Morgunblaðið - 25.09.1993, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 25.09.1993, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 TVEIR SKÓLAR - EITT SAMFÉLAG Síðari grein um tvíburaskóla eftir Málfríði Gunnarsdóttir Tvíburaskólinn á Oppsal Haustið 1991 hóf starfsemi sína tvíburaskóli Oppsal í Ósló. Þarna er skólasamfélag heymarskertra og heymarlausra og heyrandi nem- enda. Þetta eru tveir sjálfstæðir skólar, sem hafa kosið að vinna saman á jafnréttisgrundvelli. Eðli sínu samkvæmt em þama tvö mál- umhverfi sem njóta jafnrar virðing- ar. Námskostur er sá sami í báðum skólunum og nemendur beggja skóla ljúka almennum grunnskóla- prófum, sem em þau sömu og í öðram grunnskólum Noregs. Það kann að koma einhveijum á óvart að ég undirstrika þetta, en því mið- ur hefur það ekki þótt sjálfsagt að heymarlaus böm lærðu það sama og aðrir eða tækju sömu próf. Það er í raun „feimnismál“, sem fólk þorir ekki almennilega að taka á, en heymleysingjaskóli sem fylgir að fullu almennri námskrá og próf- um hefur sérstöðu. Oppsal er gróið hverfi, þar er blönduð byggð, blokkir og sérbýli. Umhverfið er fallegt og aðlaðandi. „Tvíburamir", Vetland skóli (það nafn hlaut „skolen for hörsels- hemmede pá Ua“ í þessun ýja skóla- samfélagi) og Oppsal skóli, hafa til umráða stóra lóð og margar bygg- ingar. Flestar em þær einnar hæð- ar, margar smáar en nokkrar stór- ar. Á lóðinni er leikfimihús, sund- laug, allar nauðsynlegar sérgreina- stofur og skóladagheimili. Skólinn er byggður upp í eining- um. Hver aldursflokkur (frá báðum skólum) heldur til á ákveðnum stað á svæðinu. Hvor skóli hefur tvær kennslustofur til umráða fyrir hvem árgang. í dag em u.þ.b. 45 nemend- ur í árgangi almenna skólans og 6-10 í sérskólanum. Allar sér- greinastofur, salir, gangar og úti- vistarsvæði svo og skóladagheimili yngri bamanna em samnýtt af báð- um skólum. Allar stofur skólans, jafnt sér- greinastofur sem almennar kennslustofur, em sérstaklega út- búnar til að heymartæki og annar hjálparbúnaður nýtist heyrnar- skertum sem best. Svo er einnig um sali og sameiginleg svæði. Far- ið er eftir ströngustu kröfum um einangmn og dempun hljóðs. í kennslustofum almenna skólans er tónmöskvi (hljóðmögnun) á ákveðn- um stað í stofunni, þar sem Iýsing og staðsetning gagnvart kennara, bekkja og töflu er æskilegust. Ef heyrnarskertur/laus nemandi eða nemendur nýta sér kennslu með almenna skólanum, þá hefur þeim þegar verið valinn sá staður í stof- unni þar sem skilyrðin eru best. Mennt er máttur Markmið heyrnleysingjaskóla eiga að vera nákvæmlega þau sömu og almennra gmnnskóla. Sömu lög gilda fyrir báða og réttur nemenda til sömu eða sambærilegrar mennt- unar á að vera tryggður með lög- um. Þannig hefur það ekki alltaf verið. Lög um sérskóla vom felld úr gildi hér í Noregi árið 1975. Sérskólar höfðu fram að því verið sjálfráðir í eigin málum, hver bauk- aði með sitt og samræming var lít- il. Þetta kom sér illa fyrir nemend- ur. Undirbúningi þeirra fyrir fram- haldsnám var alvarlega ábótavant. Frá árinu 1975 sjáum við jákvæða og hraða þróun. Aukin þjóðfélags- þátttaka heyrnarlausra breytir við- horfum. Að mínu mati hefur einnig vantað upp á að væntingar til nem- enda væru raunhæfar. Það þótti og þykir jafnvel enn sjálfsagt að draga úr kröfum, einfaida námsefni, sleppa ýmsum námsgreinum o.s.frv. Ef heyrnarlausir ná góðu valdi á lesmáli og fá kennslu á tákn- máli eða með túlkun á slík einföld- un að vera nánast óþörf. Fullorðnir heyrnarlausir hafa liðið fyrir slíka „tillitssemi" og hafa á undanförnum áratugum víða um lönd barist fyrir betri menntun þessa hóps. Almennt er viðurkennt að heyrnarlausum sé mikilvægt að vera í sínum hópi og enginn efast um gildi táknmálsins. Menn deila þó enn um hvaða leið innan táknmáls eigi að velja; tákn- mál heymarlausra eða táknaða ensku, norsku o.s.frv. Þar hafa sennilega báðir nokkuð til síns máls. Skóli heyrnarlausra á að und- irbúa nemendur sína sem best und- ir virka þjóðfélagsþátttöku. Það gerir kröfur um fagleg gæði og félagslega þjálfun. Tvíburaskóla- hugmyndin hefur m.a. þróast til að geta betur mætt þessum kröfum. Nemendumir em málminnihluta- hópur í stærra samfélagi, þar sem jafnrétti og virðing á að ríkja. Kenn- arar við Vetland skóla hafa um langt árabil lagt metnað sinn í að veita nemendum sínum sömu menntun og aðrir gmnnskólanem- endur fá. Það krefst vinnusemi af nemendunum, sjálfsaga og vilja til að takast á við verkefnin. Þaðkrefst líka góðrar samvinnu við heimilin. Skólanum er mikið í mun að nem- endur verði félagslega sterkir, bæði í sínum hópi og utan hans. Aðstand- endur Vetland skólans óskuðu mjög eindregið eftir því að vera í nábýli við almennan skóla. Þeir telja mikil- vægt að tengjast heyrandi um- hverfi, þá lærast „norm“ samfélags- ins og það er jafn mikilvægt fyrir kennara sem nemendur. A þann hátt verður auðveldara að forðast áunna fötlun, þ.e. að nemendur verði ofverndaðir og geri ekki eðli- legar kröfur til sjálfs síns. Eitt aðal vandamál heyrnarlausra/skertra er að hópurinn er lítill og innbyrðis ólíkur. Tvíburaskólahugmyndin opnar leiðir til sveigjanleika, þar gefst nemendum kostur á að reyna sig með heyrandi jafnöldmm í frí- mínútum og í kennslu. - Ég hef lagt mikla áherslu á námskröfur. Það þýðir ekki að 6kól- inn „gleymi manneskjunni í faginu" Að virða alla á eigin forsendum gildir líka innan heymarskerta hópsins. Hægt er að víkja frá al- mennri námskrá fyrir einstaka nemendur eða hópa. Það hefur reyndar heyrt undantekningunni til í þessum skóla mörg undanfarin ár og stig heyrnarskerðingar er enginn mælikvarði á þörfína fyrir undanþágu. Það þarf að sækja sér- staklega um slíkt og foreldrar þurfa að vera því samþykkir. Sérskólar fyrir heyrnarlausa nýta sér þessa heimild, en mismikið. Að sjálfsögðu hafa minni námskröfur áhrif á hæfni og möguleika nemenda til framhaldsnáms og starfsvals. Að farar nýjar leiðir Tvíburaskólinn Oppsal á sér bar- áttusögu. Hann er byggður á þeim tímum þegar mikil endurskipulagn- ing er í sérkennslumálum og við- horf til fatlaðra eru að breytast. Til era þeir sem vilja enga breyting- ar á stöðu og rekstri sérskóla og- telja allar breytingar ógnun við sig eða sína. Hér vom öfl sem unnu gegn því að þessi skóli fengi.að sjá dagsins ljós. Það vom ekki þeir sem unnu við skólann eða áttu þar böm. Þessum fordómum var mætt með faglegri umfjöllun. Skólinn á Ila hafði lengi haft þörf fyrir betri að- stöðu. Hugmyndir um tvíburaskóla vöktu áhuga bæði fagfólksins og foreldranna. Eins og ég drap á í fyrri greininni, þá var búið að leggja mikla vinnu í undirbúning slíks skóla í Svíþjóð og danskir heyrnar- lausir hafa stutt hugmyndina. Fé hefur skort í Danmörku, en í Sví- þjóð var það ótti heymarlausra við að skólinn (Holmangen) yrði rekinn á forsendum heyrandi bama, sem réð mestu um að ekki varð af fram- kvæmdum (Skánland 91). Fagfólk- ið á Ila hafði trú á að hér væri fundin lausn sem uppfyllti þarfir heyrnarlausra og heyrnarskertra um sérkost ogblöndun. Vandamálið lá þá í því að tryggja, að þeirra hluti tvíburaskólans stæði vörð um þarfir heyrnarskertra og heyrnar- lausra. Með það að leiðarljósi kynnti fólk sér vel alla forsögu og þá reynslu, sem fengist hafði af rekstri sjálfstæðra deilda fyrir heyrnar- skerta/lausa í almennum skólum á Norðurlöndunum. Niðurstaða mik- illar og faglegrar vinnu var að berj- ast fyrir nýjum skóla, tvíburaskóla sem veitti heyrnarskertum og heyrnarlausum góðan námskost á eigin forsendum. Til að tryggja að skólinn næði þessum markmiðum vom strax í upphafi sett fram tvö gmndvallarskilyrði: Báðir skólarnir yrðu að spanna allan grannskólann, þ.e. 1. til 10. bekk. Þama yrðu tveir sjálfstæðir skól- ar með sjálfstæðar yfirstjómir sem ynnu á jafnréttisgrandvelli í sameiginlegu skólaumhverfi. Að þessum skilyrðum var gengið. Fagfólkið og foreldarnir stóðu sam- an og gengið var til móts við nýjan skóla með jákvæðu hugarfari og væntingum. í allri undirbúnings- vinnu hefur verið leitast við að taka mið af reynslu og sjónarmiðum allra samstarfsaðila. Skóli í mótun Á Oppsal er unnið brautryðjenda- starf. Skólinn vekur athygli víða um heim. Höfuðáhersla er lögð á góð mannleg samskipti og góðan námskost. Skólinn er í mótun. Hvernjg hann þróast mun framtíðin sýna. I lok fyrsta starfsárs var gerð könnun á vegum sérskólans. Sam- kvæmt henni eru börnin ánægð með skólann sinn, hann virðist standa vel undir því að vera skóli sem mætir nemendum á eigin forsend- um, veitir þeim öryggi og góðan skóladag. Byijunarörðugleikar hafa orðið mun minni en búast hefði mátt við. Eins og fram hefur komið er staðsetning á skólalóð háð aldri nemenda en ekki heyrn. Það er sem sagt ekki heymleysingjaskóli í öðr- um endanum og almennur skóli í hinum. Þetta skipulag hefur að mati kennara og foreldra gefið góða raun. Það auðveldar samskipti og samvinnu og í frímínútum dreifast bömin um skólalóðina við fjöl- Málfríður Gunnarsdóttir. „Það kann að koma ein- hverjum á óvart að ég undirstrika þetta, en því miður hefur það ekki þótt sjálfsagt að heyrnarlaus börn lærðu það sama og aðrir eða tækju sömu próf.“ breytta leiki. Fleiri möguleikar og fleiri fyrirmyndir hafa virkað mjög jákvætt á samskipti innan heyrnar- skerta/lausa hópsins. Kennarar verða mun minna varir við árekstra þeirra á milli í frímínútum og tog- streita og árekstrar milli heyrandi og heyrnarlausra er ekkert vanda- mál. Tvíburaskólinn gefur tvímæla- laust möguleika til náinnar sam- vinnu milli skólanna. Ekki er þar með sagt að best eða réttast sé að nýta alla möguleikana til fulls. / ákveðnum námsgreinum eða við ákveðnar athafnir getur reynst auð- velt að vinna saman, en það getur Iíka verið skynsamlegra að sleppa því í öðrum tilfellum. Það verður að vera mat hverju sinni. Sérskólinn þarf líka að stuðla að samkennd innan heyrnarlausa/skerta hópsins. Báðir hóparnir fá tækifæri til að átta sig á því sem er þeim sameigirí- legt og hvað skilur þá að. Að geta sett sig í spor annarra og metið þá að verðleikum er forsenda jafnrétt- is. Hvort tvíburaskóli verður góður skóli er háð þeim ytri aðstæðum sem yfirvöld búa honum og ekki síður því með hvaða viðhorfum og væntingum fagfólkið og nemend- urnir mæta til leiks. íslenskar aðstæður — íslensk lausn Á íslandi em örfá heyrnarlaus börn. Það skapar okkur sérstöðu og leggur þá ábyrgð á herðar stjórn- valda, fagfólks og foreldra að „gleypa ekki hráar“ hugmyndir frá útlöndum og yfirfæra á íslenskar aðstæður. Það sem getur verið raunhæft meðal milljónaþjóða þarf ekki að vera raunhæft eða reynast vel í fámenninu á íslandi. Þessi sérstaða okkar, • fámennið, fínnst mér sterkustu rökin gegn þeirri ráðstöfun, að heyrnarlausu börnin fái skólakost án tengsla við almenn- an skóla. Fagfólk á ekki að hafa vald eða leyfi til að „stýra“ ákveðn- um hópi nemenda inn í afmarkað samfélag og velja þannig fyrir þeirra hönd. I litlu þjóðfélagi verður eini skóli sinnar tegundar að halda öllum leiðum opnum. Nemendum og foreldmm, fyrir hönd barna sinna, verður að mæta með sveigj- anleika. Hvert barn á að fá tæki- færi til að þroskast í samræmi við persónuleika sinn og forsendur. Það er ekki annarra að velja hvaða sam- félagi/félögum einstaklingurinn til- heyrir eða hvaða vini hann eignast. Heymarlaus börn eiga rétt á að fá tækifæri til að kynnast bæði samfé- lagi heymarlausra og samfélagi heyrandi með þeim stuðningi sem þeim er nauðsynlegur. Á þann hátt einan hafa þau val. Ég efast ekki um að heymarlausu börnin velja heymarlausa vini, en ég tel líka víst að eðlileg samskipti við heyr- andi börn auðgi líf þeirra, og að mörg þeirra kjósi að velja sér vini úr báðum hópum. Ég heffært rök fyrir því í þessum skrifum mínum að ég tel tvíbura- skóla geta fullnægt kröfunni um táknmálsumhverfi, ytra og innra öryggi, félagslega aðlögun ogjafn- rétti. Ekki er það með sagt að ís- lenskur tvíburaskóli eigi eða geti verið að skipulagi eins og skólinn á Oppsal. Ymsar aðstæður hafa áhrif á það. Við getum notið góðs af þeirri reynslu og þeirri faglegu vinnu sem þarna hefur verið unnin. Frændur vorir Norðmenn hafa á þessu sviði miklu að miðla. íslenska útgáfu af tvíburaskóla verðum við sjálf að móta. Höfundur er foreldri tveggja. heyrnarlausra barna, kennari með framhaldsnám í sérkennslu m.a. heyrnieysingjakennslu ogstarfaði við Heymleysingjaskólann í áratug. Húðlæknir Hef hafið störf að nýju. Tímapantanir í Læknastöð Vesturbæjar, Melhaga 20-22, sími 628090 frá kl. 10-17. Helga Hrönn Þórhallsdóttir, sérgrein: Húð- og kynsjúkdómar. HÁSKÓLI ÍSLANDS ENDURMENNTUNARSTOFNUN ARÐSEMI FJARFESTINGA FORYSTA OG STJÓRNUN: Fjárfestingarfræöi: Vaxtareikningur og tímagildi peninga. Mat á arðsemi Qárfest- inga. Núvirði, ársvirði, innri vextir. Ábata/kostnaðarhlutfall. Samanburður val- kosta. Tölvulíkan af raunhæfu viðfangsefni: Gerð arðsemislíkans með rekstrarreikningi, efna- hagsreikningi, sjóðstreymi og útreikningum á arðsemi. Raunhæft verkefni. Næmnigreining og áhættumat: Athugun á núllpunkti („break even“), næmnistjarna, samkeppnismat, óvissa og áhætta, ákvarð- anatré. Leiðbeinandi: Páll Jensson, prófessor HÍ. Tími: 27.-28. sept., 1. og 4. okt. kl. 13-17. Verð: 18.000 kr. Þátttökustjórnun, stjórnun breytinga, forystu- hlutverkió og stjórnunarstílar. I. Hefðbundnar kenningar um stjórnun og sá greinarmunur, sem gerður er á stjórnun og for- ystu. Hvernig er valdi úthlutað til hópa og ferli þátttökustjórnunar. Stjórnun breytinga, viðnám við þeim og heppilegar leiðir við að koma breyt- ingum á. II. Einkenni á forystuhlutverkinu, hvaða hvatning liggur til gmndvallar, þekkingu, leikni, hæfileika og framtíðarsýn. Hlutverk forystumannsins sem framkvæmdaaðila. Mat á eigin stjórnunarstíl. Leiðbeinandi: Þórður S. Óskarsson, vinnusálfræð- ingur hjá KPMG Sinnu hf. Tími) 28.-29. sept. kl. 15-19. Verð: 6.800 kr. Skráning og nánari upplýsingar í símum 694923,694924 og 694925. ... .......................

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.