Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 47
;eer íiaOvial .oe auoAnuicntw ciioA.ninuf)?toM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993
47 -
Báðstefna um
menntun
þroskaþjálfa
ÞROSKAÞJÁLFASKÓLI fs-
lands boðar til ráðstefnu í
Borgartúni 6, 29. janúar nk.
Markmið ráðstefnunnar er að
skilgreina væntingar stjórn-
valda tO starfa þroskaþjálfa,
að heyra frá hagsmunaaðilum
hveijar þarfir þeirra eru varð-
andi fagkunnáttu þroskaþjálfa
og að athuga hvernig skólinn
menntar nemendur sína til að
mæta væntingum og greindum
þörfum.
Ljóst er að með Iögum um
málefiii fatlaðra fiá 1992 breyt-
ast ýmsar áherslur í þjónustu við
fatlaða og menntun þeirra. Efiii
ráðstefnunnar verður skoðað í
ljósi nefndra laga. Fulltrúar skól-
ans, þroskaþjálfa, mennta-, fé-
lags- og heilbrigðisráðuneyta og
hagsmunaaðila hafa framsögu.
Þátttakendur starfa í hópum.
Ráðstefnan hefst með skráningu
og niðurröðun í hópa kl. 8.30 og
henni lýkur kl. 17.
(Fréttatílkynniiig)
Tónleikar
Bubba Morth-
ens í Seltjam-
ameskirkju
FÉLAGASAMTÖK á Seltjara-
arnesi eru að safna fyrir flygli
í Settjarnameskirkju. Bubbi
Morthens brást vel við þeirri
ósk að gefa alla vinnu sína
vegna þessara tónleika.
Þess má vænta að margir
aðdáendur Bubba muni leggja
Ieið sína í kirkjuna miðvikudag-
inn 27. janúar kl. 20.30.
(Fréttatilkynning)
Fyrirlestur
umbreytingar
á tölvukerfum
DECUS, samtök Digital tölvu-
notenda halda fimmta félags-
fund vetrarins í dag, þriðjudag
hjá Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur, Suðurlandsbraut 34, klukk-
an 15.
Flutt verða tvö framsöguer-
indi, annars vegar erindi Bjama
Júlíussonar um svokaliaða tðlv-
usmækkun, en ftamfarir í ein-
menningstölvum hafa orðið til
þess að sífellt fleiri fyrirtæki
breyta tilhögun tölvuvinnslu
sinnar. Hins vegar fiallar Heiðar
Þór Guðnason um TeamLinks
hugbúnað fyrir stærri og smærri
samstarfshópa, en heistu hlutar
þess kerfis eru skjalaskápur, sem
getur notað löng skráarnöfn,
póstur og skoðunarkerfi.
Kosningar í Háskóla íslands haldnar í næsta mánuði
Morgunblaðið/Þoricell
Færri í Stúdentaráði
Hópurinn sem úallaði um breytingar á starfsemi Stúdentaráðs Háskóla íslands á stefnuskrárráðstefnunni
og leggur m.a. til að fækkað verði í Stúdentaráði úr 30 í 15 manns.
Vaka boðar gagngerar
breytingar á starfsemi SHI
BREYTINGAR á starfsemi Stúdentaráðs, sem rneðal annars fel-
ast í að öll mál sem teljast til félags- eða menningarlífs flytjist
tíl deildarfélaga, að fækkað verði í ráðinu úr 30 í 15 manns og
að kosið verði til eins árs í senn, eru meginatriðin sem Vaka,
félag lýðræðissinnaðra stúdenta; leggur áherslu á fyrir kosning-
ar sem haldnar verða í Háskóla Islands t næsta mánuði. Á stefnu-
skrárráðstefnu Vöku sem haldin var um helgina kom einnig fram
að félagið vill gefa aðUd að Stúdentaráði frjálsa.
Að sögn Bjama Þórðar Bjama-
sonar, formanns Vöku, era breyt-
ingamar á starfsemi Stúdentaráðs
sem félagið hyggst beita sér fyrir
þær mestu sem gerðar hafa verið
á starfsemi þess frá stofnun ráðs-
ins. „Hugmyndin er að breyta ráð-
inu úr samkundu þar sem sífellt
er verið að álykta um hin og þessi
mál, í framkvæmdaráð. Við viljum
fækka f ráðinu um helming og
fela einstökum fulltrúum að sjá
um tiltekin verkefni í stað þess
sem nú er að ráðið í heild fari
með hvert mál. Við teljum að með
þessu væri hægt að auka ábyrgð
stúdentaráðsliða og það myndi
skila sér í markvissari vinnubrögð-
um,“ sagði Bjami Þórður.
ÆfingavöUur?
í máli Orra Haukssonar, sem
skipar efsta sætið á lista Vöku til
Stúdentaráðs, kom fram að stór
hluti stúdenta hafi lítið álit á stúd-
entapólitík þar sem hann álrti
Stúdentaráð vera nokkurs konar
æfingavöll fyrir verðandi stjóm-
málamenn. „Formið á ráðinu, eins
og það er nú, gefur mikið færi á
þessu. Þama em tvær fylkingar
sem oft em að takast á um mál
sem allir em í raun sammála um,
eins og mál sem tengjast félags-
lífi. Þetta ætti að láta deildarfélög-
in sjá alfarið um. Stúdentaráð
ætti að einbeita sér að beinum
hagsmunamálum stúdenta,“ sagði
Orri.
Þórir Kjartansson, kosninga-
stjóri félagsins, sagði að hug-
myndir um að gefa aðild að Stúd-
entaráði ftjálsa hefðu verið innan
Vöku í mörg ár. „Það er mannrétt-
indamál að fólk geti valið hvort
það vill vera í félagi eða ekki.
Meginástæðan fyrir því að við setj-
um þetta fram er hins vegar sú
að við teljum að með þessu megi
tiyggja betra aðhald að ráðinu,“
sagði Þórir.
Hann sagði Vökufélaga ekki
óttast að starfsemi Stúdentaráðs
lognist út af við þessa breytingu.
„Við teljum okkur geta tryggt það
öfluga hagsmunabaráttu innan
ráðsins að stúdentar sjái ótvírætt
hag í því að vera aðilar að því,“
sagði Þórir.
Námskeið og
afmælisfundur
EINN liður í starfí Kvenrétt-
indafélags Islands er að gang-
ast fyrir fjölbreyttu nám-
skeiðahaldi. Eftirfarandi
námskeið hefjast í þessari og
næstu vikum.
Námskeiðið Framkoma í fiöl-
miðlum hefst mánudaginn 25.
janúar kl. 20, Saga KRFÍ og
kvennabaráttu á íslandi verður
miðvikudaginn 27. janúar kl. 20.
Bæði þessi námskeið verða hald-
in á Hallveigarstöðum, Túngötu
14. Einnig em í boði námskeiðin
Fjármál I - samskipti við stofn-
anir, Fjármál H - fjárhagur ein-
staklinga og Greinaskrif. Síðar
í vetur er áformað að vera með
námskeið um ræðumennsku og
fundasköp og Óvígða sambúð.
Þátttökugjaldi er stillt í hóf og
á námskeið þessi em allir vel-
komnir, bæði félagar og aðrir.
Afmæli félagsins er 27. jan:
úar en þá verður það 66 ára. í
tilefni af því verður haldinn op-
inn rabbfundur að morgni
laugardagsins 30. janúar kl.
10.30 á Gauki á Stöng. Gestur
fundarins er Inga Huld Hákon-
ardóttir sem fiallar um bók sína
Fjarri hlýju hjónasængur sem
út kom fyrir jóiin.
(Úr fréttatilkynningu)
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNIMAR í REYKJAVÍK:
Helgin var tiltölulega róleg hjá lögregl-
unni. Þar hefur veðrið liklega ráðið miklu.
Kalt var í veðri alla helgina og aðfaranótt
sunnudagsins var hvasst og skafrenningur.
Því var rólegt í miðborginni og fólk kom sér
yfirleitt strax heim eftir að skemmtistaðir
lokuðu. Einnig var óvenjulítið af unglingum
í miðborginni og lítil sem engin afskipti þurfti
að hafa af fólki sem þar var.
Verkefni lögreglunnar vom annars hefð-
bundin um helgina. Snerast að mestu um
afskipti af ölvuðu fólki og fólki sem gerðist
brotlegt við umferðariög. Lögreglan sinnti
um 40 útköllum vegna ölvunar og 25 gistu
fangageymslur Iögregiunnar og fengu þeir
flestir að fara fijálsir ferða sinna eftir að
hafa sofið úr sér áfengisvímu. Nokkrir þurftu
þó að gera frekari grein fyrir framkomu sinni
er þeir vöknuðu að morgni, þ. á m. þrír
menn sem urðu ósáttir við dyraverði á veit-
ingastað einum, og endaði það með átökum.
Ástæðan fyrir því virtist vera sú að mennim-
ir hafi ekki fengið að þengja raddböndin eins
og þeim þótti við hæfi.
Sjö ökumenn vom stöðvaðir gmnaðir um
ölvun við akstur og ellefu vom kærðir fyrir
of hraðan akstur. Fyrir önnur umferðarlaga-
brot vom kærðir um 50 ökumenn. Þijú um-
ferðarslys urðu um helgina en meiðsl í þeim
vora minniháttar.
Stálu happaþrennum
Um helgina var tilkynnt um 14 innbrot til
lögreglunnar og 8 þjófnaði. Þrír unglingar
vom m.a. handteknir fyrir að stela einhvequ
magni af happaþrennum úr sölutumi og
höfðu þeir þá skafíð einhveija tugi af happa-
þrennum, en ekki liggur fyrir hvort þeir hafi
dottið í íukkupottinn. Annars má segja að
þær tilkynningar sem bárast til lögreglunnar
um innbrot og þjófnaði hafi verið hefðbundn-
ar. Um var að ræða innbrot í bfla, geymslur
og sölutuma svo og þjófnaði á þvottavél úr
íbúðarhúsi og líkur benda til þess að þar
hafi þvottavél verið „stolið" frá „röngum
aðila“. Sá sem tók þvottavélina hafi ætlað
að taka þvottavélina sem var við hliðina á
vélinni sem hann tók. Þannig að það getur
verið nauðsynlegt fyrir fólk að kynna sér
aðstæður betur áður en það hefst handa við
svona iðju.
Hjálmurinn bjargaði
Um helgina var það óhapp að maður datt
af hesti í Víðidal, þar sem hann var á útreið-
um með fjölskyldu sinni. Var hann með reið-
hjálm á höfði og benda líkur til þess að hjálm-
urinn hafi bjargað þar miklu. Fólk sem stund-
ar útreiðar ætti því að nota slflca hjálma, en
þeir hafa oft komið í veg fyrir alvarleg slys.
Þó er sérstaklega mikilvægt að böm og ung-
lingar sem stunda hestamennsku noti reið-
hjálma.
Sjálfstæðisfélög
í Reykjavík
Baldur for-
maður full-
trúaráðsins
AÐALFUNDUR fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík var
haldinn þriðjudaginn 19. janúar sl.
Á dagskrá fundarins vom almenn
aðalfundastörf en auk þess flutti
Geir H. Haarde alþingismaður ræðu
um stjómmálaviðhorf.
í stjóm vom kosnir: Baldur Guð-
laugsson, formaður, Ámi Sigfusson, '
Garðar Ingvarsson, Gunnar Jóhann
Birgisson, Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson, Jóna Gróa Sigurðardóttir
og Kjartan Gunnarsson, meðstjóm-
endur. Auk þess eiga sæti í fulltaúar-
áðinu formenn allra sjálfstæðisfélaga
í Reykjavík, en þau era 18 talsins.
Alls eigaþví 24 sæti í stjóm fulltrúar-
áðsins.
(Fréttatílkynning)
Skráningí
frjálsa dansa
er hafin
HAFTNN er undirbúningur að
ísiandsmeistarakeppni unglinga
I frjálsum dönsum (freestyle).
Þetta er 12. skiptið sem keppnin
fer fram. Það er sem fyrr Félags-
miðstöðin Tónabær og ITR sem
standa fyrir keppninni.
Allir unglingar um land allt á
aldrinum 13-17 ára eða fæddir
1976-1979 hafa rétt til þátttöku.
Keppt er í tveimur flokkum, í eiíí- ■“
staklingsdansi og hópdansi. Undan-
keppnir fara fram á átta stöðum á
landinu og skrá keppendur sig í
sínu kjördæmi. Keppnisstaðir em
þessir.
Reykjavík/Reykjanes: Félags-
miðstöðin Tónabær, Vesturland:
Félagsmiðstöðin Arnadalur, Akra-
nesi; Vestfirðin Félagsmiðstöðin
Sponsið, ísafirði; Norðuriand
vestra: Félagsmiðstöðin Skjólið,
Blönduósi; Norðurland eystra: Fé-
lagsmiðstöðin Dynheimar, Akur-
eyri; Austurland: Félagsmiðstöðin,
Neskaupstað; Suðurland: Félags-
miðstöðin, gagnfræðaskóla Sel-
fossi, og Félagsheimilið í Vest-
mannaeyjum. -S -
Úrslitakeppni fer fram í Tónabæ
5. mars. Freestyie-keppni fyrir
10-12 ára verður haldin laugardag-
inn 14. mars í Tónabæ.
(Úr fréttatilkynningu)
------» »■ »----
Hafnarfjarðarkirkja
Kyrrðarstund-
irí hádegi
VTKULEGAR kyrrðarstundir í
hádegi eru nú að hefjast í Hafnar-
fjarðarkirkju og munu þær fara
fram á miðvikudögum. Stundin
hefst með orgelleik kl. 12 i einar—
tíu mínútur (og á þeim tíma geta
menn komið í kirkju t.d. af vinnu-
stað). Síðan er sunginn sálmur og
íhugað bænavers í kyrrð og boðið
til altaris og fyrirbæna.
Eftir stundina i kirkjunni gefst
þátttakendum kostur á að neyta
saman léttrar máltíðar í Góðtempl-
arahúsinu gegn vægu gjaldi og geta
samt farið tfmanlega til að sinna við-
fangsefnum sínum eftir hádegi.
Slíkar stundir í hádegi þar sem
hægt er að næra bæði líkama og sál
hafa tíðkast í nokkram kirkjum í
Reykjavik síðustu árin og notið va)» '
andi vinsælda.
Það veitir frið og blessun í erii
dags að Ieita hvfldar og kyrrðar í
skjóli kirkjunnar og þess er vænst
að þessi nýbreytni í Hafnarfjarðar-
kirkju mælist vel fyrir.
Fýrsta kyrrðarstundin í hádegi af
þessu tagi í Hafnarfjarðarkirkju fer
fram nk. miðvikudag, 26. janúar. J —
Gunnþór Ingason sóknarprestur