Morgunblaðið - 25.09.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993
17
AKUREYRI
23. þing Alþýðusambands Norðurlands á Illugastöðum
Tillaga um að segja upp
gildandi kjarasamningum
TILLAGA um að á næstu vikum verði sköpuð samstaða innan verka-
lýðshreyfingarinnar um að segja upp gildandi kjarasamningum þann-
ig að þeir verði Iausir frá 1. janúar næstkomandi var lögð fram á
þingi Alþýðusambands Norðurlands sem hófst á Illugastöðum í
Fnjóskadal síðdegis í gær.
í drögum að ályktun þingsins er
lýst vonbrigðum með þróun kjara-
mála á undanförnum árum og einn-
ig kemur fram að þinginu sé ljóst
að afleiðingar þjóðarsáttarsamn-
inga frá 1990 og þeirra tveggja
kjarasamninga sem síðan hafa ver-
ið gerðir verði aðrar og miklu verri
en verkalýðshreyfingin hafi gert sér
vomr um.
Orðin tóm
í máli Hafþórs Rósmundssonar
formanns Verkalýðsfélagsins Vöku
á Siglufirði sem mælti fyrir kjara-
málaályktun þingsins kom fram að
með þjóðarsáttarsamningunum hafi
byrðar verið fluttar yfir á launa-
fólk, m.a. til að skapa mætti stöðug-
leika í atvinnulífi og atvinnurekend-
um gert kleift að byggja upp fyrir-
tæki sín þannig að þau stæðu und-
ir hærri launum og aukinni atvinnu
að loknum samningstíma. Þetta
hafi verið orðin tóm. Hið sama
mætti segja um síðustu tvo kjara-
samninga, fólk hefði lítið orðið vart
við að gerðir hefðu verið samningar
enda samið um 0% launahækkun.
Fólk stæði nú frammi fyrir því
hvort segja ætti upp gildandi kjara-
samningum fyrir 10. nóvember
næstkomandi og væri verið að
skoða ýmsa þætti þess máls 'innan
verkaiýðshreyfingarinnar og hvort
forsendur hefðu breyst þannig að
þeir væru uppsegjanlegir sam-
kvæmt ákvæðum þar um í samning-
unum. Heilbrigð skynsemi segði sér
að heimilt væri að segja samningun-
um upp, m.a. vegna síðustu gengis-
fellingar.
Höfðað til réttlætiskenndar
I kjaramálaályktuninni sem Haf-
þór mælti fyrir á þinginu í gær
kemur fram að standa verði þannig
að kröfugerð og því hvemig kröfum
væri fylgt eftir, að sem víðtækust
samstaða næðist, kröfur yrðu að
vera skýrar og þannig að þær höfði
til réttlætiskenndar fólks og það
væri tilbúið að beijast fyrir þeim.
Rétt væri því að krefjast einvörð-
ungu hækkunar lægstu launa
ásamt fullri tryggingu fyrir því a!ð
kaupmáttur sem um væri samið
héldist.
Hafþór sagði að grundvöllur fyr-
ir slíkri kröfu væri að fólk væri til-
búið að fylgja henni eftir af krafti.
Menn vissu að kröfur um hærri laun
næðust ekki fram í umræðum yfir
kaffibolla hjá sáttasemjara, eins og
hann komst að orði. Slíkar kröfur
næðust einungis á einn hátt, menn
yrðu að beijast fyrir þeim og „og
við sláumst ekkert nema á einn
hátt og það er með því að fara í
verkfall. Það þýðir ekkert fyrir eitt
verkalýðsfélag að fara í verkfal! eða
einn landspart," sagði Hafþór og
sagði að breið samstaða yrði að
vera fyrir hendi yrði farið út í slík-
ar aðgerðir. Þá reyndi einnig á sam-
stöðu þeirra sem hærri launin hefðu
og sæju fram á að ekkert kæmi í
þeirra hlut, ef hún væri ekki fyrir
hendi gætu menn gleymt þessu.
7% kjaraskerðing
Gylfi Arnbjörnsson hagfræðing-
ur Alþýðusambands íslands fór yfir
þróun kjaramála í erindi sem hann
flutti á þinginu, en í máli hans kom
m.a. fram að frá því ríkisstjórnin
greip til efnahagsráðstafana sinna
í nóvember á síðasta ári og þar til
kjarasamningar voru gerðir í maí
síðastliðnum hefði orðið 5% kjara-
skerðing og gera mætti ráð fyrir
að um næstu ármót yrði kjaraskerð-
ingin um 7%.
Hann sagði að fólk stæði nú
frammi fyrir því hvort framlengja
ætti gildandi kjarasamninga eða
segja honum upp og væri ekki tíma-
bært að skera úr um strax hvor
kosturinn yrði valinn. Hann nefndi
að yrði framhald á myndi matar-
skattur lækka um næstu áramót,
sem þýddi að kaupmáttur almenns
launafólks, t.d. hjóna með um
120-140 þúsund krónur í tekjur
Nýr skóli í Reykja-
hlíð tekin í notkun
Björk, Mývatnssveit
SUNNUDAGINN 19. september kl. 16 var hið nýja glæsilega skóla-
hús í Reykjahlíð tekið formlega í notkun með veglegri viðhöfn að
viðstöddu fjölmenni, þar á meðal fræðslustjóranum á Norðurlandi
eystra. Kynnir var Vésteinn Vésteinsson.
Fyrstu léku skólastjórarnir Garð-
ar Karlsson og Viðar Alfreðsson
saman eitt lag. Hinrik Árni Bóasson
rakti byggingarsögu skólans í fjar-
veru Stefáns Þórhallssonar skóla-
nefndarformanns. Þar kom meðal
annars fram að húsið er búið að
vera tíu ár í byggingu.
Ræður fluttu Sigurður Rúnar
Ragnarsson sveitarstjóri, Garðar
Karlsson skólastjóri og Brynjar Sig-
tryggsson fyrir hönd Fjalars hf.
verktaka á Húsavík. Aðrir verktak-
ar voru Sniðill hf. í Mývatnssveit,
Margar gjafir
Fjölmargar gjafir hafa skólanum
borist m.a. frá einstaklingi í Mý-
vatnssveit sem ekki vildi láta nafns
síns getið. Þá var peningaupphæð
til minningar um séra Hermann
Hjartarson og Pál Freysteinssson
sem báðir voru farsælir kennarar
og ágætir skólamenn í Mývatns-
sveit. Þá var getið um rausnarlegar
gjafir frá Kísiliðjunni, Landsvirkjun
og fleiri aðilum. Þetta sýnir hlýhug
gefendanna til skólans.
Þórunn Harðardóttir lék eitt lag
á píanó. Séra Þórir Jökull Þorsteins-
son flutti blessunarorð og bæn. Síð-
an sungu allir saman undir stjórn
Jóns Árna Sigfússon. Að lokun voru
bornar fram veitingar.
Gert er ráð fyrir að 52 nemendur
verði i skólanum í Reykjahlíð í vet-
ur. Þá verður tónlistarskólinn einnig
þar til húsa. Það virðist vera sam-
dóma álit manna að öll kennsluað-
staða í þessu húsi sé til fyrirmynd-
ar, enda fengu arkitektar og hönn-
uðir hússins svo og allir sem við
það hafa unnið mikið lof fyrir frá-
bær störf.
Kristján
sameiginlega myndi hækka um
2.3%. Ná þyrfti fram 4% launa-
hækkun til að fá fram sömu niður-
stöðu og það þyrftu menn að.hafa
i huga. Hann nefndi einnig að með
framlengingu samningsins tryggðu
menn að milljarðurinn margum-
ræddi sem varið verður til fram-
kvæmda á vegum ríkisins yrði not-
aður og þá nefndi hann einnig
ákvæði um orlofsuppbót og lág-
launabætur sem væru inni í samn-
ingum á næsta ári.
Sljórnvöld að hlaupast undan
merkjum
Yrði samningum sagt upp myndu
ýmis atriði hans falla út, en það sem
helst myndi reyna á væri staða
fjárlagagerðarinnar. Teikn væru á
lofti um að verið væri að setja
álögur inn í fjárlögin, bæði hvað
varðar niðurskurð og
skattahækkanir, sem gæti gert að
verkum að til uppsagnar kæmi.
Miðað við málflutning að
undanförnu virtist sem stjórnvöld
væru að skapa sér svigrúm til að
skerða framlög til framkvæmda,
þau virtust ljóst og leynt vera að
reyna að losa sig við samninginn,
hlaupast undan merkjum og í það
stefndi að verkalýðshreyfingin
myndi lenda í hörðum átökum um
atvinnumálastefnu
ríkisstjórnarinnar öðru sinni.
Gylfi sagði ekki tímabært að
skera úr strax hvorn kostinn
hreyfingin tæki, að segja upp
samningum eða framlengja þá.
Haustverkin
Morgunblaðið/Golli
ÞAÐ væsti ekki um Guðlaug Halldórsson þar sem hann var í
önn að saga greinar í garðinum heima hjá sér í Aðalstrætinu.
óða
Bæjarfulltrúar á Dalvík um sameiningu sveitarfélaga
Kynning á tillögum ekki næg
Dalvík. . ‘
BÆJARFULLTRÚAR á Dalvík eru ekki ánægðir með hvernig stað-
ið hefur verið að kynningu og útfærslu á hugmyndum umdæmanefnd-
ar um sameiningu sveitarfélaga við Eyjafjörð í eitt sveitarfélag.
Telja þeir að verulega skorti á að kjósendur getið tekið afstöðu til
tillögunnar eins og hún liggur fyrir og því sé hún dæmd til að verða
felld.
Þetta kom fram á fundi bæjar-
stjórnar Dalvíkur síðastliðinn
þriðjudag en þá voru hugmyndir
umdæmanefndar Eyþings teknar til
fyrri umræðu samkvæmt lögum um
sameiningu sveitarfélaga.
í máli manna kom glöggt fram
að áður en hægt væri að taka af-
stöðu til hugmynda umdæmanefnd-
arinnar þyrftu að liggja fyrir svör
við ýmsum spurningum er varða
MESSUR
Glerárkirkja Fjölskyldu-
guðsþjónusta verður í kirkj-
unni nk. sunnudag 26. sept-
ember kl. 11. Barnaefni vetrar-
ins verður kynnt. Foreldrar eru
hvattir til að mæta með börn-
um sínum. Mikill söngur.
Fundur æskulýðsfélagsins
verður sama daga kl. 17.30.
Akureyrarprestakall Helgi-
stund verður á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri kl. 10
fyrir hádegi, sunnudag 26.
september. Þ.H. Guðsþjón-
usta verður í Akureyrarkirkju
kl. 11 fyrir hádegi sunnudag.
Harldur Ólafsson kristinboði
predikar. Þ. H. Guðsþjónusta
verður í hjúkrunardeild aldr-
aðra, Seli, kl. 14. B.S. Guðs-
þjónusta verður í Dvalarheimil-
inu Hlíð kl. 16. B.S.
stjórnsýslu og fjármál. Við fram-
lagningu tillagnanna hefði um-
dæmanefndin lýst því yfir að fyrir
lægju hugmyndir að stjórnsýslu
fyrir eitt sveitarfélag við Eyjaijörð
en þær hefðu ekki verið kynntar
sveitarstjórnunum.
Unglingaráð handknattleiks-
deildar Þórs byrjar vetrarstarfið
af krafti og býður ungum Þórsur-
um ásamt foreldrum til grill- og
kaffíveislu í Hamri, sunnudaginn
26. september næstkomandi á
milli kl. 15 og 17. Handboltaþjálf-
arar Þórs verða á staðnum með
Ekki bæjarstjórnar
að taka afstöðu
Bæjarfulltrúar töldu ekki í
verkahring bæjarstjórnar að taka
afstöðu til hugmyndanna, líkt og
sum sveitarfélög gerðu, heldur yrði
hún að sjá til þess að upplýsingar
lægju fyrir þannig að íbúar gætu
mótað afstöðu sína. Því gerði bæj-
arstjórn kröfu um að tillaga umdæ-
manefndar yrði betur útfærð og
kynnt.
Jan Larsen yfirþjálfara fremstan
í flokki og munu þeir kynna vetr-
arstarfið. Jafnframt mun fara
fram innritun félaga í alla flokka.
Foreldrar eru sérstaklega hvattir
til að mæta með börnum sínum.
(F réttatilky nning.)
Islensk
— vildir þú
vera dn þeirra? íslenskir bændur
Þór með opið hús í Hamri