Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993
13
Aðrar brottfarir:
18.febrúar, fá sæti laus
l.aprfl, páskaferð
NORDJOBB 1993 hefur tekið tíl
starfa og er þetta áttunda starfsár
verkefnisins. Umsóknartími fyrir
Nordjobb er frá 15. janúar til 15.
mars og ber að skila umsóknum
til Norræna félagsins.
Nordjobb er miðlun sumaratvinnu
milli Norðurlanda fyrir fólk á aldrin-
um 18-26 ára og eru störfin, sem
boðið er upp á, í löndunum öllum svo
og á sjálfstjórnarsvæðum Norður-
landanna. Einnig sér Nordjobb um
að útvega húsnæði og bjóða upp á
tómstundastarf til að kynna land og
þjóð. Störfin sem bjóðast eru marg-
vísleg. Þau eru á sviði iðnaðar, þjón-
ustu, lanbúnaðar, verslunar o.fl. og
eru miðuð við faglært svo og ófag-
lært fólk. Launakjör miðast við
kjarasamninga í hveiju landi og eru
skattar greiddir samkvæmt sérstök-
um samningum við skattayfirvöld.
Starfstíminn getur verið allt frá 4
vikum upp í 4 mánuði á tímabilinu
15. maí til 15. september.
Það eru norrænu félögin á Norður-
iöndum sem sjá um Nordjobb, hvert
í sínu landi, með styrk frá norrænu
ráðherranefndinni. Á Islandi sér
Norræna félagið um Nordjobb en í
því felst að félagið veitir allar upplýs-
ingar, tekur við umsóknum frá ís-
lenskum umsækjendum, kemur þeim
áleiðis og sér um atvinnumiðlun, út-
vegun húsnæðis og tómstundadag-
skrá fyrir norræn ungmenni sem
koma til íslands.
Reiknað er með að um 90 norræn
ungmenni komi til starfa hér á landi
á vegum Nordjobb 1993 og að álíka
flöldi íslenskra ungmenna fari til
starfa á hinum Norðurlöndunum á
vegum Nordjobb. Er það von Nor-
ræna félagsins að atvinnurekendur
taki vel í að ráða norræn ungmenni
til starfa í sumarvinnu.
Allar upplýsingar um Nordjobb
1993, þar á meðal umsóknareyðublöð
fást hjá: Norræna félaginu, Norræna
húsinu, 101 Reykjavík, Svæðisskrif-
stofu NF, Strandgötu 19b, 600 Akur-
eyri og Upplýsingaskrifstofu NF,
Stjórnsýsluhúsinu, 400 Ísafirði.
(Fréttatilkynning)
Heimsferðir bjóða nú glæsilega ferð fyrir eldri borgara til Kanarí þann 11.
mars með þjónustu hjúkrunarfræðinga og frábærra fararstjóra.
Guðný Guðmundsdóttir, Jakobína Davíðsdóttir, Bergþóra Tómasdóttir.
Verð kr. 49.900,- Verð kr. 59.900,
Verð m.v. 4 í smáhýsi, Koala Garden. Verð m.v. 2 í smáhýsi, Koala Garden
Athugið: Nú þegar eru 47 bókaðir í eldri borgaraferðina.
Aðeins 30 sæti laus.
Brasilía
Brottför 18. febrúar
3 vikur - 8 sæti laus
Rio de Janeiro — Salvador de Bahia
Verb kr.
98.700
í
air europa
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600
TURAUIA
Morgunblaðið/Kristinn
Þorri blótaður
Rúnar Guðmundsson matreiðslumeistari á Naustinu með sýnishom af
þorramatnum.
Þorrinn í Naustinu
ÞORRINN er genginn í garð með
tilheyrandi þorraveislum þar
sem rammíslensk fæða frá fornu
fari er á boðstólum. í Naustinu
hafa þorraveisiur verið haldnar
í nærfellt 40 ár eða allt frá því
séra Halldór Gröndal var þar
veitingamaður. í Naustinu verð-
ur að venju boðið upp á mikið
úrval þorrarétta.
Að sögn Hafsteins Egilssonar
veitingamanns er mikið um að gest-
ir panti sömu bása í veitingahúsinu
ár eftir ár til að njóta réttanna en
ijöldi í hópum sem þar koma saman
er allt frá fjórum upp í tuttugu.
Nordjobb
1993 tekur
tilstarfa
Meðal þess sem boðið er upp á
í Naustinu af súrmeti er bringukoll-
ur, sviðasulta, svínasulta, hrúts-
pungar, eistnavefjur, lundabaggar,
blóðmör, lifrarpylsa, selshreifar,
kúttmagar og ef til vill hvalur.
Meðal ferskmetis er liarðfiskur,
svínasulta, lifrarpylsa, sviðasulta,
hákarl, blóðmör, hangikjöt, sviða-
hausar og níu síldarréttir. Þá er
borin fram heit baunasúpa, heitt
hangikjöt og saltkjöt.
DIOR VORLITIRNIR ’93 KOMNIR
Glæsileg eldri borgaraferð
tíl Kanarí 11. mars
með Heimsferðum