Morgunblaðið - 08.12.1992, Page 64

Morgunblaðið - 08.12.1992, Page 64
Hátekju- skatturmn ekki í stað- greiðslu NÝR timabundinn liátekjuskatt- ur verður ekki innheimtur í stað- greiðslukerfi samkvæmt frum- varpi um breytingar á tekju- og eignaskatti sem ríkisstjórnin lagði fram á Alþingi á laugardag. Samkvæmt frumvarpinu á að leggja sérstakan 5% tekjuskatt í tvö ár á tekjuskattstofn einstaklinga umfram 2,4 milljónir og hjóna um- fram 4,8 milljónir. Það jafngildir 200 þúsund króna mánaðarlaunum ein- staklinga og 400 þúsund króna mán- aðarlaunum hjóna. Verður skattur- inn lagður á í fyrra skiptið árið 1994, vegna tekna ársins 1993, og síðara skiptið árið 1995 vegna tekna ársins 1994. Á næsta ári verður innheimt fyrir- framgreiðsla af þeim, sem þá hefðu lent í hátekjuskatti miðað við skatt- framtöl fyrir árið 1992. Fyrirfram- greiðslan á að fara fram með fimm jöfnum mánaðarlegum greiðslum í ágúst til desember. Gert er ráð fyrir að hægt verði að sækja um lækkun á fyrirframgreiðslu ef viðkomandi getur sýnt fram á að veruleg tekju- -w-- iækkun hafi orðið hjá honum á milli ára. Sjá nánar um tekjuöflunar- frumvörp ríkisstjórnarinnar, bls. 28. Söguleg úrslit í ísknattleik Morgunblaðío/KAA Söguleg úrslit urðu í íslandsmótinu í ísknattleik um helgina þegar Skautafélag Reykjavíkur vann Skautafélag Akureyrar 5:4. Akureyring- ar hafa verið nær ósigrandi í ísknattleik um árabil. Það er því ekki nema von að Reykvíkingamir á myndinni fylgist spenntir með. Sjá nánar í íþróttablaði. DAGAR TIL JÓLA 550-750 milljóiiir tapast seinki EES um hálft ár Málið er í biðstöðu á þing-i, segir forseti Alþingis ÞJÓÐHAGSSTOFNUN _ hefur metið það svo að aðild íslands að EES hafi jákvæð áhrif á þjóðar- hag. Áþreifanlegast sé lækkun og niðurfelling tolla á útfluttar sjáv- arafurðir, sem nemur um 1.100- 1.500 milljónum kr. á ári. Ef samningurinn tekur ekki gildi fyrr en á miðju næsta ári vegna þess að Sviss felldi samkomulagið, tapast helmingur upphæðarinnar, eða 550 til 750 milljónir. Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóð- hagsstofnunar segir að eftir því sem hægt hafi verið að meta áhrif EES- samningsins á þjóðarhag hafi Þjóð- hagsstofnun talið þau hagstæð. Áhrif samningsins yrðu þau að landsframleiðsla yrði 1,5% meiri eft- ir 4-6 ár en í dag. 1,5% aukning landsframleiðslu samsvarar 6 millj- Ný rannsókn á skammdegisþunglyndi á íslandi og í Bandaríkjunum Hefur eyðst að hluta úr erfðavísum Islendínga NÝ RANNSÓKN á skammdegisþunglyndi meðal íslendinga og Vestur-Islendinga sýnir að þessir hópar þjást mun minna af skammdegisþunglyndi en Bandaríkja- menn. Rannsókn þessi hefur verið birt í einu virtasta læknariti Bandaríkjanna, Archives of General Psychiatry, en niður- stöður hennar stangast á við niðurstöður þekktrar bandarískrar rannsóknar um að fylgni sé á milli tíðni skammdegisþung- lyndis eftir fjarlægð frá miðbaug, það er að þunglyndið aukist eftir því sem norðar dregur. Jóhann Axelsson, prófessor og forstöðu- maður rannsóknarstofu HÍ í lífeðlisfræði, einn þeirra sem unnu að rannsókninni, segir að niðurstöður gefi vísbendingu um að náttúru- val hafi eytt skammdegisþunglyndi að hluta til úr erfðavísum íslendinga. Samkvæmt bandarísku rannsókninni jókst hlutfall skammdegisþunglyndis hjá Bandaríkjamönn- um eftir fjarlægð frá miðbaug. Þannig þjáð- ust 4% íbúa Sarasota af þessu þunglyndi en borgin liggur við 27. breiddargráðu. Hins vegar var hlutfallið komið upp í ríflega 20% í Nashua sem liggur við 43. breiddargráðu. Rannsókn íslendinganna leiddi aftur á móti í Ijós að aðeins 4,5% íbúa Interlake-hér- aðsins í Manitoba þjást af skammdegisþung- lyndi, en héraðið liggur við 51. breiddar- gráðu. Hér er um að ræða óblandaða afkom- endur þeirra íslendinga sem fluttu vestur um haf í lok síðustu aldar. Og á íslandi þjást 11,6% íbúa af skammdegisþunglyndi en land- ið liggur töluvert norður af 60. breiddargráðu. Jóhann segir að rannsókn þeirra styðji ekki kenningu Bandaríkjamanna en gefi sterka vísbendingu um að náttúruval hafi eytt skammdegisþunglyndi úr érfðavísum íslendinga. í rannsókninni voru um 1.000 íslendingum sendir spurningalistar og var svörun 61% en 300 Vestur-íslendingar fengu sömu lista og var svörun þeirra 82%. Sjá nánar á bls. 63. örðum. Þórður segir ljóst að þessi áhrif komi seinna fram ef samning- urinn taki síðar gildi en stefnt hefur verið að. Áþreifanlegustu áhrifin hérlendis af EES-samningnum verði af lækkun tolla á sjávarafurðum. Þar væri um að ræða 1,5 til 2% af verðmæti sjávarafurða eða sem svaraði 1.100 til 1.500 milljónum á ári. Tekur Þórður fram að deila megp um það hvenær eða hvernig áhrifin komi fram. EES-frumvarpið er nú í biðstöðu á Alþingi og verður það þar til utan- ríkisráðherra kemur aftur af fundi ráðherra EFTA-ríkja fyrir lok vik- unnar. Samkvæmt drögum að sam- komulagi milli stjórnar og stjórnar- andstöðu átti að hefja aðra umræðu um málið næsta laugardag en sam- komulagið var með fyrirvara um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar í Sviss, að sögn Salóme Þor- kelsdóttur forseta Alþingis. Sjá nánar á miðopnu og þing- síðu, bls. 36. -------» » ♦------- Metverð fyrir karfa HAUKUR GK fékk metverð fyrir karfa í Bremerhaven í Þýska- landi í gær, mánudag, eða 205,15 króna meðalverð fyrir kílóið. Seld voru 114,5 tonn úr skipinu fyrir 23,2 milljónir króna, eða 202,79 króna meðalverð, þar af 107 tonn af karfa fyrir 22 milljónir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.