Morgunblaðið - 12.10.1993, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993
Rúmlega þrítugnr
Islendmgfur myrtur
í Kaupmannahöfn
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdottur, frettaritara Morgunbladsms
ÍSLENSKUR Hafnarbúi, Þór Sævarsson, 31 árs gamall, var myrtur
af dönskum vini sínum aðfaranótt sunnudags. Mennirnir höfðu
haft náið samband um hríð, en þegar Þór vildi slíta því gat vinur
hans ekki tekið því og varð Þór að bana. Banamaðurinn hringdi
í lögregluna og situr nú í gæsluvarðhaldi. Hann verður látinn
sæta geðrannsókn.
Þór heitinn hefur búið í Kaup-
mannahöfn í tæp þijú ár. Kvöldið
fyrir atburðinn var hann einn heima
og hafði samband við bróður sinn,
sem einnig býr í borginni, og sagð-
ist ætla að taka kvöldinu með ró.
Líklega hefur vinur hans komið
seinna um kvöldið. Banamaðurinn
hefur sagt lögreglunni að þeir hafi
kynnst í gegnum sambandsauglýs-
ingar í dönsku smáauglýsingablaði
og tekið upp samband, sem staðið
hefur í sjö mánuði. Þór vildi slíta
því og bjóst ekki við að þeir hittust
aftur, en vinur hans, sem bjó á Lá-
landi, var ósáttur við að svo færi.
Stunginn í svefni
Banamaðurinn er atvinnulaus og
ekki heill á geðsmunum, en hefur
verið í meðferð. Þór hafði lagst til
svefns, þegar vinur hans réðst að
honum og stakk hann til bana með
eldhúshníf. Banamaðurinn kallaði á
lögregluna en reyndi einnig að stytta
sér aldur með því að skera sig á
púls, en var ekki í lífshættu.
Þór heitinn hafði töluvert sam-
band við íslendinga í Kaupmanna-
höfn. Hann átti marga kunningja í
þeim hópi og þótti rólegur og dag-
farsprúður maður og var vel af hon-
um látið.
Fréttin um morðið kom í dönskum
blöðum í gær. í Politiken var sagt
stuttlega frá atburðinum, án þess
að tilgreint væri um málsatvik eða
þjóðerni hins látna. í Berlingske Tid-
ende var greint frá málsatvikum, en
sú meinlega villa var í fréttinni að
banamaðurinn væri íslenskur. Blaðið
hefur verið beðið um að leiðrétta
fréttina. í Ekstra Bladet voru mynd-
ir frá því er banamaðurinn var leidd-
ur út og af börunum með hinum
látna. I meðfylgjandi frétt kom fram
að sá látni væri útlendingur, en ekki
hverrar þjóðar hann væri.
Góöur afli í Smug-
unni undanfarið
VEL HEFUR aflast í Smugunni undanfarinn sólarhring og lítið ver-
ið um smáfisk í afla. Utgerðarmenn skipa í Smugunni funduðu í
Reykjavík í gær og vilja þeir fá skýr svör frá stjómvöldum um áfram-
haldandi veiðar á þessu hafsvæði. Grænfriðungar hafa látið af að
trufla veiðar íslensku skipanna og hefur ekki orðið vart við þá í
nokkra daga.
og lítill smáfiskur í afla. Hafa Norð-
menn ekki framkvæmt mælingar um
borð í skipinu í nokkra daga. Snæ-
fugl mun væntanlega leggja af stað
heim í dag og er væntanlegur um
næstu helgi. Að sögn Jónasar Har-
aldssonar skrifstofustjóra LÍÚ verða
þá haldin sjópróf vegna hegðunar
grænfriðunga á miðunum í síðustu
viku.
Útgerðarmenn funda
Útgerðarmenn skipanna í Smug-
unni héldu fund í Reykjavík í gær
þar sem þeir ræddu framhald veiða
á þessum slóðum. Að sögn Kristjáns
Ragnarssonar, formanns LÍÚ, finnst
útgerðarmönnunum að dregist hafi
úr hófi hjá stjómvöldum að taka
afstöðu til þessara veiða. Upphaf-
lega hefðu stjórnvöld óskað eftir því
að skipin færu ekki til veiða í Smug-
unni þö jafnframt hafi komið fram
að réttarstaða Norðmanna væri
mjög óljós á þessu svæði. Skýr af-
staða stjórnvalda í þessu máli þyrfti
að koma fram. Komið hefði í ljós
að veiðar í Smugunni væru arðbær-
ar og með veiðunum þar hefði feng-
ist þekking og reynsla sem nýtast
myndi í framtíðinni.
í dag
Sjö barna móöir
Rekur ieikskóla á Akureyri 20
Ráðstefnuland
ísland fær góð meðmæii 29
Skák__________________________
Ótrúiegur reiknihraði Anands 30
íslandshestar á Ítalíu
Amor frá Keldudal afiífaður 32
Leiðari
Að læra af Japönum 22
íþróttir
Snorri Rútsson þjálfar ÍBV
- Islandsmeistaramir í körfu-
knattleik kvenna og karla
töpuðu fyrsta Ieik - ísland
gerði jafntefli í Finnlandi.
Samkvæmt skeyti sem barst frá
Snæfugli SU í gær hefur ekki orðið
vart við grænfriðunga síðan fyrir
helgi og virðast þeir hafa látið af
aðgerðum sínum í bili. Góð veiði
hefur verið undanfarinn sólarhring
Góð loðnuveiði
4.700 kr. fást
fyrir tonnið
GÓÐ loðnuveiði hefur verið
útaf Vestfjörðum en 10 bátar
stunda nú veiðamar. Um 410
þúsund lestir af loðnu hafa
borist á land á vertíðinni.
Albert GK var á leið til Akur-
eyrar með 730 tonn af loðnu.
Sævar Þórarinsson skipstjóri
sagði að vel aflaðist á miðunum,
loðnan væri væn en nokkuð af
smáloðnu innanum. Verð til sjó-
manna hefur hækkað og fást
nú 4.700 kr. fyrir tonnið af
loðnu og borguðu verksmiðjurn-
ar 5.000 kr. fyrir tonnið þegar
minnst aflaðist.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Slysagildra?
BREKKAN bak við hús Tónlistarskólans á Akureyri og Náttúru-
fræðistofnunar Norðurlands við Hafnarstræti er smám saman að
hrynja og jarðvegur undir brúnni frá Sigurhæðum að kirkjutröpp-
um hefur grafist burtu. Halldór Pétursson jarðfræðingur hjá
Náttúrufræðistofnun Norðurlands sagði að menn hafi verið að
horfa upp á fyllur hrynja niður úr brekkunni, en veggur sem
reistur var fyrir nokkrum árum hefur bjargað miklu. Hann sagði
að brekkan gæti gefið sig hvenær sem er, mest hreyfing væri á
jarðvegi í asahláku, verst væri ástandið þegar skiptust á frost
og þíða og færi það því eftir veðurfari hversu hratt hryndi úr
brekkunni.
Tveir þingmenn
Framsóknarflokks
Þingsálykt-
unumland-
ið sem eitt
kjördæmi
TVEIR þingmenn Framsóknar-
flokksins, Jóhannes Geir Sigur-
geirsson og Finnur Ingólfsson,
hafa lagt fram tillögu til þings-
ályktunar á Alþingi um að
kannaðir verði kostir þess að
gera landið að einu kjördæmi
í kosningum til Alþingis.
Vilja þingmennirnir að Alþingi
kjósi nefnd tveggja fulltrúa frá
hvetjum þingflokki til þess að
skoða kosti þess að landið verði
eitt kjördæmi og jafnframt verði
hugað að því á hvern hátt þessi
breyting geti tengst hugmyndum
um tilfærslu verkefna frá ríkinu
til héraða.
Mikilvægt að breytingar dragi
úr spennu
í greinargerð með tillögunni
segja þingmennirnir m.a. að mikil-
vægt sé að breytingar á kjördæma-
skipun og kosningalögum dragi úr
spennu á milli landsbyggðar og
höfuðborgarsvæðis. „Hugmyndir í
þá átt að jafna atkvæðavægi á
grundvelli núgildandi skiptingar
landsins í kjördæmi eða með því
að fjölga kjördæmum í Reykjavík
og Reykjanesi ganga hins vegar í
þveröfuga átt. Hætt er við að með
því yrði enn aukið á kjördæmatog-
streitu,“ segja þeir.
Forstjóri íslenskra aðalverktaka segir að athugun farí fram
Vegalagning í Kína
á algjöru frumstigi
ÍSLENSKIR aðalverktakar hafa sýnt áhuga á því að taka að sér
lagningu vega í Hebei-fylki í Kina, eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu sl. sunnudag. Samkvæmt upplýsingum Stefáns Friðfinnsson-
ar, forstjóra Aðalverktaka, fer nú fram athugun á vegum fyrirtækis-
ins á möguleikum í þessa veru og segir hann fulltrúa Vegagerðar
ríkisins, sem nú er staddur í Kína hafa heimild til þess að nefna
nafn Aðalverktaka í þessu sambandi. „Málið er á algjöru frum-
stigi,“ sagði Stefán í samtali við Morgunblaðið í gær.
íslenska ríkið er meirihlutaeig-
andiað Aðalverktökum. Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að þessi áhugi Aðalverktaka á
verkefnum í Kína væri tilkominn í
eðlilegu framhaldi af því að fyrir
nokkrum árum hefði verið mótuð
stefna sem byggði á því að æskilegt
væri að halda Aðalverktökum sam-
an sem verktökufyrirtæki. „Meðal
annars þess vegna hafa Aðalverk-
takar leitað fyrir sér erlendis með
verkefni. Það hafa þeir gert víðar,
eins og til dæmis í Eystrasaltslönd-
unum,“ sagði utanríkisráðherra.
„Við höfum fullan áhuga á að
kanna þetta mál og ef það reynist
mögulegt að hagnast á því að
byggja vegi í Kína og nota til þess
íslenskt hugvit, þá erum við mjög
reiðubúnir til þess að skoða það,“
sagði Stefán.
Forstjóri Aðalverktaka kvað fyr-
irtækið vera í stakk búið til þess
að gera ýmislegt, enda væri mikið
af hæfu fólki starfandi hjá Aðal-
verktökum, starfsfólki sem hægt
væri að senda í sérstök verkefni
hvert sem væri. Hann sagði þá hjá
Aðalverktökum nú bíða þess að fá
fregnir af því hvað hefði komið út
úr viðræðum fulltrúa Vegagerðar-
innar og Kínveijanna, áður en
ákvörðun yrði tekin um næsta skref.
Komhlaðan tekur við Búlandi
KORNHLAÐAN hf. hefur tekið við rekstri, öllum fasteignum og
vélum og tækjum Búlands hf., áður Fóðurvörudeildar Sambands-
ins. Gunnar Jóhannsson forstjóri Kornhlöðunnar vildi ekki gefa
upp kaupverð.
Fóðurvörudeildin var áður hluti
af Jötni hf., dótturfyrirtæki Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga.
Þegar Jötunn var seldur Ingvari
Helgasyni hf. í ársbyijun fylgdi
Fóðurvörudeildin ekki með í kaup-
unum og var stofnað sérstakt félag
um hana. Fasteignir Búlands hf.
voru tvær, verksmiðja og vöru-
geymsla, á Korngörðum 6 og 7.
Þá tók Kornhlaðan við öllum vöru-
birgðum Búlands, bæði hráefnis-
birgðum og fullunnum birgðum.
Gunnar sagði að birgðirnar væru
borgaðar mjög hratt en fasteignirn-
ar væru að hluta greiddar með
yfirtöku áhvílandi veðlána og hluti
gerður upp. Kornhlaðan tók við
rekstrinum í gærmorgun en starf-
semin var með sama sniði í gær
og hún hefur verið.
Liður í uppstokkun
„Það hefur ekkert breyst í starf-
seminni að svo komnu máli en það
verða örugglega einhvetjar breyt-
ingar. Það er ljóst að þessi markað-
ur hefur verið að minnka og það
er verið að reyna að gera hagstæð-
ari einingu með þessu. Þetta er
aðeins liður í uppstokkun á heildar-
skipulagningu í landbúnaði. Það er
þrýstingu á alla að lækka vöruverð
og ekki síst bændur. Það hafa þrjú
fyrirtæki verið að framleiða það
fóður sem selt er á Suðvesturlandi
og það eru of margar verksmiðjur
á litlum markaði," sagði Gunnar.
Hann sagði ekki útilokað að til enn
frekari samruna fyrirtækja í þess-
um iðnaði kæmi.
Kornhlaðan er í eign Mjólkurfé-
lags Reykjavíkur og Fóðurblöndun-
ar og kvaðst Gunnar eiga von á
því að í framtíðinni færðist þessi
framleiðsla inn í þau fyrirtæki.
Gunnar sagði að ekki kæmi til
uppsagna meðan fyrirtækið yrði
rekið í óbreyttri mynd en hjá Bú-
landi hf. unnu fimmtán starfsmenn.