Morgunblaðið - 28.01.1993, Side 10
10
íMORGUNBLAÐIÐ flMM-CUDAGUR -28. JANÚAR: 1993
Djassaðir
músíkdagar
DJASS fær nú í fyrsta sinn rými
á Myrkum músíkdögum, sem
haldnir voru fyrst fyrir þrettán
árum. Skoski tenórsaxófónleik-
arinn Tommy Smith leikur á tón-
leikum með Djasskvartett
Reykjavíkur annað kvöld og í
kvöld leikur hann einieik með
Sinfóníuhljómsveitinni í nýstár-
legri blöndu af klassík og djass.
Tónleikarnir eru liður í Myrkum
músíkdögum og Skottís.
Tommy Smith er kunnur tónlist-
armaður í heimalandi sínu og hefur
leikið með ýmsum þekktum djass-
leikurum, s.s. Gary Burton, Chick
Corea og Bobby Watson. Hann hef-
ur unnið til fjölda verðlauna fyrir
hljóðfæraleik sinn, þau fyrstu að-
eins 16 ára gamall á djasshátíðinni
í Edinborg.
Djasskvartett Reykjavíkur var
stofnaður af þeim Sigurði FLosa-
syni saxófónleikara og Tómasi R.
Einarssyni kontrabassaleikara.
Aðrir meðlimir kvartettsins eru
píanóleikarinn Eyþór Gunnarsson
og trommuleikarinn Einar Schev-
ing. Jasskvartett Reykjavíkur lék
ásamt Smith á íslenskri menningar-
hátíð í Skotlandi í júní síðast liðnum.
Sally Beamish samdi Sinfóníu fyrir opnunartónleika Myrkra músík-
daga.
Sinfóníuhljómsveitin á opnunartón-
leikum Myrkra músíkdaga í kvöld
Verk fráSkot-
landi og Islandi
MYRKIR músíkdagar hefjast í kvöld klukkan 20 með tónleikum Sinfó-
níuhljómsveitar íslands í Háskólabíói. Leikin verða verk eftir tónskáld
í Reykjavík og Glasgow, Gunther SchuIIer stjórnar hljómsveitinni og
einleikari verður saxófónleikarinn Tommy Smith. A tónleikunum verð-
ur frumflutt Sinfónía eftir Sally Beamish, fluttur verður saxófónkon-
sertinn An Rathad Úr, Nýja brautin, eftir William Sweeney og Af-
sprengi eftir Hauk Tómasson verður flutt í fyrsta sinn á íslandi.
Reykjavíkurborg pantaði Sinfón-
íu Sally Beamish sérstakiega til
flutnings á þessum tónleikum. Verk-
Tommy Smith.
ið byggir á fornri sekkjapípuhefð
Skota, „piproch“ eða „piobaireachd"
á gelísku, og er flokkur tilbrigða við
hægfara þema sem nefnt er „urlar“.
Tilbrigðin fylgja ákveðnu mynstri, í
upphafi einföld flétta við upphafiegt
stef en síðan eykst íburðurinn og
tónarnir verða hraðir og flúraðir.
Sally Beamish segir að henni þyki
verkið tákna fegurð Skotlands og
innblásturinn sem hún hefur fundið
þar.
Haukur Tómasson samdi Af-
sprengi fyrir hljómsveit í Kaliforníu
Ibúð við Hjarðarhaga
Til sölu einstaklega falleg 4ra-5 herb. 120 fm íbúð á
1. hæð í 3ja hæða sambýlishúsi. íbúðin skiptist í 3
svefnherb. (möguleiki á 4), saml. stofur, stórt eldhús,
þvottaherb., baðherb. og gestasnyrtingu. Suðursvalir.
Sérhiti. í kjallara er sérgeymsla, sameiginl. þvottahús
o.fl. Sameign nýtekin í gegn, utan sem innan. Bílskúr
fylgir. Eignin er veðbandalaus. Tilb. til afh. nú þegar.
Upplýsingar: Málflutningsskrifstofa, Guðmundur Pét-
ursson, Pétur Guðmundarson, Hákon Árnason, Jakob
R. Möller, Suðurlandsbraut 4a, sími 680900.
árið 1990. Hann líkir hreyfingu þess
við skriðjökul, teflir saman tveim
hljómagöngum af sama meiði sem
skapa hægfara spennu og óvæntar
breytingar. Verkið var frumflutt í
Kaupmannahöfn árið eftir af Sinfón-
íuhljómsveit danska ríkisútvarpsins
undir stjórn Leif Segerstam.
Nýja brautin eða An Rathad Úr
heitir saxófónkonsert sem William
Sweeney samdi fyrir Tommy Smith,
sem leikur einleik á tónleikunum í
kvöld. Sweeney reynir í verkinu að
blanda saman einkennum úr djassi
og sígildri tónlist á nýjan hátt. Þann-
ig hljómar stundum leikur hljóm-
sveitarinnar eins og spuni þótt hver
nóta sé skrifuð, en einleikarinn hefur
fijálsari hendur og spinnur í bland
við nótur tónskáldsins.
21150-21370
LÁRUS Þ. VALDIMARSS0N FRAMKVÆMDASTJÓRI
KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. lóggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Góðar eignir í Vesturborginni
5 herb. mjög góð íb. á 2. hæð v. Holtsgötu mikið endurbætt. Góð lán.
Skammt frá elliheimilinu Grund 3ja herb. endurn. íb. á 3. hæð. Ris-
herb. m. snyrtingu. Góð geymsla í kj. Laus strax.
3ja herb. góð ib. á 2. hæð í fjórbhúsi v. Hofsvallagötu. Ekki stór, vel
skipulögð. Nýtt parket, föndurherb. í kj. auk geymslu. Gott verð.
Endaíbúð við Stóragerði
4ra herb. tæpir 100 fm á 1. hæð í vesturenda. Ágæt sameign. 40 ára
húsnlán kr. 2,3 millj.
í Vogunum - hagkvæm skipti
Einbhús - steinhús ein hæð um 165 fm auk bílsk. 23,3 fm. 5 svefn-
herb., stórar stofur, sólverönd, glæsil. lóð. Vinsæll staður. Ýmis kon-
ar eignaskipti mögul.
Daglega leita til okkar
fjársterkir kaupendur m. margs konar óskir um fasteignaviðskipti.
Sérstaklega óskast: Stór hæð v. Safamýri eða Stóragerði. Ennfremur
lítið einb. í borginni eða á Nesinu. Fjöldi eigna til sölu í skiptum.
• • • ________________________________________
Á skrifstofunni eru að
jafnaði teikningar og nýgerð
söluskrá.
Opið á laugardaginn.
AtMENNA
FASTEIGN ASAl AN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
Ný tónlist á Myrkum músíkdögnm 28. janúar - 14. febrúar
> Island, Skotland, Færeyjar og Japan
Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar verður nú meiri að efni og umfangi en áður, flutt verður tónlist frá sex löndum á sextán tónleikum. Nærri fjörutíu verk verða frumflutt á hátíðinni, með- al annars 22 íslensk sönglög eftir félaga í Tónskáldafélaginu. Kynning á nýjungum í íslenskri tónsköpun hefur frá upphafi verið markmið hátíðarinnar og á næstu þrem vikum verða flutt 52 íslensk verk og 33 erlend. Að utan kemur ný tónlist frá Japan og Evrópu, sérstaklega Skotlandi og Færeyjum. Dagskrá hátíðar- innar fer hér á eftir.
28.janúar Fimmtud. Háskólabíó, kl. 20.00. Sinfóníuhljómsveit íslands.
29. janúar Föstud. Café Sólon íslandus, kl. 21.00. Tommy Smith og Jasskvartett Reykjavíkur.
30. janúar Laugard. Kjarvalsstaðir, kl. 17.00. Auður Hafsteinsdóttir, fiðla.
31. janúar Sunnud. Kjarvalsstaðir, kl. 20.30. Blásarakvintett Reykjavíkur.
3. febrúar Miðvikud. Norræna húsið, kl. 12.30. Háskólatónleikar: Nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík. Kjarvalsstaðir, kl. 20.30. Reykj avíkurkvartettinn.
6. febrúar Laugard. Hallgrímskirkja, kl. 17.00. Iain Quinn, orgel.
7. febrúar Sunnud. Safnaðarheimili Akureyrar, kl. 17.00. Kammerhljómsveit Akureyrar. Kjarvalsstaðir, kl. 20.30. Kammerhópurinn Ýmir.
8. febrúar Mánud. Listasafn íslands, kl. 20.30. James Clapperton, píanó.
10. febrúar Miðvikud. Norræna húsið, kl. 12.30. Háskólatónleikar, nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík. Ráðhúsið, Tjarnarsalur, kl. 20.30. Flytjendur Pétur Jónasson, Kolbeinn Bjarnason, Sigurður Flosason o.fl.
11. febrúar Fimmtud. Listasafn íslands, kl. 20.30. Paragon Ensemble of Scotland.
12. febrúar Föstud. Hafnarborg, kl. 20.30. Frumflutningur 22 íslenskra sönglaga.
13. febrúar Laugard. Ráðhúsið, Tjarnarsalur, kl. 14.00. Tónsmiðja barnanna.
14. febrúar Sunnud. Listasafn íslands, kl. 20.30. Lokatónleikar Myrkra músikdaga; Caput og Paragon.
Vegna fjölda áskorana:
LAUGARDAGINN 30. JANÚAR
Þríréttuð mátíð á aðeins kr. 2.900,-
þú sparar kr. 2.000,-
Missið ekki af einni bestu
sýningu sem hér hefur verið.
Matseðill:
c'jratineruSfrönsk laukstipa
Lambapiparsteik m/rósapiparsósu
Jarða herja rjómarönd
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
leikur fyrir dansi
Kynnir: W ;
Hinn
eldhressi
Hemmi
Gunn. w ö
Rúnar Júlíusson.
Shady Owens
og Cuba Libra
leika fyrir dansi. í
Ásbyrgi
Verð á dansleik
kr. 1.000,-
Geirmundur
Berglind Björk
Guðrún Gunnarsdóttir
Ari Jónsson Maggi
Kjartans
‘/jfsdansinn - /rt í sandinn
/átum sönginn hljóma
. luerégléttur ./Jídduvið
/g hef bara áhuga á þér
, /fa timans hjól
. Tjóðhátíð í Eyjum . //eð þér
Þríréttaður kvöldverður kr. 3.900,-
Verð á dansleik kr. 1.000,-
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
leikur fyrir dansi
HOTfl [jLLAND
KRIS
KRIST0FFERS0N
19. 0G 20. FEBRÚAR
Þessi heimsfrægi söngvari og
leikari heldurtvenna tónleika
á Hótel íslandi.
Nú mæta aliir aðdáendur Kris
Kristofferson á tónleika seni lengi
verða í minnum hafðar.
Aliir kannast vid lögin:
Helþ me make ii
/Vle and Bobby ÁlcGee
For the Good Times
Why Ale
Loving Her Was Easier
Verð aðgöngumiða
Þríréttaður kvöldverður kr. 5.300/
Án matar kr. 2.500/
SfMI 687111
Miðasala og borðapantanir daglega milli kl. I4-I8 á Hótel íslandi.