Morgunblaðið - 26.02.1993, Qupperneq 2
2 B
Sólvogur
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1993
Góó sala í íbúó-
um aldraóra
NU eru tólf íbúðir eftirtóseldar
af 49 íbúðum í nýbyggingu fyrir
aldraða í Sólvogi í Fossvogi. Kom
þetta fram í viðtali við Jón G.
Sandholt, sölumann I fasteigna-
sölunni Oðal. — Eg er mjög
ánægður með þennan árangur,
sem er vafalítið mest að þakka
góðri staðsetningu, sagði Jón
Það er einkum fólk úr hverfun-
um í kring, sem sækist eftir íbúð-
um í Sólvogi, það er Fossvogi,
Leitunum og nýja miðbænum
fyrir ofan Fossvog.
Jón kvaðst ekki álíta markaðinn
fyrir íbúðir fyrir aldraða vera
mettaðan og sagði: — Þegar við hér
höfum fengið notaðar íbúðir fyrir
aldraða til sölu, hefur verið mikil
ásókn í þær. Það sem einkennnir
þessar íbúðir er að þær eru yfírieitt
mjög nýlegar og byggðar í grónum
íbúðarkjörnum. Það eru gjaman
staðir, þar sem viðkomandi hefur
búið áður í stærri eign og þekkir
því vel. Margt af því fólki, sem keypt
hefur íbúðir í Sólvogi, á skuldiausar
eignir fyrir, þar sem það var búið
að búa í áratugi.
Jón sagði ennfremur, að smíði
Sólvogs hefði gengið mjög vel og
samkvæmt áætlun. Nú er verið að
innrétta íbúðimar í fyrra húsinu, en
áformað er að afhenda allar íbúðim-
ar í maí nk. Þetta eru tvær bygging-
ar við Sléttuveg 15-17 og eru þær
aðskildar nema á jarðhæðinni, en
þar er gert ráð fyrir þjónustukjama,
gufuböðum og húsvarðaríbúð. Á átt-
undu hæð í öðru húsinu er sameigin-
legur samkomusalur fyrir íbúana.
Aldursmörk 55 ár
í Sólvogi em aldursmörk 55 ára.
Jón var spurður að því, hvort þetta
teldist ekki fremur lágur aldur miðað
við aldrað fólk og svaraði hann þá:
— Aldursmörkin voru miðuð við 60
ár í fyrstu, en þegar á reyndi var
mikil ásókn í þessar íbúðir af nokkm
yngra fólki. Margt framsýnt fólki á
aldrinum ftá 55 .ára og upp í sex-
tugt hefur keypt íbúðir í Sólvogi,
þó að enn eldra fólk þekkist þar
vissulega einnig.
Jón sagði, að vel hefði gengið að
selja þær eignir, sem þeir, er keypt
hefðu í Sólvogi, ættu fyrir. — Þær
eignir em gjaman í góðum hverfum,
þar sem yfírleitt er gott að selja.
Ástand þessara eigna er misjafiit,
allt frá því að vera nýlega endumýj-
aðar og niður í þokkalegt ástand.
Meiri hluti þessara eigna er samt í
mjög góðu ástandi.
Ég get nefht sem dæmi íbúð konu
rétt um sjötugt. íbúðin var öll nýtek-
in í gegn, þegar hún kom í sölu,
með flísum í baðhergi og eldhús-
gólfí og nýrri eldhúsinnréttingu,
þannig að íbúðin var í toppstandi,
enda þótt hún hafí verið byggð 1956.
Smíði Sólvogs hefði gengið mjög vel og samkvæmt áætlun. Nú er verið að innrétta íbúðimar í fyrra
húsinu. Þetta eru tvær byggingar við Sléttuveg 15-17 og eru þær aðskildar nema á jarðhæðinni, en þar
er gert ráð fyrir þjónustukjaraa, gufuböðum og húsvarðaríbúð. Á áttundu hæð í öðru húsinu er sameig-
inlegur samkomusalur fyrir íbúana.
Jón kvað íbúðarmarkaðinn hafa
verið mjög rólegan í janúar en febr-
úar hefði verið þeim mun betri. —
Það er mikið um makaskipti, enda
er fólk orðið miklu opnara fyrir þess-
um möguleika, sagði hann. — Við
hér höfum varla selt eign að undan-
fömu nema í makaskiptum. Ef fólk
á 2ja eða 3ja herb. íbúð og vill
stækka við sig upp í sérhæð eða enn
stærri eign, þá tekur seljandi stærri
eignarinnar þá minni upp. Bezta
dæmið, sem ég þekki, er 2ja herb.
íbúð í Safamýri, sem skipti þrisvar
sinnum um eigendur á einni viku
og endar sennilega hjá fjórða eig-
andunum á næstunni. Þegar þetta
gerist tökum við 1% í sölulaun fyrir
minni ibúðina en fullt fyrir þá stærri,
nema frá fyrsta eiganda minni íMð-
arinnar, en þá em sölulaunin 1,7%,
ef um einkasölu er að ræða.
Húsbréfakerfið minna notað
Jón kvaðst senn vera búinn að
starfa við fasteignasölu í tíu ár og
á þeim tíma hefði aldrei verið jafn
mikið um makaskipti og í fyrra og
það sem af væri þessu ári og maka-
skiptin væm enn að aukast. — Fyr-
ir bragðið er húsbréfakerfíð minna
notað en áður og ég held, að það
sé ein skýringin á því, að það hefur
verið minna um húsbréfaskipti hjá
húsbréfadeildinni að undanfömu en
var, sagði Jón.
Jón Sandholt kvaðst vera mjög
bjartsýnn á fasteignamarkaðinn í
vor og sagði að lokum. — í fyrra lá
við, að maður fylltist sjálfur svart-
sýni af að hlusta á bölmóðinn í fast-
eignamarkaðinum. Slíkur bölmóður
heyrist varla nú. Það er stór hluti
af þjóðinni, sem er í sínu fasta starfi
og með sín föstu laun og það fólk
horfír fram á veginn og heldur sínu
striki í lífínu.
MARKAÐURINN
Húsnæóismál
í samhengi
UMFJÖLLUN um húsnæðismál
hér á landi er oft úr samhengi.
Fjallað er um einstaka þætti án
þess að tillit sétekið til heildar-
innar. Húsnæðislánakerfin tvö,
félagslega íbúðakerfíð og hús-
bréfakerfið, eru að ýmsu leyti
samtvinnuð og hafa mikil áhrif
hvort á annað. Aðgerðir sem
tengjast öðru þeirra hafa áhrif
á hitt. Og bæði hafa þau áhrif á
fasteignamarkaðinn. Það sem
kannski helst ruglar þessa mynd
er hvað húsnæðismálin eru mikið
pólitískur málaflokkur. Það á án
efa mestan þátt í því að umfjöll-
unin er eins og hún er.
Vaxtahækkun í félagslega
íbúðakerfinu
Eins og kunnugt er féllst ríkis-
stjómin á tillögu húsnæðis-
málastjómar þess efnis, að breyta
vöxtum í félagslega íbúðakerfínu
frá og með 1. mars næstkomandi.
Vextir verða
hækkaðir á lánum
félagslegra íbúða,
annarra en leigu-
íbúða, sem veitt
hafa verið eftir 1.
júlí 1984.
Þeir sem hafa
Guðmundsson gagnrýnt þessa
ákvörðun hafa ein-
göngu gert það út frá því sjónar-
miði, að greiðslubyrðin hækki hjá
þeim sem verða fyrir vaxtahækkun.
Verið sé að koma aftan að kaupend-
um félagslegra íbúða og kollvarpa
áætlunum þeirra. Hér skal ekki
gert Iítið úr þessu. Vaxtahækkunin
getur komið illa við marga. Að vísu
eru áhrif mismikil að teknu tilliti
til vaxtabóta. Sumir verða ekki fyr-
ir hækkun á greiðslubyrði eftir að
fyrsta árið er liðið. En fleira kemur
til.
Ef vextir yrðu ekki hækkaðir í
félagslega íbúðakerfinu, mundi
húsnæðismálastjóm úthluta færri
framkvæmdalánum á þessu ári til
byggingar eða kaupa á félagslegum
íbúðum en fyrirhugað er, eða um
300 íbúðum í stað 500. Færri fjöl-
skyldur mundu þá komast að í þessu
kerfí en ella. Það hefði í för með
sér meiri ásókn í húsbréfakerfíð og
eða meiri eftirspum eftir leiguíbúð-
um en annars verður, þegar fram
líða stundir. Hvom tveggja mundi
leiða til meiri spennu á hinum al-
menna fasteignamarkaði og hækk-
andi fasteignaverðs.
Annar kostur er mögulegur en
að hækka vextina í félagslega
íbúðakerfínu. Hann er að auka rík-
isframlagið til að mæta halla á
Byggingarsjóði verkamanna. Láns-
Ijárþörf ríkissjóðs mundi þá aukast,
sem mundi leiða til hærri vaxta og
þar með auka greiðslubyrði íbúða-
kaupenda á hinum almenna fast-
eignamarkaði.
Vextir í félagslega íbúðakerfínu
hafa m.ö.o. bein áhrif á almenna
fasteignamarkaðinn, þegar hlutim-
ir em skoðaðir í samhengi.
Skuldasöfnun heimilanna
Árlega gefur Seðlabanki íslands
út greinargerð um þróun og horfur
í peningamálum. Þar er m.a. tíund-
að hveijar heildarskuldir heimil-
anna í landinu eru, og hvemig þær
hafa aukist milli ára. Þessi greinar-
gerð hefur stundum leitt til þess
að upp hefur komið krafa um að
dregið verði úr útgáfu húsbréfa.
Það hefur dregið úr húsnæðislán-
um bankakerfísins og lífeyrissjóð-
anna, en tilgangurinn með hús-
bréfakerfínu var m.a. að beina sem
mestu af lánafyrirgreiðslu vegna
fasteignaviðskipta í einn farveg.
Svo virðist sem það svigrúm, sem
vaxandi hlutir opinbera húsnæðis-
lánakerfísins hefur skapað banka-
kerfinu og lílfeyrissjóðunum, hafí
ekki nýst til aukinna lánveitinga til
annarra aðila í þjóðfélaginu en
heimilanna. Líklega stafar það af
því ástandi sem verið hefur í at-
vinnulífínu. Eftirspumin þaðan eftir
lánsfé hefur líklega verið minni en
hið aukna svigrúm lánastofnana
segir til um. Það er hins vegar rangt
að skrifa alla aukna skuldasöfnun
heimilanna á húsbréfakerfið, eins
og stundum hefur verið gert.
Meðalverð fasteigna sem keyptar
eru í gegnum húsbréfakerfíð er rétt
rúmar 7 milljónir króna, Það er
staðfesting á því að húsbréfalán
fara að stærstum hluta til fjár-
mögnunar á ódýrum og meðaldýr-
um fasteignum.
Eina leiðin til að draga úr útgáfu
húsbréfa er að skerða rétt íbúða-
kaupenda og húsbyggjenda til hús-
bréfalána. Það myndi leiða til færri
fasteignaviðskipta og meiri eftir-
spumar eftir félagslegum íbúðum.
Áfleiðingamar yrðu verstar fyrir
þær íjölskyldur sem eru á mörkum
félagslega íbúðakerfisins en eiga
nú möguleika á fasteignaviðskipt-
um í húsbréfakerfinu.
Gallinn við þá umijöllun um hús-
næðismál sem greinargerð Seðla-
.bankans hefur orðið kveikjan að er,
eins og með umijöllun um félags-
Iega íbúðakerfíð, að hlutimir eru
teknir úr samhengi.
Húsnæðislánakerfin eru
samtvinnuð
Markmiðið með húsnæðisslög-
gjöfinni hér á landi er að stuðia að
öryggi og jafnrétti í húsnæðismál-
um. Eins og hér hefur verið bent á
em húsnæðislánakerfin tvö, félags-
lega íbúðakerfið og húsbréfakerfið,
margvíslega samtvinnuð. Ákvarð-
anir sem tengjast öðru þeirra geta
haft mikil áhrif á hitt. I umfjöllun
um þennan málaflokk er nauðsyn-
legt að skoða málið í heild, en ekki
slíta hlutina úr samhengi.
EKKI SELJA
HÚSBRÉFIN ÞÍN!
FyRR EN ÞÚ HEFUR KYNNT
ÞER HVAR VERÐIÐ ER BEST.
Við leitumst ávailt við að
bjóða hagstæðasta verðið
fyrir húsbréfin þín.
Gerðu verðsamanburð.
KAUPÞING HF
Kringlunni 5, sími 689080.
/trg* BúaoiaHtúnka ísUinds og spansjéianma.