartún 24 • 105 Reykjavík
Sfmi: 91-626080