Morgunblaðið - 25.09.1993, Side 12
12
MORGUNBLAÐIP LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffisala
Safnaðarfélags Ásprestakalls eftir
messu. Kirkjubíllinn ekur. Árni Berg-
ur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Foreldrar hvattir til þátttöku í
vetrarstarfinu. Guðsþjónusta kl. 14.
Einsöngur Guðrún Jóhanna Jóns-
dóttir. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messá kl. 11. Prest-
ur sr. Hjalti Guðmundsson. Dóm-
kórinn syngur. Organisti Marteinn
H. Friðriksson. Barnastarf í safnað-
arheimilinu á sama tíma í umsjá sr.
Maríu Ágústsdóttur.
GRENSÁSKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Yngri barnastarf á
neðri hæð. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Prestur sr. Gylfi Jónsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu-
stund kl. 10. Um Pál postula. Sr.
Sigurður Pálsson. Barnasamkoma
og messa kl. 11. Altarisganga. Sr.
Karl Sigurbjörnsson. Kirkja heyrnar-
lausra: Dagur heyrnarlausra.
Messa kl. 14. Sr. Miyako Þórðar-
son.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Hámessa kl. 11.
Sóknarprestur sr. Arngrímur Jóns-
son og organisti dr. Orthulf Prunner
kveðja söfnuðinn.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Flóki Kristinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Kór
Langholtskirkju (hópur 1) syngur.
Kaffisopi eftir guðsþjónustu. Barna-
starfið hefst kl. 13 í umsjá Hauks
Jónssonar og Jóns Stefánssonar.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Ronald Turn-
er. Sr. Jón D. Hróbjartsson. Barna-
starf á sama tima í umsjá Þórarins
Björnssonar. Fundur með foreldr-
um fermingarbarna eftir guðsþjón-
ustu. Heitt á könnunni eftir guðs-
þjónustu.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Munið kirkjubílinn. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir. Organisti Hákon
Leifsson. Takið Biblíuna með.
Barnastarf á sama tíma. Umsjón
Eirný Ásgeirsdóttir og Bára Frið-
riksdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Altarisganga. Fermdur verð-
ur Hjalti Skagfjörð Svavarsson,
Klukkurima 25. Organisti Sigrún
Steingrímsdóttir. Barnaguðsþjón-
usta í Árbæjarkirkju, Ártúnsskóla
og Selásskóla kl. 11. Sr. Guðmund-
gr Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 og 14. Organisti Daníel
Jónasson. Fundur með foreldrum
fermingarbarna að guðsþjónustu
lokinni. Samkoma Ungs fólks með
hlutverk kl. 20.30. Sr. Gísli Jónas-
son.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
Guðspjall dagsins:
(Lúk. 7). Sonur ekkj-
unnar í Nain.
þjónusta kl. 11. Prestur dr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson héraðsprestur. Org-
anisti Lenka Mátéová. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Umsjón hafa Guð-
rún og Guðmundur. Prestarnir.
GRAFARVOGSSÓKN: Fjölskyldu-
og barnaguðsþjónusta kl. 11. í Fé-
lagsmiðstöðinni Fjörgyn. Guðfræði-
nemar aðstoða. Nýr sunnudags-
póstur. Organisti Sigurbjörg Helga-
dóttir. Vigfús Þór Árnason.
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Foreldrar eru hvatt-
ir til að fylgja börnum sín til þátt-
töku í guðsþjónustunni. Organisti
Kristín G. Jónsdóttir. Kristján Einar
Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Fyrsta
samvera barnastarfsins verður í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Ath. breyttan messutíma.
Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
héraðsprestur. Sr. Þorbergur Krist-
jánsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
ÓHÁÐI söfnuðurinn: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Smári Ólason. Þór-
steinn Ragnarsson, safnaðarprest-
ur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta
kl. 14. Orgelleikari Pavel Smid. Cec-
il Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa
kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugar-
daga messa kl. 14 og ensk messa
kl. 20. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
KFUM/KFUK, SÍK: Almenn sam-
koma kl. 20.30. Upphafsbæn og
frásögn af starfi Gídeon-hreyfingar-
innar hefur Sigurbjörn Þorkelsson.
Ræðumaður: Ragnar Gunnarsson,
kristniboði. Einsöngur: Laufey Geir-
laugsdóttir.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11. Alla rúmhelga daga messa
k| 13 30
HVÍTASÚNNUKIRKJAN Fíladelffa:
Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðu-
maður Hafliði Kristinsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Helgunar-
samkoma kl. 11 og sunnudaga-
skóli. Hjálpræðissamkoma kl. 20.
Majór Reidun og Káre Morken
stjórna og tala.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma sunnudag kl. 17. Ræðumaður
Ólafur Vigfússon. Öllum opið.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnamessa kl.
11. Guðsþjónusta í Hrafnistu kl. 13
og í Víðistaðakirkju kl. 14. Sigurður
Guðmundsson prédikar. Ólafur Jó-
hannsson tekur við þjónustu í
námsleyfi sr. Sigurðar Guðmunds-
sonar. Sóknarnefnd.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskólastarfið hefst í kirkjunni kl.
11. Skólabíllinn fer ferð um bæinn
eftir sunnudagaskólann. Guðsþjón-
usta kl. 14. (Ath. breyttan tíma).
Vænst er þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra. Organisti Helgi
Bragason. Kirkjukórinn syngur. Þór-
hildur Ólafsdóttir og Gunnþór Inga-
son.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti kl. 14. Órganisti
Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir. Kaffiveit-
ingar í safnaðarheimilinu að lokinni
guðsþjónustu. Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11 árdegis. Munið skólabíl-
inn. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.
Vænst er þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra. Sóknarprestur.
MOSFELLSPRESTAKALL: Messa í
Lágafellskirkju kl. 14. Barnastarf í
safnaðarheimilinu kl. 11. Jón Þor-
steinsson.
HVALSNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Fermingarbörn og foreldrar
þeirra eru hvattir til að koma og
taka þátt í helgihaldinu. Barn borið
til skírnar. Organisti: Ester Ólafs-
dóttir. Hjörtur Magni Jóhannsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Fermingarbörn og foreldrar
þeirra eru hvattir til að koma og
taka þátt í helgihaldinu. Messu-
heimsókn, sameiginleg máltíð: Fjöl-
skyldur lúterskra varnarliðsmanna
munu einnig koma í guðsþjón-
ustuna ásamt safnaðarprsti sínum.
Að henni lokinni verður komið sam-
an í Sæborgu þar sem kirkjugestir
geta komiö og borðað sameiginleg-
an hádegismat. Hugmyndin er sú
að fjölskyldur taki með sér einhvem
mat að heiman sem verður lagður
á sameiginlegt borð sem fólk deili
saman. Er hér kærkomið tækifæri
til að koma saman í tengslum við
guðsþjónustuna og eiga samfélag
við matarborðið. Hjörtur Magni Jó-
hannsson.
HRAUNGERÐISKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 13.30. Kristinn Ágúst Frið-
finnsson.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskól-
inn hefst sunnudag kl. 11 árdegis.
Börnin boðin velkomin ásamt for-
eldrum. Messa sama dag kl. 14.
Væntanleg fermingarbörn næsta
vors eru boðuð sérstaklega til mes-
sunnar ásamt foreldrum. Svavar
Stefánsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl.
14.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA, Hvols-
velli: Messa sunnudag kl. 14. Org-
anisti Gunnar Marmundsson.
Barnastarf vetrarins hefst laugar-
daginn 2. október nk. kl. 11. Sóknar-
prestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Almenn guðsþjón-
usta kl. 14. KFUM og K-unglingar
annast barnagæslu meðan á guðs-
þjónustu stendur. Molasopi í safn-
aðarheimili eftir messu.
HVAMMSTANGAKIRKJA: Kvöld-
messa sunnudag kl. 20.30. Kristján
Björnsson.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta í kirkjunni laugardag kl. 11.
Kirkjuskóli yngstu barnanna sama
dag í safnaðarheimilinu kl. 13. Fjöl-
skylduguðsþjónusta sunnudag kl.
14. Vænst þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra. Björn Jónsson.
DVALARHEIMILIÐ Höfði: Messa
sunnudag kl. 12.45. Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta verður í Borgarnes-
kirkju kl. 11.15. Árni Pálsson.
KVENNAKIRKJAN: Guðsþjónusta í
Borgarneskirkju sunnudag kl. 16.
Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédik-
ar. Birna Þorsteinsdóttir syngur.
Leikþáttur um byrðar lífsins.
Messukaffi.
3 ÓDÝRASTIR
Við vorum ódýrastir í fyrra
og erum það enn og ætlum
að vera það áfram.
í okkar myndatökum er innifaliö
að allar myndir eru stækkaðar og
fullunnar í stærðinni 13 x 18 cm
að auki 2 stækkanir 20 x 25 cm
og ein stækkun 30 x 40 cm í
ramma.
Verð frá kr. 12.000,oo
Gætum hvers við boröum,
íslenzkt lambakjöt á hvers
manns disk hreint og
ómengaö.
Ljósmyndastofan Mynd sími:
65 42 07
Barna og fjölskylduljósmyndir
sími: 677 644
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími: 4 30 20
Fallandi siðgæðismark
eftir sr. Kristján
Björnsson
Enn eitt áfallið hefur nú riðið yfir
sveitir þessa lands og þykir mér sem
kné sé látið fylgja kviði af hálfu
þeirra er hlífa skyldu. Heimili til
sveita eru enn dregin neðar í
greiðslumarki við ræktun búsmalans
og er það flöt og vægðarlaus skerð-
ing eins og áður hefur gerst. Á fólk
þetta samúð mína alla nú sem fyrr.
En það er ekki nóg með að þessi
þróun hafi sinn miskunnarlausa
gang. Stjórnmálamenn virðast vera
til í tuskið og beija á þeim sem þó
hafa orðið fyrir þrengingum. í sum-
ar og síðustu vikur hefur mælir
smekkleysunnar verið barmafylltur
og umfram það með málæði um
skinku og kalkúnakjöt. Ráðherrar
hafa spilað á ímyndaða skiptingu
þjóðarinnar í svokallaða neytendur,
annars vegar, og bændur, hins veg-
ar, rétt eins og hinir síðarnefndu séu
afætur en ekki réttnefndir útverðir
okkar á bjargræðistíð. Allra síst má
af umræðunni ráða að í þessum fylk-
ingum fínnist lifandi fólk og er þar
komið að kjarna máls míns.
Utanríkis- og viðskiptaráðherrar,
ýmist starfandi eða erlendis, hafa
síðustu vikur sparkað í bændur langt
undir mörkum almenns siðgæðis.
Skal hér ekki ráðist á sama hátt á
móti, enda virði ég manngildi nokk-
urs. Það grátlega er að útspörkin
virðast gerð af yfirlögðu ráði án
þess að það sé mitt að benda á það
í augnablikinu hvert markmið þeirra
er til lengri tíma litið. í þjóðmálaum-
ræðu nútímans hefur siðgæðismark-
ið verið lækkað og fellt um nokkra
hundraðshluta frá því sem áður var.
Er engu líkara en um flata skerð-
ingu sé að ræða því nógu margir
seilast nú niður á hið lægra plan og
atyrða bændur.
Enn vesælla er að horfa upp á
hversu margir dansa með þegar tog-
að hefur verið í dulda strengi. Það
gerist líkt og í múgsefjun að fjölmiðl-
ar tryllast í dansinum og gefa leik-
stjóranum orðið frítt og aukið vald.
Samúrajinn, hinn japanski stríð-
skappi, fær þá að vaða inn í þvög-
una með sverðin breið og spjótin
hvöss og höggva á báða bóga. Sá
sem miðlar okkur þessum atgangi
er í tímaþröng og skortir yfírvegað
sjálfstæði til að sjá að í þvögunni
er fjöldi gamalmenna, konur og
börn.
Bændur eru gott fólk, iðjusamir
og trúfastir sinni köllun að strita í
sveita síns andlits að ræktun góðra
stofna búfjár og afbrigða í grösum.
Þetta fólk er dæmalaust sanngjarn
hópur og tekur rökum af ábyrgð og
æðruleysi. Það er enda alið upp í
guðsótta og góðum sið og skýrir það
trúfesti og ábyrgð ráðsmennsku
þeirra yfir gæðum landsins. Þegar
menh koma fram og stíga á stokk
til áskorunar gegn þessari kjölfestu
byggðar hér á ysta hjara veraldar-
innar er það merki þess að bönd
trúmennskunnar hafa raknað upp á
endum.
Sóknarbörn mín eru að verulegum
hluta fjölskyldur bænda og fjölskyld-
ur er tengjast búskap á einn eða
annan hátt, enda erum við stödd í
nokkuð einlitu landbúnaðarhéraði í
Vestur-Húnavatnssýslu. Samfélagið
í kirkjunni er bændasamfélag, stöð-
ugt fyrir en yfírlætislaust. Þjónusta
mín er starf meðal þessa fólks og
er það köllun mín í þessu samhengi
að boða því fagnaðarerindið um rétt-
læti hins upprisna Jesú Krists á
„Bændur eru gott fólk,
iðjusamir og trúfastir
sinni köllun að strita í
sveita síns andlits að
ræktun góðra stofna
búfjár og afbrigða í
grösum.“
jörðu. Það felst í þessari köllun að
styðja fólk í erfíðleikum og þrautum
og benda á þá von sem í fagnaðarer-
indinu er fólgin. Því ergir það mig
er uppi vaða menn sem valda þessu
fólki mínu sársauka að óþörfu. Nógu
margt getur dunið yfír í tilverunni
þótt ekki sé hampað ómaklegum
árásum á heila stétt vinnandi manna.
Sjálfstæðir búmenn horfa nú í rétt-
um haustsins á minnkandi ljárstofn
í héraði, sem fyrir um tveimur ára-
tuenm státaði af helmimri stærra
safni en nú rennur framan af grö-
sugum heiðarlendum. Heimili hér til
sveita eru sum hver komin niður
fyrir framfærslumarkið, þótt enn sé
dregið úr greiðslum til bænda fyrir
heiðarlegt vinnuframlag. Dæmi eru
þess að heimili haldist uppi við sjálfs-
þurftabúskap og skilja allir hvað það
þýðir fyrir þjóðfélagið. Þótt greiðslu-
marki sé þrýst niður fyrir fram-
færslumörk leiðir það ekki af sér
hagræðingu. Það er ekki rétt að
reikna út ætlaða fækkun ársverka
fyrir heildina þegar skerðingin er
blind. Stjómlaus tilviljun hagar því
til að vel hýst höfuðból til sveita
getur lagst í eyði, en kotið og hjáleig-
an gamla eru setin. Gæti ég haft
um þróun þessa langt mál en stilli
mig hér. Samið er um stöðugt lak-
ari kjör til handa þessum heimilum.
Eru þau verri en þýddi að viðra í
samningum við almenna launþega
eða embættismenn, sem aðeins hafa
þurft að sætta sig við óbreytt laun
og sígandi kaupmáttarskerðingu um
misserabil. Leggist því ekki svo lágt
að ráðast ómanneskjulega að fólki
sem býr við ört minnkandi kost. Það
er andstætt boðun kirkjunnar, því
hveijum kristnum manni ber að
standa við hlið allra er eiga undir
högg að sækja. Vei þeim er hrakyrð-
ir ómaklega fulltrúa þeirra, sem
fætt hafa landslýðinn og klætt hann
frá upphafi byggða. Aumkunarverð-
ur er sá er þekkir ekki dyggðir hóg-
værðar og miskunnsemi en situr þó
á valdastóli. Drottinn blessi þá sem
eiga um sárt að binda og hjálpi þeim
að sjá fram á veg til manneskju-
legri tíma. Hann efli þá til að rétta
sinn hlut í náinni framtíð.
Höfundur er sóknarprestur á
Hvammstang-a ogritstjóri
Kirk,juritsins.