Morgunblaðið - 13.12.1992, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 13.12.1992, Qupperneq 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992 HLAUPIÐ A HELSTU JOLAMYNDUM SIÐUSTU ARATUGA DUNARI TRJALUNDI Stjömustríð 2,1981. eftir Arnald Indriðason JÓL AMYNDIR kvikmyndahúsanna eiga sér langa sögu og ófá stór- virki kvikmyndanna hafa verið fmmsýnd hér á landi um jólin. En það hefur margt breyst á undanfömum áratugum hvað varðar jóla- myndimar og þær breytingar sýna ágætlega þróunina sem orðið hefur almennt á kvikmyndamarkaðinum í gegnum árin. Það þykir kannski einhverjum ótrúlegt en einu sinni vom þær þýskar söngva- og dansamyndir og danskar húmorf ilmur með Dirch Passer. Og þær voru mun eldri en bíógestir láta bjóða sér í dag. „Midnight Cowboy" er ágætt dæmi um jólamyndir gamla tímans. Hún var sýnd i Tónabíói um jólin 1972 en var gerð árið 1969. Hún var þriggja ára gömul. Það er eins og ef Aleinn heima 2, sem er jólamynd vestra í ár og kemur hingað nokkurra vikna gömul sem jólamynd Sambíóanna, yrði sýnd hér í fyrsta lagi um ára- mótin 1995. Það fór ekki að bera á því fyrr en á áttunda áratugnum að bíóin sýndu jólamyndir sem frum- sýndar höfðu verið sama árið í Bandaríkjunum. Svo lengi sem elstu menn muna hafa bíóin sett eitthvað sérstakt upp fyrir jólahátíðina. Það er eina hefðin í kvikmyndahaldi hér á landi. Strax árið 1930 voru Gamla Bíó og Nýja Bíó farin að auglýsa jólamyndir sér- staklega. Sum bíóin héldu í hefðir í vali á jólamyndum. Gamla Bíó sýndi iðulega Disneymyndir síðustu þijá áratugina og Hafnarbíó sýndi Rock Hudson myndir í kringum 1960 og seinna myndir Jacques Tatis og Charlies Chaplins. Bæjarbíó og Hafnarfjarðarbíó sýndu gjaman danskar gamanmyndir á sjöunda áratugnum, Austurbæjarbíó sýndi þýskar söngva- og gamanmyndir með dönskum texta og stórmyndir eins og Kleópatra með Elizabeth Taylor, Saga úr Vesturbænum („West Side Story“) og Arabíu-Lár- ens eftir David Lean voru geymdar til jóia. Allar voru stórmyndimar tveggja og þriggja ára gamlar þegar þær náðu hingað. Því fór fjarri að stærstu myndim- ar kæmu alltaf um jólin í bíóin. Þá eins og nú lögðu bíóin áherslu á að sýna frægar myndir eins fljótt og mögulegt var þótt þær væru orðnar nokkurra ára gamlar og því er þetta yfirlit um jólamyndir gamla tímans hvergi nærri mælikvarði á þekktustu myndir hvers árs. Á sjötta áratugnum vora stjömur jólamyndanna Errol Flynn, Tyrone Power og Marlon Brando. Árið 1954 sýndi Austurbæjarbíó myndina Á gimdarleiðum um jólin eða „A Stre- etcar Named Desire“ (betur þekkt sem Sporvagninn Girnd) með Brando og Vivian Leigh. Hún var þriggja ára gömul. Tjarnarbíó sýndi þá „Roman Holiday" með Cary Grant, sem var aðeins eins árs. Aðr- ar jólamyndir áratugarins vora Hvít jól með Bing Crosby, ítalska skylm- ingamyndin Rauði riddar- inn,„Marty“ eftir Delbert Mann, Brúin yfír Kwai-fljót eftir Lean, Kóngur í New York eftir Chaplin og Undur lífsins eftir Ingmar Berg- man, sem sýnd var 1958. Danskar bæði og þýskar Þróunin í jólamyndaurvalinu hefur ekki aðeins einkennst af því að nú koma myndimar fyrr til landsins. Onnur helsta breytingin frá því sem var fyrir rúmum 30 árum er sú að úrvalið var ekki eins einhæft og nú er; myndir komu jafnmikið frá Evr- ópu og Bandaríkjunum. Árið 1960 voru t.d. fjórar þýskar jólamyndir á boðstólunum. Ein hét því skáldlega nafni Dunar í tijálundi eða „Wo die alten Walder rauschen" og var sýnd í Tjarnarbíói. í Austurbæjarbíói var þýska myndin Trappfjölskyldan í Ameríku, Bæjarbíó sýndi þýska söngva- og músíkmynd „í eðlilegum litum“ og Kópavogsbíó sýndi Þrjár stúlkur frá Rín, „létta og skemmti- lega þýska litmynd". Laugarásbíó sýndi þá stórmyndina Boðorðin tíu með Charlton Heston, Trípólíbíó sýndi gömlu Hróa hattar myndina með Errol Flynn og Hafnarfjarðar- bíó sýndi dönsku gamanmyndina Frænku Charleys með Direh Passer. Sá eðalfíni danski gamanleikari var tíður gestur á jólunum allan sjöunda áratuginn. Auglýsingamar gátu verið ansi mikilfenglegar og skákuðu nútíma- frösunum um toppgrínspennuhas- armyndir ársins. Árið 1961 sýndi Trípólíbíó Síðustu daga Pompeii en það var amerísk-ítölsk mynd í hvorki meira né minna en „Súpertotalscope um örlög borgarinnar sem lifði í syndum og fórst í eldslogum". Þetta ár byijaði Hafnarbíó á Rock Hudson myndunum sínum og sýndi Koddahjal („Pillow Talk“). Hudson var um þetta leyti vinsælasti leikari Bandaríkjanna. í Austurbæjarbíói var þýsk gamanmynd um æfíntýri Munchausens í Afríku með dönskum texta og Bæjarbíó sýndi Prestinn og lömuðu stúlkuna, þýska mynd gerða uppúr samnefndri sögu sem birtist í Vikunni en ófáar „Vikumyndir" voru sýndar á þessum tíma. Danny Kaye var í Háskólabíói og Deborah Kerr og David Niven í „Bonjour Tristesse" í Stjörnubíói en stórmynd- in 1961 var Gamli maðurinn og haf- ið með Spencer Tracy uppúr frægri sögu Ernest Hemingways. Danska leikkkonan Ghita Nörby, sem skemmti okkur síðar í sjón- varpsþáttunum Matador, var næst- um eins vinsæl kvikmyndastjama og Dirch Passer og voru sýndar myndir með henni á jólunum lengst af á sjöunda áratugnum. Tvær vin- sælar myndir hennar voru sýndar 1962, Héraðslæknirinn í Bæjarbíói og Pétur verður pabbi í Hafnarfjarð- arbíói. Þá sýndi Tónabíó stórvestr- ann Víðáttuna miklu eða „The Big Country", Gamla Bíó var með Di- sneymynd og Hafnarbíó Hudson- mynd, Austurbæjarbíó þýska söngva- og gamanmynd með dönsk- um texta og Laugarásbíó frumsýndi fyrstu bíómynd leikkonu sem átti eftir að gera garðinn frægan. Það var „Tall Story“ með Jane Fonda. Tvær stórmyndir settu svip sinn á jólin 1963. Önnur var Kraftaverk- „Midnight Cowboy", 1972. ið eða „The Miracle Worker" eftir Arthur Penn með Anne Bancroft og Patty Duke, sem fjallaði um Helenu Keller og kennslukonu hennar. Myndin var aðeins árs gömul þegar hún kom hingað. Hin stóra myndin var dans- og söngvamyndina Saga úr Vesturbænum með tónlist Leon- ards Bemsteins, tveggja ára gömul. Austurbæjarbíó flaggaði m.a. nýrri Roy Rogers mynd með Trigger „gáfaðasta hesti kvikmyndanna". Árið eftir voru stórmyndajól því þá „Lawrence of Arabia“, 1964. frumsýndi Háskólabíó hina sögulegu mynd David Leans, Arabíu-Lárens og Tónabíó framsýndi fyrstu James Bond myndina, „Dr. No“. Báðar voru þær tveggja ára gamlar og sagan um Bond hafði birst í Vik- unni. Austurbæjarbíó hélt áfram með þýskar myndir og frumsýndi Skautadrottninguna sem á frammál- inu hét „Kauf Dir einen bunten Luft- ballon“. Árið 1965 var Hudson enn í Hafn- arbíói og Austurbæjarbíó sýndi frönsku stórmyndina Angélique I undirheimum Parísar - sagan var úr Vikunni - en aðalmyndin var í Nýja Bíói, Kleópatra með Taylor. Það er langdýrasti og langháværasti skellur kvikmyndasögunnar og að margra áliti ein versta mynd sem gerð hefur verið. Bæjarbíó sýndi nýja ítalska mynd eftir Vittorio De Sica, í gær, í dag og á morgun með Sophiu Loren og Marcello Mastro- ianni. Þremur árum seinna var fransk-ítalska myndin Gyðja dagsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.