Morgunblaðið - 12.02.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993
29
Dómsmálaráðherra vill koma
betur lögnm yfir þátttak-
endur í fíkniefnaafbrotum
ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra hefur lagt fram tvö
frumvörp um breytingar á almennum hegningarlögum, og á
lögum um ávana- og fíkniefni. Tilgangur dómsmálaráðherra er
að koma betur lögum yfir þá sem taka á móti peningum eða
ávinningi af fíkniefnaviðskiptum þótt þeir eigi ekki beina aðild
að innflutningi eða dreifingu. Einnig vil ráðherra ná til þeirra
sem aðstoða við undanskot af ávinningi þessara eiturefnavið-
skipta.
Frumvarp dómsmálaráðherra til
breytinga á almennum hegningar-
lögum frá árinu 1940 gerir ráð
fyrir að bæta við nýrri grein, 173.
gr. b, sem orðist svo: „Hver, sem
tekur við eða aflar sér eða öðrum
ávinnings af broti gegn 173. gr.
a, skal sæta fangelsi allt að 10
árum. Sömu refsingu skal sá sæta,
sem geymir eða flytur slíkan
ávinning, aðstoðar við afhendingu
hans eða stuðlar á annan sambæri-
legan hátt að því að tryggja öðrum
ávmning af slíku broti.“
í 1. mgr. 173 gr. a eru ákvæði
um sá sem andstætt lögum um
ávana- og fíkniefni láti mörgum
mönnum í té ávana- og fíkniefni
eða afhendi þau gegn verulegu
gjaldi eða á annan sérstaklega-
saknæman hátt, skuli sæta fang-
elsi allt að 10 árum. í 2. mgr. er
kveðið á um að sömu refsingu
skuli sá sæta, sem gegn ákvæðum
nefndra laga framleiðir, býr til,
flytur inn, flytur út, kaupir, lætur
Stuttar
þingfréttir
Ráðherraábyrgð
Páll Pétursson (F-Nv) hefur
lagt fram frumvarp um að
bæta við nýjum lið við 10.
grein laga um ráðherraábyrgð.
Samkvæmt tillögu Páls yrði
ráðherra sekur „ef hann gefur
Alþingi rangar eða villandi
upplýsingar eða við meðferð
máls á Alþingi leynir upplýs-
ingum er hafa verulega þýð-
ingu“.
Flutningsmaður segir í
greinargerð að ráðherrar á Is-
landi hafi ekki nauðsynlegt
aðhald og geti freistast til þess
að gefa Alþingi rangar eða
villandi upplýsingar eða leyna
það mikilvægum upplýsingum.
Páll vísar til danskra laga þar
sem séu skýr ákvæði um þetta
atriði og leggur til að þau verði
tekin í íslensk lög.
Páll Pétursson hefur bæði
utan þings og innan lýst
óánægju og efasemdum með
ýmsar yfírlýsingar ráðherra.
Páll Pétursson hefur sérstak-
lega og ítrekað lýst vantrú
sinni á orðum utanríkisráð-
herra.
af hendi, tekur við eða hefur í
vörslu sinni ávana- og fíkniefni í
því skyni að afhenda þau á þann
hátt sem greint er í 1. mgr.
í greinargerð með frumvarpi
dómsmálaráðhérra segir að vafi
sé talinn leika á því að hvaða leyti
hægt sé að refsa þeim fyrir hlut-
deild í fíkniefnabroti, sem t.d. tek-
ur við, geymir eða flytur ágóða
af fíkniefnabroti. 22. gr. almennra
hegningarlaga fjallar um hlut-
deild. Samkvæmt henni skal hveij-
um þeim refsað sem með liðsinni
í orði eða verki, fortölum, hvatn-
ingum eða á annan hátt taki þátt
í því að brot sé framið. Hlutdeild-
arákvæði taki fyrst og fremst til
hlutdeildar í verknaði sem til sé
komin áður en brot er framið eða
samtímis framningu þess. Al-
mennt sé aðstoð sem veitt sé eftir
það tímamark refsilaus, nema hún
sé veitt samkvæmt samkomulagi
sem gert hafi verið fyrir verknað-
inn. „Með hliðsjón af framansögðu
verður að telja að almennt sé ekki
unnt, samkvæmt gildandi lögum
að refsa fyrir viðtöku ágóða af
fíkniefnasölu. Það sama gildir um
flutning, geymslu og aðra sam-
bærilega aðstoð sem kemur til
eftir að frumbrotið er framið,"
segir í greinargerðinni.
Af ofangreindum ástæðum er
flutt frumvarp um viðbót við 173
gr. almennra hegningarlaga og
ennfremur er samhliða frumvarp-
inu lagt fram frumvarp um sams
konar viðbót við lög nr. 65/1974
um ávana- og fíkniefni. í greinar-
gerð er áréttað: „Slíkt refsiákvæði
er ætlað að hamla gegn fíkniefna-
viðskiptum og það getur einnig
takmarkað möguleika milliliða og
leppa að tryggja sér ávinning af
fíkniefnaviðskiptum. Þá styrkir
slíkt ákvæði réttarvörslu gagnvart
þeim sem standa að baki fíkniefna-
brotum með fjármögnun. Sam-
kvæmt ákvæðinu verður einnig
hægt að refsa þeim sem taka við
ágóða af fíkniefnabrotum, án þess
að sannaðv verði að viðskiptin hafí
verið fjármögnuð með peningaláni
eða sambærilegri fyrirgreiðslu. í
þessu sambandi er rétt að taka
fram að kunnáttusamleg fíkni-
efnaviðskipti eru skipulögð í mörg-
um sjálfstæðum liðum, þar sem
sjaldnast liggur fyrir vitneskja um
aðra sem taka þátt í þeim.“
Það kemur fram í athugasemd
með frumvarpinu að það þarf ekki
að vera skilyrði fyrir refsiábyrgð
að viðkomandi hafi nokkurn ábata
af aðstoð við brot gegn 173. gr.
b. eða hafi ætlast til slíks ábata.
í athugasemdinni segirm.a: „Upp-
talning á tilhögun aðstoðar, þ.e.
geyma, flytja, aðstoða við afhend-
ingu er hér ekki tæmandi. Nefna
má fleiri dæmi aðstoðar en talin
eru upp í greininni svo sem að
innheimta kröfu, fjárfesta, dylja
ávinning o.s.frv.“
niMnci
Stuttar þingfréttir
Handleggsbrot ráðherra
Ólafur Ragnar Grímsson (Ab-
Rn) kvaddi sér hljóðs í gær um
þingsköp. Ólafur taldi að ráð-
herrar væru famir að misnota
varamannakerfið til að víkja sér
undan því að taka þátt í umræð-
um á og gera þingmönnum grein
fyrir sínum ráðstöfunum. Ólafi
Ragnari var á þessari stundu
efst í huga fjarvera Sighvats
Björgvinssonar heilbrigðisráð-
herra. Nú væri ráðherra með
varamann vegna veikinda. Öllum
væri kunnugt um handleggsbrot
það sem ráðherrann hefði orðið
fyrir. En á hinn bóginn hefði það
komið fram í morgunútvarpi rás-
ar 2 að ráðherrann sinnti sínum
störfum í þágu framkvæmda-
valdsins. Það hefði einnig komið
fram í auglýsingum í Alþýðu-
blaðinu að ráðherrann mætti á
fundi Alþýðuflokkins og einnig
annarra félagasamtaka.
Össur Skarphéðinsson (A-Rv)
þingflokksformaður Alþýðu-
flokksins sagði Ólaf Ragnar
fremja það brot sem stundum
henti í hnefaleikahringnum „að
slá fyrir neðan beltið“. Margt
mætti um heilbrigðisráðherrann
segja, en aldrei væri hægt að
bera honum kjarkleysi og hug-
leysi á brýn. Það væri með ólík-
indum að halda því fram að heil-
brigðisráðherra hefði ekki kjark
til að mæla fyrir sínum málum
á Alþingi. Össur vísaði til þess
að í bréfi heilbrigðisráðherra
hefði komið fram að heilbrigðis-
ráðherrann gæti ekki sinnt
„reglulegri þingsetu". Þetta
hefði verið orðað á þennan veg
til þess að þingmenn gætu átt
við hann orðastað, ef þeir teldu
þess þörf.
Össur taldi að engum gæti
dulist ástæða þess að heilbrigðis-
ráðherra tók þann kost að kalla
inn varamann. Hann benti á að
handleggur ráðherrans væri
spenntur miklum gjörðum og
hann ætti erfitt með langar set-
ur. Össur sagði að þrátt hand-
leggsbrot myndi ekki standa á
ráðherranum að gera grein fyrir
sínum málum og aðgerðum ef
eftir því yrði leitað. Ráðherrann
hefði verið boðinn og búinn að
útskýra sínar aðgerðir þótt það
hefði í sjálfu sér verið ósköp
auðvelt fyrir hann að taka sér
fullkomið sjúkrafrí en hann hefði
orðið við óskum að koma í út-
varpsþætti og ræða við fólk.
Tilvísunartillaga felld á jöfnu
Uttekt á þróunarforsendum og nýsköpun í atvinnulífi
Mývatnssveitar heyrir undir allsherjamefnd Alþingis
Stj órmála-
fimdur á
Sauðárkróki
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra verður á almennum
stjórnmálafundi í Safnahúsinu á
Sauðárkróki sunnudaginn 14.
febrúar kl. 16. Forsætisráð-
herra mun fjalla almennt um
stjórnmálaviðhorfin í dag.
Að loknu erindi Davíðs Oddsson-
ar mun hann svara fyrirspurnum
frá gestum fundarins. Auk Davíðs
munu þingmennirnir Pálmi Jóns-
son og Vilhjálmur Egilsson sitja
fundinn en fundarstjóri verður
Hjálmar Jónsson.
HJÖRLEIFUR Guttormsson (Ab-Al) vildi að þingsályktunartillögu
sinni um úttekt á þróunarforsendum og möguleikum á nýsköpun
í atvinnulífi í Mývatnssveit yrði vísað til umhverfisnefndar. Eiður
Guðnason umhverfisráðherra vildi að málinu yrði vísað til alls-
herjarnefndar. Það varð sem ráððherra vildi. Þingmenn höfnuðu
tilvísunartillögu Ifjörleifs með 23 atkvæðum gegn 23.
Fyrsta mál á dagskrá 107. þing- í Mývatnssveit". Hann taldi þvi hér
fundar í gær var atkvæðagreiðsla vera á ferð tillögu um byggða- og
um þingsályktunartillögu sem atvinnumál sem ætti að vísa til
allsheijarnefndar. Umræðu varð
lokið en atkvæðagreiðslu frestað.
Kl. 13 í gær hugðist Salome
Þorkelsdóttir, forseti Alþingis, láta
greiða atkvæði um þessa tillögu.
Eiður Guðnason ítrekaði sjónarmið
sín og lagði til að málinu yrði vís-
að til allsherjarnefndar, hann benti
og á að fyrir því væru heimildir
að allsheijarnefnd leitaði álits
umhverfisnefndar eftir efnum og
ástæðum. Flutningsmenn tillög-
unnar og fleiri þingmenn úr liði
stjórnarandstæðinga hins vegar
ítrekuðu að þetta mál heyrði undir
umhverfisnefnd og gæti sú nefnd
einnig leitað eftir áliti annarra
nefnda. Þess væru og ekki nein
fordæmi að ekki væru virtar óskir
flutningsmanna varðandi til hvaða
nefnda þeirra málum yrði vísað.
Rannveig Guðmundsdóttir (A-Rn)
minntist þess að Hjörleifur Gutt-
ormsson og fleiri stjórnarandstæð-
ingar hefðu fyrir ári lagst mjög
eindregið gegn því að frumvarp
félagsmálaráðherra um starfs-
fræðslu í atvinnulífinu færi til fé-
lagsmálanefndar og haldið fram
menntamálanefnd.
sem
Hjörleifur Guttormsson og Kristín
Einarsdóttir (Sk-Rv) standa að.
Þau vilja að Alþingi álykti „að fela
ríkisstjóminni að láta gera úttekt
á þróunarforsendum og möguleik-
um á nýsköpun í atvinnulífi í Mý-
vatnssveit er falli að markmiðum
um náttúruvernd á svæðinu. Að
úttektinni verði unnið samhliða
rannsóknum á áhrifum kísil-
gúmáms úr Mývatni á lífríki svæð-
isins og fyrstu niðurstöðum skilað
og þær kynntar Alþingi fyrir febrú-
arlok 1993“.
í fyrri umræðu í fyrradag, á
105. fundi, gerði framsögumaður,
Hjörleifur Guttormsson, tillögu um
að þessari þingsályktunartillögu
yrði vísað til umhverfisnefndar.
Hann og fleiri þingmenn vísuðu til
þess að Laxár- og Mývatnssvæðið
væri sérstakt náttúruverndar-
svæði, nánast „þjóðgarður í
mannabyggð“. Þeir bentu og á að
um svæðið giltu sérstök lög sem
heyrðu undir umhverfisráðuneytið.
Eiður Guðnason umhverfisráð-
herra benti hins vegar á að tillagan
fjallaði um „þróunarforsendur og
möguleika á nýsköpun í atvinnulífi
Eftir að þingmenn höfðu talað
í um klukkustund „um atkvæða-
greiðslu" var unnt að ganga til
atkvæða um nefndatilvísun og vom
atkvæði greidd með nafnakalli.
Fyrst kom til atkvæða tillaga Hjör-
leifs Guttormssonar um umhverfis-
nefnd. Allir viðstaddir stjómarand-
stæðingar studdu tillöguna, þar að
auki tveir þingmenn úr stjórnarl-
iði; Eyjólfur Konráð Jónsson
(S-Rv) og Ingi Bjöm Albertsson
(S-Rv). 23 þingmenn studdu því
tillöguna. En hins vegar var fjöldi
andvígra stjórnarliða einnig 23, 17
þingmenn vom fjarverandi. Tillaga
Hjörleifs var því felld á jöfnum
atkvæðum. Að svo búnu var tillaga
Eiðs Guðnasonar umhverfisráð-
herra um að vísa málinu til allsheij-
amefndar samþykkt með 29 at-
kvæðum gegn 15 en þrír þingmenn
greiddu ekki atkvæði.
Crillsteikumar hjá |ariinum:
Mest seldu steikur
á Islandi
NAUTACRILLSTEIK, SIRLOIN.kr. 690
LAMBAGRILLSTEIK, FILLET.kr. 750
SVÍNAGRILLSTEIK, HNAKKI.kr. 690
^___31_____
lilTUHUl
'■VEITINGASTOFA-
Sprengisandi — Kringlunni