Morgunblaðið - 25.09.1993, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 25.09.1993, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 27 Arnór Lúðvík Sig- urðsson, skipstjóri, Isafirði - Minning sakir. Hjónin sem í frístundum voru búin að byggja sér steinhús á tveim- ur hæðum þrátt fyrir sitt barn- marga heimili og ef til vill einmitt vegna þess hvað þörfin var brýn; það varð að leggja allt að veði. Oft var nóttin notuð til vinnu sem bjart- ur dagur væri, eftir langan vinnu- dag. Þannig var Íífíð í Þorlákshöfn á þessum árum og engum fannst neitt við það að athuga. Þannig liðu árin við þrotlausa vinnu, en góðar gleðistundir á milli sem allir tóku þátt í, ungir sem aldnir. Hún Anna var hreinskiptin kona, sem lét skoðanir sínar hiklaust í ljós við hvern sem var. Hún var einnig hlý og hjálpsöm ef eitthvað bjátaði á hjá náunganum, um það get ég borið. Ef slys bar að átti það málefni hug hennar. Því var það að hún, fyrir mín orð, gaf kost á sér til formennsku fyrir slysa- varnadeildina Mannbjörg, Þorláks- höfn. Fyrir það var ég henni inni- lega þakklát, svo og fyrir öll okkar kynni. Slysavarnastarfið rækti hún af mikilli alúð og prýði um ára bil. Hún var gerð heiðursfélagi slysa- vamafélagsins á sjómannadagnn 2. júní 1985. Þau hjón, Anna og Árni, áttu heima í Þorlákshöfn í þijátíu ár, en þá höguðu örlögin því þannig að þau urðu að flytja burtu. Þau fóm til Reykjavíkur þar sem Árni vinnur hjá veiðarfæraverslun Ell- ingsen hf. Þau seldu húsið sitt hér sem þá var orðið fallegt eins og þau höfðu þráð og unnið að í öll þessi ár. Hlutverk Onnu var stórt í lífinu og hún var gæfumanneskja í einka- lífí sínu. Hún átti stóran og myndar- legan barnahóp, tengdabörn, barnabörn, vini og eiginmann sem í einu og öllu studdi hana í lífínu, já, allt til enda. Þau eignuðust indælt og fallegt heimili í Gnoðar- vogi 54 í Reykjavík, en hugurinn var æði oft í Þorlákshöfn, hjá sam- ferðafólki og vinum þar, þar sem ævistarfíð var unnið og börnin þeirra voru alin upp. Nú er hún Anna komin heim. í angurblíðu haustsins, þeirri árstíð þegar állt breytir um lit og hljóðn- ar, þannig er henni heilsað hér og henni þökkuð samfylgdin og tryggðin. Hún trúði því að hinum megin við móðuna miklu biði okkar björt og fögur veröld. í ljósi þeirrar trúar bið ég Guð að styrkja eiginmann hennar, börnin þeirra og fjölskyld- ur. Blessuð sé minning hinnar mætu konu. Ragnheiður Ólafsdóttir. Sem kona hún lifði í trú og tryggð, með tregandi sorg skal gjalda. Við ævinnar lok ber ást og dyggð sinn ávöxtinn þúsundfalda, og ljós þeirra skín í hjartans hryggð svo hátt yfir myrkrið halda. (E.Ben.) Með örfáum orðum langar mig að minnast vinkonu minnar Onnu Ólafsdóttur sem andaðist hinn 17. september á Landspítalanum eftir skammæ en ótrúlega erfið veikindi. Hún fór á spítalann eftir að hún hafði dottið og lærbrotnað og svo kom hvert áfallið á fætur öðru svo að með ólíkindum má vera. Það var erfítt stríð sem lauk eins og áður segir að kvöldi föstudagsins 17. september. Kynni okkar Önnu voru ekki löng, aðeins frá árinu 1988 þegar hún og maður hennar Árni Her- mánnsson fluttust í sama stigahús og ég bjó í. En samt urðu þau kynni mjög góð og gáfu mér ótrúlega mikið, kannski vegna þess að báðar höfðum við átt mörg börn og einn- ig búið báðar svo lengi úti á lands- byggðinni. Þegar þau hjónin flutt- ust svo í Gnoðarvoginn urðu sam- verustundirnar færri. En alltaf var ég á leiðinni að heimsækja hana og nú er það orðið of seint, hún er farin. Það vill vérða svo að við erum víst mörg alltaf í tímaþröng. Ég þakka allar samverustundirn- ar sem við áttum saman og þú, Árni minn, megi guð styrkja þig á þessum sorgartíma. Einnig votta ég börnum þeirra mína innilegustu samúð. Hvíl í friði. Rannveig Isfjörð. Fæddur 4. október 1927 Dáinn 14. september 1993 „Allt hefur einhvern endir.“ Þessi hending úr söngvísu sem við sungum oft saman á góðri stund flaug um huga minn þegar Gunnar frændi, elsti sonur Adda bróður míns, hringdi í mig seinnipart þriðjudagsins 14. þessa mánaðar og sagði: „Baldur minn, hann bróð- ir þinn er búinn að kveðja þetta líf.“ Hans endir varð eftir erfíða baráttu við illvígan risa sem ég nefni svo, og er þá með í huganum draum sem Adda dreymdi skömmu áður en hann veiktist. Hann fann til lasleika um það leyti sem hann hélt upp á 65 ára afmælið sitt fyr- ir tæpu ári síðan. Var hann þá drifinn suður á Vífílsstaði með slæmt bronkítis, settur á lyfjakúr, lungun spegluð, tekið sýni sem sent var í ræktun og gaf það ekki neitt alvarlegt til kynna að því er honum var sagt. Á Vífílsstöðum reyndi hann í tvo mánuði að ná sér á strik, með þeirri einbeitni sem hann bjó yfír, en illa gekk það samt. Þá var ákveðið að skera hann lungnaskurð, það var um mánaðamótin nóvember-des- ember. Allt gekk vel fyrst, en á fjórða degi er honum sagt að þetta hafi verið illkynjað og helst verði að skera hann aftur, ef hann treysti sér till þess, til að taka 40% af hægra lunganu í viðbót við þau 20% sem fyrst voru tekin, til að hugsan- 4ega mætti ná þessu öllu úr lung- anu. Á 9. degi var hann skorinn upp aftur, og enn gekk allt vel. Hann var furðu fljótur að ná sér á strik og heim á Isafjörð fór hann um miðjan desember. Hélt hann jólin og áramótin í faðmi fjölskyld- unnar. í endaðan janúar var hann kallaður suður í sex vikna geisla- meðferð sem brenndi hann að hálfu, nema kjarkinn og viljann sem hann barðist með við þennan risa. Þó ráðning draumsins færi ekki alveg eftir, eru í mínum huga margir sigrar unnir á risanum. Barðist hann hetjulegri baráttu uns yfir lauk. „Allt hefur einhvern endi.“ Þessi söngvísa sem ég nefndi í byrjun og við höfðum miklar mætur á, var samin af föður okkar Sigurði G. Sigurðssyni sem lést fyrir rúmlega 20 árum eftir erfiða baráttu við þennan illvíga risa. Allt hefur líka sitt upphaf. Addi, eins og við kölluðum hann, fæddist í Hnífsdal 4. október 1927. Móðir okkar, Guðmunda Bærings- dóttir, ættuð úr Furufirði á Strönd- um, lifir soninn sinn háöldruð hér í Hafnarfirði. Faðir okkar var Sig- urður Guðmundur Sigurðsson frá Bæjum á Snæfjallaströnd. Hann gekk undir nafninu Siggi Gummi dags daglega og var hann farsæll skipstjóri um mörg ár á sinni tíð. Addi sleit barnsskónum í Hnífsdal og á ísafírði. Hann var í sveit sem unglingur, í ein fimm sumur að Kleifum í djúpinu og víðar, við venjuleg sveitastörf eins og þá var. Innan við fermingu var hann farinn að stunda sjómennsku með föður okkar sem var formaður á sínum bát, fyrst var það á sumrin að sjálf- sögðu, og minnist ég þess vel þó að ég sé átta árum yngri, er pabbi kom eitt sinn í land með Addda meiddan, marinn og bláan um háls og herðar, eftir að silkitrefíll sem Addi var með um hálsinn, fór í spilið, en þeir voru á snurvoð sem þá var kallað. Hann náði að slíta trefilinn i sundur með einhveijum ofurkrafti í þann mund er pabba tókst að stöðva spilið. Addi var þá allur marinn og blóðsprengdur, en náði sér nokkuð fljótt eftir þetta. Hermann, elsti bróðir okkar, átti samskonar trefil, þeir höfðu fengið þá í jólagjöf, og reyndu margir að slíta hans trefil í sundur sem og pabbi, en engum tókst það. Þeir bræðurnir voru mjög samrýndir, enda rétt rúmt ár á milli þeirra. Voru þeir báðir mikið með pabba sem formanni á þátnum sem hann var með og lærðu margt af honum í sambandi við skipstjórn og sjó- mennsku sem nýttist þeim vel síð- ar. Addei fór á vélanámskeið sem þá voru og var vélamaður um tíma með pabba. Tók síðan 30 tonna skipstjórnarpróf og fór svo í Sjó- mannaskólinn í Reykjavík og tók þaðan meira fiskimannapróf. Eftir minna prófíð, þá 18 ára, tók hann við skipstjórn fyrst á Dísunum hjá Nirði hf., þá á Vébirni og Auðbirni hjá Samvinnufélagi ísfirðinga og fleiri eftir að hann lauk meira fiski- mannaprófínu. Ég var t.d. með honum sem kokkur á Bryndísi, þá 13 ára gam- all, og fannst mér skrítið að heyra skipveijana nefna hann „karlinn", en þá var hann 21 árs. Það var ljúft að vera með honum sem skip- stjóra, enda kom hann vel að sér mönnum. Einum sérstökum manni reyndist hann afar vel þó að bakk- us hefði farið með hann flatan í þeim ólgu sjó. Og eftir að hann var kominn suður til meðferðar, skrif- aði hann Adda mörg bréf og þakk- aði honum fyrir sig, áður en hann lést sjálfur. Eg var með Adda með skipstjóra um þó nokkur ár á Bryn- dísi, Vébirni, Auðbirni og Víkingi 1. og 2. og smávegis á Tjaldinum. Alltaf var hann sami ljúfi, gætni og trausti skipstjórinn sem gott var að vera með. Árið 1952 keyptum við fjórir bræðurnir saman 13 tonna bát, Víking. Þá var mikil eindrægni um þetta hjá okkur og bræðralag. Nutum við þess að vera saman þau árin, uns ég fluttist suður og fór á aðrar slóðir. Þeir létu seinna eða 1959 smíða 60 tonna bát hjá Marselíusi Bern- harðssyni á ísafirði, Víking 2. Þeir gerðu hann út í nokkur ár og var Addi skipstjóri og sá einnig um reksturinn. Síðar seldu þeir Norðurtangan- um sem átti hlut í bátnum sína hluti. Addi var með ýmsa báta og skip eftir þetta, meðal annars Guð- björgu á ísafirði á meðan Ásgeir Guðbjartsson var í sjómannaskó- lanum og gekk honum yfirleitt mjög vel á veiðum. Árið 1973 kaup- ir hann 'ásamt Gunnari elsta syni sínum bm. Tjald, 30 tonna bát og er með hann í mörg ár á ýmsum veiðum, línu, færum, rækju og skel- veiðum. Gunnar fetaði í spor föður síns, fór í sjómannaskólann og upp- úr því á skuttogarana þar sem hann er ennþá. Þeir hafa nú þrír af sonum hans farið í gegnum sjó- mannaskólann með sóma. Þegar Sölvi sonur hans tók burtfarars- prófið færðu þau hjónin skólanum höfðinglega gjöf til tækjakaupa í tilefni þessa. Arnór kynntist konu sinni árið 1952. Huldu Jónsdóttur Guðnason- ar frá Sléttu á Jökulfjörðum, móðir hennar hét Jóna Emilía Alberts- dóttir, en þau eru bæði látin. Giftu þau sig skömmu seinna og eignuð- ust fimm börn, fjóra drengi og eina stúlku. Elstur er Gunnar Albert, fæddur 30. nóvember 1952, hans kona er Sigurborg Þorkelsdóttir og eiga þau fjögur börn; Jóna Emilía, fædd 9. apríl 1956, hennar maður er Gunnar Gunnarsson og eiga þau sex börn; Sigurður Guðmundur, fæddur 12. mars 1959, hans kona er Sandra Arnórsdóttir og eiga þau eitt barn; Sölvi Arnar, fæddur 17. ágúst 1962, unnusta hans er Sig- ríður Sigurðardóttir og á hann tvö börn úr fyrri sambúð; Marinó Freyr, yngstur, fæddur 22. júlí 1971, ógiftur og er heima í for- eldrahúsum. Þau hjónin voru mjög samhent og ástúðleg hvort við annað. Ég naut þeirra umhyggju er ég bjó í ár hjá þeim eftir að foreldrar okkar fluttust suður. Gunnar sonur þeirra var þá þriggja ára. Við áttum þá Víking 1. og rerum honum. Amór lýsir best sjálfur Huldu konunni sinni í utvarpsviðtali í þættinum í dagsins önn, fyrir fímm árum. Hann segir þar að „ekki hefði ver- ið gerlegt fyrir mig að stunda sjó- mennskuna í rúm 50 ár ef ég hefði ekki átt jafn indæla og góða konu sem Hulda mín hefur verið, því hún þurfti að sjá bæði um böm og bú langtímum saman, eins og sjó- mannskonan hefur mátt gera í gegnum tíðina.“ Haustið 1986 varð Arnór fyrir óskaplegu áfalli er báturinn hans, Tjaldur, fórst í Jökulfjörðum á skel- veiðum, og með honum fómst elsti bróðir okkar Hermann og sonur hans Víkingur, ásamt einum manni til, Kolbeini Gunnarssyni. Það var þvílíkt áfall að orð frá því ekki lýst. En með stuðningi konu sinnar og fjölskyldu, ásamt Guðstrú sinni, komst hann yfir þetta áfall, þó að eftir sæti söknuðurinn sári. Tíminn líður og fennir í sporin. Tveimur árum eftir lætur hann smíða fyrir sig 60 tonna stálbát í Svíþjóð og skírði hann Huldu í höfuðið á konu sinni. Hann taldist af kerfinu hafa nægan kvóta á bátinn til að grundvöllur væri fyrir rekstri hans. En ekki var báturinn fyrr kominn til veiða en skerðing á kvóta varð aftur og aftur og leiddi til þess að hann varð að láta bátinn frá sér. Gerðist hann þá hafnsögu- maður á ísafirði og keypti sér fímm tonna plastbát til að geta skroppið til fiskjar þegar þráin til hafsins verður hvað sterkust. En enginn ræður sínum nætur- stað. Eins og segir í söngvísunni sem ég nefndi í byriun þessara fátæklegu orða í minningu um ást- kæran bróður minn „Einn er sem öllu ræður og ekki að fást um það“. Enn má móðir okkar háöldruð sjá á bak ástkærum syni sínum yfir móðuna miklu. Fyrir var hún búin að missa dóttur í frumbernsku, syni tvo sviplega og manninn sinn með meiru. Megi góður Guð veita henni sinn styrk. Elsku Hulda mág- kona, börnin ykkar, tengdabörn, barnabörn og aðrir vandamann. Orð mega sín ekki mikils í ykkar djúpu sorg. Þó bið ég algóðan Guð að leggja sína líknarhönd yfír og allt um kring. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, ' hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þess bið ég bróður mínum fyrir mína hönd og fjölskyldunnar. Baldur. Nú að leiðarlokum vil ég minnast kunningja míns og samferðamanns, Arnórs, sem lést hinn 4. september sl. Hann var sonur Sigurðar G. Sig- urðssonar, Sigga Gumma, eins og hann var ætíð nefndur, en hann var þekktur skipstjóri hér við ísafjarð- ardjúp, elstur þeirra Bæjarsystkina frá Snæfjallaströnd sem voru 15 talsins, 12 drengir og þijár stúlkur. Móðir Arnórs er Guðmunda Bær- ingsdóttir frá Faxastöðum í Grunnavíkurhreppi, nú heimilisföst í Hafnarfirði. Guðmunda og Siggi Gummi eignuðust átta böm: Her- mann, Arnór, Jónu, Marinó, Kristin, Baldur, Guðrúnu og Kristínu. Auk Arnórs eru látin þau Jóna, Kristinn og Hermann. Fyrstu búskaparárin bjuggu Guðmunda og Siggi Gummi í Hnífs- dal og þar fæddist Arnór hinn 4. október 1927. Tíu árum síðar flutt- ust þau inn á ísafjörð. Arnór var ekki hár í loftinu þegar hann og Hermann bróðir hans fóru að stunda sjóinn með föður þeirra á línuveiðum, handfærum og dragnót til skiptis. Aflinn var oft dágóður hjá þeim feðgum. Arnór stundaði síðan sjóinn af kappi í full 50 ár. í fyrstu á smærri bátum og síðar á stærri skipum. Er Arnór var 18 ára gamall hóf hann skipstjórn sína á Bryndísi, 15 lesta vélbát frá ísafirði. Nokkru síðar hóf hann sjósókn á tpgurum bæði frá Hafnarfirði og ísafírði. Árið 1952 lauk hann skipstjórnar- prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Nokkrum árum síðar keyptu þeir Hermann bróðir hans 14 lesta bát af Ólafsvíkur-Kalla sem hét Víkingur og gerðu hann út í sameiningu. Sóttu þeir af kappi og var Hermann þá oftast skipstjóri. Þeir létu síðar smíða fyrir sig 60 lesta eikarbát, Víking II, í Skipa- smíðastöð Marsellíusar Bernharðs- sonar og tók Amór þá við skip- stjóm. Amór kom víða við sögu sem skipstjóri, t.d. leysti hann af þá kunnu aflamenn bræðuma Ásgeir og Hörð Guðbjartssyni á skipum þeirra á meðan þeir öfluðu sér meiri skipstjórnarréttinda. Hann stýrði Guðnýju ÍS fyrir Baldur Jóns- son útgerðarmann og síðar bátum í eigum Norðurtangans hf., Má ÍS og Víkingi III ÍS. Árið 1971 kaupir Arnór Tjald ÍS 30 lesta bát sem hann átti með Gunnari syni sínum. Árið 1986 lenti Amór í þeirri þungbæru raun er skip hans, Tjaldur, fórst í Jökul- fjörðum og með því þrír menn: Hermann bróðir hans vélstjóri, Vík- ingur bróðursonur hans skipstjóri og Kolbeinn Gunnarsson háseti. Árið 1988 lætur hann smíða fyrir sig 60 lesta stálbát í Svíþjóð er hann nefndi Huldu ÍS. Árið 1990 seldi hann skip sitt og hætti skip- stjórn. Það er margs að minnast frá þessum sjósóknarárum og gaman var að fylgjast með hve Arnóri veitt- ist létt að sækja í svartasta skamm- deginu á dýpstu mið í rysjóttum vetrarveðrum þegar norðanáttin gefur engin grið. Síðustu tvö árin var Arnór yfir- hafnsögumaður við ísafjarðarhöfn. Jafnframt gerði hann út fimm lesta smábát á handfæraveiðar með syni sinum Marinó og sjálfur reri hann með í frítíma sínum. Hann fór síð- ustu sjóferð sína í sumar sem leið, þá orðinn mikið veikur, að leita sér hressingar, en þá hafði sjúkdómur- inn náð yfírhöndinni. Arnór hafði marga hildina háð á sjó í gegnum tíðina í baráttu vi óblíð náttúruöfl eins og vel þekkt eru hér á Vest- fjarðamiðum. Árið 1952 kvæntist Arnór Huldu Jónsdóttur frá Sléttu úr .Jökulfjörð- um. Þau eignuðust fimm börn: Gunnar, Jónu, Sigga Gumma, Sölva og Marinó. Á heimili þeirra snérust hlutirnir aðalega um sjó og sjósókn. Hulda og börnin studdu dyggilega við bakið á Arnóri á harðsóttum sjómannsferli hans. Tveimur dögum fyrir andlát Arnórs kom ég að sjúkrabeði hans. Þá sagði hann við mig um leið og liann brosti kankvís- lega: „Dóri, ég væri líklega ekki góður að beita núna.“ Arnór var glaðsinna og erfði léttu lundina og hressileikann frá föður sínum. Hann var hreinskiptinn og einlægur hveijum sem í hlut átti, bóngóður, hjartahlýr og drengur hinn besti. Ég votta Huldu, börnum þeirra og aldraðri móður Arnórs samúð mína. Halldór Hermannsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.