Morgunblaðið - 25.09.1993, Síða 32

Morgunblaðið - 25.09.1993, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 1 4 > T. > STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) ** Það er margt að gerast í samkvæmislífmu í dag og þú hefur vart tíma til að sinna verkefni úr vinnunni. Njóttu lífsins. Naut (20. apríl - 20. maí) Upplýsingar sem þú færð um viðskipti í dag eru ef til vill ekki nákvæmar. Þú ert með hugann við ferðalög og afþreyingu. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Ekki eyða óþarflega miklu við innkaup dagsins. Það gæti verið misráðið að halda boð í kvöld og betra að vera með fjölskyldunni. Krabbi (21. júní - 22. júlí) >“$£ Maka getur greint á við inn- kaupin en að öðru leyti verð- ur dagurinn ánægjulegur. Hafðu hófsemi í hávegum í kvöld. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Láttu ástvin vita um tilfinn- ingar þínar. Horfumar í peningamálum fara batn- andi. Þú gerir góð innkaup í dag. Meyja (23. ágúst - 22. september) <jP> Þú vilt gjaman halda áfram viðskiptum sem lofa góðu enda hefur (járhagurinn batnað. Skemmtun getur verið kostnaðarsöm. (23. sept. - 22. október) Þú nýtur þín vel í sam- kvæmislífinu í dag. En þótt þú skemmtir þér vel er betra að varast laumuspil í ástar- málum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þú vinnur að breytingum heima fyrir í dag. Það væri heppilegra að eyða kvöldinu út af fyrir þig en að bjóða heim gestum. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Ekki trúa öllu sem þér er sagt varðandi viðskipti sem eiga að gefa góðan arð. Þú hefur gaman af að heim- sækja vini í kvöld. Steingeit (22. des. - 19. janúar) m Þú ert á réttri leið að settu marki og þér gefst tækifæri til að auka tekjumar. Var- astu samt óþarfa eyðslu. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Nú væri upplagt að skreppa í smá ferðalag eða svipast um í nágrenninu. Viðræður við sérfræðing gefa þér góða hugmynd. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) SSt Þú ert á báðum áttum varð- andi þátttöku í samkvæmi þar sem þú þarft að vinna verk heima. Þú átt von á aukatekjum. Stjörnusþána á aó lesa sem dægradv'ól. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staóreynda. UOSKA FERDINAND SMÁFÓLK Heldurðu að það sé hægt að kom- Það efa'ég, af hverju spyrðu? Ég var bara að velta því fyrir mér. ast yfir vatnið á strandbolta? BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson Eftir opnun suðurs á sterku laufi taka sagnir heldur óskemmtilega stefnu. Settu þig f spor suðurs: Norður 4 K865 ¥ KIO ♦ ÁDG3 * ÁK6 Vestur Norður Austur Suður — — 1 lauf 1 hjarta 1 spaði Pass ? Með einum spaða sýnir makker 8+ HP og a.m.k. fimmlit. Með fjór- lit á móti í spaða sýnist blasa við rétt séað spila spaðasamning (hugs- anlega slemmu) en sá er galli á gjöf Njarðar að makker verður sagnhafí. Ekki svo að skilja að ástæða sé til að vantreysta félaga, heldur líst þér illa á að fá út hjarta í gegnum kóng- inn. Spilið kom upp í keppni í Banda- ríkjunum í fyrra (Reisinger) og þar fundu þeir Tom Sanders og Bill Pollack eftirfarandi lausn á þessum vanda: Suður gefur; AV á hættu. Vestur 4 104 ¥ ÁG9742 4 965 4 107 Norður 4 ÁDG32 ¥ 865 ♦ K102 4 85 III Suður Austur 4 97 ¥ D3 ♦ 874 4 DG9432 4 K865 ¥ KIO ♦ ÁDG3 4 ÁK6 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 lauf 1 hjarta 1 spaði Pass 1 grand Pass 3 grönd Pass 4 tíglar Pass 5 tíglar Pass 6 tíglar Pass Pass Pass Snotur slemma og sú eina sem vinnst. Fyrir þessar sagnir fengu þeir félagar viðurkenningu IMPA (Alþjóðasambands bridsblaða- manna), svokölluð Romex verðiaun, sem veitt eru fyrir bestu sagnröð ársins. Það er kannski vafasamt að gagn- rýna „bestu sagnröðina", en dálka- höfundi þykir samt nokkur heppnis- bragur á þessum sögnum. f fyrsta lagi líst mér betur á að segja strax tvo tígla við einum spaða til að svæla út 3-litar-stuðninginn. f annan stað gat norður gefið makker sínum meira svigrúm með því að segja bara tvö grönd, ekki þijú. Þá gæti suður sagt afslappaða þijá tígla. En hitt er mjög rökrétt að keyra í slemmuna eftir að búið er að finna 4-3 samleguna, því það verður að teljast ólfklegt að norður sé með tvflit í hjarta og þijá hunda í laufi (vestur sagði aðeins eitt hjarta og austur studdi ekki litinn). SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á millisvæðamótinu í Biel í Sviss í sumar kom þessi staða upp í skák unga hollenska stórmeistar- ans Loeks Van Wely (2.585), sem hafði hvítt og átti leik, og svissn- eska alþjóðlega meistarans Luc- ans Brunner (2.475). Svartur lék síðast 29. — Hd7-dl í erfíðri stöðu. 30. Bd5+! og svartur gafst upp, þvi hann verður mát eftir bæði 30. - Hxd5, 31. De6+ - Kh8, 32. De8+ og 31. - Kf8, 32. Hfl+ og 30. — Dxd5, 31. De8 mát. Lagleg línurofsflétta, sem hefði einnig gengið upp þótt hvíta peðið á b3 væri ekki til staðar og þá verið ennþá glæsilegri. Um helgina: Haustmót Tafl- félags Reykjavíkur hefst sunnu- daginn 26. september kl. 14 í Faxafeni 12. Lokaskráning í dag, laugardag, frá 14-22 í símum TR 681690 og 813540.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.