Morgunblaðið - 13.12.1992, Page 4

Morgunblaðið - 13.12.1992, Page 4
 MORGUWBtíÁMÐ! SUNNUDÁGUR-Ufc' DMffÉMj&ÉÍT&g# TIMINN OGTÁRIÐ Áfengi hefur öldum saman verið óaðskiljanlegur þáttur í lífi Is- lendinga, í gleði og sorg. Þjóðin hefur bæði drukkið sér til sælu og sútar og í bóksinni „Tíminn og tárið“ rekur Óttar Guðmunds- son læknir sögu áfengisins með sérstakri áherslu á íslenskan veruleika. Það er Forlagið sem gefur bókina út og Morgunblaðið birtir hér kafla úr bókinni með leyfi útgefenda. Hvernig drukku víkingarn- ir, kotungarnir og skáldin? Áttu goðin við áfengisvandamál að stríða? Hvað varð Jón- asi Hallgrímssyni að aldurtila? Hvemig drekka unglingar og ellilíf- eyrisþegar? Er einhver munur á drykkjuháttum karla og kvenna? Hvetjir eru alkohólistar? Er eitthvert vit í öllum þessum meðferðum og hvað gerist bak við dularhjúpa með- ferðarstofnana? Þetta og margt fleira eru viðfangsefni höfundar í þessari bók og við grípum niður í umfjöllun um íslenska þjóðfélags- skipan fyrr á öldum. íslensk þjóðfélagsskipan Þegar Jónas Hallgrímsson lét hugann reika til gullinnar fortíðar í frægu kvæði, sá hann fyrir sér „skrautbúin skip fyrir landi“ og hetj- ur sem riðu um hémð. En á Islandi bjuggu ekki einungis höfðingjar og stóreignamenn; landnámsmenn fluttu með sér þræla sem smám saman fengu þó fullt frelsi. Bændur áttu eða leigðu jarðir sínar en bú- lausu fólki var skylt að ráða sig í árvistir hjá bændum og kaupgjald var lögbundið. Þessi lög bundu eignalaust fólk hjá bændum, renndu stoðum undir veldi stóreignabænda og var ætlað að koma í veg fyrir að upp risi sjálfstæð stétt fiski- manna. Alls konar lausafólk flakk- aði um landið og varð margt að þola. Þessi þjóðfélagsskipan fmm- stæðs bændasamfélags hélst raunar fram á 20. öld. Á 13. öld gengu íslendingar Noregskonungum á hönd eftir áralangar innbyrðis deilur höfðingja Sturlungaaldar. Konungur stjórnaði eftir það siglingum til landsins, enda áttu íslendingar sjálfir engin skip. Siglt var á nokkrar hafnir á landinu, en hvergi reis kaup- staður, vöm- ý 7 7. skemmur eða lSlenCÍinga Og verslunarhús. r r • r r i r\r\ r Þegar skip komu áj€ngl l 1100 ŒV af hafi var sett kaupstefna og kveðið á um vömkaup eða jafnvirði á vörum Ís- lendinga og kaupmanna. Bruggun öls í landinu minnkar smám saman og hverfur síðan með því að kor- nyrkja leggst að mestu leyti af. Landsmenn drekka það áfengi sem kaupmenn flytja til landsins. Mikil drykkja tengist skipakomum og helst sá siður í næstu aldir. Erlendir kaupmenn kvarta undan jiessu og tekið er fram í tilskipun að Islending- ar skuli láta kaupmenn í friði frá miðaftni til miðmorguns og hafa ekki uppi næturdrykkjur eða ósæmi- legt slangur. Þá segir að íslendingar kveði hetjuljóð og drekki þindarlaust í eina sjö daga þegar þeir komi í kaupstað. Árið 1389 sigldu ellefu kaupskip til landsins og „meira vín kom til landsins en menn mundu fyrr“. Eftir það skorti ekki vín á landinu og var það tekið í kaupsetn- Át- og drykkjuveisla norrænna manna. Myndin mun ofin af Matt- hildi nokkurri drottningu á 11. öld og er geymd á frönsku safni. í veislum undir borðum. Þekktast þeirra varð „íslands minni“, ísland ögrum skorið, sem menn hafa sungið síðan á þessu landi við öll hugsanleg tækifæri. íslandslýsing Peerses Margir útlendingar urðu til þess að skrifa bækur um ísland á liðnum öldum. Flestar þeirra eru varasamar heimildir um land og þjóð og vafasamt hvort sumir höfundanna Timbraður Reykvíkingur vaknar af óværum nætursvefni. Brot úr bók Óttars Guðmundssonar lœknis um ingu með öðrum nauðsynjun á 15. öld. Þá var tunna víns verðlögð á 100 fiska. Lárentíus Kálfsson Fátt er þó vitað um drykkjuskap íslendinga á þessum tíma. Heimildir eru heldur fáskrúðugar, en áfram hefur verið drukkið í veislum og á mannamótum. Almenningur hefur lítið drukkið hvunndags en neytt öls í ríkum mæli á stórhátíðum og við skipakomur. Haustið 1316, tveimur nóttum eftir krossmessu, brunnu bæði klaustur og kirkja á Möðruvöll- um til kaldra kola. Orsök brunans var talin vera sú að kvöldið áður höfðu bræður í klaustrinu komið drukknir utan af Gáseyri en þar var verslunarstaður. Eldur kviknaði í nokkrum tjöldum og breiddist þaðan hratt bæði í kirkjuna og klaustrið og brunnu allar skreytingar. Mann- björg varð og enginn meiddist. Reglubræður heimtuðu að klaustrið yrði reist að nýju og urðu af því miklar deilur milli biskups, Láren- tíusar Kálfssonar á Hólum, og munkanna. Sjálfur var Lárentíus siðavandur maður. Hann bannaði allt drykkjuslark bæði heima fyrir og í öllu sínu biskupsumdæmi. En illa gekk að fá landslýð til að hlýða og biskup átti í erfiðleikum með að halda aga á sumum sóknarbarna sinna. Einkason- ur biskups, Árni Lárentíusson, er sagður hafa drukkið mikið og varð það biskupi til mikillar skap- raunar. Breyttir verslunarhagir Á 15. öld lögðu Englend- ingar undir sig íslandsverslunina. í handbók enskra kaupmanna frá um 1500 segir að á Íslandi sé góður markaður fyrir enskt litklæði, malt, bjór og vín og ýmsan annan varning. Landsmenn sögðust neyðast til að versla við þessa útlendu menn þar sem umsam- in sex skip árlega hafi ekki alltaf komið frá Noregi. Þegar leið á öldina tóku Þjóðverjar að sigla á ísland í æ ríkari mæli. Þeir höfðu vetursetu á nokkrum höfnum enda kvörtuðu bændur undan vinnufólkseklu og ít- rekuðu með konungsbréfi staðfest- ingu á banni við vetursetu útlend- inga. Bændur óttuðust mjög allar þjóðfélagslegar breytingar sem gætu ógnað veldi þeirra og áhrifum. A næstu áratugum elduðu Þjóðverjar og Englendingar grátt silfur vegna verslunarréttinda og fiskveiða við ísland. I þessum átökum stórveld- anna voru íslendingar fremur áhorf- endur en þátttakendur. Engin breyt- ing varð á hefðbundnu bændaþjóðfé- lagi og landsmenn sjálfrr lærðu ekki að nýta sér gjöful fiskimið sín. Litl- um sögum fer af áfengisneyslu á þessu tímaskeiði, en telja má líklegt að hún hafi aukist þegar verslun við landið stóð í sem mestum blóma. Af Torfa í Klofa Torfi Jónsson, sýslumaður í Klofa í Landi, andaðist árið 1504. Torfi var mikilfenglegastur sunnlenskra höfðingja um sína daga enda oft nefndur í ritum Torfi ríki. Um hann hafa skapast íjölmargar þjóðsögur. Hann þótti afarmenni að burðum og flestum mönnum óvægnari, mikill risnumaður og hafði oft ölteiti stór með söng og hljóðfæraslætti langt fram á nætur. Til hans var heim- færður þessi vísustúfur: Hefirðu komið að Klofa, þar harpan bannar bömunum að sofa. Torfí tók inn á heimili sitt alls konar óreglu- og ólánsmenn sem hvergi annars staðar gátu fengið hæli. Torfí var mikill fyrirferðar, harðger og sást ekki fyrir. Þjóðsagan segir að einn umboðsmaður hirð- stjóra eða fógeti á Bessastöðum skömmu eftir aldanmótin 1500 hafi verið þýskur ribbaldi og drykkju- svoli sem Lénharður hét. Torfi fór að honum árið 1502 þegar hann var staddur að Hrauni í Ölfusi og réði niðurlögum hans. Torfi skriftaði fyr- ir biskupi eftir vígið og bætti mann- inn með fégjöldum. Öll ævisaga Torfa er saga um drykkjuskap og stjórnleysi. Hann lést við diykkju í þingferð niðri í Landeyjum og var þá um fímmtugt. Helga kona hans varð að kaupa honum leg í Skál- holti. Stefán biskup sagði Torfa hvorki húshæfan né kirkjugræfan og litlu betri en þá „er farga sjálfum sér“. Hún varð að gjalda iegstaðinn dýru verði bæði með skartgripum og jarðeignum. Frásagnimar af Torfa sýna vel stjórnmálaástand þessara tíma. Bæði veraldlegt og kirkjulegt vaid var veikt og tfmar stjórnleysis ríktu í landinu. Brúðkaupsveislur Lengi fram eftir öldum skyldi brúðkaup vera drukkið. Til hjúskapar var stofnað með festum, en brúðkaupsdrykkja með helgum minnum og ákveðnum siðum gerði hann löglegan og gildan að fullnustu. „Drekka skyldi brúðkaup" við stofnun hjónabands og var það jafn stranglega boðið í „landslögum" og „guðslögum". I kristnirétti Jóns erkibiskups er gerð sú linkind á um brúðkaupsdrykkju að drekka megi heilög minni í blöndu, en varla hefur það þótt sæmandi nema í algjörri Hinir hófsömu dreypa á víni en þeir sem ekki kunna sér hóf liggja afvelta í fiugnageri. neyð. Svo rík var heiðin helgi á víndrykkju að það var almennur siður í löndum Norður-Evrópu að brúðhjón höfðu með sér brauð og vín í kirkju og drukku „hjónaskál" eftir brúðarmessuna (púsaðarmessuna). Prestur blessaði bæði brauð og vín. Rollant þessi var kunnur úr Karlamagnússögu, en Grobbían var skipveiji á Fíflaskipinu; þeir voru yrkisefni rímnaskálda. Virðast veislugestir hafa sungið það sem þeim datt fyrst í hug þegar menn voru orðnir hreifir af víni. Oft mun hafa verið drukkið í fastara lagi í þessum veislum og öll siðsemd farið út um þúfur. Menn urðu saupsáttir og ryskingar og áflog gátu orðið milli manna. Þegar brúðkaupssiðir þessir eru skoðaðir kemur vel í ljós að menn töldu vín vera helgan dóm. Bakkusi voru færðar vínfórnir á öllum öldum og því var fylgt eftir í kristni, enda var ávallt talið að vínið færði manninn nær Guði. Það þótti hin besta íþrótt að vera drykkjumaður og segir í formála að Krists minni: „Sá er Kristi kærastur sem mest drekkur og sér gerir best af.“ Guði og heilögum mönnum var helgað vín með bæn og ákalli, og síðan var það drukkið þeim til dýrðar og til að afla sér náðar og blessunar. Eftir siðaskipti dofnuðu þessar hugmyndir og helgi víndrykkjunnar minnkaði en þó eimir enn eftir af þeim víða. Eggert Ólafsson skráði á 18. öld Brúðkaupssiðabók og reyndi að endurvekja í vitund almennings marga þá brúðkaupssiði sem lagðir höfðu verið verið. Hann orti sjálfur nokkur ný minni sem syngja skyldi hafi nokkru sinni komið til Íslands. Þó má finna í sumum þessara bóka, innan um alls konar óhróður og vitleysu, lýsingar á þjóðlífi og daglegum háttum fólks. A 7. áratug 16. aldar kom út í Hamborg ein slík íslandsbók eftir mann sem kallaði sig Göries Peerse. Hann sagðist vera íslendingur en ekkert gefur þó til kynna að það hafi verið satt. Ymsar lýsingar bentu þó til þess að hann hafí komið hingað. Honum verður tíðrætt um drykkjusiði landsmanna. „Og ef bjór flyst þangað með skipum, þá drekka menn af kappi, meðan hann endist. Þeir láta það þó ekki standa yfir lengur en átta daga, því að þeir óttast, að þá kynni sætt að snúast upp í súrt. Hver, sem þangað kemur, verður strax að drekka með þeim og má alls ekki kippa sér upp við það, en þess vegna bregða líka bændurnir sér þangað, sem þeir fínna, að þeir geta sest upp borgunarlaust. Og þar gengur enginn undan borðum sem þarf að kasta af sér vatni, trúið mér vel um það. Húsfreyjan verður að rétta manninum næturgagnið, og víkur hún sér ekki frá, en verður að taka við því aftur, þegar hann er búinn að ljúka sér af. Ekki blygðast hann sín fyrir þetta. Hún verður síðan í hljóði að skvetta úr koppnum, það er háttur og siður þar í landi. Þeir sitja og urra eins og bimir og hundar, og þegar bjórinn er þrotinn, þurrka þeir sér um munninn. Síðan ganga gestimir heim til sinna húsa, en húsbóndinn verður að vera eftir hjá lúsunum sínum. Þeir drekka að jafnaði úr skálum, en sjaldan úr flöskum, og þeir bera aldrei peninga í vösum sínum. Þeir hafa að vísu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.