Morgunblaðið - 25.09.1993, Síða 37

Morgunblaðið - 25.09.1993, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1993 37 Alþýðuflokkurinn á villigötum Frá Sveini E Hanssyni: í febrúar á þessu ári urðu tölu- verð blaðaskrif og fréttaflutningur ljósvakamiðlanna um embættaveit- ingar Alþýðuflokksins til flokks- manna sinna. Þessar embættisveit- ingar sem þá var rætt um voru bara lognið á undan storminum, því síðan hefur ýmislegt gerst. Jón Sigurðsson var skipaður seðlabankastjóri af Sighvati Björg- vinssyni, Eiður Guðnason var skip- aður sendiherra í Osió af Jóni Bald- vin Hannibalssyni og síðast en ekki síst þá skipaði stórstjarna þeirra Hafnfirðinga, Guðmundur Árni Stef- ánsson, flokksbróður sinn, Karl Steinar Guðnason, forstjóra Trygg- ingastofnunar ríkisins. (Mikið var nú stjörnuhrapið í Hafnarfirði.) Að sjálfsögðu vissu allir að Karl Steinar fengi þessa stöðu, (sama hversu margir sóttu um hana), því að það var samið um þetta þegar að það var ákveðið að það yrði ekki viðhaft prófkjör í Reykjaneskjör- dæmi hjá Alþýðuflokknum fyrir síð- ustu kosningar. (Þeir vissu nefnilega um tvö embætti sem fljótlega los- nuðu, sem þeir telja sig eiga.) Svona hagar Alþýðuflokkurinn sér aftur og aftur, þótt hann segist vera á móti slíkum stöðuveitingum og saki aðra um enn meiri spillingu. Til þess að fá fóllk til þess að gleyma þessu þyrlar formaður flokksins og utan- ríkisráðherra upp miklu moldviðri í sambandi við Hagkaupsskinkuna og Bónus-kalkúninn, svo fólk hafi um eitthvað annað að tala. Svo koma þeir félagar, Jón Bald- vin og Sighvatur, fram í fjölmiðlum og segja: „Við viljum ekki koma í veg fyrir að fátækt fólk fái að kaupa ódýrt kjöt.“ Betra ef satt væri, því hverjir voru það sem komu hinum illræmda matarskatti á, á sínum tíma. Jú, það voru Jón Baldvin, Sighvatur og fleiri meðreiðarsveinar þeirra úr Alþýðu- flokknum. Af öllu þessu má sjá, að það er ekki að marka eitt einasta orð frá þessum mönnum í Alþýðuflokknum, sama hvort það eru fyrrverandi stór- stjörnur úr Hafnarfirði eða pólitískir galdrameistarar af Vestfjörðum. Því segi ég: Landsmenn góðir. Kjósum aldrei aftur Alþýðuflokkinn! SVEINN E. HANSSON, Bræðraborgarstíg 2.4a, Reykjavík. Pennavinir Frá Ghana skrifar 24 ára karl- maður með áhuga á íþróttum og tónlist: Gamaliel K. Sackey, Old Towe, P.O. Box 1276, Oguaa, Ghana. LEIÐRÉTTINGAR Hagkaup ekki Clara Þau mistök urðu í neytendaum- fjöllun Daglegs lífs s.l. fimmtudag að þijár snyrtivörutegundir; varalit- ur, andlitsfarði og augnháralitur frá Cliniqúe voru sagðar samtals 812 kr. dýrari í Snyrtivöruversluninni Evitu en í Snyrtivöruverslun Clöru. Hið rétta er að þær voru 812 kr. dýrari en í Hagkaup. Beðist er vel- virðingar á þessum mistökum. Dublin Helgi Pétursson hjá Samvinnu- ferðum/Landsýn benti á að rangt hefði verið eftir sér haft í Ferðablað- inu að 3.500 manns hefðu farið til Dublin í fyrra. Hið rétta sé að fimmtudaginn 23. þ.m. hafí 3.500 manns átt bókað far þangað. Að- spurður vildi Helgi ekki gefa upp fjölda farþega til Dublin í fyrra. VELVAKANDI THEÓDÓR Halldórsson, yfir- maður hjá skrúðgörðum Reykjavíkurborgar, hringdi til Velvakanda með athugasemd við klausu Þórdísar sem birtist í Velvakanda fýrir nokkru þar sem hún talaði um hundaskít fyrir sunnan Hljómskálann. Hann segir að sá skítur sé ekki eftir hunda heldur gæsir. Bæði álftir og gæsir sitji þarna í hóp- um og bíti gras og þá gefur augaleið að þær skili einhveiju frá sér. Hann segir að eftir að þeir hættu að slá í haust beri meira á þessum óþrifnaði. The- ódór sagði að hundum og þá ekki síður hundaeigendum væri kennt nóg um þannig að ekki væri vert að bæta á þá því sem þeir ættu ekki. Þó vildi hann gleðja Þórdísi með því að menn hjá skrúðgörðunum ætla að slóðadraga flatirnar' og vonast með því þá dragi úr þessum sóðaskap. INNKAUPAKÖRF- URÁFERÐ OG FLUGI HELGA hringdi til Velvakanda og vildi koma því á framfæri við fólk að það gengi frá inn- kaupakörfum á sinn stað þegar búið væri að nota þær. Hún kvaðst hafa farið í Bónus í Hafnarfirði sl. miðvikudag og þá hafi fokið karfa á bílinn hennar og stórskemmt hann. Hún sagði að þeir Bónusmenn segðu að fólk tæki því fremur illa ef það væri beðið að ganga frá körfunum og þyrftu þeir oft að borga tjón af þeirra völdum. Þeir væru þó tryggðir fyrir þessu en það breytti því ekki að það kæmi sér mjög illa fyrir fólk að verða fyrir því að körf- umar skemmdu bíla þess. Helga er 75 ára og sagðist eiga erfítt með að fara með bílinn á verk- stæði og þurfa að sækja hann aftur. Hún vildi eindregið beina því til fólks að ganga nú frá innkaupakörfunum svo fólk þyrfti ekki að verða fyrir óþæg- indum af þeirra völdum. GÓÐ ÞJÓNUSTA ÞÓ AÐ seint sé langar mig að benda á mjög góða þjónustu hjá Alþjóða verslunarfélaginu, Skútuvogi 11, Reykjavík, og einnig hjá versluninni Rafbraut sf., Bolholti 4, Reykjavík, en sú verslun sér um viðgerðarþjón- ustu fyrir áðumefnt fyrirtæki. Sl. vor þurfti ég á þjónustu þess- arra fyrirtækja að halda og var sú þjónusta sem veitt var þeim báðum til mikils sóma og vil ég hér með þakka fyrir hana. Sóley Benna Guðmundsdóttir, Ásholti 1, Mosfellsbæ. TIL STUÐNINGS DAVÍÐ Ei ska! tala undir rós né yrkja bull né gjálfur. Davíð er mitt leiðarljós líkt og drottinn sjálfur. Pétur TAPAÐ/FUNDIÐ Gullkross og lykla- kippa töpuðust LÍTILL gullkross á keðju og lyklakippa með mynd af trölli töpuðust einhvers staðar á milli háskólans og miðbæjarins fyrir nokkru. Finnandi vinsamlega hringi í síma 13308 eftir kl. 17. Sjal í óskilum SJAL eða slæða var tekin í misgripum í Sundlaug Kópa- vogs í vor. Eigandi má hafa samband í síma 42258. Ermahnappur tapaðist SPORÖSKJULAGAÐUR erma- hnappur með rauðum rúbín- steini tapaðist annaðhvort við giftingu í Bústaðakirkju eða í veislu eftir brúðkaupið á Hótel Sögu laugardaginn 18. þ.m. Finnandi vinsamlega hringi í síma 34366. Giftingarhringur tapaðist Á HRINGFERÐ um landið fyrir u.þ.b. ári týndist frekar stór karlmannsgiftingarhringur með áletruninni „Þín ída“. Letrunin gæti þó hafa máðst af. Hafí einhver fundið hringinn er hann vinsamlega beðinn að hafa sam- band í síma 98-21598. Varningur týndist í Fríhöfninni Á HEIMLEIÐ frá Edinborg tap- aðist í fríhöfninni í Keflavík poki með slæðu, hálsfesti o.fl. laugardaginn 18. þ.m. Hafi ein- hver fundið þennan poka er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 666410. Týnt hjól DOKKBLÁTT Mongoose Switc- thbac-fjallahjól hvarf frá Álfta- mýri 75 19.-20. september. Hjólsins er mjög sárt saknað. Hafí einhver orðið þess var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 39004. Svartur klútur með kögri FYRIR nokkru tapaðist svartur klútur með kögri. Finnandi vin- samlega hringi í síma 11261. Gleraugu töpuðust GLERAUGU töpuðust við beijatínslu í Grafningi sunnu- daginn 12. september. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 39242 eða 621414. Lyklar fundust ÞRÍR lyklar á bandi fundust í Skipholti á móts við Gúmmí- vinnustofuna. Upplýsingar í síma 16363 eftir kl. 17. Hjól fannst STELPUHJÓL fyrir 4-5 ára, fjólublátt með hvítu stýri, fannst við Suðurhóla í Breiðholti fyrir nokkru. Upplýsingar í síma 76791. Seðlaveski tapaðist SVART seðlaveski tapaðist í miðbænum sl. miðvikudags- kvöld. í veskinu voru skilríki, atvinnuskírteini vélstjóra o.fl. Finnandi vinsamlega hringi í síma 683538. GÆLUDÝR Kettlingar ÞRJÁ fallega tveggja mánaða kettlinga vantar gott heimili sem fyrst. Upplýsingar í síma 653672. HRAÐLESTRARNAMSKEIÐ - NAMSTÆKNI Viltu margfalda afköst í starfi og námi um alla framtíð? Viltu lesa meira af góðum bókum? Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju? Skráðu þig þá strax á næsta hraðlestrarnámskeið sem laust pláss er á, en það hefst miðvikudaginn 6. október nk. Næsta námstækninámskeið sem laust pláss er á , hefst 23. október. Skráning alla daga f sfma 641091.___________“ HRAÐLESTRARSKOLINN ...við ábyrgjumst að þú nærð árangri! K! 1978- 1993 C1 Svissneskur hótel- og ferðamálaskóli 34 ára reynsla - 1 eöa 2ja ára námskeiö á ensku Hótelrekstrarnámskeið sem lýkur með prófskírteini - Almennur rekstur og stjórnun - Þjálfun í framkvæmdastjórn HCIMA réttindi. Námið fæst viðurkennt í bandariskum og evrópskum háskólum. Ferðamálafræði lýkur með prófskírteini - Feröaskrifstofunámskeið viðurkennt af IATA/UFTAA - Þjálfun í framkvæmdastjórn Skrifíð til: HOSTA HOTEL AND TOURISM SCHOOL, 1854 D Leysin, Switzerland. Sími: 9041-25-342611 - Fax: 9041-25-341821. HOSTR SIEMENS — \ A Rafmagnsofnar frá Siemens í miklu úrvali mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmtm SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 SÍM.I 628300 ieiðir til betri árangurs Myndin fjallar um helstu þætti sem góður starfsmaður þarf að hafa í huga til þess að ná betri árangri í starfi. Mynd sem borgar sig. myncihærhf. Suðurlandsbraut 20, símar 35150 og 31920, fax 688408.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.