Morgunblaðið - 12.02.1993, Síða 46
46
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ SÞROTTIR FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1993
—-------------------------------------------------
SKIÐI / HEIMSMEISTARAMOTIÐ
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hár Selfyssinga „fauk“ eftir tapið
Leikmenn Selfoss-liðsins í handknattleik eru heldur
þunnhærðir þessa dagana, vegna tapsins í bikarúrslita-
leiknum á sunnudag gegn Val. Ákveðið var fyrir leik-
inn að næðist bikarinn á Selfoss myndu leikmenn raka
þjálfarann, Einar Þorvarðarson frá hvirfli til ilja, en
tapaðist baráttan hins vegar skyldu leikmennimir snoð-
klipptir. Lengi vel leit út fyrir að Einar yrði fyrir barð-
inu á rakvélinni, en Valsmenn gerðu það að verkum
— með frábærum endaspretti — að Ævar Österby,
hárskeri og stjómandi klappliðs Selfyssinga, hafði nóg
að gera á sunnudagskvöldið. Leikmenn úr báðum liðum
mættu svo á landsliðsæfingu á þriðjudaginn, þegar
lokaundirbúningur fyrir HM í Svíþjóð hófst, og hér
sjást tveir „sökudólganna", Valsararnir Geir Sveinsson
og Dagur Sigurðsson, hafa hendur í hári Gústafs
Bjamasonar. Til vinstri er Sigurður Sveinsson.
Frá Gunnarí
Valgeirssyni
í Bandarkjunum
FOLK
■ MICHAEL Jordan skoraði 40
stig fyrir Chicago í 115:104 sigri
í Indiana í NBA-deildinni í fyrri-
nótt. Scottie Pippen var með 30
stig, en þetta var
fjórði sigur Chicago
gegn Indiana í jafn
mörgum leikjum á
tímabilinu.
■ JORDAN lenti í slagsmálum
við Reggie Miller, helstu stjömu
Pacers, í fyrri hálfleik og átti upp-
tökin, en Miller var rekinn af velli.
Leikmenn og þjálfari Pacers sögðu
greinilegt að aðrar reglur giltu fyr-
ir Jordan en aðra leikmenn.
■ JAMES Worthy skoraði 21 stig
fyrir Lakers í 111:102 sigri gegn
Denver. Þetta var þriðji sigur Lak-
ers á heimavelli í röð, en þriðja tap
Nuggets í síðustu 11 leikjum.
■ SAM Perkins skoraði 20 stig
'g tók 10 fráköst fyrir Lakers, en
Chris Jackson var stigahæstur hjá
Denver með 20 stig.
■ A. C. Green hjá Lakers hefur
vakið athygli fyrir ljúfmennsku, en
hann fékk tvær tæknivillur í fyrri
hálfleik og var rekinn af velli — í
annað sinn á átta ára ferli. Lakers
fékk fjórar tæknivillur á sig í leikn-
um.
■ CHARLES Barkley var mað-
urinn á bak við ömggan sigur,
122:100, Phoenix gegn LA Clipp-
ers, skoraði 22 stig og tók 13 frá-
köst. Phoenix hefur sigrað í 11 af
síðustu 12 leikjum og 16 heimaleikj-
um í röð.
■ LOY Vaught var með 24 stig
og 13 fráköst fyrir Clippers.
■ MICHAEL Adams setti per-
sónulegt met á tímabilinu, þegar
hann skoraði 29 stig í 110:102 sigri
Washington Bullets gegn Dallas
Mavericks.
■ PERVIS Ellison skoraði 12 af
22 stigum sínum fyrir Bullets í
fjórða leikhluta og kom liði sínu
yfir 75:74. Dallas var 10 stigum
yfir eftir þriðja leikhluta.
■ DEREK Harper var stigahæst-
ur hjá Dallas með 23 stig. Liðið
hefur aldrei staðið sig eins illa, tap-
að 41 leik og aðeins sigrað í fjórum
leikjum.
■ GRANT Long skoraði 19 stig
og tók 13 fráköst fyrir Miami í
101:90 sigri gegn Minnesota. Glen
Rice var með 18 stig og 10 fráköst.
■ CHUCK Person skoraði alls
20 stig og þar af 18 úr þriggja stiga
skotum, sem er met hjá Minnesota.
BORÐTENNIS
Sigursælasti Englend-
ingurinn á boðsmóti BTÍ
Desmond Douglas, sigursælasti
borðtennismaður Englendinga,
keppir á boðsmóti Borðtennissam-
bandsins á morgun.
Mótið er árlegur viðburður í
íþróttahúsi Kennaraháskólans. Það
hefst kl. 13.30 og úrslit kl. 16.30.
Tveimur erlendum keppendum er
boðið á mótið, Douglas frá Englandi
og Svíanum Goran Wraná. Douglas
er þeldökkur, ættaður frá Jamaíka.
Hann er 37 ára að aldri og hefur ell-
efu sinnum orðið enskur meistari í
einliðaleik. Hann hætti í alþjóðlegri
keppni eftir Evrópumeistaramótið
KORFUKNATTLEIKUR
Gull í gipsi
KANADÍSKA stúlkan Kate
Pace, sem er með annan hand-
legginn í gipsi og getur því
ekki ýtt sér af stað með báðum
höndum, sigraði í bruni kvenna
á heimsmeistaramótinu íJapan
ígær. Svisslendingurinn Urs
Lehmann sigraði í bruni karla,
en hvorugt þeirra hafði áður
sigrað í HM eða heimsbikar-
keppni.
Pace var númer 17 í rásröðinni
og þegar hún lagði af stað var
talið að Seizinger og Vogt frá
Þýskalandi væru öruggar með verð-
launasæti, en Pace og norska stúlk-
an Lödemel slógu þeim við. „Ég
hef æft byijunina vel með einum
staf,“ sagði Pace, sem handleggs-
brotnaði fyrir mánuði, „og var
heppin að vera aftarlega í rásröð-
inni.“ „Það er ótrúlegt hvað hún á
auðvelt með að ýta sér af stað með
annarri hendi,“ sagði Kerrin Lee-
Gartner, landa hennar, sem varð í
níunda sæti. „Hún átti í meiri erfið-
leikum með að greiða hárið í tagl
en sjálft brunið.“
Lödemel varð í öðru sæti og
tryggði Noregi fyrstu verðlaun
kvenna á HM í alpagreinum síðan
1972. „Ég bjóst ekki við þessu, en
vonaði að fá verðlaun." Anja Haas
frá Austurríki var lengi með silfrið
í höndunum, _en varð að sætta sig
við bronsið. „Ég get ekki breytt tím-
anum og er ánægð.“
Sigurvegari af sléttunni
Urs Lehmann var nr. 20 í rásröð-
inni, en hélt uppi heiðri Svisslend-
inga og fékk besta tímann í bruni
karla, rétt eins og á æfingunni á
miðvikudag. Landi hans, Franz
Heinzer, heimsmeistari í bruni 1991
og þrefaldur sigurvegari í bruni í
heimsbikarkeppninni í síðasta mán-
uði varð hins vegar í 10. sæti.
Lehmann er einn af fáum í sviss-
neska liðinu, sem kemur frá „slétt-
unni“, en hann kunni vel við sig í
brekkunni. „Ég vissi að ég gæti
sigrað og sjálfsöryggið jókst við að
sjá hvað hinir voru taugaóstyrkir.
Érestanirnar gerðu öllum erfitt fyr-
ir, en ég gerði mér grein fyrir að
sá sem ekki færi á taugum og væri
í lagi í höfðinu næði besta tíma.“
Norðmaðurinn Atle Skárdal var
nr. níu í rásröðinni og kom öllum
á óvart með tíma sínum, en varð
að sætta sig við silfrið. Bandaríkja-
maðurinn Kitt kom hins vegar enn
meira á óvart og fékk bronsið —
fyrstu verlaun Bandaríkjamanna í
bruni síðan 1985. „Ég vissi ekki
við hveiju átti að búast. Á æfingum
var ég alltaf með næst besta tím-
ann í fyrri hlutanum, en fékk ávallt
10. besta tímann. í mörg ár hef ég
hugsað um hvernig tilfinning það
væri að vinna til verðlauna og nú
er ég ánægður með að hafa eitt-
hvað hangandi um hálsinn," sagði
Kitt, sem meiddist í síðasta mánuði.
1990, en er í dag talinn þriðji sterk-
asti borðtennismaður Englands.
Stærsti sigur hans á ferlinum var
þegar hann var vann svokallað Evr-
ópu top-12 mót 1987, þar sem 12
bestu Ieikmenn Evrópu koma saman
og keppa allir við alla, á þremur dög-
um. Wraná er 25 ára. Hann er fyrrum
Evrópumeistari unglinga í liðakeppni
og varð Norðurlandameistari með
Svíum í liðakeppni 1990.
Allir bestu borðtenniskappar ís-
lands verða meðal keppenda, svo og
Peter Nilsson þjálfari og leikmaður
KR.
FJARMAL
Skrifstofa HSÍ innsiglud
Lögreglan í Reykjavík innsiglaði skrifstofu HSÍ í
gær, að beiðni Gjaldheimtunnar, þar sem sam-
bandið skuldaði staðgreiðslu skatta, liðlega
300.000 kr., fyrir september til nóvember á síð-
asta ári. ÍSÍ bjargaði málunum og skrifstofan var
opnuð aftur. Klaufaskapur hjá stjóm HSÍ varð
þess valdandi að ekki var búið að ganga frá mál-
inu, að sögn Gunnars Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra, en þetta kemur ekki fyrir aftur
þvi frá og með desember s.I. sér ÍSÍ um allar
opinberar greiðslur fyrir sambandið og til þess.
Bikarmeistarar ÍBK í karlaflokki
Morgunblaðið/Bjarni
Keflvíkingar unnu Snæfell 115:76 í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ á laugardaginn. Þetta er stærsti sigur liðs í
bikarúrslitum, 39 stiga munur, en Njarðvíkingar áttu gamla metið, unnu Val með 22 stiga mun 1987, 91:69.
Standandi frá vinstri: Jón Guðmundsson, liðsstjóri, Birgir Guðfínnsson, Kristinn Friðriksson, Albert Óskarsson,
Hjörtur Harðarson, Sigurður Ingimundarson og Jón Kr. Gíslason, þjálfari. Sitjandi frá vinstri: Nökkvi Már Jóns-
son, Jonathan Bow, Guðjón Skúlason, fyrirliði og Einar Einarsson.
í kvöld
Körfuknattleikur
Úrvalsdeildin:
Digranes: UBK- UMFG... kl. 20
Njarðvík: UMFN-Valur... kl. 20
1. deild karla:
Akureyri:UFA - Höttur .kl. 20.30
Handknattleikur
1. deild kvenna:
Eyjar: ÍBV-Víkingur kl. 20
2. deild karla:
Strandgata: ÍH - Ármann. kl. 20
URSLIT
Skíði
HM í alpagreinum
Morioka, Japan:
Brun karla.
1. Urs Lehmann (Sviss)...
2. Atle Skárdal (Noregi)..
3. A.J. Kitt (Bandar.).
4. Luc Alphand (FYakkl.).
5. Tommy Moe (Bandar.).
6. Denis Rey (Frakkl.).
Brun kvenna
1. Kate Pace (Kanada)....
2. Astrid Lödemel (Noregi).
3. Anja Haas (Austurr.)..
4. Katja Seizinger (Þýskal.)
5. Miriam Vogt (Þýskal.)
...1
...1
...1
...1
......1
...1
.32,06
.32,66
.32,98
.32,99
.33,09
.33,20
.27,38
.27,66
.27,84
.27,89
.28,13
.28,16
6. Ulrike Stanggassinger (Þýakal.)...l.
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Indiana - Chicago...........104:115
Orlando - Cleveland.........96 : 87
Philadelphia - Houston......90 : 98
Minnesota - Miami..........90 :101
NewJerseyNets-Detroit.......109: 86
Dallas - Washington.........102:110
Phoenix - Los Angeles.......122:100
Los Angeles Lakers - Denver.111:102
Knattspyrna
ítalska bikarkeppnin
Intemazionale - AC Milan.......0:3“
- (Papin 6. og 13., Gullit 37.). 77.794.
Torínó-Lazio....................8:2
(Luzardi 45., sjálfsm., Casagrande 62.,
Sordo 76.) - (Signori 85., Winter 87.).
■Tórínó og Juventus annarsvegar og AC
Milan og Roma mætast i undanúrslitum.