Morgunblaðið - 12.02.1993, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993
Fjárfestingar lífeyrissjóða erlendis
Quest for Value fjár-
festa eingöngu í skráð-
um hlutabréfum
- segir fjármálaráðgjafi hjá Oppenheimer
GUÐMUNDUR Franklín Jónsson, fjármálaráðgjafi hjá verðbréfa-
fyrirtækinu Oppenheimer International í New York, sem rekur
hlutdeildarsjóðinn Quest for Value, sagðist í samtali við Morgun-
blaðið vera óánægður með athugasemd Sverris Sverrissonar,
hagfræðings hjá Kaupþingi, sem birtist í Morgunblaðinu á þriðju-
dag. Sverrir kvaðst þar aðspurður telja að fjárfesting í slíkum
sjóði sem Quest for Value er, fæli í sér meiri áhættu en kaup bréfa
í hlutdeildarsjóðum sem eingöngu fjárfestu í traustum verðbréfa-
fyrirtækjum skráðum í kauphöllum.
„Quest for Value íjárfestir aðeins væri að ræða.
í traustum hlutabréfum sem skráð
eru á verðbréfamarkaði í New York.
Ég get til dæmis gefíð upp að fímm
stærstu fyrirtækin sem við fjárfest-
um í eru Exel Ltd., Federal Home
Loan Mortage, Becton Dickinson,
Sandoz Ltd. og Progressive Corp.,
Ohio. Þessi fyrirtæki eru öll skráð
á verðbréfamarkaði í New York og
þykja mjög traust," sagði Guð-
mundur Franklín og vísaði því á
bug að um ótrygga fjárfestingu
Að sögn Guðmundar er hlutdeild-
arsjóðurinn mikið notaður af lífeyr-
issjóðum í Bandaríkjunum og Evr-
ópu. „Stjómendur þessara lífeyris-
sjóða eru að leita eftir ömggri fjár-
festingu. Meðal viðskiptavina okkar
í Bandaríkjunum má t.d. nefna Líf-
eyrissjóð Time Wamer Inc., Lífeyr-
issjóð bandaríska læknafélagsins
og Lífeyrissjóð starfsmanna New
York borgar.“
Islenski dansflokkurinn
Islensk verk frum-
flutt í Ráðhúsinu
Morgunblaðið/Kristinn
Ungir skákmenn
SKÁKSVEIT íslands í Einstaklingskeppni í norrænni skólaskák ásamt fararstjórum. Keppnin er
haldin til skiptis á Norðurlöndunum og að þessu sinni fer hún fram í Asker í Noregi.
Norðurlandamót í skólaskák
EINSTAKLINGSKEPPNI í norrænni skólskák fer fram þessa
dagana í Asker í Noregi. Keppni þessi, sem fer fram árlega, er
ein af fjórum árlegum Norðurlandamótum í skólaskák en þau
eru haldin til skiptis á Norðurlöndunum.
Hin þijú mótin eru Norðurlanda-
mót fyrir framhaldsskóla-, grunn-
skóla- og bamaskólasveitir. í ein-
staklingskeppninni er teflt í fimm
aldursflokkum og á hvert Norður-
landanna rétt á að senda tvo kepp-
endur í hvem flokk. Tefldar eru sex
umferðir eftir Monrad-kerfi í öllum
flokkum. Keppninni lýkur 14. febr-
úar.
Velgengni
Á undanförnum árum hafa íslend-
ingar átt vaxandi velgengni að fagna
í hinum norrænu skólaskákmótum.
Vannst sigur í einstaklingskeppni
árin 1991 og 1992 í þremur yngstu
flokkunum og sigmðu íslenskir
keppendur einnig sömu ár á Norður-
landamótum fyrir framhaldsskóla-
og barnaskólasveitir.
Eftirtaldir skákmenn tefla fyrir
íslands hönd: A-flokkur (f. 1973-75)
Kristján Eðvarðsson T.R. og Sigur-
björn Björnsson S.H., B-flokkur (f.
1976-77) Magnús Örn Úlfarsson
T.R. og Hlíðar Þór Hreinsson T.K.,
C-flokkur (f. 1978-79) Matthías
Kjeld T.R. og Arnar E. Gunnarsson
T.R., D-flokkur (f. 1980-81) Bragi
Þorfinnsson T.R. og Jón Viktor
Gunnarsson T.R., E-flokkur (f. 1982
og síðar) Davíð Kjartansson T.R. og
Sigurður Páll Steindórsson T.R.
Fararstjórar em Ólafur H. Ólafs-
son og Ríkharður Sveinsson.
Frumvarp um neytendalán til meðferðar á Alþingi
Þriðja og síðasta sýning íslenska dansflokksins i Ráðhúsinu
verður í kvöld. Sýningin hefst klukkan 20.30 og alls verða flutt
fjögur verk. Tvö þeirra, eftir íslenska danshöfunda, verða frum-
flutt, hin tvö eru ný.
Gæti leitt til lækkun-
Fyrsta verkið á dagskránni er
„Pas De Six,“ í uppsetningu balltt-
meistara íslenska dansflokksins,
Alans Howard. Verkið er fyrir sex
dansara, auk þess sem nemendur
úr Listdansskóla íslands taka þátt
í flutningnum, og er samið við
tónlist eftir Gazounov.
„Milli manna,“ er nafnið á
næsta verki sem sýnt verður. Það
er nýtt verk eftir Maríu Gísladótt-
ur, listdansstjóra íslenska dans-
flokksins. Verkið er skrifað fyrir
þrjá dansara, við tónlist eftir Nor-
man Dello Joio.
„Evridís,“ eftir Nönnu Ólafs-
dóttur er þriðja verkið í sýning-
unni. Það er fyrir fímm dansara
og samið við tónlist eftir Þorkel
Sigurbjörnsson.
Lokaverkið á sýningunni er
„Bach svíturnar" eftir William
Soleau, samið fyrir átta dansara
og var fyrst flutt á hádegissýningu
í Ráðhúsinu í gær.
ar lántökukostnaðar
FRUMVARP um neytendalán sem viðskipta- og efnahagsnefnd Al-
þingis hefur til umfjöllunar, miðar, að sögn Vilhjálms Egilssonar,
formanns nefndarinnar, að því að tryggja að neytendur séu nægi-
lega vel upplýstir um þau lánskjör sem bjóðast á markaði. Slíkt
auðveldaði fólki að gera samanburð á sambærilegum grundvelli
milli mismunandi lánstilboða, hefði áhrif á samkeppnina og gæti því
jafnvel haft áhrif til lækkunar lántökukostnaðar.
Vilhjálmur sagði sérstaka áherslu
lagða á að fólk væri upplýst um
heildar lántökukostnað með því að
reikna út sérstaka hlutfallstölu lán-
tökukostnaðar sem sýndi heildar-
kostnaðinn í einni prósentutölu.
„Þar sem' frumvarpið gerir ráð fyrir
að settar verði ákveðnar reglur
hvemig árleg hlutfallstala kostnað-
ar er reiknuð út og hvernig upplýs-
ingar um hana eiga að koma fram
hlýtur allur samanburður að verða
mun einfaldari," sagði Vilhjálmur.
Samkvæmt frumvarpinu nær það
til lánssamninga sem gerðir eru við
lántakanda af hálfu verslana, fram-
leiðenda og þjónustuaðila með viss-
um undanþágum. Þær eru t.d. veitt-
ar ef lánssamningur gildir til
skemmri tíma en þriggja mánaða
og ef um er að ræða lægri íjárhæð
en 15.000 krónur.
Frumvarpið nær til lána vegna
kaupa á lausafé og þjónustu, svo
og almennra neyslulána. Frumvarp-
ið tekur jafnt til lánssamninga sem
einstaklingur gerir og lögaðili, enda
er talið mikilvægt að hér á landi
eigi fyrirtæki rétt á upplýsingum í
lánsviðskiptum jafnt og einstakling-
ar. Þá er í frumvarpinu ákvæði þess
efnis að í auglýsingum um lán og
lánafyrirgreiðslu skuli gefa upp
vexti, lántökukostnað og árlega
hlutfallstölu kostnaðar. Einnig skal
lánveitandi gefa upp staðgreiðslu-
verð ef hann er líka seljandi vöru
eða þjónustu.
Uppfylling' EB-tiIskipana
Frumvarpið hefur þann tilgang
að fullnægja skilyrðum EB-tilskip-
ana vegna aðildar íslands að Evr-
ópska efnahagssvæðinu. í tilskipun-
inni er gert ráð fyrir að neytandinn
hafi ætíð, í tengslum við lánssamn-
ing, upplýsingar um árlega hlut-
fallstölu í prósentum, þ.e. saman-
lagðan kostnað vegna lánsins, lýst
sem árlegri prósentu sem reiknuð
er út samkvæmt sérstakri stærð-
fræðilíkingu eftir reglugerð sem við-
skiptaráðherra setur. Tilskipunin
leiðir einnig að öðru leyti til sam-
ræmingar á kostnaðarliðum sem
eiga að koma inn í útreikning á
hlutfallstölunni.
Að sögn Vilhjálms er vinnu. við
frumvarpið að miklu leyti lokið, en
eftir er að athuga nánar ýmis út-
færsluatriði. Viðtökur umsagnarað-
ila hafí verið jákvæðar, enda mikið
hagsbótamál að neytendur séu upp-
lýstir á þennan hátt. Vilhjálmur
sagðist eiga von á því að frumvarp-
ið næði fram að ganga á vorþingi.
--------»-♦ ♦----------
Nemenda-
sýning og
liðakeppni
í dansi
NEMENDASÝNING Nýja dans-
skólans verður haldin mánudag-
inn 15. febi*úar á Hótel Sögu,
Súlnasal, kl. 19. Auk nemenda
munu Esther og Haukur sýna og
einnig Evrópumeistararnir Martin
og Alison Lamb.
Liðakeppnin verður á milli nem-
enda Nýja dansskólans, Dansskóla
Jóns Péturs og Köru, Dansskóla Sig-
urðar Hákonarssonar og Dansskóla
Auðar Haralds.
Forsala aðgöngumiða verður í
Nýja dansskólanum, Reykjavíkur-
vegi 72 í Hafnarfirði, laugardaginn
13. og sunnudaginn 14. febrúar nk.
kl. 12-17 báða daga. Miðarnir verða
númeraðir á borð.