Morgunblaðið - 06.07.1993, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993
Flutninga-
bíll valt í
Kerlinga-
skarði
FLUTNINGABÍLL með tengi-
vagni valt í sunnanverðu Kerl-
ingaskarði snemma á mánu-
dagsmorguninn. Bílstjórinn var
einn í bílnum þegar óhappið
varð og slapp hann ómeiddur.
Samkvæmt upplýsingum frá
Iögreglunni á Stykkishómi er veg-
urinn þarna mjög þröngur og mun
flutningabíllinn hafa mætt fólks-
bíl í mestu þrengslunum. Átti bíl-
stjóri flutningabílsins ekki ann-
arra kosta völ en fara útaf vegin-
um eða lenda á bílnum sem kom
á móti.
Flutningabíllinn var að flytja
fisk til Reykjavíkur og er bíllinn
töluvert skemmdur eftir veltuna.
Alvarlegt slys varð í Þjórsárdal að morgni sunnudags
Morgunblaðið/Júlíus
Hjólið utan vegar
HJÓLIÐ lá utan vegar í Svína-
hrauni eftir áreksturinn.
Fjórir á
slysadeild
ALVARLEGT umferðarslys
varð á Suðurlandsvegi í Svína-
hrauni um klukkan átta á laug-
ardagskvöldið er þar rákust
saman fólksbíll og vélhjól. Talið
er að fólksbílnum hafi verið ekið
á röngum veghelming í veg fyr-
ir vélhjólið. Tvennt var í bílnum
og tvennt á hjólinu og var þrennt
flutt á slysadeild en ökumaður
bílsins á gjörgæsludeild.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu var áreksturinn mjög harður
og fór fólksbíllinn þrjár veltur af
veginum í kjölfar hans. Ökumaður
bílsins og farþegi vélhjólsins slös-
uðust alvarlega en voru ekki talin
í lífshættu.
Morgunblaðið/Guðmundur Ingi Kristinsson
Hugað að hinum slasaða
BJÖRGUNARFÓLK og lögregla hlúir að hinum slasaða á meðan beðið var eftir þyrlu Landhelgis-
gæslunnar.
Piltur varð undir rútu og
slasaðist lífshættulega
MJÖG alvarlegt slys varð í Þjórs-
árdal um helgina er piltur á 18
aldursári varð undir rútubifreið.
Atburðurinn átti sér stað
snemma á sunnudagsmorguninn
og var pilturinn fluttur á slysa-
deild Borgarspítalans með þyrlu
Landhelgisgæslunnar. Hann
liggur nú á slysadeild spítalans
og hann er enn talinn í lífshættu.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
varð slysið rétt fyrir klukkan hálf
fímm um morguninn skammt frá
hljómsveitarpallinum á útihátíðar-
svæðinu og í sjónmáli við aðsetur
lögreglu og björgunarfólks sem
annaðist gæslu á svæðinu. Verið
var að bakka rútunni við hlið bratts
sandbakka og mun pilturinn hafa
hrasað niður bakkann og undir
rútuna þannig að annað afturhjól
hennar ók yfír hann.
Lögreglan segir að snör handtök
björgunarfólks hafi bjargað lífi
piltsins og tekist að halda í honum
lífi þar til þyrlan kom á vettvang
og flutti hann til Reykjavíkur.
Þær upplýsingar fengust á gjör-
gæsludeild síðdegis í gærdag að
pilturinn væri enn í lífshættu en
ástand hans komið í nokkurt jafn-
vægi þó það væri enn talið alvar-
legt. Hann hlaut slæm beinbrot og
innvortis blæðingar.
í nógu að snúast
Þetta slys var hið eina alvarlega
sem kom upp á útihátíðinni sem
haldin var í Þjórsárdal en lögreglan
hafði í mörgu að snúast alla helg-
ina sökum ölvunar hátíðargesta.
Segir lögreglan að það hafí þó ekki
verið meir eða minna en venja er
til á útihátíðum af þessu tagi.
Þyrla kölluð til
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var kölluð til og flutti hún hinn
slasaða á Borgarspítalann.
Umferðarslys í Biskupstungum
Jeppabifreið með
sjö farþegum valt
JEPPABIFREIÐ með sjö
manns innanborðs valt út af
veginum á Biskupstungnabraut
skammt frá Fellskoti. Atburð-
urinn átti sér stað skömmu eft-
ir miðnættið aðfararnótt
sunnudagsins og talið að öku-
maður jeppans hafi misst vald
á honum í lausamöl.
Að sögn lögreglu voru sex af
farþegum, þar á meðal ökumaður,
fluttir á slysadeild og var þyrla
Landhelgisgæslunnar kölluð út til
að flytja einn þeirra sem talinn
var alvarlega slasaður og var
fluttur á Borgarspítalann. Þrír af
þessum sex eru enn á sjúkrahúsi
og líðan þeirra eftir atvikum góð.
Deilt í borgarstjórn um fjárhagsstöðu Reykjavíkur
Borgarstjóri segir eðlilegt að
taka lán til að mæta tekjumissi
BORGARSTJORI, Markús Örn Antonsson, sagði á fundi
borgarstjórnar á fimmtudag, að eðlilégt væri að Reykjavík-
urborg tæki langtímalán þegar erfiðlega áraði, til að mæta
tekjutapi og halda uppi atvinnu. Borgarfulltrúar minnihlut-
ans gagnrýndu fjármálastjórn Sjálfstæðisflokksins harka-
lega og töluðu um hrikalega skuldastöðu, sem nálgaðist
hættumörk. Borgarstjóri vísaði slíkum fullyrðingum á bug
og benti á að skuldastaða borgarinnar væri mun betri en
hjá fles’tum nágrannasveitarfélögunum.
Góð veiði .
STEINGRÍMUR Guðjónsson með
12 punda hrygnu sem hann
veiddi í Kerfossi í Álftá nýlega.
Allur gangnr er á laxveiðiskap
þessa dagana, en yfirleitt hefur
veiðin tekið nokkurn kipp til hins
betra síðustu sólarhringa og þær
tölur sem berast frá ánum fara
hækkandi og nálgast nú að vera
viðunandi. Ef fram heldur sem
horfir verður veiðisumarið í
góðu lagi þrátt fyrir hina slæmu
byrjun sem má rekja til slæms
árferðis. Framan af var heldur
lítið af tveggja ára laxi I ánum
og menn höfðu á orði að það sem
væri, væri í ofanálag fremur létt-
ur fiskur miðað við það sem
gengur og gerist. Nú hefur
brugðið svo við að tveggja ára
laxinum hefur fjölgað og sums
staðar er hann mjög vænn, jafn-
vel vænni en síðustu ár. Má í
þessum efnum nefna Víðidalsá
og Vatnsdalsá, en í báðum ám
hefur glæðst að undanförnu eftir
skrykkjótta byrjun. Um og yfir
20 punda fiskar hafa veiðst í
báðum síðustu daga og í Laxá í
Aðaldal, á Staðartorfu, veiddist
um helgina stærsti laxinn sem
sögur fara af í sumar. Var það
22 punda hængur.
Þeir stóru mættir...
Sem fýrr segir veiddist 22 punda
hængur í Laxá í Aðaldal um helg-
ina. Það var Sveinbjöm Jónsson
sem dró laxinn við Landhólma í
landi Staðartorfu, sem er ofarlega
í ánni. Þá sagði Ragnar Gunnlaugs-
son formaður Veiðifélags Víðidalsár
í gærdag, að tveir stærstu laxarnir
í ánni hefðu veiðst á síðustu dögum
og vógu þeir 21 og 20 pund. í
Vatnsdalsá veiddi Haraldur Johann-
essen 20 punda nýgenginn hæng í
Gilárkróki á spón. Veiði hafði mjög
glæðst í Víðidalsá og voru í gærdag
komnir milli 160 og 170 laxar, en
Vatnsdalsá var komin í um 55 laxa.
Glæðist í Rangánum...
Veiði hefur verið að glæðast í
Rangánum síðustu daga, þ.e.a.s. í
Ytri Rangá. Þar höfðu veiðst 8 lax-
ar í gærdag, flestir tvo síðustu sól-
arhringana. Laxarnir hafa veiðst á
svæði tvö, fjórir, og svæði lv, fjór-
ir. Svæði lv er ódýrt tilraunsvæði
neðan aðalsvæðisins. Þar var sett
sleppitjörn í fyrra og eru komnar
fyrstu vísbendingamar um að fískur
skili sér þangað. Laxinn til þessa
hefur verið 4,5 til 7 punda. Silungs-
veiði hefur og verið góð og er at-
hyglisvert, að nokkrir urriðar sem
veiðst hafa á svæði 3 hafa verið
stærri en stærstu laxamir, má
nefna 13, 10 og 8 punda fiskar.
Um 110 laxar hafa veiðst í Hofsá
og milli 50 og 60 í Selá. Veiðiskil-
yrði hafa verið til muna lakari í
Selánni og kemur það fram í afla-
tölunum. I báðum ánum hefur sést
talsvert af laxi í göngu og þama
eystra lofar byrjunin sannarlega
góðu. Stærstu laxarnir úr Hofsá
voru 18 pund, en stærst úr Selá
var 17,5 pund enn sem komið er.
Umræður um fjárhagsstöðu
borgarinnar áttu sér stað á borgar-
stjórnarfundinum bæði í tilefni af
skýrslu borgarritara um skulda-
stöðuna og við afgreiðslu borgar-
reiknings fyrir árið 1992. Kristín
Á. Ólafsdóttir, Nýjum vettvangi,
sagði meðal annars, að áætla mætti,
að heildargreiðslur borgarinnar
vegna skuidasöfnunar yrðu á milli
1.300 og 1.400 milljónir króna árin
1995 og 1996, en það væri um 11%
af áætluðum tekjum á þessu ári.
Hún sagði þessa skuldastöðu hrika-
lega og bætti við, að orsakanna
væri að miklu leyti að ræða í
óábyrgri fjármálastjóm sjálfstæðis-
manna á síðasta áratug.
Siguijón Pétursson, Alþýðu-
bandalagi, sagði að fjárhagsstaða
borgarinnar færi stöðugt versnandi
og nálgaðist nú óðfluga hættumörk.
Þeir, sem kjörnir yrðu tii að fara
með stjóm borgarinnar á næsta
kjörtímabili, þyrftu að horfast í
augu við gríðarlegan fortíðarvanda,
auk þeirrar efnahagslegu lægðar
sem þjóðfélagið væri nú í.
Nettóskuldir 25% af
skatttekjum
Borgarstjóri sagði fullyrðingar
um að skuldastaða Reykjavíkur-
borgar nálgaðist hættumörk fráleit-
ar. Nettóskuldir árið 1992 hefðu
numið tæplega 25% af skatttekjum,
en samkvæmt mati félagsmála-
ráðuneytisins teldist viðunandi, ef
þetta hlutfall næmi 50% af tekjum
sveitarfélags. Ráðuneytið teldi
hæt.tumörkin liggja nálægt 80%.
í máli borgarstjóra kom einnig
fram, að nettóskuldir borgarinnar
á hvern íbúa væm um 26 þúsund
krónur. Til samanburðar mætti geta
þess, að Hafnarfjarðarbær skuldaði
um 48 þúsund krónur á hvern íbúa
en Kópavogsbær um 94 þúsund
krónur. Ef litið væri til annarra
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu kæmi í ljós, að aðeins í Garðabæ
væru skuldir á hvern íbúa lítið eitt
minni en í Reykjavík.