Morgunblaðið - 25.09.1993, Side 29

Morgunblaðið - 25.09.1993, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 29 Minning Dagmey Einarsdóttir Fædd 10. janúar 1903 Dáin 12. september 1993 ness er ein sögupersónan látin segja: „Því sem manni er trúað fyr- ir, því er manni trúað fyrir." Þetta gæti hafa verið mottó Sigurðar V. Bemódussonar. Hann axlaði þá ábyrgð sem lífið fól honum, hvort sem það var í starfi, leik eða fjöl- skyldulífi. Slíkur maður skilur eftir góðar minningar. Vonandi verða þær til þess að gera léttbærari hinn mikla missi sem orðið hefur með andláti svo góðs drengs. Ekki síst fyrir Dóru og börnin sem nú sjá á bak ástríkum eiginmanni og góðum föður. Í veikindum sínum sagði Sigurð- ur að hann væri sannfærður um að einhvem tilgang hefði það að leggja á sig þungar byrðar veik- inda. Sjálfur tókst hann á við krabbameinið af þeirri karlmennsku sem honum var í blóð borin. Hann æðraðist ekki. Biturleika var heldur aldrei að finna hjá honum þó að okkur þætti öllum ósanngjarnt og óskiljanlegt að þessi vágestur skyldi einmitt sækja hann heim á góðum aldri og hrifsa til sín úr faðmi góðr- ar fjöls^yldu. Sigurður V. Bernód- usson var maður sem óx við erfið- leikana og sýndi það ekki síst nú síðustu mánuðina. Jafnvel á sjúkra- beðinum síðustu vikurnar, þegar hann var mjög þungt haldinn, spurði hann frétta að heiman og lét sig heldur ekki muna um að gera að gamni sínu við gestina. Þó að Sigurður sé nú allur þá lifir minningin um hann áfram því „orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur“. — Blessuð sé minning hans. Sigrún J. Þórisdóttir, Einar K. Guðfinnsson. í dag verður til moldar borinn Sigurður Viggó Bernódusson. Siggi var fæddur og uppalinn í Bolungar- vík, sonur hjónanna Dómhildar Klemensdóttur og Bemódusar Hall- dórssonar kaupmanns. Við kynnt- umst fyrir rúmum þrjátíu árum þegar við vorum að læra rafyirkjun við Iðnskólann í Reykjavík. Á sama tíma stundaði ung stúlka frá Bol- ungarvík, Halldóra Kristjánsdóttir, nám við Kennaraskólann. Þau felldu hugi saman og fljótlega að námi loknu fluttust þau heim til Bolungarvíkur og stofnuðu þar heimili. Þá höfðum við tengst vin- áttuböndum, sem aldrei hafa rofnað síðan. Siggi var traustur vinur og vel gerður maður, enda alls staðar vel liðinn. Hann stofnaði og rak fyrir- tæki sitt, Ljósvakann, með miklum sóma alla tíð. Hann var gjarnan valinn til forystustarfa. Hjá Lions- hreyfingunni var hann kosinn til trúnaðarstarfa og ferðaðist víða hér heima og erlendis. Á ferðum sínum gisti hann stundum hjá okkur í Kópavogi og þá ræddum við oft lengi saman fram eftir kvöldi. Slysavarnamálin í landinu voru hon- um mjög hugleikin og hann starf- aði mikið í björgunarsveitinni í Bol- ungarvík. Aldrei heyrði ég hann mikla sig eða telja eftir sér öll þau verk sem hann í sjálfboðavinnu leysti svo vel af hendi. Hann var mjög stoltur af konu sinni og böm- unum tveimur, Guðrúnu Jónu og Jens Þór. Hann var þeim alltaf trúr og góður heimilisfaðir og kunni vel að meta við Dóru að alltaf hefur hún staðið við hlið hans í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Rakel, dóttir mín, var eitt sinn hjá þeim sumarlangt og alltaf hefur þeirra gestrisna heimili staðið okkur opið. Það var fróðlegt að aka um með Sigga því að hann þekkti landið svo vel. Minnisstæðar eru ferðir sem við Magga fórum með Dóru og Sigga, t.d. bíltúr út í Skálavík. Eina ferð ber þó hæst. Þá fórum við með bát yfir Leirufjörð og vorum í nokkra daga. Það var gengið upp að Drangjökli, inn í Hafnarfjörð og ýmislegt fleira skemmtilegt gert. Þessari ferð gleymum við aldrei. Þó að við Magga byggjum í Bandaríkjunum í áratug slitnaði ekki sambandið við Bolungarvík. Á ferðum okkar heim til íslands fórum við oftar en ekki til þeirra á Vest- firðina. Tvívegis komu þau til okkar í heimsókn og einnig var Guðrún Jóna hjá okkur sumarið 1986. Þau hjónin lögðu líka land undir fót og bjuggu um tíma í Danmörku. Ég veit að þar leið þeim mjög vel og voru ánægð með dvölina. Elsku Dóra, Guðrún og Jens. Nú þegar Siggi vinur minn hefur orðið að lúta í lægra haldi fyrir þessum illvíga sjúkdómi, sem hann háði svo harða baráttu við, biðjum við góðan Guð að styrkja ykkur. Við hugsum ávallt til ykkar og vottum ykkur og öllum aðstandendum dýpstu samúð okkar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Þorgeir Guðmundsson. Það er með mikilli virðingu sem við í dag kveðjum samstarfsmann og vin okkar, Sigurð V. Bernódus- son. Hann kom til liðs við okkur í Björgunarsveitinni Erni strax eftir heimkomu úr rafvirkjanámi, sem hann hafði stundað í Reykjavík, fyrir 23 árum. Honum voru slysavarnastörf mjög hugleikin enda störfuðu flest- ir hans nánustu af miklum dugnaði að framgangi þeirra. Siggi hafði kynnt sér björgunarstörf fyrir sunn- an og var því valinn til forystu þeg- ar uppbygging sveitarinnar hófst, enda dugnaður hans og ósérhlífni einstök. Það renna um hugann góð- ar minningar um verkefni sem við unnum saman og hann vann af hæfni og velvilja, eins og t.d. fyrstu námskeið fyrir sjómenn um örygg- ismál þeirra, erfíð útköll, plötusalan sem við stóðum fyrir og vinna hans við nýja húsið okkar. Alltaf mátti treysta Sigga fyrir erfíðustu verk- efnunum. Við munum minnast haris þegar við tökum nýja skýlið í notk- un, en það ætlaði hann að gera með okkur ef aðstæður hefðu leyft. Við þökkum fyrir að hafa fengið að njóta samstarfs og leiðsagnar hans og vitum að minning hans mun lifa með okkur í þeim verkum sem hann vann. Elsku Halldóra, þér og börnun-. um, foreldrum Sigurðar og öðrum aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðj- um Guð að styrkja ykkur í sorginni. Blessuð sé minnihg hans. Félagar i Björgunarsveitinni Emi Mig langar að skrifa nokkur orð um hana gömlu fóstru mína, hana Döggu. Ég var hjá henni í tvö ár, 4-6 ára, þegar foreldrarnir mínir veiktust báðir af berklum. Kynni okkar hafa ætíð haldist síðan. Ég held að hún hafi alltaf litið á mig sem eitt af sínum börnum. Dagga var afskaplega léttlynd og kát kona. Hún hafði mikla rétt- lætiskennd og hjálpaði oftþeim sem minna máttu sín. Mamma og Dagga voru saman í verkakvennafélaginu Snót í Vestmannaeyjum. Það var oft gaman að hlusta á þær rifja upp hvað þær gerðu þar. Dagga var hagmælt og saman sömdu mamma Þegar ung kona er kvödd og hefur barist hetjulegri baráttu við æðri öfl og tapað, þá setur mann hljóðan. Við Bryndís töluðum sam- an um það bil vikulega undanfarið ár, báðar búsettar erlendis, og allan þann tíma hefur hún verið að stríða við kvalir vegna veikinda sinna. En alltaf var það sama sagan þegar ég spurði hana um líðan: „Jú, jú, ég hef það ágætt." En það mátti merkja á okkar síðustu símtölum, að rnátturinn var að þverra. Ég dáist að æðruleysi þessarar ungu konu og dugnaði. Hún fór í viku ferðalag með fjölskyldu sinni fyrir um það bil þrem vikum síðan, svo veik sem hún var. Það má segja, að það hafí verið sama, hvað á gekk, alltaf var hún jafn róleg og bjartsýn og jákvæð á framtíðina. og hún bæði ljóð og leikrit á skemmtunum félagsins. Ég á einnig ljóð eftir Döggu. Eiginmaður Döggu var Ólafur Bjarnason. Bjuggu þau allan sinn búskap í Vestmannaeyjum. Óli var sjómaður. þau eignuðust fjögur börn, Kristínu, Finnboga, Birnu og Dalrósu, en hún lést þegar hún var 12 ára gömul. Þau ólu einnig upp Dalrósu, sem var barnabarn þeirra. Óli andaðist fyrir rúmum 20 árum. Dagga varð að flytjast upp á land eins og aðrir Vestmanneyingar í gosinu. Hún bjó í Síðumúla þar sem margir Vestmanneyingar bjuggu á þessum árum. Þegar dvalarheimili aldraðra var opnað í Eyjum var hún með þeim fyrstu sem fluttust þang- að. Þau hjón tóku sig upp og fluttust til Svíþjóðar fyrir um það bil þrem- ur árum. Þá átti að byija frá byijun í nýju landi af krafti, bjartsýni, eft- irvæntingu og spenningi. Það gekk allt einsog við var að búast, maður gengur á vegg hér og þar í byijun. Það er meira en að segja það að flytjast búferlum með tvö böm. Tungumálið er fyrsti veggurinn og ekki sá síðasti. Það er eitt og annað erfítt viðfangs í kerfínu. En þau vom búin að komast yfír það versta, yfír vestu hindranimar. Þá er barið að dymm og hin óyfir- stíganlegu veikindi dynja yfír. En þau stóðu samán eins og klettur í þessu eins og öðru. Ég vona að guð verði með þér, Biggi minn, í þess- ari miklu raun, því að það birtir alltaf upp um síðir. Og það að eiga Dagga var mikil hannyrðakona. Mikið er til af myndum sem hún saumaði og mörg teppi heklaði hún. Eftir að ég fór að búa var hún hjá okkur um tíma á hveiju sumri, meðan heilsa leyfði. Það var alltaf gaman þegar hún kom hress og kát. Dagga var afskaplega dugleg. Sem dæmi um það er að henni fannst ómögulegt annað en áð hjálpa til við heyskapinn. Hún mok- aði jafnvel votheyi á færiband með kvísl og þá var hún komin yfir sjö- tugt. Dagga mín var nú búin að vera mikill sjúklingur í nokkur ár. Ég veit að Óli, Dalrós og fleiri ástvinir hafa tekið fagnandi á móti þér. Elsku Dagga mín, minningin um þig mun ætíð ylja okkur. Mamma, Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir, biður fyrir kveðjur og þakk- læti fyrir allt gamalt og gott. Ég og fjölskylda mín sendum okkar bestu samúðarkveðjur. Ingigerður Antonsdóttir. tvö mannvænleg börn gefur mikið til að líta fram á veginn fyrir. Gangi þér allt í haginn í framtíðinni. Eg votta allri fjölskyldu þinni og henn- ar dýpstu samúð mína. Peta. Mig langar til að kveðja frænku mína, Bryndísi Bjarnadóttur, með fáeinum orðum. Örlögin höguðu því þannig að við frænkurnar sáumst síðast rétt áður en hún fluttist bú- ferlum til Svíþjóðar og ekki óraði mig þá fyrir því að það yrði okkar síðasta stund saman í þessum heimi. Skömmu eftir þá kveðju- stund hófst barátta við erfið veik- indi sem urðu henni um megn. Nú hrannast upp minningar frá því að ég var lítil stelpa í pössun hjá Beisý frænku og þar fékk ég iðulega uppáhalds spaghettíréttinn minn sem aðeins hún gat búið til. Elsku Beysí, missir þinn er mik- ill, en minningin lifir. Biggi og böm, Guð gefí ykkur styrk í sorg ykkar. Unnur Konráðsdóttir. + Ástkœr móðir okkar, BJÖRG ANNA SIGVALDADÓTTIR frá Hrafnabjörgum í Svínadal, Snæfellsási 6, Hellissandi, varð bráðkvödd 22. september 1993. Ingibjörg Óskarsdóttir, Jónína B. Óskarsdóttir, Sigvaldi H. Hrafnberg. £ Útför eiginmanns míns, PÉTURS L. GOLDSTEIN, loftskeytamanns, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 27. september kl. 13.30. Fyrir hönd dætra, tengdasona og barnabarna. Hlín Guðjónsdóttir. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, dóttur, systur og ömmu, GUÐRÚNAR KJARTANSDÓTTUR, Brekkulandi 1, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir flytjum viö starfsfólki Krabbameinsdeildar Landspítalans. Ársæll Ársælsson, Kjartan Þór Ársælsson, Ársæll Ársælsson, Jóhanna Einarsdóttir, Leifur Sveinn Ársælsson Kjartan Gíslason, Þórleyf Guðjónsdóttir, systkini og barnabörn. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrir- vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. + Sambýlismaður minn, ÓLI LÚÐVÍK LAXDAL, sem lést í Borgarsprtalanum þann 7. september, hefur verið jarð- settur í kyrrþey. Allir þeir sem sýndu okkur samúð og vináttu fá bestu þakkir frá allri fjölskyldunni. Gunnhildur Eiriksdóttir, Skúli Hersteinn Oddgeirsson. + Hjartanlegar þakkir sendum við öllu því fjölmarga fólki nær og fjær sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför, SIGURJÓNS M. JÓNASSONAR bónda, Syðra-Skörðugili, Skagafirði. Sigrún Júlíusdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. + Innilegar þakkir færum við þeim, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför móður okkar, GUÐRÚNAR HALLSDÓTTUR frá Gri'shóli. Kristján Jóhannesson, Leifur Kr. Jóhannesson, Sigriður Jóhannesdóttir, Hallur Jóhannesson og fjölskyldur. Bryndís Bjarna- dóttir — Minning

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.