Morgunblaðið - 25.09.1993, Side 28

Morgunblaðið - 25.09.1993, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 Sigurður Viggó Bern- ódusson — Minning Fæddur 17. september 1944 Dáinn 20. september 1993 Við nyrsta haf í skjóli hárra fjalla liggur Bolungarvík. Þar er undir- lendi meira en víðast annars staðar á VestQörðum. Úti fyrir blasir ísa- fjarðardjúp við, stundum rólynt og blíðlynt, stundum úfið og kuldalegt. Náttúrufarið er stórbrotið, í senn fagurt, ógnvekjandi og viðkvæmt. Mannlíf í Bolungarvík hefur í aldanna rás mótast af þessum ytri aðstæðum. Þar ríkir og samkennd og samhugur. Byggðarlagið er hæfilega flölmennt til að íbúarnir taki þátt í lífi hver annars og beri umhyggju hver fyrir öðrum. Þama kynntumst við vini okkar, Sigurði Viggó Bemódussyni, og fjölskyldu hans. Sigurður féll frá hinn 20. þessa mánaðar langt fyrir aldur frám aðeins 49 ára að aldri. Síðastliðið ár mátti hann beijast við erfiðan og miskunnarlausan sjúk- dóm. Undan því varð ekki vikist þrátt fyrir eðlislægt æðruleysi hans og takmarkalausa ást og umhyggju konu hans, Halldóru Kristjánsdótt- ur, sem ekki vék frá honum í sjúk- dómslegu hans. Sigurður var mikill atorkumaður. Umsvifamikill atvinnurekandi, óþreytandi félagsmálamaður og umhyggjusamur fjölskyldufaðir. Hann var glaðlyndur og bjartsýnn og hafði ekki hom í síðu nokkurs manns. Þau hjónin vom afar sam- hent og afkastamikil í öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur. Sigurður var rafvirkjameistari og rafverktaki og var það aðalstarfs- vettvangur hans. í félagsmálum var hann ætíð einn ötulasti þátttakand- inn hvort sem það var í björgunar- sveitinni, Lionshreyfingunni, ung- menna- og íþróttahreyfingunni eða á öðmm sviðum. Öll þess háttar starfsemi naut góðs af þeim eðlis- þáttum sem vom svo ríkulegir í fari hans og fólust meðal annars í því hve hann var áhugasamur og bóngóður. Hann gekk að hvaða verki sem var með sama hugarfari hvort sem það var forystuhlutverk eða þáttur hins almenna félags- manns. Við undirrituð höfum á|t margar ógleymanlegar samvemstundir með þeim hjónum, Sigurði og Halldóm, og bömum þeirra, Guðrúnu Jónu og Jens Þór. Við höfum notið vin- áttu þeirra og greiðasemi. Við höf- um orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast ljúfmenninu Sigurði Viggó Bemódussyni. Fyrir þetta viljum við þakka um leið og við biðjum Guð að blessa minningu hans og veita aðstandendum hans styrk í sorg þeirra. Guðrún, Halldór og börn. í angist sinni og sorg er heil og sterk vor sál, er henni skilst það kraftaverk sem hvorki jarðneskt vald né vit fær stjómað, en vinnst tveim höndum, sem í bæn er fómað. Þá kveikir nóttin öllum stjömum á og yfír mannsins gröf rís heimur sá, er dýpst í vorri vitund sofíð hefur, sem vemdar, sættir, líknar, fyrirgefur. Hann bíður lengst á bak við þessi tjöld og býður yður velkomin í kvöld. (Tómas Guðmundsson) Elsku amma og afí, Dóra, Guð- rún Jóna og Jens Þór, okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Harðri bar- áttu við illvígan sjúkdóm er lokið og við biðjum góðan Guð að styðja alla þá sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls frænda okkar. Hafdís, Atli; Svanhildur, Krist- ján, Gissur Oli og Elín Kristrún. Mig langar í örfáum orðum að minnast Sigga Viggós í Bolungar- vík, en hann lést 20. september síð- astliðinn eftir veikindi sem reyndust mikið alvarlegri en talið var í fyrstu. Síðast þegar ég var í Bolungarvík í lok febrúar síðastliðins var hann að byija að kenna sér þess meins sem nú hefur leitt hann til dauða. Mín fyrsta minning um Sigga Viggó var þegar ég fékk að fara með honum og Dóru, konunni hans í heimsókn til pabba hans og mömmu og sérstaklega man ég vel hve stolt ég var ein jólin þegar ég þegar ég var í bleika pijónakjólnum mínum í einni heimsókninni. Þetta voru yndislegar stundir. Siggi Viggó átti oft erindi til Akureyrar þar sem ég bý og í eitt skiptið vildi svo skemmtilega til að ég var nýbúin að eignast bam og þá var Siggi mættur með myndavél- ina til að taka myndir svo hann gæti sýnt fólkinu mínu fyrir vestan myndir um leið og hann kæmi aftur heim. Þetta atvik lýsir vel ræktar- semi hans í okkar garð. Hann var alltaf reiðubúinn að leggja fjöl- skyldu sinni lið á alla lund. Siggi var mjög fróður, sérstak- lega um Vestfírði og alltaf þegar eitthvað var að vefjast fyrir okkur var viðkvæðið: „Spyijum sigga, hann veit það.“ Það var líka þegar farnar voru fyöl- skylduferðir, þá var alltaf spurt hvort Siggi og Dóra kæmu ekki með. Það tilheyrði að þau tækju þátt í öllu sem við gerðum. Við eig- t Sr. ROBERT BRADSHAW, sem þjónaði hjá Kaþósku kirkjunni hérfrá 1976-1992, andaðist að morgni 23. september í Rússlandi. Prestar Kaþólsku kirkjunnar. t Eiginkona mín, ÓLÖFINGUNN BJÖRNSDÓTTIR, Ásbraut 15-17, Kópavogi, lést i Landspítalanum 22. september. Magnús A. Magnússon. Lokað Lokum í dag, laugardaginn 25. september, kl. 12.00 vegna jarðarfarar ÖNNU AÐALHEIÐAR ÓLAFSDOTTUR. Ellingsen hf. um ótal góðar minningar um Sigga Viggó. Elsku Dóra, Guðrún Jóna og Jens Þór, missir ykkar er mikill, en um leið er margt að þakka. Megi góður Guð gefa ykkur styrk og stuðning í sorg ykkar. Ingibjörg Sævarsdóttir Deyr fé, deyja frændur deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Þessar línur úr Hávamálum komu mér í hug er ég frétti að vin- ur minn og félagi, Sigurður Bemód- usson hefði látist hinn 20. septem- ber síðastliðinn eftir erfíða sjúkra- legu. Það var fyrir rúmum áratug að leiðir okkar lágu saman er við hitt- umst á aðalfundi Landssambands íslenskra rafverktaka, báðir áhuga- samir ungir menn með félagsmála- hugsjónir. Sigurður var þá stjómar- maður í Félagi rafverktaka á Vest- fjörðum. Ekki urðu fundir okkar margir fyrstu árin en eftir að ég varð formaður LÍR varð samband okkar meira og nánara því að hann var mikill félagsmálamaður og gott að leita ráða hjá honum. Síminn var því oft notaður til að stytta leið- ina vestur. Eftir slík samtöi fór ég oft með gott veganesti í mín störf. í formannstíð Sigurðar hjá FRV gerði hann allt til að vekja áhuga manna á félagsmálum og sem dæmi um það fór hann með aðalfundi FRV á áhugaverða staði ef það mætti verða til þess að auka þátt- töku á þeim. Einn slíkur fundur er mér og eflaust þeim sem hann sóttu mjög minnisstæður, en þá boðaði Siggi alla á fund norður í Djúpuvík á Ströndum. Ég hafði lofað honum að koma á aðalfund hvar sem hann yrði haldinn og hafa með sér starfs- mann samtakanna, Ásbjörn Jó- hannesson, og gitar sem til er frá því á vorfundi á ísafírði. Fundurinn var góður og samveran með þeim Vestfírðingum mun seint gleymast. Margs er að minnast sem of langt væri að telja upp, en ég get ekki látið hjá líða að geta í fáum orðum um störf Sigurðar í þágu Lions- hreyfíngarinnar á Islandi, en þar lágu leiðir okkar einnig saman. Sig- urður starfaði innan Lions af slíkum áhuga og dugnaði að með eindæm- um er og þar var hann kosinn til æðstu forystustarfa. Fyrir þessi störf hans innan Lions vil ég þakka honum sérstaklega. Með Sigurði er genginn einn af baráttumönnum okkar samtaka og er það mikill missir, en missirinn er mestur hjá eiginkonu hans, börn- um og öðrum ástvinum sem sjá á eftir góðum dreng á besta aldri. En orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Fyrir hönd Landssambands ís- lenskra rafverktaka þakká ég þér vinur fyrir samstarfíð og bið að góður guð megi styrkja Halldóru, Guðrúnu, Jens og aðra ástvini í sorg þeirra. Ingólfur Árnason, formaður LÍR. Nú er farið að hausta á íslandi, spunninn er örlagavefur sem enginn fær skilið. Maður á besta aldri er fallinn í valinn. Hann háði hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm, sem á stundum var þeirra gerðar að vonir lifðu um að sigur væri unninn. Sig- urður var gæddur góðum forystu- hæfíleikum sem nýttust vel við störf hans m.a. í félagsmálum rafvirkja og í Lionshreyfíngunni. Sigurður starfaði með okkur í fjölumdæmis- ráði Lionshreyfingarinnar í mörg ár, m.a. sem umdæmisstjóri 1987- 1988 og síðustu árin sem félaga- og útbreiðslustjóri hreyfingarinnar. Öll vinna hans var unnin af mikilli nákvæmni og vandvirkni, sem alla tíð speglaðist í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Starf hans í Lionshreyfíngunni verður okkur öll- um ómetanlegt og lengi í minnum haft. Feijumaðurinn hefur flutt hann yfír móðuna miklu. Erfiðri baráttu er lokið. Við höfum lært margt af allt of stuttum kynnum af Sigurði. Vilji til að sinna félags- málum og gefast ekki upp ein- kenndu hann. Við vottum Halldóru, eftirlifandi eiginkonu hans, og bömum þeirra samúð okkar. Minning hans mun lifa í huga okkar allra. Jón Bjarni Þorsteinsson, Olafur Briem, Daníel Þórarinsson, Halldór Svavarsson, Ingi Ingimundarson og Erlendur G. Eysteinsson. Einn ötulasti félagi innan ís- lensku Lionshreyfíngarinnar og f Lionsklúbbi Bolungarvíkur, Sigurð- ur V. Bemódusson, lést aðfaranótt 20. september sl. aðeins 49 ára að aldri eftir hetjulega baráttu við erf- iðan sjúkdóm. Sigurður gekk til liðs við Lions- klúbb Bolungarvíkur árið 1971. Hann var ávallt mjög virkur í starfí klúbbsins, hvort heldur var á fund- um, sem hann lét aldrei fram hjá sér fara, í nefndum eða við fjár- aflanir og vann störf sín af miklum áhuga og ósérhlífni. Hann var for- maður klúbbsins starfsárið 1976 til 1977. Sigurði voru falin ýmis trúnaðar- störf í þágu Lionshreyfíngarinnar. M.a. var hann umdæmisstjóri í umdæmi 109-B starfsárið 1987- 1988, en í því umdæmi eru allir Lionsklúbbar á svæðinu frá Akra- nesi vestur og norður um, allt til Þórshafnar á Langanesi, og kallar sá starfi á heimsóknir til allra klúbbanna á svæðinu. í því starfi kom kraftur og dugnaður Sigurðar hvað best í ljós. Hann heimsótti alla klubbana í umdæminu, suma oftar en einu sinni. Oftast ferðaðist hann á eigin bifreið og ók þúsundir kílómetra í þágu Lionshreyfingar- innar þann veturinn. Sigurður V. Bernódusson var Lionsmaður af hugsjón. Slíkir menn eru í rauninni burðarásar hver á sínum vettvangi og gera klúbbana, sem og hreyfinguna alla, að þeim öflugu samtökum sem raun ber vitni, félögum hennar og þjóðfélag- inu til hagsbóta. Auk þess að ljá Lionshreyfíngunni krafta sína og að sinna erilsömu starfí, en hann rak rafmagnsverkstæðið Ljósvak- ann, var Sigurður mikilvirkur á öðrum sviðum, m.a. starfaði hann mikið í þágu slysavama. Sigurður var vel máli farinn og oftar en ekki hafði hann eitthvað fram að færa á fundum í klúbbnum, sem varðaði málefni hans eða hreyfingarinnar eða hvernig gera mætti gott starf enn betra. Jafnan var fengur að því sem hann hafði til málanna að leggja fyrir þá sem til heyrðu. Lionsklúbbur Bolungarvíkur hef- ur mikils misst við fráfall Sigurðar og hefur starfsemi sína á nýju starfsári mun fátækari en fyrr. Þó hafa eiginkona hans, dóttir, sonur og aldraðir foreldrar misst mest og færum við þeim og öðmm aðstand- endum okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. F.h. Lionsklúbbs Bolungarvíkur, Jónas Guðmundsson. Dauðinn gerir ekki mannamun og síst hefði mann gmnað að hann myndi sækja heim svo þróttmikinn mann sem Sigurð V. Bernódusson á besta aldri. Eftir hetjulega bar- áttu við illvígt krabbamein lést hann í Landspítalanum aðfaranótt síð- asta mánudags. Sigurður fæddist hinn 17. sept- ember árið 1944 og var því réttra 49 ára er hann lést. Foreldrar hans em þau Bernódus Halldórsson skip- stjóri og kaupmaður og kona hans, Dómhildur Klemensdóttir í Bolung- arvík. Sigurður ólst upp í hópi fjög- urra systkina sinna í Bolungarvík, en hóf ungur nám í rafvirkjun, sem varð ævistarf hans. Dugnaður og atorka einkenndi Sigurð ætíð. Það kom frma í starfi hans, en einnig heima fyrir. Saman skópu þau hjónin, Halldóra H. Kristjánsdóttir kennari og hann, glæsilegt heimili, sem þau lögðu ætíð mikla rækt við. Heimili þeirra bar glöggt vitni um þann mikla myndarskap sem einkenndi þau hjón bæði. Þeim féll helst aldrei verk úr hendi og töldu hvorugt eft- ir sér að taka rösklega til hendi heima fyrir þó að baki væri langur og strangur vinnudagur. Þau vom einkar samhent í þessu sem öðm og fjölskyldulífíð því mót- að af skipulagi og góðum venjum. Það var úr þessum holla jarðvegi sem börnin þeirra tvö uxu úr grasi. Þeirra missir er nú mikill, að sjá á eftir svo góðum og traustum föður, sem í senn var holl fyrirmynd og mikill félagi. Guðrún Jóna er nú að hefja nám í lyfjafræði við Háskóla íslands og hafði í haust stofnað heimili með unnusta sínum, Guð- mundi Sæmundssyni tækniskóla- nema frá ísafirði. Jens Þór er á lokaári í Gmnnskólanum í Bolung- arvík. Það talaðist svo til á sínum tíma að Guðrún Jóna tók að sér að gæta Guðfínns Ólafs, sonar okkar, nokk- ur sumur. Við það eignaðist hann ekki bara góða vinkonu, heldur naut alveg einstaks ástríkis hjá þeim Dóru og Sigga. Einn daginn kom hann heim og sagði að þau vildu að hann kallaði sig Dóru ömmu og Sigga afa! Hjá þeim var hann eins og heima hjá sér og var bókstaflega borinn á höndum heim- ilisfólksins. Hvenær sem eitthvað stóð til hjá okkur var Dóra reiðubú- in til aðstoðar og kallaði í Sigga ef með þurfti. Fyrir nokkrum árum varð það úr að Dóra ákvað að farfa til fram- haldsnáms í Danmörku eftir ára- löng giftudijúg störf við kennslu. Þá var það að Siggi söðlaði um, leigði rekstur sinn og réð sig til starfa í Danmörku. Þetta var þeim góður og lærdómsríkur tími og í samræmi við allt þeirra líf; það er að standa saman og taka þannig þátt í því sem að höndum bar. Þessi samheldni þeirra kom líka í góðar þarfir í margvíslegu félags- starfi. Sigurður var einstakur fé- lagsmálamaður og tók á þeim mál- um af eljusemi, samviskusemi og atorku. í björgunarsveitinni og Slysavarnafélaginu átti hann margt dagsverkið og taldi aldrei eftir sér að taka þar til hendinni í hveiju sem var og hvenær sem var. Hann var forystumaður í félagsstarfi raf- virkja á Vestfjörðum. Síðast en ekki síst var hann Lionsmaður af lífí og sál. Það er ekki ofmælt að hann hafí verið ein helsta driffjöðr- in í starfi Lionsmanna í Bolungar- vík. Seinni árin var eftir því leitað að hann tækist á hendur aukin trún- aðarstörf fyrir Lionshreyfinguna í landinu og var hann þar í fremstu forystusveit. Á vegum Lionshreyf- ingarinnar fór hann til útlanda ásamt konu sinni og var það honum eftirminnilegt. Lionsmenn í Bolung- arvík sæmdu hann æðsta heiðurs- merki Lionshreyfíngarinnar, svo- kallaðri Melvin Jones orðu, fyrir störf sín. Það sýnir best hvemig Sigurður gekk til allra starfa að félagsmál- um, að oft þurfti hann að leggja land undir fót, einkanlega þegar hann var umdæmisstjóri Lions. Hann taldi það aldrei eftir sér. Sett- ist bara inn í jeppann sinn, ók af stað og lagði oft að baki margra klukkustunda leið, jafnvel eftir heil- an vinnudag, til þess að geta sótt þá fundi, sem félagsstarf hans krafðist. Þetta þótti honum bara sjálfsagt og eðlilegt. í einni af perlum Halldórs Lax-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.