Morgunblaðið - 13.12.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.12.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992 ------B 25 KAUPIViAWNilHiirWARBRÉr Bókamarkaðshugleiðingar Þó fyrirbærið ,jólabók“ sé óþekkt hér um slóðir og bækur komi jafnt og þétt út allt árið um kring er samt mest gefið út á haustin. Bækur eru auglýstar um þessar mundir, en fremur á lágu nótun- um, ekki af yfirgengilegum krafti. Fag- urbókmenntir eru aðeins hluti af aug- lýstum bókum. Fyrir þann sem tilheyrir þjóð, er slær öll möguleg bókmenntaá- hugamet, veldur dönsk frumsmíði ekki endilega hjartslætti. Það eru fagbækur og þýðingar, bæði á fag- og fagurbók- menntum, sem minna á að þó Danir séu i eigin augum fáir og smáir þá hafa þeir þó altént bolmagn til að láta þýða töluvert af annarra þjóða bókmenntum og eins til að gefa út fagbækur fyrir áhugasaman almúgann um aðskiljanleg- ustu efni. Um þessar mundir er til dæm- is að koma út hér úrval ljóða Nóbelsverð- launahafans í ár, Derek Walcotts, sem annars var lítt þekktur utan þröngs hrings bókmenntamanna. Undanfarin ár hafa bækur um eðlisfræði og stærðfræði verið metsölubækur um allan heim. Ekki sjálfar fræðibækumar, sem að- eins eru aðgengilegar fáum innvígðum, heldur einfaldaðar útskýringar á flóknum kenningum um tilurð alheimsins, um minnstu einingar efnisins og fleira í þeim dúr. Tvö stór, dönsk forlög, Gyldendal og Munksgaard, gefa meðal annars út bóka- flokka, þar.sem er að finna bæði þýddar og frumsamdar bækur um þessi og önnur fræðileg efni. Ýmsir heimspekingar halda því fram að eðlisfræðin hafi að hluta leyst heimspeki af hólmi. Hér er þá átt við fræði- lega eðlisfræði, þar sem hinstu rök tilver- unnar eru uppistaðan. Hugmyndir manns eins og Alberts Einsteins um afstæði tíma og rúms og seinni tíma rannsóknir í þeim efnum eru sannarlega oft á tíðum nær heim- speki en eðlisfræði. Móttökur bóka um fræðileg efni, bæði hér og annars staðar, sýna að almenningur hefur að sjálfsögðu áhuga á að fylgjast með. Það getur verið hvorki meira né minna en opinberun að lesa um þessar hugmynd- ir. Flestir hljóta að fá fiðring í magann af tilhugsuninni um að hægt sé að hugsa sér tíu víddir, að ljósið sé í raun eindir og sömu- leiðis aðdráttarkrafturinn. Og það er öld- ungis frábært að böm og unglingar eigi kost á að lesa um þessi efni á eigin máli, rétt eins og þau eiga þess kost að lesa Tinna og HC Andersen. Danir hafa áhuga á stjómmálamönnum sínum, ef marka má bækur um þá. Nýlega kom út bók um Poul Schluter forsætisráð- herra og tvær um Uffe Ellemann Jensen utanríkisráðherra. Sá fyrmefndi var afar óhress með bókina um sig og sagði vinnu- brögðin við bókina vera fyrir neðan allar hellur, en hún er skrifuð af tveimur blaða- mönnum. Bók tvímenningana var tilnefnd til blaðamannaverðlauna hér. En það eru einnig stunduð annars konar bókaskrif um dönsk stjómmál. Þegar einn af lífeyrissjóð- unum dönsku varð 50 ára 1967 var ákveð- ið að halda upp á afmælið með því að gefa út sögu danskra ríkisstjóma frá 1848- 1953. Nú heldur sjóðurinn upp á 75 ára afmæli í ár með nýrri bók, „De danske ministerier 1953-1972“. Tage Kaarsted prófessor í samtímasögu í Óðinsvéum hefur um árabil fylgst náið með stjómmálum og stjórnmálamönnum, meðal annars með því að tala við og skrifast á við þá og var feng- inn til að skrifa bókina. Bókin er því bæði byggð á skriflegum og murinlegum heimild- um. Árin frá 1953-1972 eru forvitnilegt tímabil í danskri sögu. Á þessum tíma var hugmyndunum frá fyrri hluta aldarinnar um velferðarkerfið hmndið í framkvæmd og tímabilinu lýkur með inngöngu Dana í EB og afsögn Jens Otto Krags, eins helsta stjórnmálaleiðtoga Dana á þessari öld. Með öðrum orðum var á þessu tímabili lagður gmndvöllur að Danmörku eins og hún lítur út nú. Á þessum tíma var einnig samið um skiptingu Norðursjávar og frásögn bókar- innar af því hefur vakið upp umræður bæði hér og í Noregi. Allt frá 1938 hafði árangurslaust verið reynt að fínna olíu í Norðursjónum. Um tíma leit út fyrir að Þjóðveijar vildu krækja í vinnsluréttinn, en til þess að koma í veg fyrir að svo færi, hóaði skipaútgerðar- og fjármálamaðurinn AP Möller saman nokkmm fyrirtælqum, sem fengu réttindin 1962 og halda þeim enn. Um svipað leyti var samið um skipt- ingu Norðursjávar. Ekofisk-svæðið kom í hlut Norðmanna. Í bókinni segir að Per Hækkemp utanríkisráðherra hafi verið „illa fyrir kallaður" og því hafði svæðið lent hjá Norðmönnum, sem síðan hafa haft ómælda gleði af þessu olíuríka svæði. Ummælin um ráðherrann vísa til þess, sem allir vissu á þeim tíma að meðan aðrir byijuðu daginn á kaffíbolla, byijaði hann iðulega daginn með viskíflösku. Ef rétt er, misstu Danir því svæðið vegna drykkju ráðherrans. Þessari skoðun var mótmælt af norskum sagnfræðingi, sem hefur hugað að olíuviðræðunum heima fyr- ir. Hann álítur eðlilegt að svæðið hafi fárið til Norðmanna, annað hafí ekki komið til greina og Danir, eða öllu heldur Hækker- up, því ekki glutrað því niður. Þama stend- ur staðhæfíng gegn staðhæfmgu, en óneit- anlega hafa margir Danir stunið af tilhugs- uninni um að ágóðinn af Ekofísk hefði kannski getað mnnið í danskar fjárhirslur. Á tímabilinu var einnig lagt fram fmm- varp um skiptingu íslensku handritanna í dönskum söfnum og frá því segir í bók- inni. Meðal annars er rifjuð upp fleyg saga frá heimsókn Jörgens Jörgensens kennslu- málaráðherra í Ámasafn í Kaupmannahöfn. Ráðherrann'var afar hlynntur íslensku ósk- unum, en þótti ekki býsna vel að sér um sjálft deiluefnið, nefnilega handritin. Þegar hann kom inn í handritageymsluna og sá öll handritin, spurði hann: „Skrifaði Arni Magnússon í alvörunni öll þessi handrit sjálfur?" Þó reynt væri að þagga söguna niður, kom allt fyrir ekki og danskir and- stæðingar handritaskila flögguðu henni óspart. Óneitanlega er öllu veigameira'að hafa bók eins og þessa að glugga í heldur en misvel skrifaðar blaðamannabækur eða endurminningabækur einstakra stjómmála- manna, sem líklega hættir frekar til að gleyma öðmm en sjálfum sér. En hirðu- leysi íslenskra stjórnmálamanna um skjöl og skriftir hefur löngum gert sagnfræðing- um torvelt fyrir að komast til botns í hvað gerðist í raun og vem. Líkt og minningargreinar em séríslensk bókmenntagrein, þá virðast endurminn- ingabækur á góðri leið með að verða það líka. Ekki svo að skilja að þær þekkist ekki annars staðar, en það hlýtur að styttast í heimsmet í hve há prósenta þjóðarinnar hefur iátið minningar sínar á þrykk út ganga... og hve há prósenta þjóðarinnar er tilbúin til að lesa það sem hinir minn- ast. Þessi 240 þúsund manna markaður virðist storka öllum lögmálum hagfræðinn- ar um framboð, eftirspum og mettun, þeg- ar minningabækur og merktar gallabuxur eru annars vegar. Sigrún Davíðsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.