Morgunblaðið - 28.01.1993, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANUAR 1993
/;»1 *" ? í'.\Í;UiflU(i',i '<>KfA Jí-ry*-jj rýt'1 —
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Súlurnar
Núverandi staðsetning súlnanna við Sæbraut hefur valdið deilum allt
frá upphafi.
Súlumar verða flutt-
ar upp í Gerðuberg
BORGARRÁÐI hefur borist beiðni um að súlurnar, sem standa
við listaverkið Sólfar við Sæbraut, verði fluttar að menningarmið-
stöðinni Gerðubergi í Breiðholti. Fyrr í vetur var samþykkt að
breyta umhverfi listaverksins við Sæbraut.
í bréfi Elísabetar B. Þórisdóttur settar niður við lóðarmörk eða inn-
forstöðmanns menningarmiðstöðv- keyrslu Gerðubergs. Er það í sam-
arinnar, kemur fram að hugmynd- ræmi við tillögu að framtíðarútlit
ir séu uppi um að súlurnar verði aðkomunnar að Gerðubergi.
Samanburður gerður á útgjöldum til heilbrigðismála
Islendingar eru með
4. hæstu útgjöldin
ÍSLENDINGAR deila með Sviss fjórða sæti yfir hæstu út-
gjöld þjóða á Vesturlöndum til heilbrigðismála miðað við
hvern íbúa. Meðfylgjandi tafla var á mánudag birt í banda-
ríska dagblaðinu The Wall Street Journal. Morgunblaðið
hefur á grundvelli upplýsinga frá Þjóðhagsstofnun sett inn
í töfluna sambærilegar upplýsingar um heildarútgjöld ís-
lendinga til heilbrigðismála og birtist taflan hér með þeirri
breytingu. Einungis voru tiltækar upplýsingar um Island
á árinu 1990.
Einsog sést á töflunni veija
Bandaríkjamenn langmestu fé
allra þjóða til heilbrigðismála en
þrátt fyrir þau útgjöld njóta 35
milljónir Bandaríkjamanna engra
sjúkratrygginga af neinu tagi, að
því er fram kemur í Wall Street
Journal á mánudag.
Útgjöld hér svipuð og í Noregi
og Svíþjóð
Miðað við sölugengi bandaríkja-
dals, eins og það var í gær, jafn-
gilda útgjöld Bandaríkjamanna
161.914 krónum á hvem íbúa í
landinu á ári, en útgjöld íslendinga
sem deila með Sviss fjórða sæti
yfir hæstu útgjöld til heilbrigðis-
mála, samsvara 87.645 krónum.
Útgjöld íslendinga eru litlu lægri
en sambærileg útgjöld Svía og litlu
hærri en útgjöld Norðmanna en
hins vegar mun hærri en útgjöld
Dana á hvern íbúa. Útgjöld til
heilbrigðismála á hvem Dana sam-
svara 60.675 íslenskum krónum.
Geta misst laun vegna óveðurs
STARFSFÓLK á almennt ekki rétt á launagreiðslu þegar
vinna fellur niður vegna óveðurs eða annarra náttúruham-
fara. Geta vinnuveitendur því fellt starfsfólk af launaskrá
tímabundið vegna óviðráðanlegra ástæðna, s.s. óveðurs eða
tímabundins hættuástands, t.d. snjóflóðahættu, á grund-
velli laga um uppsagnarfrest. Þetta kemur fram í nýút-
komnu fréttablaði VSI, Af vettvangi.
I blaðinu er bent á að í tilfellum mennt rétt á atvinnuleysisbótum
sem þessum eigi starfsmenn al- á meðan þetta ástand varir en í
nokkrum kjarasamningum hafi
verið samið um breytingar á þess-
um reglum, þannig að til launa-
greiðslu geti komið þrátt fyrir
ófærð eða óveður. Þetta gildi t.d.
skv. samningum við Samband
byggingarmanna, Félag starfs-
fólks í húsgagnaiðnaði og kjara-
samningi um virkjunarfram-
kvæmdir á vegum Landsvirkjunar.
Útgjöld til heilbrigðismála á mann í dollumim
1970 1980 1985 1989 1990
Bandaríkin 346 1.063 1.711 2.345 2.566
Kanada 274 806 1.315 1.683 1.795
Svíþjóð 274 859 1.125 1.343 1.421
ÍSLAND 1.389
Sviss 247 734 1.102 1.347 1.389
Frakkland 192 656 991 1.276 1.379
Þýskaland 199 740 1.047 1.223 1.287
Noregur 153 624 899 1.219 1.281
Ástralía 204 595 952 1.123 1.151
Ítalía 147 541 761 1.050 1.113
Japan 126 515 785 1.030 1.113
Danmörk 209 571 770 922 963
Bretland 144 445 642 844 909
Spánn 82 322 437 848 730
Grikkland 62 196 292 382 406
H&mild: WALL STREET JOURNAL og ÞJÓÐHAGSSTOFNUN
Fyrir strikamerki af
GEVAUA
kaffipökkum
A
færðu Georg Jensen mæliskeið.
Ilir sem drekka Gevalia kaffi - hvort
sem það kemur úr rauðum, hvítum,
grænum, hörðum eða mjúkum pökkum -
geta nú eignast fallega mæliskeið frá Georg
Jensen sem er sérhönnuð fyrir Gevalia.
p
I -w aldurinn er að klippa út strikamerkin
af kaffipökkunum, safna þeim
saman og senda til okkar.
Strikamerki af mjúkum pakka gildir sem
ein eining, en strikamerki af hörðum
pakka gildir sem tvær.
Fyrir samtals tuttugu einingar sendum við
þér þessa glæsilegu mæliskeið f pósti.
Þú þarft aðeins að fylla út innsendingar-
seðilinn og senda okkur ásamt nógu
mörgum strikamerkjum til að ná samtals
tuttugu einingum.
Tilboð þetta stendur til 31. maí 1993.
Skrifaðu allar upplýsingar skýrt og
skilmerkilega á innsendingarseðilinn og
settu í frímerkt umslag með utanáskriftinni:
Gevalia mæliskeið
Pósthólf 260
202 Kópavogur
Ath. Reiknaðu með að fá skeiðina senda
u.þ.b. 2 vikum eftir að þú hefur póstlagt
strikamerkin til okkar.
5 70 1059
023938
STRIKAMERKI AF GEVALIA KAFFIPAKKA
Vinsamlega sendið mér Georg Jensen mæliskeið.
Hjálagt eru strikamerki sem samtals mynda tuttugu einingar:! laf
mjúkum pökkum (ein eining fyrir hvert þeirra) oal laf hörðum pökkum
rtvær einingar fyrir hvert).
□ Ég vil gjarnan fá greitt fyrir strikamerkin 100 kr. og sleppa því að fá
skeiðina.
Síðasti innsendingardagur er 31. maí 1993.
Nafn:_
Heimilisfang:.
Póstnúmer:_
Utanáskrift: Gevalia mæliskeið, Pósthólf 260, 202 Kópavogur.
1 Þú getur einnig sent okkur öll strikamekin - ef þau mynda samtals tuttugu einingar - og fengið andviröi þeirra f peningum, eða 100 kr. (Þannig er strikamerki af mjúkum pakka 5 kr. virði og strikamerki af hörðum pakka 10 kr. virði.)