Morgunblaðið - 12.02.1993, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993
-
Próflausir
bílþjófar
gómaðir
LÖGREGLAN í Reykjavík hand-
tók í fyrrinótt þrjá 15 og 16 ára
gamla pilta, sem stolið höfðu bif-
reið skömmu áður.
Um eittleytið í fyrrinótt var til-
kynnt að Saab-bifreið, sem skilin
hafði verið eftir utan við hús á
Flyðrugranda, hefði verið stolið á
meðan eigandinn brá sér inn. Innan
klukkustundar tilkynnti lögreglan í
Hafnarfirði að bíllinn hefði sést á
Vífilsstaðavegi á leið að Flótta-
mannaleið svokallaðri. Lögreglubíl-
ar, sem voru við eftirlit í austurhverf-
um Reykjavíkur, komu til móts við
Hafnfirðingana og hjálpuðu þeim að
stöðva bíiinn.
Tveir þjófanna voru fimmtán ára
og sá þriðji sextán. Þeir eru vel
þekktir hjá lögreglunni og er for-
sprakkinn kunnur fyrir dálæti sitt á
Saab-bifreiðum, sem hann hefur oft
stolið. í fórum þjófanna voru sterk
lyf, þar á meðal morfín, sem þeir
sögðust hafa stolið úr geymslu í
Vesturbænum.
Morgunblaðið/Sverrir
ÞRA UTAKONGAR
Bankaeftirlitið
Svör berast
frá lífeyris-
sjóðunum 1
Bankaeftirlitinu hafa borist }
svör frá mörgum lífeyrissjóðum
við fyrirspurnum eftirlitsins um
halla sjóðanna. Ragnar Hafliða- )
son, aðstoðarforstöðumaður
bankaeftirlitsins, segir að eftir
sé að meta svörin en verið sé að
vinna að því að rétta af stöðu
margra sjóða, t.d. með því að
skerða réttindi.
Ragnar sagði að verið væri að
fara yfir ársreikninga og fjárhags-
stöðu sjóðanna samkvæmt trygg-
ingafræðilegri útttekt og búið væri
að senda mörgum þeirra bréf.
Sem dæmi um skerðingu réttinda
nefndi Ragnar að þegar sameining
lífeyrissjóða á Norðurlandi gengi í
gegn yrðu eignir lagðar á móti rétt-
indum og því þyrfti væntanlega í
sumum tilvikum að rýra réttindi
fólks. Sama sagði hann að myndi
gilda við formlega stofnun Samein-
aða lífeyrissjóðsins.
VEÐURHORFUR í DAG, 12. FEBRÚAR
YFIRLIT: Skammt NA af Hvarfi er vföáttumikil 955 mb lægö sem hreyfist Ift-
iö. Um 1.000 km suður af Hvarfi er vaxandi 996 mb lægö sem hreýfist all-
hratt NA og síöan N. Þessi Iægö verður skammt fyrir vestan land siðdegis á
morgun.
SPÁ: Snemma morguns verður S- og SV átt, kaldi eða stinningskaldi með
slydduéljum S og V lands en lóttskýjaö um noröanvert landið. Seint um morg-
uninn gengur í vaxandi SA ótt, og um eða uppúr hádegi fer að rigna SV lands
með SA stormi eða roki. Síðdegis verður SA hvassviðri eða stormur vfðast
hvar á landinu með rigningu S- og V lands en NA- til verður skýjað. Um morg-
uninn veröur fremur svalt, en síðan hlýnar, og síðdegis verður hiti á bilinu 3-7
stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Nokkuð hvöss suðvestanátt með-
éljum sunnan- og vestanlands en úrkomulaust eða úrkomulftiö norðaustan-
og austanl8nds. Frost 4-6 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: Norðan- og norövestanátt, sumstaðar nokkuð hvöss
norðanlands en víðast annars staðar mun hægari. Él um norðanvert landið
en annars staðar úrkomulaust. Frost 5-6 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.46, 16.30, 19.30,22.30.
Svarsím! Veðurstofu islands — Veðurfregnir: 990600.
m m
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
r f r * r *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
* * *
♦ *
* * *
Snjókoma
V
Skúrir Slydduél
$
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaörirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
vindstig..
FÆRÐ A VEGUM: <ki. 17.30? gæo
Flestir vegir sem á annað borð eru færir á þessum árstíma eru nú greiðfærir
en talsverð hálka er á heiðum og fjallvegum einkum á Vestfjörðum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftiriiti í sima 91-631500 og i grænni
línu 99-6315. Vegagerðin.
rn / VEÐUR VÍÐA UM HEÍM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 5 hálfakýjað Reykjavik 7 rigning
Björgvln 2 súld
Helsinki 0 snjókoma
Kaupmannahöfn 1 þoka
Narssarssuaq +8 snjókoma
Nuuk +10 snjóél
Ósló 0 súld
Stokkhólmur Þórahöfn 7 vantar rigning
Algarve 16 skýjað
Amsterdam 1 þokumóða
Barcelona 14 mistur
Bertfn 0 þokumóða
Chicago 0 alakýjafi
Feneyjar 12 þokumóða
Frankfurt 1 þokumóða
Glasgow 6 mistur
Hamborg 1 þokumóða
London 3 mistur
Los Angeles 10 skýjað
Lúxemborg 0 þokumóöa
Madrid 8 rigning
Malaga 13 súld
Mallorca 15 léttskýjað
Montreal 17 léttskýjað
NewYork 3 hálfskýjaö
Orlando 13 þoka
Paris 3 þoka
Madeira 17 léttskýjað
Róm 14 þokumóða
Vín Washington 1 vantar þokumóða
Winnipeg +26 hálfskýjað
Viðskipta- og samvinnusamningur
á milli Plastos og Reykjalundar
Allt hráefni í plast-
pokum Plastos
innlend framleiðsla
PLASTOS og Reykjalundur hafa gert með sér viðskipta- og sam-
vinnusamning, sem felur í sér að fyrirtækin munu í framtíðinni vinna
nýög náið saman. Til þessa hefur Plastos keypt um 30 til 40% af
hráefni sínu af Reykjalundi, og annað erlendis frá, en í kjölfar tækni-
legrar endurskipulagningar Reykjalundar nú nýverið mun Plastos
kaupa allt hráefni sitt af Reykjalundi og leggst þá af innflutningur
á allt að 70% af hráefni til framleiðslunna.
Samkvæmt upplýsingum Sigurð-
ar Oddssonar framkvæmdastjóra
Plastos og Páls Pálssonar sölustjóra
er samningur fyrirtækjanna mjög
víðtækur og fjallar t.d. um fræðslu-
streymi, stöðlun, gæðamál. Reykja-
lundur hefur endurnýjað allan véla-
kost sínn í plastfilmuframleiðslu og
á síðastliðnum fiórum árum hefur
Plastos einnig endumýjað allan
pokavélakost sinn, þannig að fyrir-
tækin eru nú mjög vel samkeppnis-
hæf við allan innflutning plastpoka.
Stefnt er að því að allt plast Plast-
os verði innlend framleiðsla. Að
sögn þeirra félaga er um að ræða
6 til 10 ársverk, sem bætast við í
þessari framleiðslu fyrirtækjanna.
Síðustu misseri hefur aukist mjög
notkun lítilla plastpoka í verslunum,
sem sumir kalla skijáfpoka en aðr-
ir hnútapoka, þar sem gjarnan er
hnýtt fyrir, þegar varan er komin
í þá. Allir slíkir pokar hafa að sögn
þeirra félaga verið innfluttir, en
Plastos hefur nú hafið framleiðslu
á slíkum pokum. Innflutningurinn
hefur þegar sýnt viðbrögð við sam-
keppni Plastos, þar sem verð á þess-
um innfluttu pokum hefur lækkað
til muna, en að auki hafa þeir einn-
ig styst. Tvær stærðir voru fluttar
inn 45 sm pokar og 50 sm pokar.
Áhrif samkepnninnar koma nú fram
í því að nú er aðallega ein tegund
á markaðinum, 45 sm poki.
Hin nýja framleiðsla Plastos hef-
ur nú verið til reynslu í Fjarðar-
kaupum í Hafnarfirði og sagði Sig-
urður að verslunarstjórinn þar hefði
rómað pokana og líkað þeir vel.
Sigurður Oddsson sagði að við-
skipta- og samvinnusamningur
Plastos og Reykjalundar myndi u
þróast áfram. Framkvæmdastjóri
framleiðsludeildar Reykjalundar er
Gunnar Þórðarson, en Björn Ást-
mundsson er forstjóri fyrirtækisins.
Framkvæmdir í miðbæ Hafnarfjarðar
Fjögnr þúsund undir-
skriftir hafa safnast
FJÖGUR þúsund Hafnfirðingar, 18 ára og eldri, höfðu í gærkvöldi
ritað nöfn sín undir áskorun til bæjarstjómar þess efnis að tillit sé
tekið til sjónarmiða þeirra bæjarbúa sem vilja að fyrirhuguð stór-
bygging við Fjarðargötu falli sem best að umhverfi sínu og verði
ekki hærri en þau hús sem fyrir eru á miðbæjarsvæðinu.
Einar Már Guðvarðarson, einn
forsvarsmanna undirskriftasöfnun-
arinnar, sagði að sá fjöldi sem skrif-
að hafi undir í gærkvöldi, 4.000
manns, samsvaraði u.þ.b. helmingi
þess fjölda sem neytt hefði kosn-
ingaréttar í bænum í síðustu bæjar-
stjórnarkosningum. Undirskriftum
hefur verið safnað í vikunni með
því að ganga í hús og stórmarkaði,
auk þess sem listar hafa legið
frammi í bönkum, sparisjóðum og
bensínstöðvum.
Einar Már sagði að söfnuninni
lyki eftir helgi en aðstandendur
hennar hefðu sett sér það takmark
að safna undirskriftum meirihluta
kosningabærra bæjarbúa og kvaðst
hann telja Ijóst að það næðist, enda
virtust 80-90% þeirra sem leitað
væri til skrifa á listann.
Guðmundur Árni Stefánsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, sagði við
Morgunblaðið að engar undirskrift-
ir hefðu enn borist sér í hendur en
þegar til þess kæmi fengi málið
efnislega meðferð hjá bæjaryfir-
völdum.