Morgunblaðið - 28.01.1993, Page 1

Morgunblaðið - 28.01.1993, Page 1
72 SIÐUR B/C 22. tbl. 81. árg. FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Frönsk flugsveit reiðubúin að veija gæsluliða SÞ í Bosníu og Króatíu Boði NATO um að fram- fylgja flugbanni tekið Genf, Zagreb, Washington. Reuter. BOUTROS Boutros-Ghali framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna (SÞ) samþykkti í gær tilboð Atlantshafs- bandalagsins (NATO) um að framfylgja flugbanni yfir Bosníu en talið er að ekki verði gengið til verks meðan milligöngumenn SÞ og Evr- ópubandalagsins (EB) freista þess á friðarráðstefnu, sem nú stendur yfir í Genf, að fá stríðsaðila í Bosníu til að fall- ast á pólitíska lausn deilu- mála þar. Frakkar settu í gær átta sprengjuþotur og fjórar orrustu- flugvélar í viðbragðsstöðu í herstöð á Korsíku vegna ástandsins í lýð- veldum Júgóslavíu fyrrverandi. Eiga þær að vera til taks til að vetja gæslusveitir SÞ í Bosníu og Króatíu ef þörf krefur. Sömuleiðis stefndu bresk og Stund milli stríða SERBNESKIR hermenn hvílast í skjóli fallbyssu 40 kílómetra vestur atf Knin, höfuðstað Krajina, þegar hlé var gert á bardögum í gær. frönsk flugmóðurskip inn á Adría- haf í gær til þess að vera til reiðu ef' ákvörðun verður tekin um að flytja gæsluliða SÞ frá Bosníu og Króatiu. Til stórbardaga kom milli Bosníukróata og múslima á a.m.k. fimm stöðum í Bosníu í gær en síð- degis samdist um vopnahlé þeirra í millum. Hins vegar héldu harðir bardagar Serba og Króata áfram í Krajina í Króatíu. Reyndu Króatar að sækja fram í norðurhluta Krajina í gær og héldu uppi harðri skothríð á bæinn Benkovac. Þar tóku sveitir Serba 21 friðargæsluliða SÞ hönd- um á sunnudag. Hefur þeim verið haldið í gíslingu á hóteli í bænum. Talið er að vænta sé stefnubreyt- inga af hálfu Bandaríkjastjórnar í garð lýðvelda Júgóslavíu fyrrver- andi. Warren Christopher utanríkis- ráðherra hefur m.a. falið embættis- mönnum að semja áætlanir um sprengjuárásir á flugvelli á yfir- ráðasvæðum Serba í Bosníu. Ekkju Hoxha refsað Tirana. Reuter. NEXHMIJE Hoxha, ekkja Envers Hoxha fyrrverandi kommúnistaleiðtoga og ein- ræðisherra í Albaníu, var í gær dæmd í 9 ára fangelsi fyrir spillingu. Ekkja Hoxha er 71 árs göm- ul og var fundin sek um að hafa misnotað almannafé í eigin þágu. Kom í ljós að hún hafði m.a. notað 750.000 leka, jafn- virði 4,5 milljóna króna, til utan- ferða og kaupa á vestrænum lúxusvörum á sama tíma og þjóðin bjó við sult og seyru. Nexhmije Hóxha var íklædd fallegri svartri dragt er dómur- inn var birtur og lét hún sér hvergi bregða þegar skýrt var frá hver refsing hennar yrði. Hafði saksóknari krafist 14 ára fangelsis. Asamt henni var dæmdur Kino Buxheli, fyrrum bryti miðstjórnar albanska kommúnistaflokksins, og hlaut hann fjögurra ára fangelsi fyrir spillingu. Vangaveltur um samruna SAS og annarra félaga Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. NORRÆNA flugfélagið SAS stendur mjög höllum fæti og því gengur það nú fjöllum hærra að það sameinist hugsanlegan öðrum flugfélögum. Danskir starfsmenn bera kvíðboga fyrir því þar sem það þýddi endalok SAS sem sjálfstæðs flugfé- lags. Jafnframt myndi Kastrup-flugvöllur missa mikilvægi sitt og um leið missti fjöldi manns atvinnuna. Sem stendur er rætt um sam- runa SAS við hollenska flugfélagið KLM, svissneska flugfélagið Má fækka fötum við gluggann Stokkhólmi. Reuter. DÓMSTÓLL í borginni Varberg í suðvesturhluta Svíþjóðar hafnaði gær kröfu ákæruvaldsins um að karlmaður, sem hefur þann sið að afklæðast fyrir framan herbergis- gluggann heima hjá sér þegar hann gengur til náða, skyldi dæmdur til refsingar fyrir ósiðsamlegt athæfi. Krafan var byggð á kvörtunum þriggja kvenna sem eiga heima í næstu húsum við stefnda. Dómarinn sagði að athæfi mannsins væri ekki nógu ögrandi til þess að réttlæta refsingu. Swissair og austurríska flugfélagið Austrian Airlines. Miðstöð nýja félagsins yrði væntanlega í Amst- erdam. Danskir starfsmenn SAS kvíða samruna af þessu tagi og benda á að auk starfsmanna félagsins í Danmörku myndu um átta þúsund manns sem vinna á Kastrup líklega missa vinnuna. Forráðamenn SAS neituðu í gær að ræða hveijar fyrirætlanir þeirra varðandi framtíð félagsins væru. Forráðamenn KLM sögðu hins vegar í yfirlýsingu sem Reuters- fréttastofan skýrði frá, að óform- legar viðræður um náið samstarf félaganna fjögurra hefðu átt sér stað að undanförnu en frekari upp- lýsingar um eðli samstarfsins yrðu ekki veittar meðan samningar stæðu yfir. Fyrir tæpu ári fóru viðræður um sameiningu KLM og breska félags- ins British Airways í eitt risastórt flugfélag út um þúfur vegna ágreinings um hvert verðmæti hvors félags um sig væri. Reuter Bandarísk- ur Yokozuna TUTTUGU og þriggja ára gam- all Bandaríkjamaður, Chad Row- an, var í gær sæmdur titlinum „Yokozuna“ og er þar með orðinn heimsmeistari súmó-glímu- manna. Rowan, sem er kallaður Akebono í Japan, er fyrsti útlend- ingurinn sem hlotnast þessi heið- ur. Var til skamms tíma talið útilokað í Japan að útlendingur gæti orðið Yokozuna. Rowan var þekktur körfuboltaleikmaður áður en hann sneri sér að súmó- glímu. Hann er rúmir 2 metrar á hæð og vegur 212 kíló. Á myndinni má sjá þegar belti Yokozuna er spennt á Akebono við athöfn í Tókýó í gær. Rússar skýra frá kjarnorkuslysum í Uralfjöllum Hálf milljón manna varð fyrir heilsutjóni Moskvu. Reuter. TÆPLEGA hálf milljón manna hefur beðið tjón á heilsu sinni af völdum geislunar frá risastóru plútóníumveri í suðurhluta Úralfjalla, að því er rússneskur embættismaður, Vasílíj Voznj- ak, skýrði frá í gær. Er þetta í fyrsta sinn sem viðurkennt er af opinberri hálfu að slys hafi átt sér stað í verinu. Majak-kjarnorkuverið hefur verið starfrækt skammt frá Tsjeljabínsk í suðurhluta Úralfjalla frá 1948. Yfír starfsemi þess hefur hvílt meiri leynd en flestum öðrum verksmiðjum af þessu tagi í fyrrverandi sovétlýðveld- um en þar hefur verið framleitt plútóníum í kjarnorkusprengjur. Að sögn Voznjaks hefur tvisvar orðið stórslys þar. Hið fyrra árið 1957 er sprenging varð í vatni sem úrgangur var losaður út í. Hið seinna 1967 er fárviðri feykti geislavirku ryki úr þró verksmiðjunnar þar sem geislavirkur úrgangur var geymdur. Fyrstu sjö árin var úrgangi verk- smiðjunnar veitt í nærliggjandi á og hefur það valdið rúmlega 450.000 manns heilsutjóni í áranna rás, að sögn Voznjaks. Að hans sögn hefur mengun frá verinu valdið gífurlegu umhverfistjóni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.