Morgunblaðið - 28.01.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993
Hefur keypt málmtætarann við Stálverksmiðjuna
Stefnt á að vinnsla brota-
jámsins hefjist 15. febráar
HARALDUR Þór Ólason, eigandi Furu hf., tekur að öllum
líkindum við brotajárnshaug og málmtætara stálverksmiðj-
unnar í Hafnarfirði 1. febrúar og ætlar hann þá að hefja
vinnslu brotajárnsins 15. febrúar, til útflutnings fyrst í
stað. Hefur Haraldur þegar gengið frá samningum um
útflutning til Hollands, Englands og Ítalíu. Fyrst í stað
munu tíu manns fá störf við brotajárnsvinnsluna.
80-90 millj. fjárfesting
Haraldur hefur gengið frá kaup-
samningi við Búnaðarbankann og
Iðnþróunarsjóð vegna brotajáms-
ins sem safnast hefur við verk-
smiðjuna og hann hefur einnig
keypt málmtætara verksmiðjunnar
af sænsku kaupleigufyrirtæki. Þá
hefur hann lokið samningum við
Sorpu um afhendingu alls brota-
jáms sem fellur til hjá sveitarfélög-
unum og við Landsvirkjun um raf-
orkuafhendingu.
Sagðist Haraldur hafa lagt milli
80 og 90 milljónir króna í þessa
ijárfestingu og hún eigi að geta
borið sig hvort sem af gangsetn-
ingu verksmiðjunnar sjálfrar verð-
ur eða ekki.
„Það á eftir að yfirfara rekstur-
inn og leggja samningana saman.
Við fömm strax í að yfirfara tætar-
ann og að laga til á verksmiðjulóð-
inni. Ef vel gengur munum við
setja allt í gang 15. febrúar og
byija að tæta,“ segir Haraldur.
Hann sagði að brotajámið yrði
tætt niður til stálbræðslu og flutt
úr landi nema ákvörðun verði tek-
in um að hefja stálbræðslu í verk-
smiðjunni. Þá yrði jámið unnið og
því safnað á íager en alls tekur
fjóra til fimm mánuði að gangsetja
verksmiðjuna.
Alls hafa safnast tæplega 30
þúsund tonn af brotajámi á verk-
smiðjulóð stálverksmiðjunnar og
sagði Haraldur mögulegt að vinna
það allt á átta mánuðum. „Þetta
er búin að vera þung og mikil
töm,“ sagði Haraldur en hann
stendur að þessum rekstri ásamt
syni sínum.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00
f Heimikl: Veóurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kf. 16.15 í gœr)
VEÐURHORFUR I DAG, 28. JANUAR
YFIRLIT: Austur af landinu er minnkandi hæðarhryggur sem þokast
austur, en allvíðáttumikil 975 mb heldur vaxandi lægð SV veröur yfir
Grænlandshafi þokast NA.
SPÁ: Suð- og suðvestlæg átt á landinu. Rigning eða slydda austantil í
fyrstu en léttir svo til. Um vestanvert landið verða dálítil él. Hlýnandi
verður í bili en kólnar aftur á morgun, fyrst vestantil.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðvestanátt, sumstaðar strekkingur. Slyddu-
él sunnan- og vestanlands en þgrrt norðaustantil. Hiti 0-6 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Nokkuð hvöss suðaustanátt. Slydda eða rign-
ing sunnanlands og vestan, en skýjað og úrkomulítið norðaustantil. Áfram
verður fremur hlýtt.
HORFUR Á SUNNUDAG: Hvöss suðvestanátt. Él sunnan- og vestan-
lands en skýjað með köflum norðaustantil. Frost 1-5 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsfmi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
-D
Heiðskírt Léttskýjað
f f f * f * * * *
^ / * f * *
f f f f * f * * *
Rigning Slydda Snjókoma
jfc a
Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V V
Skúrir Slydduél
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaörirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
Súld
V
Þoka
!tig..
FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Greiðfært er í nágrenní Reykjavíkur og um Suöurnes nema ófært er um
Mosfellsheiði og Krísuvíkurveg. Vel fært er austur um Suðurland og um
Austfirði. Ágæt færð er um allt Vesturland til Reykhóla, en Brattabrekka
er ófær. Frá Patreksfirði er fært til Brjánslækjar og Bíldudals. Góð færð
er frá Reykjavík til Hólmavíkur og (safjarðar og þaðan til Þingeyrar. Einn-
ig um allt Norðurland og með ströndinni til Vopnafjarðar. Spáð er hlýn-
andi veðri og má því búast við hálku vfða á landinu.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐURVÍÐA UMHEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri +11 skýjað
Reykjevlk 0 alskýjað
Björgvin +2 léttskýjað
Helsinki +10 léttskýjað
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Narssarssuaq +2 snjókoma
Nuuk +11 snjókoma
Ósló +5 skýjað
Stokkhólmur -r5 léttskýjað
Þórshöfn 0 alskýjað
Algarve 16 helðskírt
Amsterdam 6 skýjað
Barcelona 11 iéttakýjað
Berlfn 0 léttskýjað
Chicago +3 hálfskýjað
Feneyjar S þokumóða
Frankfurt 4 haglél
Glasgow 2 rigning og súld
Hamborg 2 skýjað
London 7 SÚId
Los Angeles 12 léttskýjað
Lúxemborg 4 skýjað
Madrtd 7 léttskýjað
Malaga 17 heiðskfrt
Mallorca 16 léttskýjað
Montreal +3 snjók.ásfð.klst.
New York 0 alskýjað
Orlando 6 rigning
París 10 rigning og súld
Madelra 16 skýjað
Róm 9 pokumóða
Vín 2 snjóél
Washíngton +3 léttskýjað
Winnipeg +19 alskýjað
Viðhorfskönnun Félags ví sindastofn-
unar Háskóians fyrir Morgunblaðið
Félagsvísindastofnun Háskóla íslands hefur gert könnun
fyrir Morgunblaðið, þar sem spurt er um viðhorf almenn-
ings til blaðsins. Könnunin náði til úrtaks 1.000 íslendinga
á aldrinum 16 til 75 ára um allt land. Meðal annars voru
settar fram nokkrar fullyrðingar í könnuninni og svarend-
ur beðnir um að svara því til hvort þeir væru þeim sam-
mála eða ósammála. Vegna mistaka í vinnslu blaðsins birt-
ist textinn hér að neðan ekki með réttum súluritum í blað-
inu á þriðjudag og er hann því endurbirtur með réttum
myndum.
Fullyrðing:
Morgunblaðið er blað með Ijótt útlit
Morgunblaðið er blað með ljótt útlit
26,2% sammála -
69,5% ósammála
„MORGUNBLAÐIÐ er blað með ljótt útlit,“ fullyrtu spyrlar Félags-
vísindastofnunar. Rúmur fjórðungur þeirra sem svöruðu, eða
26,2%, sögðust þessari fullyrðingu sammála en 69,5% sögðust henni
ósammála.
Þeir, sem sögðust mjög sam-
mála því að Morgunblaðið væri
ljótt, voru 7,3%, en frekar sam-
mála sögðust 18,9%. Þeir, sem
ekki gátu gert upp hug sinn, voru
4,2%. Hins vegar voru 44,5% frek-
ar ósammála fullyrðingunni og
25% mjög ósammála.
Fullyrðing:
Morgunblaðið er lesið ef maður vill fylgjast með
724 svöruðu 48,7%
Morgunblaðið er lesið
ef maður vill fylgjast með
85% sammála -
12,9% ósammála
ER SETT var fram sú fullyrðing í könnun Félagsvísindastofnunar
að Morgunblaðið væri lesið, ef menn vildu fylgjast með, sagðist yfir-
gnæfandi meirihluti henni frekar eða mjög sammála, eða 85% svar-
enda. Ósammála voru hins vegar alls 12,9%.
Þeir, sem sögðust frekar sam- sammála. Rúmlega 2% gátu ekki
mála því, að Morgunblaðið væri gert upp hug sinn, 9,7% voru frek-
lesið ef menn vildu fylgjast með, ar ósammála og 3,2% mjög ósam-
voru 48,7% og 36,3% sögðust mjög mála.
Ólafsvík
Fellir tófur úr sumarbústað
Ólafsvík.
LEIFUR Ágústsson refaskytta í
Mávahlíð hefur að undanförnu
skotið nokkrar tófur við æti. Það
er nú vart í frásögur færandi að
öðru leyti en því að „skothúsið"
er með ölluin þægindum, nefni-
lega hlýr og vellýstur sumarbú-
staður.
Nýlega kom Leifur æti fyrir í
skotfæri frá sumarbústaðnum, sem
er tiltölulega skammt frá þjóðvegin-
um. Brátt fóru tófur að ganga í
ætið. Fer Leifur nú á kvöldin í bú-
staðinn og lítur í bók milli þess sem
hann hugar að ferðum dýranna inn
í bjarmann frá útiljósinu. Helgi.