Morgunblaðið - 13.12.1992, Síða 5

Morgunblaðið - 13.12.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992 B 5 hóffjaðrir og borga með þeim. Þeir drekka líka bjórinn úr nautshyrn- ingsbikurum, sem eru vel renndir allt í kring. Þar þykir ekki skömm að borða og drekka, án þess að eiga peninga til að borga með, því að það er siður þar í landi.“ Arngrímur Jónsson lærði ritaði bæklinginn Brevis commentaríus de Islandia til að hrekja ýmislegt sem ferðabókahöfundar sögðu um Island og Islendinga. I bókarlok ræðst hann á Peerse með miklum fúkyrðum svo að ætla má að honum hafi ekki geðjast lýsingar hans. Islandia eftir Blefken Arið 1607 kom út í Leyden á Hollandi bók um Ísland eftir Dit- hmar Blefken. Hann kveðst hafa komið til landsins árið 1563 og er sennilegast að hann hafi rekist hing- að með þýskum kaupmönnum. Blef- ken er frægastur allra erlendra manna sem um ísland hafa ritað, enda ekki ofmælt að segja bók hans illræmdasta rit sem samið hefur verið um ísland. Arngrímur Jónsson hrakti ýmsar staðhæfingar hans lið fyrir lið, en bók Blefkens varð engin dægurfluga. í meira en 150 ár sóttu erlendir menn þekkingu sína um ís- land í þessa bók. Hún kom út í fjölda útgáfa og var þýdd á mörg tungu- mál. Blefken ræðir um drykkjuskap íslendinga og fetar sömu slóðir og Peerse. „Ekki geyma íslendingar vínföng þau eða bjór, sem þeir kaupa af lönd- um okkar, heldur fara þeir bæ af bæ og heimsækja hverjir aðra og drekka allt upp og án þess að nokk- uð sé fyrir það goldið. Sem þeir drekka, syngja þeir um hetjudáðir forfeðra sinna. Ekki syngja þeir eft- ir neinni vissri reglu eða lagi, heldur hver með sínu nefi. Ekki telst sæm- andi, að neinn standi upp frá drykkjuborðum til þess að kasta af sér vatni. Verður þá heimasætan eða einhver önnur kona að gæta borðsins og taka eftir ef einhver gefur henni bendingu. Hún réttir þá að hinum sama kopp undir borðið. Meðan þetta fer fram, rýta hinir eins og svín, svo að ekki heyrist hvað fram fer. Er hún hefur hellt úr koppnum, þvær hún hann og býður þeim, sem næst keunir sín, og er sá talinn afglapi sem andvígur er þessu framferði." Þvaglát manna undir borðum verða báðum þessum höfundum umtalsefni og greinilega kunna þeir illa að meta söng, hetjukvæði og rímur íslendinga. Sumt í bók Blefk- ens er fjarstæða, enda hefur rit hans verið illræmt á íslandi um aldir. Skólakennarar hafa keppst við að segja nemendum sínum frá voðaleg- um rógburði Blefkens um land og þjóð og hetjulegri vörn Arngríms lærða. Margt í frásögnum Blefkens gæti þó verið sannleikanum sam- kvæmt og heift og hneykslan Arn- gríms og annarra stafað af skömm og vanmáttugri reiði vegna þeirrar eymdar og vesaldóms sem í landinu var og Blefken lýsir. Hvorki Peerse né Blefken hafa kunnað að meta sönglist og samræður drukkinna ís- lendinga og líkja þeim við furðuleg dýrahljóð. Námskeið í skyndi- hjálp á vegum RKI Reykjavíkurdeild RKÍ gengst fyrir námskeiði í skyndihjálp sem hefst mánudaginn 14. des- ember kl. 20 og stendur fjögur kvöld. Kennt verður frá kl. 20-23. Kennsludagar verða 14., 15., 16. og 17. desember. Námskeiðið telst vera 16 kennslustundir. Þátttaka er heimil öllum 15 ára og eldri. Námskeiðið verður í Fákafeni 11, annarri hæð. Námskeiðsgjald er 4.000 krón- ur, skuldlausir félagar í RKÍ fá 50% afslátt. Einnig fá nemendur í framhaldsskólum 50% afslátt gegn framvísun á gildu skólaskír- teini. Meðal þess sem kennt verður á námskeiðinu er blástursmeðferðin, endurlífgun með hjartahnoði, hjálp við bruna, blæðingum úr sárum og mörgu öðru. Einnig verður fjall- að um það hvernig má koma í veg fyrir slys. Að námskeiðinu loknu fá nem- endur skírteini sem hægt er að fá metið í ýmsum framhaldsskólum. Tekið skal fram að Reykjavíkur- deild RKI útvegar leiðbeinendur til að halda námskeið í fyrirtækjum' og hjá öðrum sem þess óska. (Fréttatilkynning) VERTU FLOTT UTH JÓLIN... Glæsilegir herra spariskór Teg.3014 Þykkur leðursóli. Litir: Svartur og vínrauður. Verð kr. 5.700,- Staðgreiðsluafsláttur - Póstsendum samdægurs. ^ÓBÚ^ SKÆÐI mílano KRINGLUNNI8-12, S. 689345 LAUGAVEGI 61-63, SlMI 10655 uiiarpGysijr kr.2.490,- Litir: Brúnt, Ijósgrænt, apricos, grænt. Stærðir: M, L. SENDUM í PÓSTKRÖFU OPIÐ SUNNUDAG SONJA Laugavegi81, Kringlunni, s. 91-21444. s. 91-686244. (ollei, óvcnjuleg tg ódýr jólagjöf Ársmappa Pósts og síma með ínmerkjum ársins 1992 er falleg, ódýr og óvenjuleg jólagjöf. Hún er vel til þess fallin aðvekja áhuga á frímerkjasöfnun hjá ungu kynslóðinni. Stingdu ársmöppunni í jólapakkann. Hún kostar aðeins 960 kiónur og fæst á póst- og símstöðvum um allt land. FRIMERKJASALAN Pósthólf 8445, 128 Reykjavík, Sími 63 60 51 PÓSTUR OG SÍMI Qott fólWSÍA 5500 - 414 fcvil 392

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.