Morgunblaðið - 06.07.1993, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 06.07.1993, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993 13 Um kvótamálið Veggir: Álgrind með gleri og ál- hurðum. Lyfta: 800 kg/10 menn, hraði 0,62 m/sek. Lyftustóll úr ryðfríu stáli og gleri, hurðir og karmar málað. Útveggir: Einangraðir að utan- verðu og klæddir með Alucobond. Enginn kjallari eða bílageymsla er í húsinu, en lóð og bílastæði eru fullfrágengin. Samningsverð fyrir framan- greinda byggingu fullfrágengna er 102.700 krónur fyrir hvern fer- metra. Innifalið í því verði er: * Virðisaukaskattur. * Allur ráðgjafarkostnaður að byggingareftirliti frádregnu. * Opinber gjöld (lóðagjöld, tengi- gjöld stofnlagna, skipulagsgjald o.s.frv.). , * Kostnaður verktaka vegna und- irbúnings, umsjónar og stjórnunar á verktíma. Það má benda á, að í Sam- keppnislýsingu skv. 7. kafla, bls. 11, næstneðstu málsgrein, segir, og skal það ítrekað hér: „Stefnt er að því að þau rými, er snúi að almenningi (inngangur, anddyri, aðalstigi og dómsalir) verði sérstaklega vönduð (ásýnd Hæsta- réttar). Sama máli gegnir um allt ytra byrði byggingarinnar (vegg- klæðningu, glugga'o.fl.). Öll önnur rými skulu taka mið af hefðbundnu skrifstofuhúsnæði. Miðað við framangreint, þá er sú skoðun útbjóðanda ítrekuð, að verktakakostnaður, eins og hann var skilgreindur í samkeppnislýs- ingu, geti verið innan við 290 millj- ónir króna, eða um 107.400 krónur fyrir hvern fermetra. Sjá þó breytingu 5 á Sam- keppnislýsingu.“ Vafasamt er talið að reisa þurfi 11.000 rúmmetra byggingu undir starfsemi Hæstaréttar, t.d. vegna þess að lítið verður um vélræna loftræstingu. 69. fyrirspurn: „Skv. grein 7, Kostnaður nýbyggingar, skal verk- takakostnaður við nýbyggingu Hæstaréttar vera lægri en 290 milljónir króna, sem er u.þ.b. 106.000 krónur per fermetra. Mið- að við gæðakröfur, sbr. 6., Bygg- ingarleg gerð og gæði, telur fyrir- spyrjandi að hámarkskostnaður sé vanáætlaður. Þessu til stuðnings skal bent á uppgefin fermetraverð í nýlegum opinberum byggingum, s.s. Perlu, Ráðhúsi Reykjavíkur og Þjónustumiðstöð aldraðra á Vestur- götu 7. Óskað er eftir að dómnefnd endurskoði kostnaðarhámark þann- ig að lagt verði af stað með raun- hæfa kostnaðaráætlun." Svar: Sjá svar 47 og 55. En fyrirspurn 47 hljóðar svo: „I sambandi við kostnaðaráætl- un. Hve ítarleg þarf kostnaðaráætl- un að vera og hvernig á sundurliðun hennar að vera? T.d. eru lagnir e.t.v. með í þessu dæmi? Svar: Ekki er beðið um kostnað- aráætlun, aðeins að tillögur verði innan fyrirfram ákveðins kostnað- arramma. Telji keppandi að tillaga sín fari út fyrir kostnaðarramma, sbr. kafla 7, ber honum að rökstyðja það sér- staklega og tilgreina ástæður þess. Telji dómnefnd rökstuðning nægj- anlegan til réttlætingar kostnaðar- auka, mun tillagan koma til álita til verðlauna og útfærslu. Meginmarkmiðið er þó áfram að verktakakostnaður verði lægri en 302 milljónir króna.“ Hvers konar endemis rugl eru svona svör? Til að gera sér rökstudda grein fyrir kostnaði þurfa keppendur að gera kostnaðaráætlun hvort sem hún er send með tillögunni eða ekki. Ef kostnaðaráætlunin fylgir ekki tillögunni, hvernig ætlar dóm- nefnd á heiðarlegan og rökstuddan hátt að meta réttmæti kostnaðar- áætlunar eða að bera saman tillög- urnar m.t.t. kostnaðar sem á að ráða úrslitum um hvort tillaga kem- ur til greina við verðlaunaveitingu og útfærslu? III. Tímasetning samkeppninnar. Samkeppnin var auglýst 7. maí 1993, þ.e. í lok 18. viku ársins. Gögn voru tilbúin til afhendingar 11. maí, þ.e. í bytjun 19. viku árs- ins. Svör við fyrirspurnum eru dags. 12. júní 1993, þ.e. í 23. viku ársins og skilafrestur 6. júlí 1993, í 27. viku ársins. Tími til að gera tillögurnar frá því að vissa var fengin fyrir hvað fólst í útboði og skilmálum er fjórar vikur. Dómnefnd tekur sér þijár vikur til að kveða upp úrskurð sinn, eða til 28. júlí. Fyrir því er löng hefð jafnt hér á landi og erlendis að til slíkrar keppni veitist að jafnaði 90 dagar eða 12-13 vikur. En mikið virðist liggja á. Ef menn gefa sér viku til að ganga frá samningum við verðlaunahöfundinn þá eru samkvæmt útboðinu ætlaðar í allt 30 vikur til að ljúka allri hönn- un. Þetta þýðir að allri hönnun verði lokið um 6. febrúar 1994. í hveijum mánuði teljast 160 vinnustundir þegar frá eru dregnar helgar, frídagar og sumarfrí. Það þýðir að í árinu teljast vera 1.920 dagvinnustundir. Fyrir hönnunar- vinnuna áætlast samkvæmt útboð- inu 1.200 stundir, að viðbættum samkeppnistímanum, 160 stundum, eða 1.360 dagvinnustundum, til að ljúka verki til útboðs framkvæmda. Hér verður að upplýsa að meðal grannþjóða okkar hefur verið not- ast við þumalfingursreglu til að áætla tíma fyrir úrvinnslu hug- mynda í vinnuteikningar. Reglan er um 2 vinnustundir á fermetra í vönduðum opinberum byggingum. Samkeppnisútboðið gerir grein fyrir 2.710 m2 og 465 mz til viðbót- ar eftir breytinguna á útboðinu, þ.e. 3.175 mz alls. Miðað við fram- angreinda reglu áætlast því að fari 3.175x2 stundir, þ.e. 6.350 stundir. Sé því breytt í ársverk er um að ræða 3’A ársverk, sem á að ljúka á 1.360 stundum eða 2/z hlutum árs. Það er e.t.v. í þessu ljósi, að þess var í upphafi krafist að gerð væri grein fyrir stærð teiknistofunnar, sem fengi verkið. Fleiri orð skulu ekki höfð um þennan hugsanagang dómnefndar eða útbjóðanda samkeppninnar. í mínum huga endurspeglar hann dæmalaust virðingarleysi á starfi arkitektastéttarinnar. En þetta leiðir hugann að öðru, sem kemur fram í spurningu eins keppandans. 13. fyrirspurn: „Með tillögum skal fylgja vinnu- og mannaflaáætl- un vegna arkitektahönnunar. Er sú áætlun bindandi fyrir þann sem samið verður við? Getur þessi áætl- un haft áhrif á, við hvern verður samið? Eiga höfundar tillagna að skilja þetta sem kostnaðartilboð í arkitektahönnun hússins?" Að vísu var fallið frá þessari kröfu, spurningin gefur þó til kynna upphaflegan skilning á eðli útboðs- ins sem verður enn ljósara þegar málið er skoðað eins og hér var gert hvað varðar tímasetningarnar. Að lokum: I inngangi samkeppnisútboðsins segir: „Stefnt er að því að byggingunni verði lokið 1995, en þá verða 75 ár frá því að Hæstiréttur tók til starfa." Ef tekið er mið af því að Hæsti- réttur hóf störf 16. febrúar 1920 og hönnun á að vera lokið 6. febr- úar 1994 þá er eitt ár til stefnu fyrir útboð og byggingarfram- kvæmdir til 16. febrúar 1995. Hefur byggingarnefndin nú í hendi sér verktaka til svo skjótra verkloka? Svo hefur mér ofboðið framgang- ur þessa máls, að ég hefi ekki get- að orða bundist. Því spyr ég forystu Arkitektafélags íslands, dómnefnd- arfulltrúa stéttarinnar og arkitekta, sem fallast á framangreind vinnu- brögð, hvar er virðing ykkar fyrir starfssviði stéttar okkar, að fallast á þessi vinnubrögð? Einnig spyr ég fulltrúa Hæstaréttar í dómnum hver sé virðing hans fyrir grundvelli, þ.e. reglum, undirbúningi og vinnu- brögðum, til að geta dæmt heiðar- lega og af réttsýni í svona máli? Eg þarf ekki að spyija um virð- ingu fulltrúa ráðuneytis og inn- kaupastofnunar fyrir starfssviði arkitekta. Það ætti því engan að furða að ég að lokum spyr: Hvers á Hæstiréttur að gjalda? Höfundur er arkitekt FAÍ. eftir Matthías Ingibergsson Nú verða menn að taka á þessum kvótamálum, því að færa kvótann frá almenningi og yfir á örfáar hendur kemur landsbyggðinni á vonarvöl. Þegar þessir stórkvóta- menn fara á hausinn, þá eru fá góð ráð til bóta. Eins og sést best á Bíldudal, Suðureyri við Súganda- fjörð, Bolungarvík, Seyðisfirði, Stokkseyri og á fleiri stöðum. Ef þar hefðu verið bátar í stað togara, þá væru málin auðveldari að eiga við. Sú fölsun að selja óveiddan físk í sjó eins og mönnum sýnist er slíkt siðleysi að ég veit ekki annað eins. Svo er kvótinn metinn og bankarn- ir lána í honum. Sá skepnuskapur að vilja kvóta á litlu bátana nær engri átt. Ef það á að taka af króka- leyfið og setja á kvóta í staðinn, þá verða menn að standa saman og láta hart mæta hörðu við þessum yfirgangi togaraeigenda. Það hefur alltaf verið róið á þessum bátum frá örófi alda, en ef togaraeigendur hafa ekki fengið nóg af þessum skepnuskap sem nú er við lýði, þá verða menn að láta í sér heyra og mæta til átaka, ef þetta á að vera eins og þessir Þrastar-vinir eru að gefa út í kvóta- og fiskveiðimálum. Halda menn að einhver hætta sé á ofveiði á línuveiðum? Að steinbít- ur, keila, langa og lúða séu í hættu vegna krókaveiða? Nei, slíkt er ekki til. En á sínum tíma var langan og lönguseiði drepin í spærlingstroll og fiskifræðingar gerðu ekki neitt í að stoppa þær veiðar af, þó svo verið væri að kvarta undan þeim. Nú fiska togarar 15 til 20 tonn af löngu í einu togi utan 200 mflna og innan. Þá verður hægt að segja að menn hafa fengið það utan land- helginnar og þar af leiðandi kvóta- laust. Það er gott því að minnsta kosti einn í nefndinni sem endur- skoðar fiskveiðistefnuna, er einn stærsti eigandinn í Granda hf. og í öðrum fyrirtækjum, og aðrir í nefninni eru yfirlýstir andstæðingar smábátanna. Það er eitthvað undarlegt sem þarna er á ferðinni. Það er atvinnu- leysi og með réttu ættu menn að gera út fleiri báta sem koma að landi á hveijum degi til að auka atvinnu í landi en vera ekki að hreyfa við krókaveiðum. En ef það verður gert þá verða smábátaeig- endur að taka á málinu sem slíku og taka ekki minna á því en Frakk- ar, Tjallar, Danir og Irar sem tóku málin í sínar hendur og mótmæltu kröftulega. Þröstur Ólafsson hefur komið fram áður og vildi þá að fiskvinnsl- an ætti 60% í öllum kvóta. Nú vill hann að útlendingar og fiskvinnslan Matthías Ingibergsson „Til þess þurfum við að úrelda 70 til 80% af tog- veiðiflota okkar og koma okkur upp línu-, neta- og handfæraflota í staðinn.“ eignist kvótann. Ég held að þjóðin ætti að kjósa um kvótann í þjóðarat- kvæðagreiðslu en læðast ekki eins og gert var þegar Halldór Ásgríms- son læddi sínu kvótafrumvarpi inn og menn áttuðu sig ekki á því út í hvað verið var að fara. Talað er um að nú vanti gott hráefni á land til að auka atvinnu. Á sama tíma eru menn að tala um að taka línutvöföldunina af og fá þannig verra hráefni á land. Nú er maður orðinn hissa á þessari skin- helgi sem virðist vera í gangi. Bankar hafa lánað útgerðum peninga til að kaupa kvóta og vilja alls ekki að hann verði tekinn af. En menn sjá að afli togara fer minnkandi ár frá ári og hræðsla er komin fram í herbúðum togara- eigenda og lánastofnana. Þess vegna er ráðist á krókaleyfi smábát- anna, bátanna sem koma með besta hráefnið, skapa mestu atvinnuna og eru ódýrastir í rekstri. Ég hélt að þjóðin hefði útslitavald en ekki einhveijir peningamenn sem eru að tröllríða öllu hér á landi. Það hefur ekki verið horft í það að úrelda ágætis skip til að ná af þeim kvótanum og byggja' frysti- skip sem skapa litla sem enga at- vinnu í landi í stað góðra báta sém veiða á línu og net og landa hér heima. Minnkandi togaraútgerð Það er haft eftir erlendum fiski- fræðingum að til að ná upp fiski- stofnum þurfi að friða þau svæði sem fiskurinn leitar á í uppvextinum fýrir öllum togveiðum. Til þess þurf- um við að úrelda 70 til 80% af tog- veiðiflota okkar og koma okkur upp línu-, neta- og handfæraflota í stað- inn. Nú veit ég að einhvetjum finnst þetta mikil úrelding en meiri var hún hjá þeim sem þurftu að stöðva allar veiðar í tvö ár til að byija með, en er það kannski það sem menn eru að bíða eftir? Þar var nefnilega togaraflotinn búinn að hreinsa upp fiskistofnana. Það má breyta öllum togbátaflota okkar í línu- og netaskip innanlands og smíða ný í staðinn frá 20 upp í 100 tonna báta fýrir þá togara sem úreltir yrðu. Við erum búin að hafa það gagn og ógagn af togurunum sem eru búnir að koma fiskistofnun- um í það ástand sem þeir eru í núna og fara alltaf minnkandi. Ég á von á því að togaraútgerðir fari minnkandi hjá öllum þjóðum sem hafa kynnst þeim. Geysimiklu er hennt í hafíð af smáfíski eða var þau rúmu 20 ár sem ég var á togur- unum og ég héld að það sé alveg eins í dag, því að svæðalokanir vegna smáfísks koma alltaf of seint. Þá er nefnilega búið að drepa nokk- ur hundmð tonn eða jafnvel þús- undir tonna áður en að svæðunum er lokað. Það gengur ekki lengur að loka augunum fyrir þessum kvótamálum hjá togurunum. Hjá þeim er 14 til 16% minnkun á ári og fer sífellt minnkandi. Ef'menn ætla ekki að stefna í gjaldþrot eins og Færeyjar og Nýfundnaland þá verður að stoppa þetta af og það strax áður en í óefni er komið. Ég veit að margir sjálfstæðismenn vilja kvót- ann í burtu í þeirri mynd sem hann er í dag og hætta öllu braski með sölu á honum. Menn geta skipt út á rækju, þorsk, karfa, ufsa og hveiju sem er þó það sé ekki verið að selja kvótann. Hjá tvíhöfðanefndinni líst mér illa á málin. Nú em allir trillukarlar á suðupunkti vegna tillagna sem komu frá nefninni og vonandi láta þeir ekki sitja við orðin tóm þvi þeir hafa stuðning flestra lands- manna. Hvaða réttlæti er í því að stóru útgerðirnar eigi svo mikinn kvóta (sem þær hafa keypt) og láti bátana físka fyrir sig um allt land og skammta mönnum svo fyrir fisk- inn eins og þeim sýnist? Er það þetta sem þeir í LÍÚ ætla sér ásamt hinum stóru í útgerðinni? Það er vá fyrir dymm þegar þeir fara á hausinn og lítið hægt að gera. Ef þeir ætla að keyra þessi lög í gegn þá er rétt að menn fari að athuga sín mál og athuga hvort þeir vilji taka upp þá stefnu að menn verði hér þrælar án vonar um að eignast skip eins og hefur verið, eða láta einhveija eiga og ráða öllu hér á landi. Höfundur er skipstjóri. Stjórn Hins íslenska lestrafélags Þungar áhyggjur vegna skattlagningar á lestrarefni STJÓRN íslenska lestrarfélagins lýsir þungum áhyggjum vegna virð- isaukaskatts á lestrarefni og verðhækkana í kjölfar hans. Hversu mjög sem aðhalds er þörf í ríkisfjármálum verður að gæta þessa að líta fram á veg og velja ekki leiðir til skattlagningar sem valdið geta langvinnum vandræðum og fjárhagstjóni þegar fram líða stund- ir, segir í tilkynningu frá stjórn Hins íslenska lestrarfélags. „Það er ljóst að þær þjóðir, sem og aðgangur að fjölbreyttu lestrar- af einhveijum sökum hafa farið á mis við að læra að lesa, eiga við miklar þrengingar að stríða, efna- hagur þeirra er í rúst og þær eru ofurseldar ágangi annarra þjóða sem nýta auðlindir þeirra og vinnu- afl í sína þágu. Læsi og þjóðarauð- ur haldast þétt í liendur. í nútíma- samfélagi. Stjórn íslenska lestrarfélagsins bendir á að tvennt virðist skipta sköpum um læsi þjóða, góð kennsla efni á viðráðanlegu verði. Það er því afar mikilvægt að ekkert sé gert sem skerði aðgang almennings að fjölbreyttu lestrar- efni. Það getur leitt til aukins treglæsis og að fleiri og fleiri fari á mis við þá lestrarleikni sem nauð- synleg er í nútímasamfélagi, er krefst þess af þegnum sínum að þeir geti lesið margs konar texta og eflt þekkingu sína og þroska alla ævi með áðstoð bóka. Það veldur áhyggjum að heim- sóknum íslenskra ungmenna á al- menningsbókasöfn virðist fara fækkandi. Vonandi eiga stækkandi skólabókasöfn einhvern hlut að máli en ástæt^n getur eins verið minnkandi almennur lestraráhugi. Heimilisbókasöfn hafa hingað til gegnt mjög mikilvægu lílutverki til að efla læsi þjóðarinnar, þökk sé því að almenningur hefur haft efni á að kaupa bækur. Enginn veit hvaða afleiðingar skattur á lestrarefni getur haft á læsi íslenskrar þjóðar. Grunur um að illa geti farið er nægilegur til þess að ekki megi hætta á neitt í þeim efnum.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.