Morgunblaðið - 06.07.1993, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993
„Bgernú þegar buinn ai toJza. Þfjd^
t/eJkJyi da c/agci. i þessum rrtÁnubl."
Það er létt að slá hana og hún
flýgur ekki jafn langt og þess-
ar litlu.
HÖGNI HREKKVlSI
ky/K/WYNOiH ??/ “
BRÉF TÍL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
VELVAKANDI
Með fullum stuðningi
við móður lítillar stúlku
ÉG ÆTLA að hafa sama háttinn
á og móðir litlu stúlkunnar og
skrifa undir nafnleynd mér sjálfri
til verndar.
Ég get ekki látið sem ekkert sé
eftir að ég las bréf frá móður sem
birtist í Velvakanda 3. júlí sl. og
lýsi hér með fullum stuðningi við
móður og bam.
Ég er 38 ára gömul í dag, en
þegar ég var 6 ára varð ég fyrir
kynferðislegri áreitni fullorðins
karlmanns, sem fékk svo einungis
skilorðsbundinn dóm, vegna þess
að eftir því sem best var vitað var
þetta fyrsta brot (hver er svo kom-
inn til með að segja það) og svo
hafði hann mjög góða afsökun fyr-
ir gerðum sínum, eða þá að hann
var drukkinn og vissi ekki hvað
hann gerði.
Ég var heppin að aðeins var um
KEFLAVÍKUR-
KIRKJA ER EKKI
LOKUÐ
VÍKURFRÉTTIR Suðurnesja birta
mjög ósmekklega grein um prest-
inn sinn. Þar segir orðrétt: „... að
réttast væri að hýrudraga prestinn
um laun og láta iaun hans renna
til greiðslu á skakkaföllum sem þau
sóknarböm er hafa þurft að leita
annað með athafnir meðan guðs-
húsið þeirra var lokað hafa orðið
fyrir“.
Ég vil benda á það að kirkjan
er bara alls ekki lokuð og það er
ágætis prestur sem þjónar í fjar-
veru sr. Olafs, en það er sr. Baldur
Rafn Sigurðsson, þjónandi _prestur
í Ytri- og Innri-Njarðvík. Ég vissi
ekki að sóknarpresturinn okkar
væri svona ómissandi, a.m.k. var
hann það ekki sl. vetur þegar sem
mest gekk á hér í sókninni. Það
er gott til þess að vita að hann er
ekki svona alvondur eins og sumt
áreitni að ræða, því nógum sálræn-
um erfiðleikum hefur þetta atvik
valdið mér samt. Ennþá, 32 ámm
síðar, verð ég ofsareið þegar rifjast
upp afgreiðsla réttarkerfisins á
þessu máli mínu.
Mér er spurn:
Er hið opinbera réttarkerfi þess
umkomið að losa mig við reiðina,
eða þá litlu stúlkuna við þá erfið-
leika sem hún á eftir að ganga í
gegnum?
Hvað er að?
Lítur réttarkerfíð á afbrot af
þessu tagi sem óverulegt brot,
kannski í líkingu við búðarhnupl?
Hefur ekkert breyst á þessum
32 árum?
Ég sem hélt, miðað við umræður
síðustu ára, að kerfið væri farið
að taka við sér og gera sér grein
fyrir alvöru þessara mála.
fólk vill vera láta. En þegar upp
var staðið voru það þó ekki svo
margir. Hafa prestar kannski ekki
leyfí til að fara í sumarfrí eins og
annað fólk? Eiga þeir ekki fjöl-
skyldu? Og er ekki nóg komið af
illindum og er mál að linni?
Sóknarbarn.
RAKAKREM
SÁ SEM getur gefíð mér upplýs-
ingar um kremið „Moisters“ sem
er með sérstakri hákarlaolíu er vin-
samlega beðinn að hringja í Júlíu
í síma 72819.
GÆLUDÝR í TÍVOLÍ,
HVERAGERÐI
ÉG FÓR í tívolíið í Hveragerði sl.
þriðjudag með fjölskyldunni. Tívolí-
ið er að taka á sig hlýlegri og
grænni mynd frá því sem áður
var. Þarna er mikill gróður, mikið
af allskyns sumarblómum og er
skemmtilegt að ganga um og
Mitt álit er það að með meðferð
slíkra mála eigi að vera um frelsis-
sviptingu brotamanns að ræða í
dómsúrskurði, alveg óháð því hvort
um líkamsmeiðingar er að ræða.
Það eitt mundi stórfækka glæpum
af þessu tagi.
Ætla dómsyfirvöld að skilja fleiri
börn eftir með sektarkenndina sem
að sjálfsögðu kemur upp, sérstak-
lega þegar þau eru nógu gömul til
að átta sig á að brotamaðurinn fær
enga refsingu og líta þá jafnvel svo
á að þetta hafí verið sér að kenna?
Ég skora á dómsyfirvöld að end-
urskoða afstöðu sína og koma í veg
fyrir sektarkenndina, skömmina,
reiðina og fleira og fleira, en af-
brotamönnunum er sleppt með
skrekkinn svipað og ef um fyrsta
búðarhnupl væri að ræða.
Ein reið.
krakkarnir okkar skemmtu sér ve!
í tækjunum. Þó skyggði það á
ánægjuna að fá ekki að taka Topp
með okkur inn í Tívolíhúið (Toppur
er 5 mánaða tík). Það er leiðinlegt
að vera kominn alla leið austur
fyrir fjall í þennan ágæta, risastóra
skemmtigarð þar sem allt úir og
grúir af gróðri og mega ekki taka
hvolp með sér inn í húsið, sem er
þó fyrir eins og aldingarður. Vegna
þessara hundareglna sem þarna
giltu stoppuðum við mun styttri
tíma en fyrirhugað var. Það er
nefnilega ekki hægt að bjóða bíl-
veikum dýrum upp á það að hanga
svo lengi umönnunarlaus inni í bíl.
Tívolí er heillandi og skemmti-
legur staður fyrir alla fjölskylduna
og vel til þess fallinn að eiga góðar
stundir. Þess vegna vil ég beina
því til rekstraraðila tívolísins hvort
svo brýna nauðsyn beri til að meina
litlum gæludýrum aðgang að tívolí-
inu.
Jón Magnússon hundavinur.
Víkveiji skrifar
*
Isunnudagsblaði Morgunblaðsins
var frá því skýrt, að tveir menn
hefðu brotizt inn á heimili meindýra-
eyðis í Ólafsvík að næturlagi og
barið hann til óbóta. Ástæðan fyrir
þessum verknaði var sú, að mein-
dýraeyðirinn hafði verið fenginn til
þess að skjóta villiketti á Hellis-
sandi. Kattareigendur á staðnum
höfðu verið beðnir að merkja ketti
sína eða hafa þá innan dyra meðan
á þessu stóð. Meindýraeyðirinn hafði
skotið kött í eigu annars árásar-
mannsins, sem hafði verið ómerktur
og úti við þrátt fyrir ofangreind til-
mæli.
Hvers konar villimennska er það
að brjótast inn á heimili manns að
næturlagi og beita hann ofbeldi með
aðstoð annars manns af þessum sök-
um? Hvers konar fólk er að verða
til á íslandi að það skuli yfirleitt
láta sér til hugar koma að fremja
slíkan verknað? Er augljóslega vax-
andi ofbeldishneigð í landinu afleið-
ing af því, að fólk horfír of mikið á
ruslið, sem sýnt er í sjónvarpi og
ruglar því saman við veruleikann?
Það er full ástæða til að spyrja þess-
ara spurninga vegna þess, að ís-
lenzkt þjóðfélag er að verða verra
samfélag en það var fyrir nokkrum
áratugum.
Alla vega verður að krefjast þess,
að ofbeldismennirnir hljóti makleg
málagjöld og vonandi kemur skortur
á yfirvinnukvóta ekki í veg fyrir það
en lögreglan í Ólafsvík treysti sér
ekki til að koma á staðinn eftir of-
beldisverkið vegna þess, að yfir-
vinnukvótinn var að verða búinn!
Var ekki nauðsynlegt að taka
skýrslu og lýsa aðstæðum?
xxx
Stöð 2 hefur tilkynnt að áskrif-
endur stöðvarinnar fái ókeypis
aðgang að 6 gervihnattastöðvum að
næturlagi á næstunni. Er þetta gert
til þess að gefa áskrifendum stöðvar-
innar kost á því að kynnast dagskrá
þessara stöðva. Þetta er vel til fund-
ið, þótt ekki sé endilega víst, að við-
brögðin verði þau sem forráðamenn
Stöðvar 2 búast við.
Fjölmargir íslendingar hafa
kynnzt efni þessara stöðva á ferðum
erlendis. Niðurstaða langflestra er
áreiðanlega sú, að þótt þægilegt sé
að hafa aðgang að þessum stöðvum,
er lítið á þær horft. Fréttasendingar
CNN og raunar annarra stöðva einn-
ig eru sífelldar endurtekningar allan
sólarhringinn og jafnvel fram á
næsta dag. Víkverji hefur aðgang
að nokkrum þeim stöðvum, sem Stöð
2 auglýsir nú og niðurstaðan er sú,
að sáralítið er horft á fréttasending-
ar þessara stöðva m.a. vegna þess,
að þær eru að jafnaði ekki upplýs-
andi. Þó eru nokkrar undantekning-
ar frá því. Það er t.d. gagnlegt fyrir
áhugamenn um brezk stjórnmál að
fylgjast með beinum sjónvarpssend-
ingum úr brezka þinginu. CNN rís
hátt, þegar eitthvað er um að vera,
en þar fyrir utan er fréttamennska
stöðvarinnar ekki ýkja merkileg.
Þegar á heildina er litið er efni
þessara fréttastöðva a.m.k. ekki svo
gott, að eftir miklu sé að slægjast.
Um þetta dæmir auðvitað hver og
einn, en ekki kæmi Víkveija á óvart
að margir verði sammála þeim skoð-
unum, sem hér hafa verið settar
fram, þegar þeir hafa haft tækifæri
til þess að kynna sér efni stöðvanna
vegna þessa framtaks Stöðvar 2.