Morgunblaðið - 26.01.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTl/ATVINNIILÍF ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1993
29
Fræðsluhorn
Aðstoð við mat nýrra
hugmynda
eftir Björgvin
Njál Ingólfsson
Á Iðntæknistofnun íslands hefur
um árabil farið fram þjónusturáð-
gjöf við hugvitsmenn. Tilangur ráð-
gjafarinnar er að veita frumkvöðlum
mat á raunhæfi hugmynda með til-
liti til tæknilegrar útfærslu og mark-
aðsmöguleika hennar. Jafnframt er
leitast við að leiðbeina við flármögn-
un arðvænlegra hugmynda. Sérstök
áhersla er lögð á að ekki sé farið út
í kostnaðarsamar aðgerðir varðandi
framkvæmd hugmyndanna án þess
að fram hafí farið nákvæm athugun
á nýnæmi hugmyndanna og mögu-
leikum þeirra á markaðnum.
Á Iðntæknistofnun er starfandi
matshópur sem framkvæmir frum-
mat á hugmyndum. í hópnum sitja
margir af hæfustu sérfræðingum
stofnunarinnar sem allir hafa undir-
ritað sérstaka trúnaðaryfirlýsingu
(leyndarsamning) og gangast þann-
ig undir þagnarskyldu og heita full-
um trúnaði varðandi þær hugmynd-
ir sem lagðar eru fyrir þá. Sé það
mat hópsins að ekki sé fyrir sú sér-
þekking innan hópsins sem talin er
nauðsynleg til þess að hugmyndin
verði metin sem allra best er um-
sjónarmanni hópsins falið að leita
sérfræðiaðstoðar annars staðar. í
þeim tilvikum sem slíkt er gert er
viðkomandi aðili látinn undirrita
samskonar trúnaðaryfírlýsingu og
meðlimir matshópsins hafa gert.
Með þessu móti er reynt að tryggja
eins vel og hægt er rétt þess aðila
sem hugmyndina á.
Matshópurinn heldur reglulega
matsfundi þar sem teknar eru til
umQöllunar þær hugmyndir sem
borist hafa og uppfylla þau skilyrði
sem sett eru fyrir meðhöndluninni.
Formleg niðurstaða hópsins er
kynnt frumkvöðlinum skriflega inn-
an 10 daga frá fundi matshópsins.
Til þess að matshópurinn geti
metið á raunhæfan hátt þær hug-
myndir sem berast, er farið fram á
að hugvitsmaður afhendi skriflega
lýsingu á hugmyndinni sem inni-
heldur eftirfarandi upplýsingar;
1. Hver er tilgangurinn með hinni
nýju hugmynd/uppfinningu?
2. Hvert er álitið nýnæmi hug-
myndarinnar/uppfínningarinnar og
hver eru tengsl hennar við svipaða
eða skylda tækni.
3. Hvemig á hugmyndin/uppfinn-
ingin að vinna, hvaða tæknileg at-
riði eru nýjungar og hvaða byggjast
á þekktri tækni?
4. Hver er ávinningur þessarar nýju
hugmyndar/uppfinningar?
5. Skilað sé, ef mögulegt, teikningu
eða uppkasti sem sýnir og útskýrir
í meginatriðum hugmyndina/upp-
finninguna og útfærslu hennar.
Ennfremur ef mögulegt er frumgerð
eða einfaldað líkan til frekari skýr-
ingar.
6. Hvert er fyrirhugað söluverð og
hver er markaðurinn?
Þjónusta Iðntæknistofnunar ís-
lands við hugvitsmennina er ekki
bundin við eitt ákveðið afmarkað
starfsvið eða fyrirfram ákveðnar
tegundir hugmynda. Allir sem búa
yfir vænlegum hugmyndum geta
leitað til stofnunarinnar og óskað
eftir því að fá mat á hugmynd sína
gegn vægu gjaldi. Jafnframt hvetur
stofnunin einstaklinga sem vilja
framselja hugmyndir sínar til ann-
arra að láta þá undirrita trúnaðar-
yfirslýsingu til þess að tryggja rétt
sinn til hugmyndarinnar/uppfinn-
ingarinnar.
Það sem af er árinu hafa um
tuttugu einstaklingar komið með
hugmyndir til Iðntæknistofnunar til
þess að fá þær metnar. Ennfremur
hafa Qölmargir kynnt sér þjón-
ustuna með það fyrir augum að
nýta sér hana í framtíðnni. Tvær
af þeim hugmyndum sem hafa verið
metnar á þessu ári eru nú þegar á
markaði hérlendis og nú þegar er
farið að huga að útflutningi á ann-
arri þeirra. Þetta er mun meiri
árangur en gert er ráð fyrir t.d. í
nágrannalöndum okkar þar sem
árangur er talinn mjög góður ef ein
af hveijum eitthundrað nýjum hug-
myndum ná alla leið og enda sem
markaðshæfar afurðir.
Allir sem telja sig búa yfir góðum
hugmyndum og vilja koma þeim á
framfæri er bent á upplýsingabækl-
inginn „Þjónusta við hugvitsmenn"
sem hægt er að fá sendan endur-
gjaldslaust með því að snúa sér til
Iðntæknistofnunar íslands.
Höfundur er verkefnisstjóri á
framleiðsludeild Iðntæknistofn-
unar íslands.
Ferðamál
Átöká
<é
breskum
ferða-
markaði
Airtours, þriðja stærsta ferða-
skrifstofan í Bretlandi, bauð ný-
lega 221 miUjón steriingspunda í
511 hlutabréf ferðaskrifstofunnar
Owners Abroad en hún sú næst-
stærsta á breska markaðnum.
Með tilboðinu er Airtours að
reyna að skáka Thompson, sem
nú hefur forystuna í slagnum um
ferðalangana.
Owners Abroad hafa raunar hafn-
að kauptilboði Airtours, til bráða-
birgða að minnsta kosti, en verði
því tekið munu Airtours og Thomp-
son hafa um 60% markaðarins í sin-
um höndum. Er þá aðallega átt við
sumarieyfisferðimar. Telja sumir,
að svo sterk staða tveggja fyrir-
tækja varði við lög um einokun og
hringamyndun.
Afstaðan til kauptilboðs Airtours
mun ráðast nokkuð af því hvort hlut-
hafar í Owners Abroad samþykkja
áðurframkomna tillögu um tengsl
við Thomas Cook, ferðaskrifstofu-
og bankaþjónustukeðju, sem þýski
bankinn Westdeutsche Landesbank
á að mestu.
Á aðeins fimm árum hefur David
Crossland, stofnandi og stjómarfor-
maður Airtours, tífaldað markaðs-
hlutdeild fyrirtækisins og verði af
kaupunum á Owners Abroad mun
hún fara í 26%. Thompson hefur nú
33%.
Fyrirtæki
Frost hannar og smíðar kælikerfí
FROST hf. er alhliða þjónustu- og verktakafyrirtæki sem sérhæft er
í hönnun, smiði og viðhaldi hvers konar kæli- og frystikerfa til sjós
og lands. Frost hf. hefur undanfarin ár verið í samstarfi við sænska
fyrirtækið Stal sem m.a. er leiðandi framleiðandi á frystikerfum,
s.s. til frystiskipa og frystihúsa. Nú er í gangi verkefni á milli Stal
og Frosts hf. um hönnun og smíði kælikerfa sem á að kæla fisk
meðan hann bíður vinnslu um borð í frystitogurum.
Frost hf. var stofnað árið 1946
af Sveini Jónssjmi sem rak það sem
einkafyrirtæki til ársins 1982 er það
var gert að hlutafélagi. Um síðustu
áramót varð nafnbreyting á fyrir-
tækinu. Það hét áður SJ-Frost hf.,
en heitir nú Kælismiðjan Frost hf.
Ifyrir þremur árum hóf Frost
samningsbundna þjónustu kæli- og
frystikerfa sem felur í sér fast eftir-
lit kerfa árið um kring. Að sögn
Guðlaugs Pálssonar, framkvæmda-
sljóra Frosts, sýnir reynslan að
rekstrarkostnaður kerfanna hefur
minnkað verulega um leið og
rekstraröryggi hefur stóraukisL
Verkefnastaða Frosts á nýbyrj-
uðu ári er verri en mörg undanfar-
in ár að sögn Guðlaugs. Þá var
velta síðasta árs nokkru minni en
árið þar á undan. „Með endurskipu-
lagningu undanfarin misseri, sem
og með betri samböndum við er-
lenda framleiðendur kerfishluta,
teljum við stöðu fyrirtækisins þó
sterka á markaðnum," sagði Guð-
laugur.
Ætlar þú að missa af lestinni?
Um leið og við þökkum góðar viðtökur og þátttöku í bókinni
ATLANTIC DESTINYICELAND bendum við á, að enn er hœgt
að vera með í þessu einstœða þjóðarátaki til íslandskynningar.
Þeir aðilar, sem óska eftir þátttöku, eru vinsamlegast beðnir um
að hafa samband við skrifstofu okkar sem fyrst.
Bókinni ATLANTIC DESTINYICELAND verður dreift i 15.000
eintökum umallan heim. Um er að rœða yfir 300 blaðsiðna lit-
prentaða íslandskynningarbók með nœr þúsund myndum.
Fullyrða má, að ekki hefur áður boðist jafn glœsileg bók til kynn-
ingar á starfsemi fyrirtœkja, landi, menningu og þjóð.
Bókin verður prentuð hjá prentsmiðjunni Odda hf.
ísland og umheimurinn hf.,
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 6. hœð.
Simi (91) 684288. Fax (91) 684286.
Morgunverðarfundur
ffimmftudaginn 27. janúar 1993
Id. 08.00 - 09.30, i Súlnasal Hútels Sögu
ATVINNULIFIÐ
UPP UR FESTUNNI
Er það viðunandi að ekki fari að rofa tíl á ný í
íslensku atvinnu- og efnahagslífi fyrr en eftír
2-3 ér? Hvar eru tækifærin, tíl hvers er öll
þekkingin, erum við á villigötum eða nennum
við ekki lengur að bjarga okkur?
7/7 þess að fjalla um þessi brennandi mál mæta þeir
Þórður Fríðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstoínunar,
Grímur Valdimarsson framkvæmdastjóri
Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins,
Helgi Magnússon framkvæmdastjóri Hörpu h.f.
og Ásmundur Stefánsson hagfræðingur.
Eftir stuttan inngang hvers og eins ræða þeir málin
sín á milli og við fundarmenn undir stjóm
Vilhjálms Egilssonar framkvæmdastjóra VI.
Fundurínn er opinn en tilkynna verður fyrírfram um
þátttöku ísíma W, 676666 (kl. 08 -16)
Þátttökugjald með morgunverði afhlaðborði kr. 1.000.
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS