Morgunblaðið - 25.09.1993, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 25.09.1993, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 11 20 ára afmæli Oidrunar- fræðafélags Islands á ári aldraðra í Evrópu Grein I eftír Onnu Birnu Jensdóttur Öldrunarfræðafélag íslands var stofnað fyrir 20 árum í kjölfar fyrsta norræna vísindaþingsins í öldrunarfræðum í Danmörku í júní 1973. Yfirlæknamir Alfreð Gísla- son og Þór Halldórsson sóttu þing- ið í boði deildar innan Danska læknafélagsins og voru á þinginu báðir kosnir í stjóm Norræna öldr- unarfræðafélagsins. í framhaldi af þessari ferð stofnuðu þeir ásamt öðmm áhugamönnum um öldrun- armál Öldrunarfræðafélag ís- lands. Fyrsti formaður félagsins var Gísli Sigurbjömsson forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Félagið hefur á þessum áram einkum þróast í að vera vettvang- ur fólks sem hefur menntað sig til starfa innan öldrunarþjónustu. Hér verður lýst markmiðum fé- lagsins varðandi fræðslumál og öldranarrannsóknir ásamt þróun þessarra málaflokka síðastliðin 10 ár. Markmiðum félagsins varðandi málefni aldraðra, sérstaklega vist- unarmál aldraðra og þróun síðast- liðin 10 ár verður lýst í annarri grein. Fræðslumál Eitt aðalmarkmið félagsins er að vinna að aukinni fræðslu um öldranarrannsóknir og þar með öldrunarfræði, jafnt á faglega sviðinu sem meðal almennings. Þetta er sá liður sem hæst stendur í starfsemi félagsins og á það eink- um við hvað snertir fræðslu starfs- manna innan öldrunarþjónustu og til almennings. Síðastliðin 20 ár hefur félagið staðið fyrir náms- og ráðstefnum um þau málefni í öldrunarmálum sem efst eru á baugi hverju sinni, sjá yfírlit í töflu 1, ásamt fjölmörgum félagsfund- um. í því skyni hafa bæði verið fengnir innlendir og erlendir sér- fræðingar í öldranarfræðum til að miðla af þekkingu sinni til félags- manna og annarra áhugamannna um öldranarmál í ræðu og riti. Á tíunda afmælisári Öldrunarfræða- félagsins 1983 kom fyrsta tölublað fréttabréfsins Öldranar út. Helsta efni Öldranar hefur alla tíð verið fréttir af félagsstarfi og miðlun fróðleiks og nýrrar þekkingar þannig að sem flestir eigi kost á að hagnýta sér það í starfi innan öldrunarþjónustunnar. Framlag einstaklinga hefur þar verið ómet- anlegt og þeir óþreytandi að miðla frá sér er sótt hafa fræðileg þing erlendis. Af námstefnum félagsins hing- að til ber hæst þat^ tvö norrænu þing sem haldin hafa verið hér á landi, hið fyrra sem haldið var 1981 var 5. norræna öldrunar- fræðaþingið haldið í Reykjavík. Síðara þingið var haldið árið 1990 sem var 10. norræna öldrunar- fræðaþingið, haldið í Reykjavík. Á þingum sem þessum eru saman komnir mörg hundruð fræðimenn og starfsmenn í öldrunarþjónustu til að miðla af nýjustu þekkingu, læra nýjar aðferðir og öðlast skiln- ing á fyrirbæram sem áður vora torskilin. Markmiðið er að bæta þjónustu við aldraða á öllum stig- um öldrunarþjónustu. Erindi sem flutt voru á þinginu 1981 vora birt sem fylgirit Læknablaðsins. Öldrunarfræðafélag íslands myndar ásamt Félagi íslenskra öldrunarlækna og systurfélögum i n AR ALDRAÐRA í EVRÓPU 1993 sínum á Norðurlöndum Norræna öldranarfræðafélagið „Nordisk Gerontologisk Forening". Síðan 1991 hafa þessi samtök gefið út „Gero-Nord“ fréttabréf um það sem efst er á baugi innan öldrun- arfræða á Norðurlöndum. í tilefni af 20 ára afmæli Öldrunarfræðafélags Islands og ári aldraðra 1993 verður vísinda- þing á Hótel Loftleiðum 24. og 25. september. Meginefni þingsins er endurhæfíng aldraðra og heila- bilun. Ásamt fjölmörgum íslensk- um framsögumönnun verða er- lendir gestafyrirlesarar þau Pro- fessor Margarethe Lorensen við hjúkrunardeildina við Óslóarhá- skóla og Dr. Knut Engedal yfir- læknir öldrunarlækningádeildar- innar við Ullevál sjúkrahúsið í Ósló. Öldrunarrannsóknir Annað aðalmarkmið félagsins er að styðja hvers konar rannsókn- ir á fyrirbæram öldranar, öldran- arsjúkdómum og félagslegum og fjárhagslegum vanda aldraðs fólks. í þessu skyni stofnsetti félagið Vísindasjóð Öldrunarfræðafélags íslands 22. mars 1984. Stjórn sjóðsins skipuðu frá upphafi Þór Halldórsson, læknir, Ásta Möller, hjúkranarfræðingur og Geirþrúð- ur Hildur Bernhöft, ellimálafull- trúi. Við fráfall Geirþrúðar kom Sigríður Jónsdóttir, félagsfræð- ingur, í stjórnina. Stofnfé sjóðsins var rekstrarafgangur af 5. nor- ræna öldranarfræðaþinginu sem haldið var á vegum félagsins í Reykjavík 1981. Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands og Öldrunar- fræðafélag íslands hafa síðan bætt rausnarlega við höfuðstól sjóðsins. Samkvæmt skipulags- skrá sjóðsins er veitt úr honum árlega. Vísindasjóður styrkti árið 1986 gerð heimildasöfnunar um öldrunarmál á íslandi, sem unnin var að frumkvæði Öldrunarfræða- félags íslands af bókasafnsfræð- „Framtíðarsýn innan öldrunarrannsókna er stofnun sérstakrar rannsóknarstofu í öldr- unarfræðum. Slík starf- semi er víða í ná- grannalöndunum, og kemur að gagni við rannsóknir á fyrirbær- um öldrunar, öldrunar- sjúkdómum, ásamt fé- lagslegum og fjárhags- legum vanda aldraðs fólks.“ ingunum Sigrúnu Hannesdóttur og Ásgerði Kjartansdóttur frá Rannsóknarstöð í bókasafnsfræð- um við Háskóla íslands. Styrkþeg- ar 1988 vora læknamir Jón Eyjólf- ur Jónsson og Gunnar Baarrega- ard vegna afturvirkrar rannsóknar á afdrifum aldraðra sjúklinga frá dagspítala á árunum 1985-1986. Árið 1989 fékk Guðjón Axelsson styrk úr sjóðnum vegna rannsókn- arverkefnisins „Breytingar á tann- heilsu íslendinga árið 1985-2000“ og annars áfanga rannsóknarinn- ar „Tannheilsa íslendinga árið 1990“. Tilgangur þessarar rann- sóknar var m.a. að afla upplýsinga um hve gamalt fólk er þegar það missir tennur sínar og tími tann- leysis eftir aldri. Árið 1990 fékk hópur hjúkrunarfræðinga, þær Ásta Möller, Margrét Gústafsdótt- ir, Rannveig Þórólfsdóttir, Sigríð- ur Snæbjörnsdóttir og Vilborg Ingólfsdóttir, styrk til hönnunar mælitækis til að meta hjúkrunará- lag á öldrunarstofnunum og hjúkr- unarþörf aldraðra. Áriðl991 hlutu Þorkell Jóhannesson, Jón Snædal, Elín Ólafsdóttir og Jón Eyjólfur Jónsson styrk til rannsóknar á áhrifum nikótíns á Alzheimer sjúk- dóm. Engin umsókn barst sjóðnum 1992. Framtíðarsýn innan öldrunar- rannsókna er stofnun sérstakrar rannsóknarstofu í öldranarfræð- um. Slík starfsemi er víða í ná- grannalöndunum og kemur að gagni við rannsóknir á fyrirbæram öldranar, öldrunarsjúkdómum, ásamt félagslegum og fjárhags- legum vanda aldraðs fólks. Tölu- vert hefur áunnist í menntunar- málum, m.a. má nefna að nýlega var samþykkt sérstök prófessor- staða í öldrunarhjúkran við Há- skólann á Akureyri og vonir standa til að kennslustaða í öldr- unarlækningum fáist innan lækna- deildar Háskóla íslands. Sérstök námskeið hafa verið á vegum Endurmenntunarstofnunar Há- Anna Birna Jensdóttir skóla íslands í öldrunarfræðum og á fjölbrautastigi er boðið upp á framhaldsnám fyrir sjúkraliða í öldranarhjúkrun. Námskeið í umönnun aldraðra eru í boði fyrir Sóknarstarfsfólk. Lykillinn að bættri öldrunarþjónustu er gegn- um aukna menntun og þekkingu til hagnýtingar í starfi. Yfirlit um nám- og ráðstefnur Öldrunarfræðafélags íslands 1983-1993 1993. Vísindaþing 24. og 25. september um endurhæfingu aldr- aðra og heilabilun. 1992. Námstefna 28.október EIGINAMIÐLUNIN "e Sbuí 67-90-90 • Síðmnúla 21 -Áliyrg þjoiui'la í áratugi. t S»rrrir Krrilin.«m. «>lwlj<in • iNirtrifur l.iHlniunil—<m. vilura. iNiriJfur iUI.I«.r~.m. I.nrfr. • l,i..\m.m.l..r SúmrjimMm. U«fr. Sjávarlóð - Seltjnesi: Vorum að fá í einkasölu eina örfárra óbyggðra sjávarlóða á sunnanverðu Seltjarnarnesi. Lóðin sem 946 fm er afar vel staðsett á fögrum útsýnis- stað við Hrólfsskálavör. 3425. Kópavogur - Vestur- bær: Vorum að fá í sölu 164 fm tvíl. einbhús á 1200 fm gróinni lóð við Huldubraut. Áhv. húsbr. 4,5 millj. Hagst. verð. 3406. Kópavogsbraut: Rúmg. og falleg 140 fm neðri sórhæð auk bílsk. um 27 fm. Húsið stendur ofan við götu og er mjög gott útsýni til suð- urs. 3441. Rekagrandi: Falleg og björt 100 fm 4ra herb. íb. á 2. hæð. Tvenn- ar svalir. Flísalagt bað. Parket. Vand- aöar innr. Stæði í bílgeymslu. Áhv. 1,8 millj. byggsj. Verð 9,1 millj. 3291. Flúðasei: 4ra herb. íb. á 1. hæð. Suðursvalir. íb. skiptist m.a. í stofu og 3 herb. Fallegur garður. Leiktæki fyrir börn. Malbikuð bíla- stæði. Verð 6,9 millj. 2773. Hagamelur: Mjög falleg.3ja herb. íb. á 3. hæð í góðu nýl. fjölb. Parket á stofu og holi. Góðar innr. Mjög góð eign. Skipti á góðri ein- staklíb. eða 2ja herb. íb. í blokk mögul. Verð 6,8 millj. 3442. Austurströnd: 2ja herb. 63 fm glæsil. íb. á 7. hæð. Stórbrotið útsýni. Þvherb. á hæð. Bílgeymsla. Áhv. 1,9 millj. Verð aðeins 6,3 mlllj. 3160. Boðagrandi: 2ja herb. björt og vönduö íb. á jarðhæð. Ákv. sala. Verð 5,5 millj. 3176. -Al*> rg |)j<jiHi>ta i áratngi. t Snrir knJmxiii. riihMjnri • ISirk-ifur (lin ISmJfur l(alkl»r~<Hi. luefr. • l.inkmmiliir « um „Dettni meðal aldraðra“. Námsstefna 20. maí um „Þung- lyndi hjá öldruðum“. 1991. Námstefna 23. maí um „Líkn við lífslok“ Námstefna októ- ber um „Hafa aldraðir sérþarfír“. 1990 10. Norræna. ráðstefnan í öldrunarfræðum (10 NKG) í Reykjavík 27.-30. maí. 1987. Námstefna 10. maí um „Parkinsonveiki meðal aldraðra“. Ráðstefna 27. febrúar í samvinnu við fræðslunefnd Læknafélaganna um „Óskir og þarfir í öldranar- þjónustu“ Gestafyrirlesari Pro- fessor Hali. 1986. Námstefna 20. nóvember um „Þvagleka meðal aldraðra“. Ráðstefna í samvinnu við Iðju- þjálfafélag íslands og Félags eldri borgara 15. apríl um „Námshópa fyrir ellilífeyrisþega“ fyrirlesari Ulla-Britta Gregersen. Ráðstefna 21. febrúar um „Stofnanaþjónustu fyrir aldraða á Stór-Reykjavíkur- svæðinu“. 1984. Ráðstefna 30. mars um „Organizing Geriatric Services“ fyrirlesari Dr. G. Evans. Ráðstefna 18. febrúar um „Öldrunargeð- lækningar“. Gestafyrirlesari Dr. K. Bergmann. 1983. Ráðstefna 16. maí um „Innlagnir af félagslegum ástæð- um á Oldrunarlækningadeild". Höfundur er hjúkrunarfræðingur og formaður Oldrunarfræðafélags íslands. Eignahöllin SuAurlandsbraut 20,3. KæA. Sími 68 OO 57 Opið kl. 9-18 virka daga. ATH. opið í dag laugard. kl. 11-14. Faxnr. 91-680443 FANNAFOLD - EINB. 180 fm ásamt 35 fm bílsk. Eign m. óvenju góðu útsýni á þessum góða stað. Miklir mögul. Uppl. veitir Helgi Ásgeir á skrifst. KLETTAQATA - HF. - EINBÝLI Faliag elnb., 207 fm ásamt 42 fm innb, bilsk. á þassum vinsaela stað. Nýtt eldh.- arinn f stofu og 4-5 herb. é 2. hæð. V. t6,5 m. LINDASMARI - RAÐH. Glæsil. raðh. ( smíðum í Kóp. Teikn. á skrifst. Hagst. kjör. Skipti mögul. GRENIMELUR - HÆÐ 111,9 fm sórh. + 30 fm bílsk. í fjórb. á þessum eftirsótta stað í Vesturbænum. Ath. verð 9,5 millj. KAPLASKJÓLSV. - 3JA Glæsil. ca 69 fm íb. á 2. hæð. Nýjar flísar á stofu. Nýtt bað. Suðursvalir. m., flísum. Skipti á minni eign koma til greina. Áhv. 1,2 millj. Laus. ENGIHJALLl - 2JA í einkasölu mjög snyrtil. 64 fm íb. í góðu fjölb. Suðvestursv. SOGAVEGUR - 2JA Snotur 48 fm íb. á jarðhæð m. sérinng. í þríbhúsi. Endurn. rafm. og hitalögn. Parket á gólfum. Góðar innr. V. 4,3 m. VANTAR EIGNIR í MAKASKIPTUM Helgl Ásg. HarAarson, sölustj., Slmon Ólason, hdl., lögg. fastsall, Hilmar Viktorsson, vlðskfr., Krlstín Höskuldsdóttir, Sigríður Arna, ritarar. vildir þú vera án þess? ISLENSKiR BÆNDUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.