Morgunblaðið - 28.01.1993, Qupperneq 43
43
%
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANUAR .19.93
VELVAKANDI
TAPAÐ/FUNDIÐ
Silfurskál tapaðist
Fyrir skömmu hvarf falleg
silfurskál sem notuð var til sér-
stakrar skreytingar í veislu á
veitingastaðnum Sóloni íslandus
við Ingólfsstræti. Skálin er um
það bil 28 cm að þvermáli og 9
cm á hæð, hringlaga með sjö
innslegnum röndum. Þetta er
gripur smíðaður af Stefáni B.
Stefánssyni silfursmið og merkt
höfundinum, „Stefán SBS
925/S“.
Ekki er vitað hvemig skálin
hvarf. Hún sást síðast í burðar-
körfu úr basti ásamt borðskreyt-
ingum og blómum, þar sem eig-
andi hennar, einn af aðstand-
endum Sólons, ætlaði að taka
hana með sér heim.
Ef einhver hefur orðið var við
skálina er hann vinsamlegast
beðinn að hafa samband við
veitingastjóra Sólons íslandusar
í síma 12666.
Týndir lyklar
Adidas-lyklaveski tapaðist við
Laugalækjarskóla fyrir sl. helgi.
Finnandi vinsamlegast skili því
á skólaskrifstofu Laugalækjar-
skóla.
Gleraugu fundust
Gleraugu fundust bakvið
Pósthúsið í Hafnarfirði á móts
við Ostahúsið. Þetta eru „hálf“
gleraugu í gylltri umgjörð. Upp-
lýsingar í síma 54335.
Gleraugu fundust
Þykk lesgleraugu í brúnni
umgjörð fundust við Bogahlíð 8
sl. sunnudag. Upplýsingar í síma
626969 á skrifstofutíma.
Týndur eyrnalokkur
Gulleyrnalokkur, hringur á
stærð við giftingarhring, tapað-
ist á leiðinni frá Hótel Sögu og
vestur að Hofsvallagötu.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 75974.
Týnd loðhúfa
Dökkbrún skinnhúfa úr
minkaskottum tapaðist við Odd-
fellow-húsið 18. desember sl.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 675710.
Næla tapaðist
Hvítagullsnæla með glærum
steinum tapaðist í eða við Þjóð-
leikhúsið laugardagskvöldið 23.
janúar sl. Nælan hefur mikið
tilfinningalegt gildi fyrir eigand-
ann og er finnandi vinsamlega
beðinn að hafa samband í síma
33287 eða 34752. Fundarlaun.
Úr og seðlaveski töpuðust
Seiko-úr og seðlaveski töpuð-
ust á Hressó sl. laugardags-
kvöld. Ef einhver er með þessa
muni undir höndum er hann vin-
samlega beðinn að hringja í síma
657198.
GÆLUDÝR
Týndur köttur
Gulbröndóttur köttur týndist
frá Jakaseli 11. þ.m. Fólk er
vinsamlega beðið að athuga í
bílskúrum og kjöllurum. Upplýs-
ingar í síma 77757.
Týndur páfagaukur
Blágrár páfagaukur flaug út
um glugga á húsi í miðbænum.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 11752. Fundarlaun.
Kettlingar fást gefins
Tvo bröndótta kettlinga vant-
ar gott heimili. Uppl. í síma
91-31089.
Ekkert viður-
kenntnudd-
nám á Islandi
Frá Hrefnu Birgittu Bjarnadóttur:
VEGNA fjölda fyrirspurna vill Fé-
lag íslenskra nuddara taka fram
að félagið styður ekki Nuddskóla
Rafns Geirdals né viðurkennir það
nám sem þar fer fram, þar sem FÍN
gerir meiri menntakröfur en Rafn
Geirdal og félag hans, sem hann
hefur kosið að nefna Félag ís-
lenskra nuddfræðinga, en því nafni
hefur fólk ruglað saman við Félag
íslenskra nuddara.
Félag íslenskra nuddara er nú
að berjast fyrir viðurkenndu nudd-
námi á íslandi, en í dag er ekkert
viðurkennt nuddnám á Islandi, sem
veitir viðurkennd réttindi. Því vill
stjórn FÍN benda því fólki sem
áhuga hefur á að læra nudd að bíða
og varast gylliboð sem í gangi eru
um viðurkenningu á nuddnámi og
útskrift með réttindi. Stjórn FÍN
telur óeðlilegt að einn og sami
maðurinn sé kennari, prófdómari,
skólastjóri og formaður þess félags
sem veitir viðurkenningu á hans
eigin skóla.
Vill félagið benda fólki á að
kynna sér stöðu sína vel áður en
það fer út í nuddnám, og vita fyrir
hvað það er að borga.
Ekki er einungis átt við Nudd-
skóla Rafns Geirdals þar sem fleiri
aðilar hafa boðið réttindi að loknum
stuttum námskeiðum. Kynnið ykk-
ur stöðu ykkar.
HREFNA BIRGITTA BJARNA-
DÓTTIR,
Félag íslenskra nuddara,
Reylq'avík.
LEIÐRÉTTING
Nöfn féllu niður
í frétt Morgunblaðsins 23. janúar
sl. um íþróttamann ísafjarðar 1992
féll niður ein málsgrein en hún er
svohljóðandi: „Gylfi Guðmundsson
formaður Í.B.Í. veitti viðurkenning-
ar þeim íþróttamönnum sem skör-
uðu fram úr á árinu. Þeir voru sund-
mennirnir Helga Sigurðardóttir,
Pálína Björnsdóttir, Halldór Sig-
urðsson, Hlynur Tr. Magnússon,
Viðar Þorláksson, Edward Örn
Hublyn, Bjarki Þorláksson, Þorri
Gestsson og Valur Magnússon."
Einnig var rangt farið með að Ásta
S. Halldórsdóttir væri í 4. sæti á
punktalista Alþjóða skíðasam-
bandsins hún er í því 97.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
Ökeypis logfræðiaðstoð
ó hverju fimmtudagskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í símu 11012.
ORATOR, élag laganema.
wmS
Slr. 44-58
ÚTSALA
Enn meiri
lækkun
STÓRILISTINN
Baldursgötu 32
sími 622335.
Þátttakendur á námskeiðinu verða færir um að vinna við tölvuforrit
á flestum sviðum atvinnulifsins og einkanotkunar. Þeir verða betri
starfskraftar og fá meira sjálfsöryggi í umgengni við tölvur.
Dagskrá:
Grunnatriöi tölvunotkunar og stýrikerfi
Bróf, skýrslur og alhliöa textavinnsla meö Word
Áætlanagerö og línurit meö Excel
Söfnun og úrvinnsla upplýsinga meö FileMaker/Aceess
Kynningarefni og útgáfa meö Page
Kennd er m. a. gerð kynningarefnis, verðlista, markaðs- og
fjárhagsáætlana, uppsetning söluyfirlita, gerð fréttabréfa,
nafnallsta, límmiða og dreifibrófa.
Kennt er tvo daga ( viku, mánudaga og miðvikudaga eða
þriðjudaga og fimmtudaga kl. 19:30-22:30. Einnig dagtímar.
Námiö er 81 klukkustund
Hægt er aö velja um Macintosh eöa Windows/PC
Hóflegt þátttökugjald og góð greiöslukjör!
hk-93013
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • stofnaður 1. mars 1986 (£)
Barnadagar
í KolaportÍnU 13.-14. febrúar
Kolaportið mun efna til sérstakra Barnadaga helgina 13.-14.
febrúar og munu þeir verða með svipuðu sniði og Barnadagurinn
í september sl., sem tókst með miklum ágætum.
Ymsar sérstakar uppákomur verða þessa daga, börnum til
skemmtunar, en ætlunin er að þetta verði fyrst og fremst áhuga-
verður vettvangur fyrir foreldra að kynna sérýmis mál, börnum
þeirra til góða.
Félagasamtök, einstaklingar og fyrirtæki, sem vilja taka þátt í
þessum dögum með einhverju móti, eru beðin að hafa sam-
band við skrifstofu Kolaportsins sem fyrst í sfma 625030.
KOLAFORTIÐ
MARKAÐSTORG
KEMUR SÍFELLTÁ ÓVART!