Morgunblaðið - 13.12.1992, Page 13
FLUGLEIÐIR
Traustur ísUnskur ferðafélagi
Viðskiptavinir
athugið!
Söluskrifstofa Flugleiða við Lækjar-
götu 2 verður lokuð mónudaginn
14. desember vegna flutninga.
Skrifstofan verður opnuð aftur í
nýju húsnæði við Laugaveg 7 ó
þriðjudagsmorgun. Við biðjum við-
skiptavini okkar að sýna biðlund
vegna þessarar lokunar og bendum
þeim ó söluskrifstofur félagsins í
Kringlunni og Hótel Esju.
Giljagaur
Giljagaur kemur í heimsókn í
Þjóðminjasafnið í dag kl. 11.15.
Giljagaur er jólasveinninn sem
sleikir froðuna af mjólkurfötunum.
----» ♦ ♦--
Bókakynning
í Sjóminja-
safninu í dag
SJÓMINJASAFN Íslands efnir tU
kynningar á nýútkomnum bókum
um siglingar og sjómennsku í
húsakynnum safnsins á Vestur-
götu 8 í Hafnarfirði sunnudaginn
13. desember kl. 15-17. Þar verða
kynntar fjórar bækur.
Helgi Hallvarðsson skipherra
Landhelgisgæslunnar og Atli Magn-
ússon kynna kl. 15 bókina í kröppum
sjó, sem Örn og Örlygur gefa út.
Skjaldborg kynnir bókina Þeir létu
ekki deigan síga kl. 15.30, Ólafur
Haukur Símonarson kynnir endur-
minningar afa sína Guðjóns Símon-
arsonar, Stormur strýkur vanga,
sem Forlagið gefur út, kl. 16 og kl.
16.30 kynnir Hulda Sigurborg Sig-
tryggsdóttir sagnfræðingur bók sína
í skotlínu, sem AB gefur út.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992
i i'. .iU'ÞiMMgt'irj .;.! j-j! t')■*,.■;.jy■■1 (lIOAJilkl'UDBOJA
B 13
skotlínu er bók um harðvítuga baróttu sjómanna ó
skipum Eimskipafélagsins fyrir lifi sínu og lifsafkomu í
hildarleik síðari heimsstyrjaldar. Engin skipalest sem fór
yfir hafið meðan striðið stóð sem hæst komst heil fró
kafbátaórósum Þjóðverja og voru stór skörð höggvin í
raðir okkar bestu manna.
Áhætta íslenskra sjómanna var því gífurleg og þegar
launagreiðslur reyndust ekki í samræmi við miskunnar-
lausan veruleika og hrikalegar fórnir þurftu þeir að hefja
baráttu á nýjum vígstöðvum.
Hulda Sigurborg Sigtryggsdóttir er ungur sagnfræð-
ingur og er I skotlínu fyrsta sagnfræðirit hennar. Þór
Whitehead prófessor ritar formála.
í skotlínu er bók um íslenskar hetjur sem ekki gleymast.