Morgunblaðið - 08.12.1992, Side 63
--MORGUNBtAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR R.-DESEMBER-1992
Ráðstefna um rannsóknir í læknadeild Háskólans
Fjöldi fróðlegra erinda
Á RÁÐSTEFNU um rannsóknir í læknadeild Háskóla íslands sem
hófst í Odda á sunnudag og lýkur í dag, þriðjudag, hefur verið flutt-
ur fjöldi fróðlegra erinda. Meðai þeirra má nefna nýjar rannsóknir
á skammdegisþunglyndi sem greint er ítarlega frá hér í Morgunblað-
inu, samanburðarrannsókn á fitusýrum hjá hópi karlmanna i Inter-
lake-héraði í Manitoba og sambærilegum hópi karla á Fljótdalshér-
aði og þróun á nýrri tegund táradropa gegn augnþurrk svo dæmi
séu nefnd.
Af öðrum erindum má nefna
fræðilega úttekt á bamaslysum á
tímabilinu frá 1974 til 1991 en þar
kemur m.a. fram að tíðni bama-
slysa er mun hærri í Reykjavík en
nágrannalöndunum. Einnig er á
ráðstefnu þessari fræðileg úttekt á
tíðni hálshnykkja í Reylq'avík á
sama tímabili. Samkvæmt þeirri
úttekt kemur m.a. fram að tíðnin
árið 1991 hefur fimmfaldast miðað
við árin 1974-85 en tíðni annara
umferðarslysa hefur ekki aukist á
neinn sambærilegan hátt. Telja
höfundar erindisins að fínna verði
aðrar ástæður fyrir þessari aukn-
ingu en lakari umferðarmenningu
eða aðra umferðarþætti.
Alls verða flutt 155 stutt, tíu
mínútna, erindi um þær rannsóknir
sem fram hafa farið, eða eru í
vinnslu, í læknadeild Háskólans. í
dag verða erindin um klínískar
rannsóknir, hjarta-og æðasjúk-
dóma, sýkingar, heimilislækningar
og fleira.
Skammdegisþunglyndi á mism. breiddargráðum
25
0, Athugun á fiórum stöðum í Bandarikjunum,
/0 á Islandi og meðal fólks af íslenskum
uppnina í Manitoba í Kanada
20----------------------------
15-
-2611
10-
JSl
Sarasota Montgomery- New York Nartiua Manitoba ísland
Fitusýrur Héraðsbúa og Vestur-Islendinga
Þrefalt meiri Omega
3 í blóði Héraðsbúa
í RANNSÓKN á magni fitusýra í hópi karlmanna á Fljótsdalshéraði
annarsvegar og hópi Vestur-íslendinga hinsvegar kemur m.a. fram
að nær þrefalt meira magn er af fjölómettuðum Omega 3 fitusýrum
í blóði Héraðsbúa. Þessar fitusýrur eru í miklu magni í sjávarafurð-
um og taldar vemda gegn þjarta-og æðarsjúkdómum.
Rannsókn þessi var gerð í sam-
vinnu Raunvísindastofnunar Há-
skólans og Rannsóknarstofu H.í. í
lífeðlisfræði. Rannsóknin er þáttur
í umfangsmiklum samanburðar-
rannsóknum sem þegar hafa leitt
í ljós verulegan mun á algengi
ýmissa áhættuþátta æðasjúkdóms
meðal fslendinga og Vestur-íslend-
inga en rannsóknir hafa sýnt að
tíðni kransæðasjúkdóma er lægra
á þeim svæðum sem fískneysla er
mikil. Rannsóknin var kynnt á ráð-
stefnunni um rannsóknir í lækna-
deild Háskólans í Odda. Að sögn
Sigrúnar Guðmundsdóttur hjá
rannsóknarstofu í lífeðlisfræði, sem
vann að rannsókninni, var stuðst
við 40 manna hóp karlmanna á
aldrinum 20-60 ára á Héraði og
til samanburðar jafstóran hóp karla
í Interlake-héraðinu í Manitoba.
Sigrún segir að dánartíðni sé
hærri meðal karla í Interlake-hér-
aðinu en Héraðsbúa og í ljós hafí
komið í rannsókninni að marktæk-
ur munur reyndist meðal hópanna
tveggja í flestum fítusýrum sem
greindar voru. Mestur var munur-
inn á Omega 3 eða þrefaldur eins
og áður greinir, Omega 3 reyndist
vera um 3% hjá Vestur-íslendingin-
um en rúmlega 10% hjá Héraðsbú-
um.
Morgunblaðið/Kristinn
Fylgst með fyrirlestri á læknaráðstefnunni í Odda í gær.
Jóhann Axelsson prófessor.
Ný rannsókn á skammdegisþunglyndi
Oalgengara meðal Vestur-
Islendinga en Bandaríkjamanna
Tilgáta um að náttúruval hafí eytt þunglyndi úr erfðavísum Islendinga
NÝ rannsókn á skammdegisþunglyndi íslendinga bendir til að
náttúruval hafi eytt þunglyndinu að hluta til úr erfðavísum.
Rannsókn þessi var unnin af þeim Jóhanni Axelssyni prófessor
forstöðumanni rannsóknarstofu H.í. í lífeðlisfræði og geðlækn-
unum Andrési Magnússyni og Jóni G. Stefánssyni við geðdeild
Landspítalans. Auk rannsókna á íslendingum var gerð rannsókn
á Vestur-íslendingum og kemur fram þar að skammdegisþung-
lyndi er mun óalgengara meðal þeirra en Bandaríkjamanna
almennt, sem styðiu' tilgátuna um náttúruvalið.
Niðurstöður þessarar rann-
sóknar voru kynntar á ráðstefnu
um rannsóknir í læknadeild Há-
skóla íslands sem nú stendur
yfir í Odda. Jóhann Axelsson
prófessor segir að skammdegis-
þunglyndi hafi verið fyrst lýst
sem sjúkdómi árið 1984, en um
sé að ræða depurð sem geri vart
við sig að hausti eða vetri en
réni að vori eða sumri. Rann-
sóknir í Bandaríkjunum hafa
sýnt fram á jákvæða fylgni milli
hlutfalls skammdegisþunglyndis
og breiddargráðu, það er það
eykst eftir því sem norðar dregur
í landinu (sjá kort). Þannig er
hlutfall íbúa í Sarasota í Flórída
sem þjást af skammdegisþung-
lyndi aðeins 4% en Sarasota ligg-
ur á 27. breiddargráðu og hlut-
fallið fer síðan stighækkandi upp
í rúmlega 20% íbúa í Nashua í
New Hampshire sem liggur á 43.
breiddargráðu.
Jóhann Axelsson segir að
rannsókn þeirra á þunglyndinu
meðal íslendinga bæði hér heima
og í Manitoba sýni að sú kenn-
ing, að algengi skemmdegis-
þunglyndis ráðist af fjarlægð frá
miðbaug, fái ekki staðist því
meðal Vestur-íslendinga í Inter-
lake-héraðinu í Manitoba sem
liggur á 51. breiddargráðu er
hlutfall þunglyndisins aðeins
4,5% og meðal íslendinga al-
mennt, en landið liggur norður
af 60. breiddargráðu, er hlutfall-
ið 11,6%.
„Við sendum um 1000 íslend-
ingum og 300 Vestur-íslending-
um spumingalista í tengslum við
rannsókn okkar og heimtur voru
mjög góðar eða 61% hjá íslend-
ingunum og 82% hjá Vestur-
íslendingunum," segir Jóhann.
„Og við pössuðum upp á að Vest-
ur-Islendingamir væra óbland-
aðir, það er ættu allir afa og
ömmur frá íslandi. Niðurstöður
okkar gefa til kynna að náttúr-
val hafi eytt skammdegisþung-
lyndi að hluta úr erfðavísum Is-
lendinga og því setjum við fram
þá tilgátu að náttúraval kunni
að hafa stuðlað að auknu
skammdegisþoli íslensku þjóðar-
innar. Ef gert er ráð fyrir að
þessu skammdegisþoli þjóðarinn-
ar hafi verið náð fyrir 1870 ættu
Vesturfaramir að hafa flutt
þessa eiginleika með sér og því
mætti búast við lágri tíðni þessa
kvilla meðal þeirra Kanadabúa
sem era óblandaðir afkomendur
íslensku landnemanna. Sú varð
líka raunin eins og tölumar bera
með sér.“
Niðurstöður þeirra Jóhanns,
Andrésar og Jóns G. hafa verið
birtar í einu virtasta læknariti
Bandaríkjanna, Archives of Gen-
eral Psychiatry, en þeir hafa
ekki látið staðar numið. Jóhann
segir að næsta skrefið sé að
framkvæma svipaða rannsókn á
öllum hinum Norðurlöndunum,
utan Danmerkur, þar sem meðal
annars verður reynt að kanna
algengi sjúkdómsins í hveiju
landi fyrir sig og hvort tilgátan
um algengi eftir fjarlægð frá
miðbaug standist. Einnig sé ætl-
unin að sjá hvort sjúkdómurinn
sé ættgengur og kanna ýmsar
leiðir við meðhöndlun hans. Hvað
meðhöndlunina varðar er vitað
að mikil birta getur dregið mjög
úr sjúkdóminum, það er hægt
er að meðhöndla sjúkdóminn án
lyfla sem Jóhann telur mikil-
vægt. „Það er vitað að margir
fá veralegan bata með því að
vera í mikilli birtu stundarkom
tvisvar á dag,“ segir Jóhann.
Islensku bókmenntaverðlaunin 1992
---------------------—-------;-----
Tíu bækur tilnefndar
Tilnefning bóka til Islensku bókmenntaverðlaunanna 1992 fór fram
við hátíðlega athöfn í Listasafni íslands mánudaginn 7. desember að
viðstöddum forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur og menntamála-
ráðherra, Ólafi G. Einarssyni. Tíu bækur voru tilnefndar, fimm i flokki
fagurbókmennta og fimm sem falla undir fræðirit og bækur almenns
Morgunblaðið/Þorkell
Höfundar og aðrir sem tóku við tilnefningu fyrir hönd höfunda,
með miiyagripinn, silfurbókahníf
efnis.
Dómnefnd valdi eftirtaldar fímm
bækur í flokki fagurbókmennta:
Klukkan í tuminum, ljóðabók eftir
Vilborgu Dagbjartsdóttur, útgefandi
Forlagið. Kynjasögur, smásögur eftir
Böðvar Guðmundsson, útgefandi Mál
og menning. Mold í skuggadal, ljóða-
bók eftir Gyrði Elíasson, útgefandi
Mál og menning. Sæfarinn sofandi,
ljóðabók eftir Þorstein frá Hamri,
útgefandi Bókaforlagið Iðunn.
Tröllakirkja, skáldsaga eftir Ólaf
Gunnarsson, útgefandi Forlagið.
í flokki fræðirita og bóka almenns
| efnis valdi dómnefnd eftirtaldar
fímm bækur: Bókmenntasaga I eftir
Véstein Ólason, Sverri Tómasson og
Guðrúnu Nordal, útgefandi Mál og
menning. Dómsmálaráðherrann eftir
Guðjón Friðriksson, útgefandi Bóka-
foriagið Iðunn. Fjarri hlýju hjóna-
sængur eftir Ingu Huld Hákonar-
dóttur, útgefandi Mál og menning.
Utanríkisþjónusta íslands og utan-
ríkismál eftir Pétur Thorsteinsson,
útgefandi Hið íslenska bókmenntafé-
lag. Þroskakostir eftir Kristján Krist-
jánsson, útgefandi Rannsóknastofn-
un Háskóla íslands í siðfræði.
Tvær þriggja manna dómnefndir
hafa starfað að undanfömu við að
velja tíu bækur af 24 íslenskum bók-
um ársins sem bókaútgefendur lögðu
fram til verðlaunanna. Fimm eru
valdar úr flokki frumsaminna ís-
Ienskra skáldverka og fímm úr flokki
annarra íslenskra ritverka, sem að
jafnaði teljast ekki skáldverk eða
fagurbókmenntir.
Nefndimar voru skipaðar þeim
Heimi Pálssyni, Helgu Kress og Ingi-
björgu Haraldsdóttur í flokki fagur-
bókmennta, en Sigríði Th. Erlends-
dóttur, Þorleifí Haukssyni og Ömólfí
Thorlacius í flokki annarra rita.
Heimir og Sigríður voru formenn
nefndanna, tilnefnd af Félagi ís-
lenskra bókaútgefenda, en hin voru
tilnefnd af Heimspekideild Háskóla
íslands, Rithöfundasambandi ís-
lands, Vísindaráði og Hagþenki, fé-
lagi höfunda fræðirita og kennslu-
gagna.
Þriggja manna lokadómnefnd mun
síðan taka við og velja eina bók af
fímm tilnefndum úr hvorum fíokki
til að hljóta íslensku bókmenntaverð-
launin sem forseti íslands afhendir
eftir áramót. í henni taka sæti for-
menn dómnefndanna tveggja og Vil-
þjálmur Ámason, tilnefndur af for-
seta íslands.
Þetta verður 5 fjórða sinn sem ís-
lensku bókmenntaverðlaunin verða
veitt, en til þeirra var stofnað árið
1989 í tilefni 100 ára afmælis Félags
íslenskra bókaútgefenda.
| 49. IdMa - 5. dtstmbtr 1992
Nr, Leikur:__________________ Rððin:
1. Coventry - Ipswich - X -
2. Crystal P. - Sheff. Utd. 1 - .
3. Leeds - Notth. Forest - - 2
4. Middlesbro - Blackbum 1 - .
5. Norwidi - Wimbledon 1 - -
6. Q.P.R. - Oldham J . .
7. Sheff. Wed,- Aston Villa - - 2
8. Southampton - Arsenal 1 - -
9. Totíenham - Chelsea - - 2
10. Cambridge - Wolves - X -
11. Grimsby - Lcicester - - 2
12. Notts C.-Newcastle - - 2
13. Sunderland - Bamsley 1 -
HeUdarvinnlngsupphseðin:
203 milljónir króna |
13 ríttlr: 4.992.110 \ kr.
12 réttir: 62.740 kr.
11 réttlr: 4.640 Itr.
10 réttlr: [ 1.060 kr.