Morgunblaðið - 12.10.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.10.1993, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1993 Þrjátíu ára þing- mennsku- afmæli MATTHÍAS Bjarnason, þing- maður Sjálfstæðisflokksins og 1. þingmaður Vestfirðinga, átti 30 ára þingmennskuafmæli í gær. Samkvæmt athugun skrif- stofu Alþingis er Matthías 30. þingmaðurinn í hópi þeirra sem átt hafa sæti á Alþingi í 30 ár eða lengur. Matthías varð 11. landskjörinn þingmaður í kosningunum 9. júní 1963 og kom fyrst til þings 10. október þá um haustið. Ragnar Arnalds, þingmaður Alþýðu- bandalagsins, tók einnig í fyrsta sinn sæti á Alþingi sama dag og Matthías en hans þingseta hans hefur ekki verið samfelld síðan. Matthías Bjarnason Matthías hafði fjarvistarleyfi á Alþingi í gær en Salóme Þorkels- dóttir, forseti alþingis, færði hon- um árnaðaróskir við upphaf þing- fundar í gær. Átján mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt og svik SKÚLI Sigurðsson, 50 ára lögfræðingur, hefur verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi og sviptur lögmannsréttindum í þijú ár fyrir að hafa gerst sekur um fjárdrátt, umboðssvik, skjalafals og misnotkun skjals á árunum 1987 til 1991. Maðurinn var ákærður og sakfelldur fyrir að hafa komist yfir um það bil 7,3 milljónir króna, annars vegar með því að draga sér og nota í eigin þágu fé sem hann hafði innheimt fyrir fimm viðskiptamenn sína og hins vegar með því að misnota umboð til lántöku og veðleyfi sem umbjóðendur hans létu honum í té til þess að veðsetja fasteignir þeirra. Dómurinn telur sannað að lögmaðurinn hafi ráðstafað lánsfénu í eigin þágu. í nóvember 1990 fengu hjón á fólksins til tryggingar á 8. og 9. Seltjarnarnesi lögmanninum í hend- ur tvö veðleyfi vegna fyrirhugaðrar 1.850 þúsund króna lántöku þeirra hjá Húsnæðisstofnun sem þau kváðust hafa ætlað lögmanninum að hafa milligöngu um. Talið er sannað að lögmaðurinn hafí án heimildar strikað út prentuð ákvæði um væntanlegan veðhafa, bætt inn á skjalið að veðleyfm næðu einnig til undirritunar lánsskjala og síðan notað þau til að veðsétja fasteign VEÐUR IDAG kl. 12.00 Heímild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspó kJ. 16.15 í gær) VEÐURHORFUR I DAG, 12. OKTOBER YFIRLIT: Yfir Grænlandi, íslandi og hatinu suðurundan er víðáttumikil 1.030 mb hæð. SPÁ: Fremur hæg norðaustanátt á öllu landinu. Hvassast þó austan- lands. Þar má einnig búast við smá slydduéljum en annars staðar verð- ur víðast bjartviðri. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG, FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðaustan strekkingur norðaustanlands á miðvikudag en annars fremur hæg breyti- leg átt. Smá él verða norðaustan til á landinu en annars verður léttskýj- að víðast hvar. Að deginum verður kaldast um þriggja stlga frost en hlýjast um þriggjá stiga hiti. Búast má við talsverðu frosti að næturlagi. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað r r r * / * *** r r * / * * f f f f * f * * * Rigning Slydda Snjókoma Alskýjað V $ V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaörimarvindstyrk, heil fjööur er 2 vindstig.^ 10° Hitastig V Súld = Þoka stig.. FÆRÐA VEGUM: iku 7.301 gær) Þjóövegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Víða er þó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam- kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabíium, Gæsavatna- leið fær til austur frá Sprengisandi. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í stma 91-631500 og ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 2 iéttakýjaö Reykjavík 3 léttskýjað Bergen 12 skýjað Helsinki 11 skýjað Kaupmannahöfn 14 alskýjað Narssaresuaq 0 heiðsklrt Nuuk 3 heiðskírt Ósló 8 skýjað Stokkhólmur 10 alskýjað Þórshöfn 7 rigning Algarve 17 skúr Amsterdam 17 halfskýjað Barcelona 23 skýjað Berlín 16 skýjað Chicago 1 þokumóða Feneyjar 18 skýjað Frankfurt 16 skýjað Glasgow 12 skýjað Hamborg 13 rigning London 18 skýjað LosAngeles 18 þokumóða Lúxemborg 15 skýjað Madríd 17 skýjað Malaga 21 skýjað Mallorca 23 léttskýjað Montreal 0 skýjað NewYork 6 léttskýjað Orlando 21 þokumóða París 19 skýjað Madeira vantar Róm 24 skýjað Vín 15 léttakýjað Washlngton 4 alskýjað Winnipeg -M léttskýjað veðrétti á tveimur handhafaskulda- bréfum sem hann seldi í Kaupþingi fyrir 1.713 þúsund krónur sem lagðár voru inn á tékkareikning lögmannsins. Báðu um útvegun greiðsluerfiðleikaláns Fyrir dómi sagði hann að hjónin, sem þekktu hann persónulega, hafi lánað sér veðleyfi þar sem hann hafi sjálfur þurft á láni að halda. í niðurstöðum dómsins er því hafnað og sagt að gögn málsins bendi ekki til þess að kærendurnir haft verið í stakk búnir til að veita honum þá aðstoð en fólkið bar fyrir dómi að hafa leitað til lögmannsins í því skyni að hann aðstoðaði þau við að útvega greiðsluerfiðleikalán frá Húsnæðisstofnun ríkisins. Þá var maðurinn sakfelldur fyrir að hafa fengið í hendur umboð frá hjónum til að taka fyrir þeirra hönd lán í veðdeild Landsbanka eða ann- arri lánastofnun fyrir 3,5 milljónir króna en að hafa misnotað aðstöðu sína sem handhafi umboðsins með því að hafa án vitundar umbjóðend- anna skuldbundið þau sem veðþola og manninn sem skuldara sam- kvæmt handhafaskuldabréfi fyrir 2 milljónir króna á 14. veðrétti á fast- eign þeirra og nýtt í eigin þágu þær 1.660 þúsund krónur sem Kaupþing greiddi honum fyrir bréfið, að frá- töldum 331 þúsund krónum sem hann lagði inn á tékkareikning mannsins, auk þess sem hann greiddi hjónunum síðar 550 þúsund til að komast hjá kæru. Hjónin sýknuð í innheimtumáli Lögmaðurinn bar fyrir dómi að hann hefði beðið hjónin að lána sér veðleyfi. Kaupþing hafði hins vegar fengið í hendur yfirlýsingu sem lög- maðurinn hafði útbúið í því skyni að greiða fyrir sölu bréfsins um að andvirði bréfsins yrði varið til lækk- unar á skuldum húseigendanna og í ljósi þess skjals og þess framburð- ar hjónanna að þau hefðu leitað til lögmannsins eftir aðstoð í ijárhags- erfiðleikum var þetta brot mannsins talið sannað. í niðurstöðum dómsins kemur fram að þessi hjón hafi ver- ið sýknuð í dómsmáli sem Kaupþing höfðaði til að reyna að innheimta skuldabréfin. Lögmaðurinn var einnig sakfelld- ur fyrir að hafa dregið sér um fimm milljónir króna sem hann hafði inn- heimt hjá skuldunautum fímm við- skiptamanna. Einn viðskiptamann- anna fékk síðar uppgert að fullu frá lögmanninum og tveir fengu hluta fjárhæðarinnar endurgreidd- an, samtals 1,5 milljón króna. Einn þessara viðskiptamanna gerði skaðabótakröfu í dómsmálinu á hendur lögmanninum og voru hon- um dæmdar 195 þúsund krónur úr hendi hans. 36,9 millj. kr. gjaldþrot Fram kemur í dóminum að bú lögmannsins hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta á síðasta ári og hafí lýstar kröfur numið 36,9 millj- ónum króna. „Ekki verður séð að ákærði hafi haft nokkra möguleika á að standa skil á þeim fjármunum er hann komst yfir,“ segir í niður- stöðum Hjartar O. Aðalsteinssonar héraðsdómara, sem við ákvörðun refsingar leit til hins mikla fjár- hagstjóns sem lögmaðurinn hafði valdið með athæfi sínu og er óbætt að mestu leyti. Auk fyrrgeindrar refsingar, 18 mánaða óskilorðsbundinnar fang- elsisvistar, sviptingar málflutnings- réttinda í 3 ár, og greiðslu skaða- bóta, var maðurinn dæmdur til að greiða saksóknarkostnað og máls- varnarlaun veijanda sína, samtals 180 þúsund krónur, svo og annan sakarkostnað. Prestar eiga fund með kjaranefnd í vikulok Höfum mátt bíða leiðréttingar í 4 ár PRESTAFÉLAG íslands mun eiga viðræður um launahækkun prest- um til handa á fundi með kjaranefnd nk. föstudag. Fullmótuð kröfu- gerð verður ekki lögð fram á fundinum en að sögn Kristins Á. Frið- finnssonar, sem á sæti í stjórn Prestafélagsins, myndi félagið sætta sig við úrskurð Kjaradóms á síðasta ári, en það þýddi að lágmarki 50-60 þúsund kr. Iaunahækkun á lægstu launin. Kristinn sagði að prestar hefðu í raun mátt bíða í fjögur ár eftir leið- réttingu sinna iauna þar sem al- mennur vilji var til þess þá að laga launin. Kjaramál presta voru sett undir Kjaradóm árið 1990 með lög- um frá Alþingi. „Við fengum úr- skurð frá Kjaradómi í fyrra sem var mjög ásættanlegur en hann var síð- an tekinn til baka. Við höfum verið í biðstöðu síðan og erum nú komnir undir kjaranefndina," sagði Kristinn. Aðspurður um hvort þetta væri rétti tíminn til að krefjast hærri launa, sagði Kristinn: „Ég get fallist á, að það geti verið rétt að nú sé ekki rétti tíminn. Við spyrjum á móti hvenær sé hagstæður tími fyrir okk- ur? Okkur hefur alltaf verið sagt að bíða,“ sagði Kristinn. Laun við fátækramörk Kristinn sagði að prestar hefðu lág grunnlaun og auk þess álags- greiðslur ofan á þau. „Launin hjá okkur í dag eru við fátækramörk. Prestar eru vissulega misvel settir en þorri stéttarinnar þiggur sín lág- markslaun og lágar álagsgreiðslur ofan á þau. Meðalgrunnlaun eru um 90 þúsund kr. á mánuði hjá prest- um,“ sagði Kristinn, sem er sóknar- prestur í Hraungerðisprestakalli, um 500 manna sókn. Kristinn sagði að aukaverkalaun sín (giftingar, jarð- arfarir, fermingar og skírnir), hefðu á síðasta ári verið um 75 þúsund kr. Kristinn sagði að Prestafélagið hefði lagt fyrir Kjaradóm á sínum tíma nákvæma útlistun á vinnufram- lagi og launakröfum og var prestum úrskurðuð grunnlaun upp á 150 þúsund kr., 165 þúsund og 180 þús- und með álagsgreiðslum en án auka- verkalauna. Kristinn sagði að þessi hækkun yrði prestum ásættanleg. „Það hefur verið skilningur á því lengi að það þarf að laga kjör presta. Prestar hafa setið eftir og hafa ekki þau laun sem eðlilegt gæti talist. Það er að færast ákveðin harka í málið af okkar hálfu. Við sjáum hvernig gengið er frá hlutunum ann- ars staðar,“ sagði Kristinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.