Morgunblaðið - 12.02.1993, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993
9
Viðtatstími borgartulltrúa
Siálfstæðisflokksins í Reykjavík
Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi
Laugardaginn 13. febrúar 1993 kl. 10-12
verða til viðtals í safnaðarheimili Bústaðakirkju:
Árni Sigfússon, í borgarráði, formaður stjórn-
ar sjúkrastofnana, í atvinnumálanefnd, for-
maður fræðsluráðs - skólamálaráðs, og
Haraldur Blöndal, formaður umferðarnefndar.
Tekið er á móti hvers kyns fyrirspurnum og
ábendingum. Öllum borgarbúum er boðið að
notfæra sér viðtalstíma þessa.
Rannsóknatengt
háskólanám
Sveinbjörn Björnsson háskólarektor vék
að rannsóknatengdu háskólanámi,
tengslum háskólans við einstakar at-
vinnugreinar, einkum sjávarútveginn, og
nýsköpun í atvinnulífinu er hann braut-
skráði kandídata 6. febrúar sl. Stakstein-
ar staldra við þetta efni í dag.
Meistaranámí
sjávarútvegs-
fræðum
Sveinbjöm Bjömsson
háskólarektor sagði m.a.:
„Enginn vafi er á því
að rannsóknatengt fram-
haldsnám við Háskóla
íslands mun auka ný-
sköpunarvirkni í þjóðfé-
laginu, og jafnframt
hvetja verðandi vísinda-
menn til að takast á við
þau viðfangsefni, sem
brýnt er að leysa hér-
lendis. Síðast en ekki sízt
er uppbygging á rann-
sóknatengdu framhalds-
námi líkleg til að stuðla
að virkara samstarfi Há-
skólans og Rannsóknar-
stofnana atvinnuveganna
og þar með atvinnulífs í
landinu. Nýleg úttekt
OECD, sem til var vitnað,
mælti eindregið með
uppbyggingu rannsókna-
tengds framhaldsnáms
hér, og menntamálaráð-
herra hefur heitið þess-
um áformum stuðningi
sinum.
Háskólinn hefur um
langa hríð haft áhuga á
að auka kennslu og rann-
sóknir sinar á sviði sjáv-
arútvegs. Margvíslegt
efni er nú í boði á þessu
sviði innan verkfræði-
deildar, raunvisinda-
deildar, viðskipta- og
hagfræðideildar og laga-
deildar. Einnig hefur
Háskólinn stofnsett Sjáv-
arútvegsstofnun með
fulltrúum þessara deilda,
sem stuðlar að samvinnu
þeirra og á frumkvæði
að ýmsum rannsókna- og
þrómiarverkefnum á
sviði sjávarútvegs. Há-
skólinn hefur ekki viljað
taka upp formlegt
gnmnnám í þessum
greinum eftir stúdents-
próf, þar sem það mundi
skarast við það nám, sem
nú er í uppbyggingu við
Háskólann á Akureyri.
Hins vegar hefur há-
skólaráð nýlega falið
nefnd að undirbúa meist-
aranám í sjávarútvegs-
fræðum, sem væntanlega
yrði ramisóknatengt
framhaldsnám á vegum
þeirra deilda, sem hér
voru nefndar.
Prófessor í
fískifræði
„Einnig er að því
stefnt á vegum Endur-
menntunarstofnunar Há-
skólans að hefja á kom-
andi hausti þriggja miss-
era nám í sjávarútvegs-
fræðum, sem stjórnend-
ur í fiskvinnslu og útgerð
ættu að geta stundað
með starfi sínu.
Háskólanum er það
mikið fagnaðarefni að á
fjárlögum þessa árs er
heimild til að stofna pró-
fessorsembætti í fiski-
fræði. Þess er vænst að
með þessu embætti teng-
ist Háskólinn Hafrann-
sóknastofnun nánar en
verið hefur og auk þess
helztu verstöðvum lands-
ins.
Til umræðu hefur
komið að efna til sam-
starfs við Vestmanna-
eyjabæ um aðstöðu fyrir
prófessorinn og stúdenta
hans til samvinnu um
rannsóknir og þróunar-
verkefni þar við hið ein-
stæða fískasafn, sem þar
er rekið, útibú Hafrann-
sóknastofnunar og Rann-
sóknastofnun fiskiðnað-
arins, og fyrirtæki í sjáv-
arútvegi, enda eru Vest-
mannaeyjar stærsta ver-
stöð landsins."
*
Arangursrík-
ustu vopnin í
lífsbaráttunni
Aðild að EES og fjöl-
þjóðlegu rannsóknasam-
starfí opnar nýjar leiðir
og nýja möguleika til
framfara hér. í þeirri
hörðu samkeppi um verð
og vörugæði, sem fram-
undan er á mikilvægustu
mörkuðum heimsins,
skila menntun, rannsókn-
ir og þekking mestum
árangri. Það er engin til-
vi^jun að þær þjóðir sem
mesta áherzlu hafa lagt
á almenna og sérhæfða
menntun og rannsóknir
búa við bezt lífskjör og
mest öryggi á líðandi
stundu. Aukin tengsl há-
skólans við atvinnulífíð í
landinu eru þvi fagnaðar-
efni.
Kvennamessa í Kópavogskirkju
Yið vorum 3 ódýrastir í fyrra
og erum það enn
Hvar færðu mest og best fyrir peningana þína?
Berðu saman verð á hinum ýmsu myndastofum
Pantaðu fermingarmyndatökuna
tímanlega
Ljósmyndastofurnar:
Barna- og fjölskylduljósmyndir, sími 677 644
Ljósmyndastofan Mynd, sími 65 42 07
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 4 30 20
FYRSTA messa í Kvennakirkj-
unni verður í Kópavogskirkju
sunnudaginn 14. febrúar kl.
20.30.
Stofnendur Kvennakirkjunnar
eru kvennaguðfræðihópur séra
Auðar Eir Vilhjálmsdóttur og
nokkrir aðrir biblíuleshópar í
Reykjavík. Kvennakirkjunni er
ætlað að vera vettvangur kvenna
til að halda messur og iðka
kvennaguðfræði og er fyrirhugað
að halda kvennamessu einu sinni
í mánuði í ýmsum kirkjun.
í messunni í Kópavogskirkju
mun séra Auður Eir Vilhjálmsdótt-
ir skýra út hugmyndir að Kvenna-
kirkjunni og séra Agnes M. Sig-
urðardóttir predika. Messan er öll- •
um opin.
(Fréttatilkynning)
W
SÍMINN ER
689400
BYGGT & BÚIÐ
KRINGLUNNI
FÖSTUDAGUR TIL FlAR
STORMJARN
í DAG
Á KOSTNAÐARVERÐI
byggtÖbÖiö
I KRINGLUNNI