Morgunblaðið - 25.09.1993, Side 19

Morgunblaðið - 25.09.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 19 Ekki teflt í Oman ÁKVEÐIÐ hefur verið að síð- ari hluti heimsmeistaraeinvíg- isins í skák, sem fram átti að fara í Óman, verði fluttur ann- að. Talsmaður stjómvalda í Óman lýsti yfir því í gær að soldáninn af Óman hefði aldrei heitið því að leggja fram verð- launafé og að málið væri í höndum FIDE. Ekki hefur ver- ið ákveðið hvert. 12. skák ein- vígis Anatólíjs Karpovs og Jans Timmans fer fram í dag og verður þá tekið hlé til 1. október. NAFTA áfram ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL i Bandaríkjunum úrskurðaði í gær að ekki þyrfti að undirbúa mat á umhverfismálum í tengslum við gildistöku NAFTA, fríverslunarsamning Norður-Ameríku. Umhverfis- sinnar hafa barist gegn samn- ingnum. Lægra dómsstig hafði úrskurðað að matið yrði að fara fram og hefði það tafið gildistöku samningsins. Lokatölur frá Póllandi LOKANIÐURSTÖÐUR pólsku þingkosninganna voru birtar í gær. Lýðræðisbandalag vinstrimanna hlaut 20,4% at- kvæða og 171 þingsæti. Smá- bændaflokkurinn hlaut 15,4% atkvæða og 132 sæti, Lýð- ræðisfylkingin, flokkur Hönnu Suchocku, hlaut 10,6% at- kvæða og 74 þingsæti og Verkamannasambandið hlaut 7,3% atkvæða og 41 þingsæti. Maður óskar vönunar BRESKIR læknar ræða nú hvort verða eigi við ósk 59 ára kynferðisglæpamanns sem hefur ítrekað óskað þess að verða vanaður,. svo að hann nái stjórn á kynhvöt sinni. Maðurinn á langan afbrotafer- il að baki og hefur beitt ýmsum aðferðum til fá lækna til að vana sig; farið í hungurverk- fall, hótað sjálfsmorði og reynt að vana sig sjálfur. Tölva fyrir heyrnarlausa JAPANSKUR hugvitsmaður lýsti því yfir í gær að hann hefði fundið upp tölvukerfi fyr- ir heyrnarlausa. Það þýðir tal- að mál yfir í fingramál, sem sýnt er á skjánum. Krafist dauða- refsingar MIKIL reiði ríkir nú í Frakk- landi vegna morðs á átta ára gamalli stúlku og hafa komið fram kröfur um að dauðarefs- ing verði tekin upp á nýjan leik. Afbrotamaður á reynslu- lausn nauðgaði stúlkunni og myrti hana. Hann hafði áður gerst sekur um svipuð afbrot en nýlega verið látinn laus vegna góðrar hegðunar. Abiola snýr aftur MOSHOOD Abiola, forseta- frambjóðandi og milljónamær- ingur, sneri til heimalands síns, Nígeríu, í gær. Hann full- yrðir að hann hafi verið rænd- ur völdum í ágúst en kosning- ar, sem hann sigraði, voru lýst- ar ógildar og herinn tók völdin. Reuter Dómur fallinn STUÐNINGSKONA Imeldu Marcos hughreystir hana eftir að hún var dæmd í 18 ára fangelsi fyrir spillingu. Imelda dæmd fyrir spillingn Manila. Reuter. IMELDA Marcos, fyrrum forsetafrú á Filippseyjum, var í gær dæmd ■ í 18 ára fangelsi hið minnsta fyrir spillingu. Með dómnum er lokið sjö ára baráttu Filippseyinga við fá ekkju Ferdinands Marcosar dæmda en það er trú margra landsmanna að gífurleg eyðslusemi hennar hafi átt ríkan þátt í að koma manni hennar frá völdum. Auk þess að vera dæmd til fangavistar, var Imelda útilokuð frá allri þáttöku í stjórnmálum. Marcosarhjónin hafa verið ásök- uð um taka sér sem svarar 350 milljörðum ísl. króna úr ríkiskassan- um á 20 ára tímabili og nánustu samstarfsmenn þeirra dágóðar upp- hæðir. Auk Imeldu var fyrrum sam- gönguráðherra landsins, Jose Dans, sakfelldur. Imelda hafði lýst sig saklausa en hélt ekki uppi vörn fyrir rétti. Er úrskurður dómara hafði verið lesinn upp, hélt hún þegar til kirkju þar sem hún skreið á hnjám upp að altarinu og bað góðan guð um að bjarga sér frá fangavist. Fer aldrei í fangelsi Lögmenn Imeldu segjast munu óska nýrra réttarhalda. Þá er einn- ig mögulegt að dómnum verði áfrýj- að. Imelda var látin laus gegn tryggingu og hún lýsti því yfir í gær að hún ætti ekki von á því að fara nokkurn tíma í fangelsi. Undanfarinn mánuður hefur reynst Imeldu Marcos erfiður á marga lund. Aðeins mættu nokkur þúsund manns í útför manns henn- ar er leyfi fékkst loks til að jarð- setja hann á Fiiippseyjum en hún hafði búist við að milljónir aðdáenda myndu mæta. Þá var enginn úr fjöl- skyldu hennar í réttarsalnum er dómur var kveðinn upp. Járnfiðrildið Rofar til í deilunni um stj órnkerfisbreytingar í Úkraínu Kosningar til að forð- ast „rússneskt“ ástand Kiev. Reuter. Reuter Kosningum fagnað ÞÚSUNDIR Úkraínumanna fögnuðu tilkynningu úkrainska þingsins í gær um nýjar þing- og forsetakosningar á næsta ári. Með þeirri ákvörðun þykir hafa verið leyst úr sljórnarskrárkreppu í landinu og komið í veg fyrir sams konar vandaræðaástand og er í Rúss- landi. Myndin er frá Kíev eða Kænugarði. ÚKRAÍNUÞING ákvað í gær að efna til þing- og forseta- kosninga á næsta ári. Var samþykkt með 243 atkvæðum gegn 39 að þingkosningar skyldu haldnar þann 27. mars og forsetakosningar þann 26. júní. Úkraínuþing hefur verið nær lamað undanfarna mán- uði vegna deilna um valdsvið þings og forseta og umbætur á stjórnkerfinu. Virðist sem ákveðið hafi verið að boða til kosninga til að komast hjá því að deilurnar kæmust á sama stig og þær hafa verið í Rússlandi. Leoníd Kravtsjúk, forseti Úkra- ínu, var kjörinn til fimm ára í kosningum sem fram fóru í desem- ber 1991, samhliða þjóðarat- kvæðagreislu um hvort Úkraína ætti að slíta tengslum við Rúss- land. Þingið var hins vegar kjörið til fimm ára árið 1990 eða á tímum Sovétríkjanna fyrrverandi. Kravtsjúk og ríkisstjórn hans hafa átt í stöðugum deilum við þingið undanfarna fjóra mánuði með þeim afleiðingum að efna- hagsleg og pólitísk upplausn ríkir í landinu. Bauðst Kravtsjúk loks til þess á fimmtudag að efna til forsetakosninga ef þingkosningar yrðu haldnar á undan. Létu frjáls- lyndir þingmehn í ljós þá skoðun að ef á þetta yrði ekki fallist yrði Kravtsjúk að taka völdin í sínar hendur líkt og Borís Jeltsín Rúss- landsforseti. Þúsundir manna biðu nætur- langt fyrir utan þinghúsið eftir því að umræður um málið myndu hefj- ast. Gengu hermenn á milli fólks- ins og gáfu því te. Þegar úrslit atkvæðagreiðslunnar lágu fyrir brutust út mikil fagnaðarlæti jafnt meðal þingmanna sem mannfjöld- ans fyrir utan sem hrópaði „þökk sé Guði“. Imelda er orðin 64 ára. Hún er fyrrverandi fegurðardrotting og var heimsþekkt fyrir gríðarlega eyðslu- semi, ekki síst áhuga sinn á skóm, demöntum og búðarrápi. Er manni hennar var steypt af stóli árið 1986 skildi Imelda eftir 1.220 pör af skóm, 500 síðkjóla, 300 brjósta- haldara, þar af einn skotheldan, og 71 par af sólgleraugum. í heima- landi sínu var hún þekkt undir nafn- inu „Járnfiðrildið“ með vísan tii fölnaðrar fegurðar og vægðarleysis. Yfir 90 mál hafa verið höfðuð á hendur þeim hjónum en þetta er hið fyrsta sem dómur fellur þeim í óhag. Sihanouk konungur NORODOM Sihanouk endur- heimti í gær kambódísku krúnuna en hann var neydd- ur til að afsala sér henni fyr- ir fjörutíu árum. Var mikið um dýrðir í Phnom Penh, höfuðborg landsins, þegar hann settist í hásætið að nýju. Kambódíumenn vonast til, að með krýningunni í gær hafi þeir með nokkrum hætti sagt skilið við skelfingar fortíðarinn- ar og að við taki betri tímar fyrir land og þjóð. Fyrsta kon- ungsverk Sihanouks var að undirrita nýja stjórnarskrá og að því búnu fól hann syni sín- um, Norodom Ranariddh, að mynda nýja stjórn i landinu. Fáar þjóðir hafa liðið aðrar eins hörmungar og Kambódíu- menn síðasta aldarfjórðunginn og mestar voru þæa á valda- skeiði Rauðu khmeranna en talið er, að þeir hafi myrt um eina milljón manns. Eg heiti Iris Telma og það er mynd afmér og mörgum öðrum krökkum í BORGARKRINGL UNNI - Sjáumst!! LJOSMYNDARINN ^-| í MJODOINNI SÍMI 79550

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.