Morgunblaðið - 25.09.1993, Qupperneq 1
56 SIÐUR LESBOK/C
STOFNAÐ 1913
217. tbl. 81. árg.
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Aðskilnaðarsinnar í Abkhazíu ráðast inn í Sukhumi, höfuðborg héraðsins
„ Við berjumst við málaliða,
þungvopnaða morðingja“
- sagði Shevardnadze í tilfinningaþrungnu
ávarpi ur byrgi sínu til georgísku þjóðarinnar
Tbilisi. Reuter.
UPPREISNARMENN í Abkhazíu hófu í gær stórsókn gegn Sukh-
umi, höfuðstað héraðsins, og var barist hús úr húsi í úthverfunum.
Hafa þeir setið um borgina í viku en Edúard Shevardnadze, leið-
togi Georgíu, hefur stjórnað vörn stjórnarhersins, sem er mjög illa
búinn vopnum. I gær lýsti hann yfir, að borgin yrði einungis varin
með allsherjarherútboði Georgíumanna. Zviad Gamsakhurdia, fyrr-
um forseti, sem rekinn var frá völdum og hefur barist gegn núver-
andi stjórn, sneri í gær heim úr útlegð til að berjast með sínum
mönnum við hlið stjórnarhersins. Hann hvatti jafnframt Shev-
ardnadze til að segja af sér.
Að sögn talsmanns varnarmála-
ráðuneytisins í Georgíu var barist
hús úr húsi og um hveija götu í
úthverfum borgarinnar en her-
sveitir aðskilnaðarsinna ráða yfir
mjög fullkomnum vopnabúnaði og
hefur sú staðreynd raunar orðið
til þess að vekja grunsemdir um
að rússneskir hermenn berjist við
hlið þeirra. Öil þungavopn stjórnar-
hersins voru hins vegar flutt frá
borginni í samræmi við skilmála
vopnahlés, sem um 'samdist fyrir
nokkru en abkhazísku uppreisnar-
mennimir rufu það fyrir rúmri
viku.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
fordæmdi í gær sókn uppreisnar-
manna, hvatti þá til að halda
vopnahléssamninginn og lét í ljós
stuðning við Shevardnadze.
„Munum verja Sukhumi"
í útvarpsávarpi, sem Shev-
ardnadze flutti þjóðinni frá Sukh-
umi, sagði hann, að ástandið væri
sérlega alvarlegt. „Nú er barist á
götum Sukhumi,“ sagði hann. í
frétt útvarpsins var þess getið að
Shevardnadze. hefði flutt ávarpið
úr byrgi sínu í borginni og að hann
hefði nýtt sér senditæki í eigu
hersins. Hann sagði að varnar-
sveitir Sukhumi berðust nánast
berhentar gegn sveitum Abkhaza.
Hann ítrekaði raunar að ekki væri
einungis um aðskilnaðarsinna að
ræða í röðum óvinarins. „Flestir
eru þeir málaliðar, þungvopnaðir
morðingjar. Við beijumst til síð-
asta blóðdropa. Við munum veija
Sukhumi sem sönnum föðurlands-
vinum og sonum föðurlandsins
sæmir,“ sagði Shevardnadze, sem
var utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna í valdatíð Míkhaíls S. Gorb-
atsjovs.
Talsmaður vamarmálaráðu-
neytis Georgíu sagði, að upp-
reisnarmenn hefðu brotist í gegn-
um varnir stjórnarhersins á nokkr-
um stöðum samstímis í gær og að
þeir hefðu tekið nokkrar byggingar
í úthverfum borgarinnar á sitt vald.
„Þetta er þung sókn. Bardagarnir
eru mjög harðir. Sveitir okkar veita
öfluga mótspyrnu," sagði þessi við-
mælandi Jíeuíers-fréttastofunnar.
Liðsauki á leiðinni
Hann gat þess einnig að sveitir
stjómarhersins væru að reyna að
ná valdi á flugvellinum við Adzu-
bzha, sem er um 16 kílómetra suð-
ur af höfuðborginni. Aðskilnað-
arsinnar sitja um Adzubzha en liðs-
auki frá Georgíu hefur brotið sér
leið til bæjarins. Talið hefur verið
að 300 til 500 manns hafí fallið í
bardögum vikunnar í og við Sukh-
umi og borgin er víða í rústum
eftir sprengjuárásir aðskilnaðar-
sinna.
Reuter
í rústum Sukhumis
EDÚARD Shevardnadze, leiðtogi Georgíu, innan um húsarústir í
Sukhumi, höfuðstað Abkhazíu. Myndin var tekin eftir sprengjuárás-
ir á borgina fyrr á árinu en þá voru meira en 600 hús eyðilögð og
107 manns féllu. Zviad Gamsakhurdia, fyrrverandi forseti, sneri í
gær heim úr útlegð til að taka þátt í vörnum Sukhumis með stuðn-
ingsmönnum sínum. Hann segist enn vera löglegur forseti Georgíu
og vill að Shevardnadze segi þegar af sér embætti.
Afríska þjóðarráðið
Vilja aflétta
viðskipta-
þvingfunum
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
NELSON Mandela, leiðtogi
Afríska þjóðarráðsins (ANC),
hvatti í gær til þess í ræðu á
allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna að viðskiptaþving-
unum gegn Suður-Afríku
yrði aflétt. Öldungadeild
Bandaríkjaþings ákvað þeg-
ar að verða við ósk Mandela.
Fjármálaráðherrar ríkja
breska samveldisins, sem luku
í gær tveggja daga fundi á
Bahama-eyjum, ákváðu að af-
létta þvingunum þar sem búið
væri að tryggja atkvæðisrétt
svartra S-Afríkumanna.
Mandela sagði þó að enn
bæri að halda í gildi vopnasölu-
banni gegn Suður-Afríku og
banni við sölu á kjamorkutækni
þar til að ný ríkisstjórn allra
kynþátta hefði verið mynduð.
Suður-afríska þingið sam-
þykkti í gær lög sem staðfesta
full mannréttindi svertingja í
landinu.
Þrátefli í deilum Borís Jeltsíns Rússlandsforseta og þingsins
Úrvalssveitir landhersins
reiðubúnar við þinghúsið
Reuter
í viðbragðsstöðu
HERMENN bíða átekta í grennd við húsakynni rússneska þingsins.
^ Moskvu. Frá Lárusi Jóhannessyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter.
ÚRVALSSVEITIR rússneska hersins, spetsnats, umkringdu í gær Hvíta
húsið, aðsetur þingsins, í Moskvu og borgaryfirvöld rufu rafmagnið
svo að (jóslaust varð í húsinu. Alexander Rútskoj, sem þingmenn út-
nefndu forseta í stað Borís Jeltsíns, sást fálma sig áfram með vasaljós
í hendi. Síðar tókst þó að gangsetja Ijósavél. Heldur fækkaði í röðum
stuðningsmanna þingsins utan við húsið í gær en nokkur þúsund manns
voru þar í gærkvöldi og enn ríkir mikið taugastríð í landinu.
Jeltsín hefur skipað her og lög-
reglu að afvopna öryggisverði í Hvíta
húsinu en jafnframt ítrekað að ekki
verði beitt ofbeldi við að bijóta and-
stöðuna á bak aftur. Hann hefur
einnig heitið því að þingmenn haldi
launum sínum og íbúðum í Moskvu
fram að kosningum í desember.
Enn ekki fundafært
Nokkuð mun enn skorta á að
nægilega margir þingmenn séu
mættir til að fulltrúaþingið geti tekið
úrslitaákvarðanir. Þingmenn hafa
samt staðfest brottvikningu Jeltsíns
úr embætti. Tillögu um að Rúslan
Khasbúlatov þingforseti léti af störf-
um var hafnað eftir að Rútskoj kom
honum til varnar. Hann sagði að slík
hugmynd væri fjarstæða við þessar
aðstæður. Rútskoj sagðist einnig
mjög óánægður með verði þingsins,
sagði þá drykkfellda mútuþega.
Ekki kom til alvarlegra átaka við
lögreglu og herlið Jeltsíns í gær en
spetsnats-sveitirnar munu hafa not-
að kylfur til að ryðja sér braut i
gegnum manníjöldann, margir hróp-
uðu að þeim ókvæðisorð.
Sjá fréttir á bls. 18.