Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANUAR 1993
9
MUSIKLEIRFIMI
Við hjá Iþróttafélagi kvenna vilj-
um bjóða stelpur á öllum aldri
velkomnar í músikleikfimi okkar í
Austurbæjarskólanum. Kennsla
er hafin og fer fram mánudaga
og fimmtudaga kl. 18-19.
Nánariupplýsingarísímum 79243 og 666736.
ÚTIVIS TARFÖT
fyrir góngur oggolf
TESS
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
v NEl
Opið virka daga 9-18,
laugardag 10-14.
Listræ n
hönnun!
Dönsku ELFA háfarnir eru glæsilegir,
stílhreinir og sönn eldhúsprýði.
Við bjóðum nú nýjar gerðir af þessum
vinsælu háfum í 16 mismunandi litum, stáli eða kopar.
MSMS Einar
MmM Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 S* 622901 og 622900
..i ■
1 Vinnuvernd
; íverki
I
...ÞIN VEGNA!
Með stáltá
og stálþynnu í sóla
Skeifan 3h - Sími 81 26 70 - FAX 68 04 70
Fyrirbærið ÍSK
Björn Ingólfsson skólastjóri á Grenivík kemur viða við í hálfsmánað-
arlegum pistlum sínum í svæðisútvarpi Norðurlands. Nýlega ræddi
hann um „fyrirbærið ÍSK“ og notkun Morgunblaðsins á þeirri
skammstöfun. Hér á eftir verða birtir kaflar úr því spjalli.
Yfírleitt vel
skrifað blað
Björn Ingólfsson sagði
m.a. í þætti sínum:
„Mogginn er að minu
áliti hið besta blað og
hefur batnað með árun-
um frekar en hitt. Sú var
tíð fyrir margt löngu að
ég hætti að kaupa hann
vegna þess hversu pólit-
íkin i honum var einlit
og leiðinleg. Núna er orð-
ið allt annað uppiit á
honum. Hann er farinn
að birta alls konar skoð-
anir og heldur ekki leng-
ur neinum sérstökum
hlífiskildi yfir sínum
mönnum. Sumar teikni-
myndirnar sem hann
birtir af formanni Sjálf-
stæðisflokksins eru jafn-
vel svo svæsnar að mér
næstum því blöskrar.
Verð ég þó að viður-
kenna að ég er ekki í
hópi æstustu aðdáenda
Davíðs Oddssonar.
Þegar ég fæ Moggann
þá les ég liann vitaskuld
ekki orði til orðs. Oftast
fer ég yfir það á hunda-
vaði sem fyrirsagnirnar
segja mér að geti verið
áhugavert og læt þar við
sitja. En ég þykist samt
hafa séð nóg af honum
til að geta fullyrt að hann
sé yfirleitt vel skrifað
blað og miðað við allt það
lesmál sem hann flytur
er sjalfgæft að finna þar
algjört klúður.“
Skammstöf-
unin ÍSK
fer í geðið á
mönnum
„En þó að mér finnist
a.m.k. sjálfum að ég sé
alveg einstakur geðprýð-
ismaður, þá verð ég þó
að játa að eitt orð sem
ég rek stundum augun í
á síðum Mogga fer alveg
ferlega í geðið á mér.
Þetta er orðið, eða öllu
heldur skammstöfunin,
ÍSK.
Eg man að ég tók fyrst
eftir þessu þegar blaðið
sagði frá skartgripa-
þjófnaði frönsku leikkon-
unnar Beatrice Dalle í
fyrra. Þar sagði að
maddama Dalle væri svo
sjúklega sólgin í skart-
gripi að hún hefði í búð
einni stungið inn á sig
tveimur armböndum,
fjórum hálsfestum, fimm
pörum af eymalokkum
og tveimur hringjum.
Þetta sagði Mogginn að
hefði verið að verðmæti
um 260 þús. ÍSK. Og
sektin sem hún fékk
hefði verið jafnvirði 210
þúsunda ÍSK.
Þegar ég las þetta var
ég búinn að klóra mér
lengi á tilvonandi skalla
áður en ég áttaði mig á
þvi hvur þremillinn þetta
ISK var. Fyrst hélt ég
að þarna væri átt við
þennan nýja Evrópu-
gjaldmiðil. En svo rifjað-
ist það upp fyrir mér að
hann héti EKÚ. Það nafn
er fundið upp af fjár-
málaspekúlöntum Evr-
ópubandalagsins með
hjálp bamasálfræðinga.
Snjallt bragð til að auka
hagvöxt í rikjum EB.
Með því að nota þetta
nafn geta böm um alla
Evrópu lært að biðja um
peninga jafnvel áður en
þau geta sagt eða skilið
nokkura skapaðan hlut.
E-gú, e-gfú, heyrist í
hverri bamsvöggu um
gjörvallt Evrópubanda-
lagsríkið og hrifnir afar
og ömmur, frændur og
frænkur segja: „Sko þá
stuttu, sjáiði bara gutt-
ann, þau vita sko hvað
þau vilja“. Og peningun-
um rignir yfir koma-
bömin, sparibaukamir
fyllast og ekúin sem vom
tekin út hjá öfum og
frænkum í gær verða
komin á nýja reikninga
hjá tveggja mánaða
bömum á morgun. Hag-
vöxturinn rýkur upp sem
aldrei fyrr.“
Alþjóðleg
skammstöfun
„En þetta var nú út-
úrdúr. Eg var að tala um
fyrirbærið ÍSK í Moggan-
um. Með þvi að fletta upp
í orðabók hef ég komist
að því að þetta sé alþjóð-
leg skammstöfun fyrir
íslenskan gjaldmiðil. Að
vísu stafað með I en ekki
í eins og Mogginn hefur
það.
Nú er mér það hulin
ráðgáta hvað er að gera
með þessa skammstöfun
í íslensku blaði fyrir ís-
lenska lesendur sem allir
við hvað kr. þýðir. Mér
finnst þetta jaðra við
móðgun við krónuna
okkar. Hún er víst ekki
of hátt skrifuð blessuð
þótt við förum ekki að
uppnefna hana líka...
... En til hvers að vera
að nota vitlausa skamm-
stöfun? Er það kannski
til þess að við fávísir les-
endur mglum þessu ekki
saman við danskar eða
norskar krónur? Er ein-
hver hætta á því?
Um daginn gat ég
samt bæði bölvað og
hlegið yfir þessu. Það var
þegar blaðamaðurinn
mglaðist í vitleysunni og
notaði óvart kr. þegar
hann ætlaði að nóta ÍSK.
Þetta var í smáfrétt um
enska knattspymufélag-
ið Marlow. Þar sagði:
FéUifrið fékk um 6
millj. ISK fyrir leikinn
gegn Spurs, sem tryggir
reksturinn næstu tvö ár-
in, en hver leikmnður er
með 5.000 kr. í vikulaun.
Þetta fannst mér næst-
um þvi eins skemmtilegt
eins og ég hefði heyrt
Jón Baldvin ruglast í
vestfirskunni og segjast
hafa séð svangan [trúleg
borið fram svángan í
flutningi] mann frammi
á gangi [gángi] að stanga
[stángaj úr tönnunum á
sér.“
ÍSK er alþjóðleg
skammstöfun, sem bank-
ar nota, og trúlega frá
þeim komin í ritmál. En
taka má undir með pistla-
höfundi, að eldri skamm-
stöfun krónunnar kr. er
„alveg nógu góð skamm-
stöfun" og má gjarnan
halda velli í rit- og prent-
máli.
Stórsýning
Geirmundar
Valtýssonar
■
Vegna fjölda áskorana:
LAUGARDAGINN 30. JANÚAR
Þríréttuð mátíð á aðeins kr. 2.900,-
þú sparar kr. 2.000,-
Missið ekki af einni bestu
sýningu sem hér hefur verið.
Matseðill:
Ejratineruð frönsk laufcsúpa
Lambapipuntcik m/rósapiparsósu
Jarðaberjarjómarönd
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
leikur fyrir dansi
Kynnir:
Hinn
eldhressi
Hemmi
Gunn.
Rúnar Júlíusson,
Shady Owens
og Cuba Libra
leika fyrir dansi. í
Ásbyrgi
Verð á dansleik
kr. 1.000,-
Geirmundur
Berglind Björk
Guðrún Gunnarsdóttir|
Ari jónsson Maggi
Kjartans
VCifsdansinn — f rt í sandinn
t/átum sönginn hljóma
. luer ég léttur ■ /ílddu við
rCg hef bara áhuga á þér
. /ffa timans hjól
■ Tjóðhátíð í Eyjum . //,eð þér
Þríréttaöur kvöldverður kr. 3.900,-
Verð á dansleik kr. 1.000,-
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
leikur fyrir dansi
HómfeLMD
SÍMI 687111
Miðasala og borðapantanir daglega milli kl. I4-I8 á Hótel íslandi.
KRIST0FFERS0N
19.0G 20. FEBRÚAR
Þessi heimsfrægi söngvari og
leikari heldurtvenna tónleika
á Hótel islandi.
Nú mæta allir aðdáendur Kris
Kristofferson á tónleika sem lengi
verða í minnum hafðar.
Allir kannast við lögin:
Help me make it
Me arjd Bobby McGee
For the Good Times
Why Me
Loving Her Was Easier
Verð aðgöngumiða
Þríréttaður kvöldverður kr. 5.300,
Án matar kr. 2.500.